Morgunblaðið - 03.04.2005, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. APRÍL 2005 33
Meginveigurinn er að menn séu
opnir, fordómalausir og hafi hjarta
fyrir myndlist, hlaupi ekki blint
eftir því sem er efst á baugi hverju
sinni því ekkert úreldist eins hratt.
Hér gilda sömu lögmál og með ást-
ina sem er eins og opið úthaf, en
hatrið lokað búr, einneigin þekking
andspænis fáfræði og lífsgleði and-
spænis bölsýni. Að afmá og útiloka
gengur ekki upp nema að byggja
eitthvað gildara upp um leið…
Chaim Soutine var fæddur íþorpinu Smilavichy í ná-grenni Minsk í Litháen
1893, tíundi í röð ellefu barna for-
eldra sinna, faðirinn bláfátækur
klæðskeri enda marga munna að
metta. Ólst þar upp til sautján ára
aldurs þá hann hóf nám við
listakademíuna í Vilna. Læknir
nokkur gerðist velgjörðarmaður
hans og gerði listnemanum mögu-
legt að halda til Parísar þar sem
hann skrifaði sig inn á Akadem-
íuna, sótti hins vegar hinn frjáls-
lyndari skóla Cormons, Atelier
Cormon. Vingaðist við ýmsa lista-
menn frá austrinu einkum Rúss-
landi svo sem Chagall og flutti inn
í „La Ruche“, á Montparnasse
hvar hann hafði komið sér fyrir
ásamt fleiri myndlistarmönnum í
fyrrum vínskála sem var end-
urbyggður í sambandi við heims-
sýninguna 1900. Hittir þar Mod-
igliani fyrir, einnig var hann í
sambandi við Ossip Zadkine, Henri
Laurens og Jules Pascin. Allir
voru þeir alteknir af van Gogh og
fútúrismanum einkum hinum sjón-
ræna áhrifamætti sjálfs vinnslu-
ferlisins, sem varð um leið tengilið-
ur þeirra til úthverfa innsæisins,
expressjónismans. Einmitt þetta
sjón- og skynræna vinnuferli gerði
að verkum að Soutine fór að venja
komur sínar á Louvre, hvar hann
sökkti sér aðallega niður í mynd-
heima El Grecos, Tintorettos, Go-
ya og Rembrandts frá seinna tíma-
skeiði.
Ameríski listjöfurinn Albert
Barnes hreifst af hinni miklu mál-
aragáfu sem hann þóttist sjá í
Soutine og styrkti til dvalar í
Cannes í tvö ár 1923–25 hvar hann
málaði undarlega formaðar lands-
lagmyndir þar sem allt er á hreyf-
ingu um leið og þær búa yfir mik-
illi rýmisvídd. Dálæti málarans á
djúpum og lýsandi ólífugrænum
litum auðsæ.
Soutine var mjög sér á báti ílífsháttum og með honumþróaðist viss tegund sjálfs-
eyðingarhvatar líkt og hjá vini
hans Modigliani, til að mynda eyði-
lagði hann mikinn hluta verka
sinna frá fyrstu árunum í París, en
þar eru til nokkrar hliðstæður.
Einnig þótti hann smáskrítinn,
hrár og ómannblendinn og eru til
af því margar skondnar sögur, í
listaskólanum grúfði hann sig
þannig niður í teikningar sínar, og
tók sér stöðu þar sem lítið sást til
hans, helst aftast upp við vegg
einkum þegar teiknað skyldi eftir
nöktum fyrirsætum/sátum. Soutine
er einkum frægur fyrir málverk
sín af nautakjötskrokkum, sem
hann hengdi upp í vinnustofu sinni,
flugum til mikillar ánægju, málaði
síðan beint eftir þeim. En eftir
nokkra daga höfðu allar flugur á
Montparnasse komið í heimsókn
að segja má, auk þess að stæk
rotnunarlykt lagði um hverfið íbú-
unum til mikils ama, kærðu end-
urtekið til lögreglunnar sem fyrir
rest kom með formalín í farteskinu
og bar á skrokkinn sem hann var
þá með. Aðferðin eitthvað alveg
nýtt fyrir listamanninum sem not-
færði sér hana óspart og gat eft-
irleiðis málað án ónæðis flugna og
mannfólks. Eitt sinn er einn nauts-
krokkurinn hafði þornað upp sendi
hann Pauline spúsu sína til slátr-
arans. Hún kom aftur með könnu
fulla af fersku blóði sem málarinn
bar á skrokkinn með penslum og
sagði svo að aldrei hefði hann séð
neinn slíkan fegurri. Minnir þetta í
og með á osta- og súkkulaðigrafík
Dieters Roth, sem á tímabili fékk
starfsfólk listhúsa til að leggja nið-
ur vinnu og forða sér. Í Kaliforníu
var haft í flimtingum að allar flug-
ur fylkisins hefðu komið í heim-
sókn á sýningu verka hans.
Kjötskrokkurinn sem átti að
vera óður til Rembrandts og
gömlu meistaranna birtist aftur í
málverkum Bacons og síðan fjöl-
mörgum útgáfum í Evrópu og víð-
ar um heimsbyggðina. En hér gaf
Soutine á einn veg tóninn til eft-
irtímans svipað og svo margir fé-
lagar hans á annan. Hátturinn
hvernig listaverk þróast og verður
til, andar á skoðandann og vinnu-
ferlið í það heila, getur allt eins
verið einkamál listamannsins,
áhrifin fyrir öllu. Dregið saman í
hnotskurn efast enginn með hjarta
fyrir málaralist að Chaim Soutine
var einstakur og frábær málari.
Einn hinna stóru í París á þriðja
og fjórða áratug síðustu aldar.
Soutine
La Gaude et les Baous (Gata í Cannes), 1922–23 olía á léreft. Einkasafn í Sviss.
við tvö eigum í hlut, en vonandi
sígum við ekki mikið,“ bætti hann
við með prakkaralega brosinu sínu
sem lýsti upp brún augun undir
derhúfunni. Og við leiddumst út úr
garðinum, tvær lifandi sálir undir
þrútnandi brumi sem spáði enn
nýju vori á vegferð okkar.
Hvernig gátum við rennt grun í
að þetta væri okkar hinsta sam-
fylgd út um sáluhlið? Örfáum vik-
um síðar, þegar fræin, sem hann
hafði sáð og nært með næmum
fingrum, höfðu sent fagurgræn
blöð upp úr moldinni og boðuðu
árvissa blómadýrð, gekk ég inn
um annað sáluhlið – eftir kistunni
hans. Þá fann ég að fundur okkar
við fjölskyldu mína hafði ekki ein-
ungis verið bæn til hennar og virð-
ingarvottur, heldur hugljómun og
skýr fyrirboði þess sem fram-
undan var.
Síðan eru liðin tæp tvö ár. Að
sjálfsögðu hefur fennt í sum spor
og stundum stend ég mig að því að
gleyma ýmsu mikilvægu sem hann
kom í kring í farsælli sambúð okk-
ar og á öðrum vettvangi. Samt býr
hann stöðugt innra með mér og
gengið hans hefur aldrei sigið.
Þegar gamlir vinir hans og sam-
starfsmenn verða á vegi mínum
heyrast líka oft þessi orð. Hann
var ekki bara snjall á sínu sviði.
Hann var umfram allt góður
drengur sem gott er að minnast.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Heimsferðir bjóða helgarferð í beinu flugi til þessarar stórkostlegu
borgar í hjarta Evrópu, þann 5. maí (Uppstigningardag). Budapest er
orðin einn aðal áfangastaður Íslend-
inga, enda býður hún einstakt
mannlíf, menningu og skemmtun
að ógleymdri gestrisni Ungverja. Þú
velur um góð 3ja og 4ra stjörnu
hótel í hjarta Budapest og spenn-
andi kynnisferðir með fararstjórum
Heimsferða.
Budapest
5. maí
frá kr. 36.890
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 36.890
Flugsæti til Budapest,
5. maí með sköttum. Netverð.
Verð kr. 49.790
Flug, gisting, skattar og íslensk
fararstjórn. M.v. 2 í herbergi
í 4 nætur á Hótel Tulip Inn
með morgunmat. Netverð.
Helgarferð á Uppstigningardag - 4 nætur
Skipholti 29a,
105 Reykjavík
fax 530 6505
heimili@heimili. is
Einar Guðmundsson, lögg. fast.
Finnbogi Hilmarsson, lögg. fast.
Bogi Pétursson, lögg. fast.
sími 530 6500
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111