Morgunblaðið - 03.04.2005, Page 37
gerðu hana að sinni og komu henni
svo á framfæri við íslensk stjórnvöld
og við Evrópusamband verkalýðs-
félaga (ETUC). Svona getur nú óttinn
við valdamissi gert menn djarfa og
hrausta. Forsmekknum af því sem
verða mun ef þjónustutilskipunin
verður samþykkt óbreytt eða lítið
breytt hefur ASÍ-forustan fengið að
kynnast við Kárahnjúka og í bygging-
ariðnaðinum á höfuðborgarsvæðinu
þar sem að minnsta kosti 600 manns
eru að ólöglegum störfum að sögn for-
manns Rafiðnaðarsambands Íslands
um mánaðamótin febr.-mars. Það er
von að hann telji ástæðu til að fara
með hátíðis- og baráttudag verkalýðs-
ins á flakk. Nú sýpur ASÍ-forustan
seyðið af undirlægjuhætti sínum og
skammsýni undangenginna ára og
kann fá ráð til bjargar.
„Evrópsk verkalýðshreyfing telur
tillögu framkvæmdastjórnar ESB að
tilskipun um þjónustuviðskipti með
öllu óásættanlega.“ Þannig hefst um-
sögn ASÍ-forustunnar um títtnefnda
þjónustutilskipun. Og stuttu síðar er
bætt við: „Reglan um upprunalandið
er alvarleg ógn við launafólk.“ Þetta
er laukrétt niðurstaða hjá ASÍ-forust-
unni. Sú spurning hlýtur að vakna
hvort ekki sé tímabært að segja skilið
við Evrópska efnahagssvæðið og
hvort kröfu þess efnis muni ekki bera
hátt í kröfugöngu verkalýðssamtak-
anna 1. maí nk. ASÍ-forustan þyrfti
helst að vera sjálfri sér samkvæm.
Þær spurningar hljóta líka að vakna
hvernig nokkur félagi í launþegasam-
tökunum getur bundið trúss sitt við
stjórnmálaflokk sem stefnir að því
leynt og ljós að Íslendingar gangi í
ESB, sem er ógn við launafólk og
reyndar einnig ógn við fullveldi Ís-
lands og hvernig þeir ætla, sem þar
hanga inni, að velja á milli tveggja for-
mannsefna, sem bæði eru vegna skoð-
ana sinna, með öllu óásættanleg og al-
varleg ógn við launafólk?
Höfundur er fv. vitavörður.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. APRÍL 2005 37
UMRÆÐAN
Espigerði 4 – 108 Reykjavík
Höfum fengið í sölu 118,2 fm íbúð á fimmtu hæð í
lyftuhúsi. Frábært útsýni. Eldri innréttingar. Stofa og
borðstofa samliggjandi, 4 svefnherbergi, tvennar svalir í
suður og vestur. Verð 25.millj.
Allar nánari upplýsingar veita sölumenn
í síma 414 6600
LAXAKVÍSL - REYKJAVÍK - RAÐHÚS
Í einkasölu hjá Hraunhamri fasteignasölu fallegt raðhús á tveimur hæðum ásamt kjallara
og bílskúr, samtals um ca 300 fermetrar, vel staðsett á frábærum útsýnisstað í Ártúns-
holtinu. Eignin skiptist í forstofu, gestasnyrtingu, hol, stofu, borðstofu, sólstofu, eldhús. Á
efri hæð er hol, þrjú góð barnaherbergi, hjónaherbergi og baðherbergi. Í kjallara er alrými,
geymsla og vinnurými. Húsið er í góðu ástandi og hefur verið haldið mjög vel við.
Glæsilegur garður með sólpalli og fallegum gróðri. Útsýni. Góð eign. Verð 39,8 millj.
Upplýsingar á Hraunhamri.is og mbl.is og hjá sölumönnum.
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir,
hdl. og lögg. fasteignasali
Opið hús í dag Kl 14.00-16.00
Mjóahlíð 8
Falleg 3ja herbergja íbúð í hlíðunum.
Nýjir gluggar, fallegar innréttingar,
rúmgóð herbergi. Fyrirhugðar múr-
viðgerðir utanhúss í sumar greiddar
af seljanda. Allar nánari upplýsingar
veitir Sveinbjörg í síma 867 2928.
Til sölu eða leigu atvinnuhúsnæði og byggingarlóð
á framtíðarstað í Hafnarfirði
MÓHELLA
Á lóðinni númer 1 við Móhellu í Hafnarfirði, sem 30.000 fermetar að stærð, er til sölu
nýlegt vandað stálgrindarhús sem er 58,5x54,5 metrar að grunnfleti og með 12
metra lofthæð. Húsið er mjög vel staðsett og mun eftir tvöföldun og færslu Reykja-
nesbrautarinnar verða í alfaraleið og liggja mjög vel við umferð. Húseign sú sem þeg-
ar hefur verið fullbyggð er 1. áfangi af 3 áföngum á heildarlóðinni. Í öðrum áfanga má
byggja allt að 8.294 fm. Í þessum áfanga má byggja allt að 4ra hæða hús. Í 3. áfanga
má byggja samskonar hús og í 2. áfanga þ.e.a.s. u.þ.b. 3.200 fm.
Öll lóðin er tilbúin til uppbyggingar og hefur aðkomu bæði frá Móhellu og Íshellu auk
þess að liggja einstaklega vel að nýrri Reykjanesbraut. Í húsnæðinu er mjög vandað
gólf sem þolir þunga umferð. Í húsinu er hlaupaköttur með allt að 10 tonna flutnings-
getu.
Hér er á ferðinni framtíðarbyggingarstaður fyrir hvers konar at-
vinnurekstur. Þetta er eign sem getur hentað vel sem höfuð-
stöðvar fyrir stórt fyrirtæki og eða hýst mörg smærri fyrirtæki.
Óskað er eftir tilboði í húseignina og eða alla lóðina ásamt hús-
eign.
Upplýsingar gefur Brynjar Harðarson
á skrifstofu Húsakaupa eða í síma 840 4040.
Guðrún Árnadóttir viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali
Erum með 59 fm 2ja herbergja
íbúð á 2. hæð í 3ja hæða fjöl-
býli ásamt bílastæði í bíla-
geymslu. Rúmgott hjónaher-
bergi, baðherbergi m. kari,
eldhús með borðkrók og stór
og björt stofa. Sameiginlegt
þvottahús á gangi. Íbúðin er til
afhendingar strax.
Anna, s. 695-2506, tekur á móti gestum í dag á milli kl. 13:00
og 15:00. Íbúðin er merkt 02-01. Verð kr. 12,9 m.
Vindás – 2ja herb. - Árbæ