Morgunblaðið - 03.04.2005, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 03.04.2005, Blaðsíða 37
gerðu hana að sinni og komu henni svo á framfæri við íslensk stjórnvöld og við Evrópusamband verkalýðs- félaga (ETUC). Svona getur nú óttinn við valdamissi gert menn djarfa og hrausta. Forsmekknum af því sem verða mun ef þjónustutilskipunin verður samþykkt óbreytt eða lítið breytt hefur ASÍ-forustan fengið að kynnast við Kárahnjúka og í bygging- ariðnaðinum á höfuðborgarsvæðinu þar sem að minnsta kosti 600 manns eru að ólöglegum störfum að sögn for- manns Rafiðnaðarsambands Íslands um mánaðamótin febr.-mars. Það er von að hann telji ástæðu til að fara með hátíðis- og baráttudag verkalýðs- ins á flakk. Nú sýpur ASÍ-forustan seyðið af undirlægjuhætti sínum og skammsýni undangenginna ára og kann fá ráð til bjargar. „Evrópsk verkalýðshreyfing telur tillögu framkvæmdastjórnar ESB að tilskipun um þjónustuviðskipti með öllu óásættanlega.“ Þannig hefst um- sögn ASÍ-forustunnar um títtnefnda þjónustutilskipun. Og stuttu síðar er bætt við: „Reglan um upprunalandið er alvarleg ógn við launafólk.“ Þetta er laukrétt niðurstaða hjá ASÍ-forust- unni. Sú spurning hlýtur að vakna hvort ekki sé tímabært að segja skilið við Evrópska efnahagssvæðið og hvort kröfu þess efnis muni ekki bera hátt í kröfugöngu verkalýðssamtak- anna 1. maí nk. ASÍ-forustan þyrfti helst að vera sjálfri sér samkvæm. Þær spurningar hljóta líka að vakna hvernig nokkur félagi í launþegasam- tökunum getur bundið trúss sitt við stjórnmálaflokk sem stefnir að því leynt og ljós að Íslendingar gangi í ESB, sem er ógn við launafólk og reyndar einnig ógn við fullveldi Ís- lands og hvernig þeir ætla, sem þar hanga inni, að velja á milli tveggja for- mannsefna, sem bæði eru vegna skoð- ana sinna, með öllu óásættanleg og al- varleg ógn við launafólk? Höfundur er fv. vitavörður. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. APRÍL 2005 37 UMRÆÐAN Espigerði 4 – 108 Reykjavík Höfum fengið í sölu 118,2 fm íbúð á fimmtu hæð í lyftuhúsi. Frábært útsýni. Eldri innréttingar. Stofa og borðstofa samliggjandi, 4 svefnherbergi, tvennar svalir í suður og vestur. Verð 25.millj. Allar nánari upplýsingar veita sölumenn í síma 414 6600 LAXAKVÍSL - REYKJAVÍK - RAÐHÚS Í einkasölu hjá Hraunhamri fasteignasölu fallegt raðhús á tveimur hæðum ásamt kjallara og bílskúr, samtals um ca 300 fermetrar, vel staðsett á frábærum útsýnisstað í Ártúns- holtinu. Eignin skiptist í forstofu, gestasnyrtingu, hol, stofu, borðstofu, sólstofu, eldhús. Á efri hæð er hol, þrjú góð barnaherbergi, hjónaherbergi og baðherbergi. Í kjallara er alrými, geymsla og vinnurými. Húsið er í góðu ástandi og hefur verið haldið mjög vel við. Glæsilegur garður með sólpalli og fallegum gróðri. Útsýni. Góð eign. Verð 39,8 millj. Upplýsingar á Hraunhamri.is og mbl.is og hjá sölumönnum. Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, hdl. og lögg. fasteignasali Opið hús í dag Kl 14.00-16.00 Mjóahlíð 8 Falleg 3ja herbergja íbúð í hlíðunum. Nýjir gluggar, fallegar innréttingar, rúmgóð herbergi. Fyrirhugðar múr- viðgerðir utanhúss í sumar greiddar af seljanda. Allar nánari upplýsingar veitir Sveinbjörg í síma 867 2928. Til sölu eða leigu atvinnuhúsnæði og byggingarlóð á framtíðarstað í Hafnarfirði MÓHELLA Á lóðinni númer 1 við Móhellu í Hafnarfirði, sem 30.000 fermetar að stærð, er til sölu nýlegt vandað stálgrindarhús sem er 58,5x54,5 metrar að grunnfleti og með 12 metra lofthæð. Húsið er mjög vel staðsett og mun eftir tvöföldun og færslu Reykja- nesbrautarinnar verða í alfaraleið og liggja mjög vel við umferð. Húseign sú sem þeg- ar hefur verið fullbyggð er 1. áfangi af 3 áföngum á heildarlóðinni. Í öðrum áfanga má byggja allt að 8.294 fm. Í þessum áfanga má byggja allt að 4ra hæða hús. Í 3. áfanga má byggja samskonar hús og í 2. áfanga þ.e.a.s. u.þ.b. 3.200 fm. Öll lóðin er tilbúin til uppbyggingar og hefur aðkomu bæði frá Móhellu og Íshellu auk þess að liggja einstaklega vel að nýrri Reykjanesbraut. Í húsnæðinu er mjög vandað gólf sem þolir þunga umferð. Í húsinu er hlaupaköttur með allt að 10 tonna flutnings- getu. Hér er á ferðinni framtíðarbyggingarstaður fyrir hvers konar at- vinnurekstur. Þetta er eign sem getur hentað vel sem höfuð- stöðvar fyrir stórt fyrirtæki og eða hýst mörg smærri fyrirtæki. Óskað er eftir tilboði í húseignina og eða alla lóðina ásamt hús- eign. Upplýsingar gefur Brynjar Harðarson á skrifstofu Húsakaupa eða í síma 840 4040. Guðrún Árnadóttir viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali Erum með 59 fm 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í 3ja hæða fjöl- býli ásamt bílastæði í bíla- geymslu. Rúmgott hjónaher- bergi, baðherbergi m. kari, eldhús með borðkrók og stór og björt stofa. Sameiginlegt þvottahús á gangi. Íbúðin er til afhendingar strax. Anna, s. 695-2506, tekur á móti gestum í dag á milli kl. 13:00 og 15:00. Íbúðin er merkt 02-01. Verð kr. 12,9 m. Vindás – 2ja herb. - Árbæ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.