Morgunblaðið - 03.04.2005, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. APRÍL 2005 45
Til sölu glæsilegur M. Benz 230
Elegance. Til sölu glæsilegur M.
Benz 230 Elegance '96, ek. að-
eins 95 þús. Verð aðeins 1.690
þús. Uppl. í 899 9046. Skipti ath.
Subaru Legacy Wagon árg.
1997, 2000 vél, beinsk., ekinn 149
þús. Verð 650 þús. Upplýsingar í
síma 865 0059.
Mercedes Benz árg. '02, ek. 50
þús. km. ML500 SPORT 4X4M. Sá
alflottasti í bænum. Leðurákl.,
sjálfskipting o.fl. Skoða skipti á
ódýrari. Upplýsingar í síma 564
3301.
Jeppar
Jeep Grand Cherokee LTD 2005
Hemi - Nýr. Glæsilegur bíll til af-
hendingar strax, Hemi, 25 pakki,
dráttarbeisli o.fl. Ath. besta
verðið. Uppl. www.automax.is og
899 4681.
Bílavarahlutir
Alternatorar og startarar í
fólksbíla, vörubíla, vinnuvélar og
bátavélar. Á lager og hraðsend-
ingar. 40 ára reynsla.
Bílaraf, Auðbrekku 20,
sími 564 0400.
Ökukennsla
Ökuskóli. Veiti alla þjónustu er
varðar ökukennslu og ökupróf.
Birgir Bjarnason, sími 896 1030.
Ökukennsla
Ökukennsla, endurhæfing,
akstursmat og vistakstur.
Upplýsingar í símum 892 1422 og
557 6722, Guðbrandur Bogason.
Fellihýsi
Truma gasmiðstöðvar
F. felli og hjólhýsi,húsbýla o.fl.
Hitar m/blæstri,Thermost. sér um
rétt hitastig. Engin mengun eða
súrefnistaka í rými. Mjög hljóð-
látar 50 ára reynsla.
Truma umboðið. Bílaraf Auðbr.
20. S,564 0400
Heilsárshús
Heilsárshús til flutnings óskast.
Óska eftir heilsárshúsi (íbúðar-
húsi) til flutnings, 60 fm eða
stærra. Sé um að losa af grunni
ef þarf. Má vera hvaðan sem er
af landinu. Uppl. í síma 899 9192.
Varahlutir
Jeppapartasala Þórðar,
Tangarhöfða 2, sími 587 5058
Nýlega rifnir Grand Vitara '00,
Kia Sportage '02, Pajero V6 92',
Terrano II '99, Cherokee '93,
Nissan P/up '93, Vitara '89-'97,
Patrol '95, Impreza '97, Legacy
'90-'94, Isuzu pickup '91 o.fl.
M. Pajero V6 3000. árg. '91, ek.
199 þús. km. Hann er á flexitorum
og 33" dekkjum á álfelgum, með
sóllúgu og hita í sætum, ekki hef-
ur verið reykt í bílnum. Upplýs-
ingar í síma 897 6764.
Huyndai Elantra árg. 1994. 1800,
beinsk., góður bíll. Verð 150 þús-
und. Uppl. í síma 867 3022.
Ford Explorer Sport Trac árg.
2001, 4x4, hlaðinn aukab. s.s. leð-
ursæti, sóllúga. Ek. 58 þús m. Ath
skipti á bát.
Upplýsingar í síma 892 2030.
Huyndai Accent árg. 1996. 1,5,
beinsk., 3ja dyra, mjög góður bíll.
Verð 190 þúsund. Uppl. í síma
867 3022.
Ford Mustang GT árg. '05.
Mustang GT Premium, fjöllita
mælaborðsljós, 500w Shaker-
hljómtæki til afhendingar strax
á Íslandi, (biðlisti í USA). Uppl.
www.automax.is - S. 899 4681.
RENAULT 19 1996
Ekinn 103 þús. Þarfnast lagfær-
ingar. Vetrar/sumardekk. Verð 70
þúsund.
Upplýsingar í síma 669 1170.
Smáauglýsingar 569 1111 www.mbl.is/smaaugl
Ford F-150 Super Crew King-
Ranch 2002. Hlaðinn aukahlut-
um, vídeó, lcd-skjár, Castano-
leðursæti, litað gler, álfelgur o.fl.
Geggjaður bíll! Verð 2,9 m., góður
staðgreiðsluafsláttur. Upplýsing-
ar í síma 692 1463.
Ford King Ranch F350 2005 -
Nýr. Með nánast öllum fáanleg-
um aukabúnaði frá Ford, gullfal-
legur pallbíll. Ýmsir aukahlutir.
Gott verð. Upplýsingar
www.automax.is - S. 899 4681.
Í 25 nemenda bekk eru 14 sem æfa knattspyrnu, 8 sem æfa handknattleik
og 5 sem æfa báðar greinarnar.
Hve margir æfa hvorki knattspyrnu né handknattleik?
Skilafrestur er til kl. 13 föstudaginn 8. apríl.
Lausnir þarf að senda á vef skólans, www.digranesskoli.kopavogur.is
Ný þraut birtist þar fyrir kl. 16 sama dag ásamt lausn þessarar og
nöfnum vinningshafanna.
Stærðfræðiþraut Digranes-
skóla og Morgunblaðsins
Pera vikunnar:
Páll V. Daníelsson,
fyrrverandi forstjóri
hjá Pósti og síma, er
níræður í dag. Ekki má
minna vera en honum
séu færðar þakkir fyrir
óhvikula baráttu í ára-
tugi fyrir fögru mann-
lífi og gróandi þjóðlífi á
landi voru. Páll var for-
maður Landssam-
bandsins gegn áfengis-
bölinu lengur en
nokkur annar maður
og óumdeildur foringi
þeirra samtaka. Hann
átti drýgstan þátt í því
með stuðningi núverandi forseta Ís-
lands, þá fjármálaráðherra, að Hag-
fræðistofnun Háskóla Íslands kann-
aði hve mikið áfengisneyslan kostaði
þjóðarbúið. Heldur lítið fer fyrir því
að þeir sem tala fyrir auknu aðgengi
að þessu vímuefni vitni í þá skýrslu
enda vafamál að þeir hafi kynnt sér
hana. Hún er ekki heldur til þess
fallin að styrkja blinda trú þeirra á
einkavæðingu áfengissölunnar og
þau öfl innlend og erlend sem maka
krókinn á sölu vímuefnis sem veldur
árlega ótímabærum dauða meira en
helmingi fleiri manna en fórust í
hamförunum við Indlandshaf í vetur
– og það í Evrópu einni.
Páll V. Daníelsson braust úr sárri
fátækt til mennta með dæmafáum
dugnaði og marksækni. Þeir eigin-
leikar ásamt góðri greind og frá-
bærri rökvísi hafa einkennt öll störf
hans. Og þó skiptir ef til vill mestu
PÁLL V.
DANÍELSSON
að undir slær heitt
hjarta, vilji til að koma
hvarvetna fram til
góðs.
Ekki leita vitsmuna-
verur þær sem skolað
hefur inn á Alþingi
ráða Páls, dr. Tómasar
Helgasonar, Þórarins
Tyrfingssonar eða ann-
arra sem vit hafa á um
þau frumvörp sín sem
áfengismálastefnu
varða og færa munu
stórfyrirtækjum tug-
milljóna gróða og þjóð-
inni ófyrirsjáanlegt tap
og auknar hörmungar. Í málatilbún-
aði þeirra gildir lýðskrumið eitt og
ginningar þær sem áróðursmeistar-
ar áfengisauðvaldsins í veröldinni
sníða þeim sem fátækastir eru í
anda.
Ekki er að undra þótt ýmsum
komi í hug að rétt væri að stofna til
öldungadeildar á þjóðþingi Íslend-
inga, eins og tíðkast hefur með ýms-
um menningarþjóðum, til að reisa
skorður við óhappaverkum húskarla
hagsmunaseggja. Þar ætti Páll V.
Daníelsson að eiga sæti. Þó að augu
hans sjái ekki jafnvel nú og þegar
hann var ungur brestur hann ekki
andlega víðsýni og skarpskyggni og
er þar fremri mörgum sem halda
líkamlegri sjón sinni óskertri.
Níræðum öndvegismanni, eigin-
konu hans ágætri og fjölskyldu
þeirra óskum við allra heilla.
Ólafur Haukur Árnason.
Ríkissjónvarpið verður að gæta þess, þeg-
ar það kostar stórfé til þess að kvikmynda
heimildarþætti um íslenska listamenn og
rithöfunda, að sneiða ekki hjá þáttum í lífi
þeirra og samskiptum við samtímamenn
og ferðafélaga. Í kvikmyndaþáttum, sem
sýndir voru nýverið í dagskrá sjónvarps,
var gengið fram hjá nánum félögum Jó-
hanns Sigurjónssonar er gengu með hon-
um um fjöll og firnindi þegar hann sótti sér
efni í leikritið Fjalla-Eyvind. Sú för er svo
merkur þáttur í ævi Jóhanns að það heyrir
til höfuðsynda að sneiða hjá henni.
Í heimildarritinu Öldin okkar, bls. 81 ár-
ið 1908, er birt ljósmynd af Jóhanni Sig-
urjónssyni og þremur ferðafélögum hans,
Stefáni Björnssyni, sem þá kenndi handa-
vinnu og smíðar í Gagnfræðaskólanum á
Akureyri (Stefán varð síðar sparisjóðs-
stjóri í Keflavík). Magnús Magnússon
(sonur Matthíasar Jochumssonar þjóð-
skálds. Sýnir tengsl skáldanna), og Lárus
J. Rist, hinn kunni sundgarpur og hug-
sjónamaður (afi Rannveigar Rist, sem Guð
gefi að vandi sig og hætti að poppa tíví.)
Ljósmynd þessi sýnir að enni Jóhanns
er hátt og hvelft. Þannig hefði hann átt að
vera í þættinum, en ekki með hárið ofan í
augum eins og Stefán var látinn vera í
hlutverki hans.
Ég bið Morgunblaðið að birta ljósmynd
þessa af þeim ferðafélögum og jafnframt
það af textanum sem nauðsynlegt er af því
sem fylgir ljósmyndinni.
Sigurður Nordal ræddi um samhengið í
íslenskum bókmenntum. Þessi för var í
samhengi.
Með kærri kveðju,
Pétur Pétursson þulur.
Samhengið í íslenskum
bókmenntum
Stefán Björnsson sitjandi í miðju, að baki honum Jóhann Sigurjónsson, en
Magnús Matthíasson og Lárus J. Rist honum til vinstri og hægri handar.
MÁLUM hjá mannanafnanefnd hef-
ur fækkað frá því sem var meðan
mannanafnalögin frá 1991 voru í
gildi. Þá virðist nefndin samþykkja
nú fleiri erindi en áður. Þetta kem-
ur fram í skýrslu sem eftirlitsnefnd
með framkvæmd mannanafnalaga
skilaði í fyrradag.
Nefndin hafði áður skilað áfanga-
skýrslu um framkvæmdina en nauð-
synlegt þótti að leggja á ný mat á
lögin og framkvæmd þeirra, nú þeg-
ar allnokkur reynsla hefur fengist
af þeim.
Í skýrslunni er forsaga laganna
rakin og gerð grein fyrir starfi
nefndarinnar, þá er í skýrslunni ít-
arlegt tölfræðiyfirlit yfir fram-
kvæmd laganna og ábendingar um
breytingar. Dómsmálaráðuneytið
mun á næstunni fara yfir ábend-
ingar nefndarinnar í samvinnu við
mannanafnanefnd og Hagstofu Ís-
lands.
Með öðrum ábendingum í skýrsl-
unni má nefna að nefndin bendir á
að skoða þurfi ákvæði 16. gr. lag-
anna með það fyrir augum að börn-
um yngri en 18 ára geti verið heim-
ilt að taka upp nýtt kenninafn.
Atvik geti verið með þeim hætti að
það sé barni einstaklega erfitt að
bera kenninafn, t.d. ef foreldrið sem
barnið er kennt til hefur beitt það
ofbeldi og barnið vill ekki kenna sig
til hins foreldrisins.
Eftirlitsnefnd skilar skýrslu
um mannanafnanefnd
AFMÆLI