Morgunblaðið - 17.04.2005, Page 1
„ÞETTA gengur bara vel,“ sagði Víðir Reynisson, æfingastjóri Hval-
fjarðarganga 2005, en í gær var Hvalfjarðargöngunum lokað vegna al-
mannaæfingar þar sem verið var að samhæfa viðbrögð vegna hópslyss.
Að sögn Víðis var sviðsettur árekstur rútu og fólksbíls neðarlega í
göngunum. „Skömmu eftir að það gerist kemur aðvífandi þriðji bíll sem
sneiðir hjá því að lenda á þessum bílum en lendir á gangaveggnum og í
honum kviknar,“ segir Víðir.
Hann segir á fjórða tug manna hafa komið beint að björguninni.
Slökkva þurfti eld og klippa þurfti bæði fólksbílinn og rútuna til þess að
komast að þeim slösuðu sem skiptu tugum. Síðan þurfti að flytja þá
norður fyrir göng sökum mikils reyks sem myndaðist vegna brunans og
leitaði upp syðri endann.
Alls komu að æfingunni um 200 manns. Hún er sú fyrsta sinnar teg-
undar í veggöngum á Íslandi. Markmið æfingarinnar var að láta reyna
á viðbragðsáætlun Hvalfjarðarganga sem tók gildi í maí í fyrra. Meðal
þeirra aðila sem stóðu að æfingunni voru Neyðarlínan, slökkvilið og
lögregla beggja vegna Hvalfjarðar, embætti ríkislögreglustjóra, Land-
helgisgæslan, Spölur og Landspítali – háskólasjúkrahús. Auk þess
komu tugir manna af Akranesi og úr Reykjavík að æfingunni til þess að
leika slasaða.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sviðsettu árekstur
rútu og fólksbíls
STOFNAÐ 1913 102. TBL. 93. ÁRG. SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Margslungin
persóna
Leikkonan og femínistinn Jane
Fonda skrifar ævisögu sína | 10–11
Tímaritið og Atvinna í dag
Tímaritið | Algjör Smekkleysa Dagur í lífi nunnu Óbæri-
legur léttleiki tilverunnar 35 ára kona með 75 ára gamla
hálsliði Atvinna | Atvinnuleysi minnkar Svíar taka sér frí
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350
Súnnítar reka
sjíta burt
Kut. AFP | Sjítar flúðu í gær burt frá bænum
Al-Madain suður af Bagdad en þá höfðu
vopnaðir menn tekið meira en 80 þeirra í
gíslingu og hótað að drepa þá.
„Vopnaðir menn fara um allt með hátal-
ara og skipa sjítum í bænum að koma sér
burt,“ sagði Haitham Mohammed, foringi í
íraska hernum, en hann flúði ásamt öðrum
til borgarinnar Kut nokkru sunnar. „Þeir
hafa meira en 80 manns á valdi sínu, þar á
meðal konur og börn, og hóta að drepa alla
nema sjítar hafi sig á brott.“
Mohammed sagði, að her- og lögreglu-
menn hefðu farið í borgaralegan klæðnað
og flúið með öðrum og eftir öðrum manni
var haft, að vopnaðir súnnítar hefðu um-
kringt bæinn. Á þessum slóðum er hvað
ófriðlegast í Írak og þar hafa að undanförnu
fundist mörg lík manna, sem höfðu verið
hálshöggnir.
Ráðist á
Kasparov
RÁÐIST var á skákmeistarann
Garrí Kasparov á stjórnmálafundi í
Moskvu í fyrrakvöld og hann bar-
inn í höfuðið. Meiddist hann ekki
mikið en óhugur er í fjölskyldu
hans vegna þessa atviks.
Rússneska fréttastofan Interfax
segir, að Kasparov hafi verið á
fundi með ungu fólki í flokki sínum,
Heiðarlegum kosningum 2008,
þegar ungur maður vék sér að hon-
um og bað hann um eiginhandar-
áritun. Þegar Kasparov bjóst til að
verða við því lét maðurinn skák-
borð vaða í höfuðið á honum og for-
mælti honum um leið.
Sagt er, að árásarmaðurinn sé
félagi í samtökum, sem styðja Vla-
dímír Pútín, forseta Rússlands.
Hefur stofnandi þeirra, Vasílí
Jakemenko, lýst yfir stríði gegn
„hinu óheilaga bandalagi frjáls-
lyndra manna og fasista; manna,
sem eru hlynntir Vesturlöndum,
alþjóðastofnana og hryðjuverka-
manna. Þeir hata Pútín og við lítum
á alla, sem eru á öðru máli en Pút-
ín, sem óvini okkar“.
CONDOLEEZZA
Rice, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna,
fór óvenju hörðum
orðum um Sameinuðu
þjóðirnar í fyrradag.
Sagði hún, að yrði
ekki ráðist í umfangs-
miklar umbætur á
samtökunum, ættu
þau ekkert erindi í al-
þjóðamálum.
Lét Rice þessi orð
falla á ársfundi
bandarískra dagblaðaritstjóra en þar varði
hún þá ákvörðun Bandaríkjastjórnar að út-
nefna John Bolton sem næsta sendiherra
sinn hjá SÞ.
„Það dylst engum, að verði ekki gripið til
umfangsmikilla umbóta innan SÞ eiga sam-
tökin ekkert erindi lengur í alþjóðamálum,“
sagði Rice og bætti við, að það yrði hlutverk
Boltons að reka á eftir væntanlegum um-
bótum. Búist er við, að utanríkismálanefnd
öldungadeildar Bandaríkjaþings greiði at-
kvæði um Bolton í þessari viku en hann hef-
ur verið gagnrýndur fyrir yfirgengileg og
fjandsamleg ummæli um SÞ.
Þurfum á SÞ að halda
en umbóta er þörf
Mary Robinson, fyrrverandi forseti Ír-
lands, sem hér er stödd vegna afmælis Vig-
dísar Finnbogadóttur, var spurð um um-
mæli Rice og sagði þá, í samtali við
Morgunblaðið, að hún gæti tekið undir það,
að umbóta væri þörf innan SÞ.
„Við þurfum samt á SÞ að halda, því al-
þjóðakerfi, sem felst í samtökunum,“ sagði
Robinson og bætti við, að samtökin yrðu að
ráðast gegn fátækt í heiminum, óréttlæt-
inu, sem „stuðlar að óöryggi og spennu í
samskiptum ríkja“.
Robinson leggur áherslu á, að ekki megi
draga úr gildi mannréttinda í hryðjuverka-
stríðinu og hún fer ekki leynt með gagnrýni
sína á Bandaríkjastjórn í þeim efnum.
Um-
breytist
eða deyið
Condoleezza Rice
Þarf að blása/6
ALLIR landsmenn eiga að geta
tengst háhraðaneti árið 2007, sam-
kvæmt fjarskiptaáætlun 2005–
2010 sem ríkisstjórnin hefur sam-
þykkt. Áætlunin tekur mið af þró-
un tækni sem gerir fjarskiptum,
tölvutækni og fjölmiðlun kleift að
renna saman. Einnig til þess mark-
aðsumhverfis fjarskipta sem tekur
mið af samræmdum reglum Evr-
ópusambandsins.
Háhraðatengingar til einstak-
linga, menntastofnana og fyrir-
tækja verða efldar jafnt og þétt
næstu fimm árin. Auka á aðgengi
að GSM-farsímaþjónustu á hring-
veginum og helstu stofnvegum,
ferðamannastöðum og minni þétt-
býlisstöðum þegar á næsta ári. Þá
verði háhraðafarþjónusta byggð
upp um allt land eigi síðar en 2006.
Langdrægt stafrænt farsímakerfi,
sem þjónar landinu öllu og miðun-
um, á að standa til boða eftir að
rekstri NMT-kerfisins lýkur.
Stefnt er að því að allir lands-
menn hafi aðgang að gagnvirku
stafrænu sjónvarpi og að strax á
þessu ári verði í boði stafrænt sjón-
varp um háhraðanet. Þá gerir fjar-
skiptaáætlun ráð fyrir að útvarpað
verði stafrænt um gervihnött um
allt land og næstu mið.
Ísland í fremstu röð
„Það skiptir mjög miklu fyrir Ís-
lendinga að vera vel tengdir og
hafa öflugt fjarskiptakerfi bæði
innanlands og til útlanda,“ sagði
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra í samtali við Morgunblaðið í
gær. Að sögn Sturlu er hugmyndin
sú að fyrirtæki á fjarskiptamarkaði
keppist um að uppfylla markmið
fjarskiptaáætlunar. Þjónusta sem
ljóst væri að
bæri sig ekki á
viðskiptalegum
forsendum yrði
boðin út og
styrkt af fjar-
skiptasjóði.
Víðtækt sam-
ráð og opin um-
ræða var um
mótun fjar-
skiptaáætlunar að sögn Sturlu.
„Ég lagði ríka áherslu á að það yrði
reynt að átta sig mjög vel á því,
með þessu öfluga samráði, hverjar
væru þarfirnar til þess að við-
skiptalífinu, mennta- og rann-
sóknastofnunum og heimilunum
yrði tryggður möguleiki á sem
bestum tengingum svo við gætum
með sanni sagt að Ísland væri í
fremstu röð.“
Háhraðanet til allra
landsmanna 2007
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
Meira á mbl.is/ítarefni
Sturla Böðvarsson
♦♦♦