Morgunblaðið - 17.04.2005, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 23
París
í sumar
frá kr. 24.310
Beint flug - tvisvar í viku
Terra Nova býður beint flug til Parísar tvisvar í viku, frá 16. júní til 31. ágúst. París
er ótrúlega spennandi borg, hvort sem þú vilt þræða listasöfnin, spranga um í Lat-
ínuhverfinu eða njóta lífsins lystisemda.
Einnig bjóðum við hótelgistingu í París
og fleiri borgum. Notaðu tækifærið og
bjóddu elskunni þinni til Parísar.
- SPENNANDI VALKOSTUR
Skógarhlíð 18, 105 Reykjavík, sími 591 9000
www.terranova.is
Akureyri, sími 461 1099
Kr. 24.310
Flugsæti báðar leiðir með sköttum.
Netverð á mann.
„hugsa marxískt“ og gæta orða okk-
ar. En það lærðist. Menn þjálfuðust í
klókindum í umgengni við yfirvöld.
Og þetta var misjafnt eftir sviðum
og viðfangsefnum. Í mínu tilviki var
þetta ekki svo erfitt og sama máli
gegndi um t.d. um mörg svið hagsögu.
Um stjórnmálasögu gegndi öðru máli,
þar urðu menn að fara afar varlega og
fylgja línunni og sum svið, t.d. saga
lýðveldisins Eistlands á millistríðsár-
unum og sovéska hernámsins á
stríðsárunum var látin ósnert. Eng-
um kom til hugar að gera tillögur um
slík rannsóknarefni. Búnaðarsaga,
fornaldar- og miðaldasaga voru á hinn
bóginn vinsæl viðfangsefni og sama
máli gegndi um þjóðfræði og forn-
leifafræði, sem einnig heyrðu undir
sagnfræðistofnun Vísindaakademí-
unnar. Ég var lengi forstöðumaður
hennar og varð að hafa gát á mínu
fólki og reyna að stýra því farsællega.
Til sagnfræðistofnunarinnar töldust
yfirleitt um tvö hundruð manns og
maður varð alltaf að vera á varðbergi.
Allir voru hins vegar klókir, kunnu á
kerfið og aldrei kom til alvarlegra
árekstra, þótt vissulega gæti menn
greint á um eitt og annað. Það reynd-
um við alltaf að leysa í kyrrþey, án
þess að ágreiningur kæmist í hámæli
og oftast tókst það.
Og eitt var betra á þessum tíma en
síðar: við höfðum nóga peninga. Þeg-
ar stjórn Akademíunnar hafði sam-
þykkt verkefni var ætíð séð til þess að
nægir fjármunir væru veittir til þess,
fræðimennirnir þurftu ekki að hafa
áhyggjur af því og öll áhersla var lögð
á gæði ritgerða, t.d. doktorsritgerða.
Ekki skipti öllu máli hvort rannsókn
tók nokkrum mánuðum lengri eða
skemmri tíma. Nú er þetta gjör-
breytt. Nú verða menn að standa í ei-
lífu harki og styrkumsóknum, sem
taka mikinn tíma og eru sálardrep-
andi. Mikil áhersla er nú lögð á að út-
skrifa sem flesta kandídata og dokt-
ora og ég held að það komi a.m.k.
stundum niður á gæðum rannsóknar-
verka. Engu að síður vildi ég ekki
snúa aftur til gamla kerfisins. Þá lifði
maður í raun í stöðugum ótta, vissi
aldrei hvað morgundagurinn bæri í
skauti sér. Nú erum við sjálfstæð,
getum valið okkur hvaða viðfangsefni
sem er, þurfum ekki að óttast afskipti
yfirvalda, og eins og þú veist hef ég
skrifað mikið um utanríkismál að
undanförnu. Það var nánast ómögu-
legt á sovéttímanum, a.m.k. ef maður
ætlaði að skrifa eitthvað af skynsam-
legu viti.“
Skylda að vitna í Marx og Lenín
Þegar sýningin á verkum þínum
var opnuð í háskólabókasafninu á
dögunum veitti ég því athygli, að í
elstu greinum þínum var fyrsta til-
vitnun alltaf í verk Leníns eða Marx.
Var það skylda?
„Já, allir urðu að hafa slíkar tilvitn-
anir, þótt þær væru í flestum tilvikum
merkingarlausar. Það vissu auðvitað
allir, en þetta var hluti af klókindun-
um, sem ég nefndi áðan.“
Þú varst gerður að heiðursborgara
í Tallinn, aðallega fyrir að ná skjala-
safninu frá Þýskalandi. Hvernig
fórstu að því?
„Það er löng saga. Sem ungur nem-
andi í sagnfræði saknaði ég safnsins,
þótt ég hefði vitaskuld aldrei kynnst
því. En kennarar mínir og eldri
starfsbræður töluðu margir um það
með miklum söknuði og sögðu stund-
um, að án skjalasafnsins væru rann-
sóknir á sögu Tallinn og Eistlands á
fyrri öldum marklitlar. Svo gerðist
það árið 1978 að ég fékk styrk til
rannsókna í Vestur-Þýskalandi. Þá
leit ég þetta djásn heimaborgar minn-
ar fyrst augum. Það átti hvergi heima
nema í Tallinn og ég hét sjálfum mér
því að leggja mitt af mörkum til að fá
það heim. Ég leitaði liðsinnis þýskra
sagnfræðinga, sem þótti jafn sárt að
vita þýsku miðaldasöfnin í Moskvu.
Þá fæddist smám saman hugmyndin
um að reyna að koma á gagnkvæmum
skiptum. Í kjölfarið hafði ég samband
við sovéska sendiráðið í Bonn og með
endalausu nuddi tókst að koma af stað
viðræðum á milli Sovétmanna og
Þjóðverja um skipti á skjölum, sem
skipt höfðu um „eigendur“ á stríðs-
árunum. Þær viðræður voru erfiðar
og langdregnar og oft munaði litlu að
upp úr slitnaði. Báðir aðilar voru hins
vegar áfram um að bæta samskipti
ríkjanna og þar gátu svona mál skipt
svo óendanlega miklu máli. Þá er ég
viss um, að það varð okkar málstað til
framdráttar, að vestur-þýsk stjórn-
völd töldu sig með réttu ekki bera
ábyrgð á gjörðum nasista og vildu
gjarnan bæta fyrir misgerðir þeirra. Í
Moskvu vissu menn á hinn bóginn
ekki alveg hvað þeir ættu að gera við
þýsku skjalasöfnin. Þau voru ekki
mikið notuð og fáir aðrir en Þjóðverj-
ar og sérfræðingar í sögu Hansasam-
bandsins höfðu áhuga á þeim. Þýskir
sagnfræðingar höfðu á hinn bóginn
mikið gagn af Tallinnsafninu.
Samningaviðræðunum lauk í júní
1989 er Hans Dietrich Genscher utan-
ríkisráðherra Vestur-Þýskalands og
Edvard Schevardnaze utanríkisráð-
herra Sovétríkjanna gáfu út sameig-
inlega yfirlýsingu um skipti á skjala-
söfnunum. Þá var eftirleikurinn
auðveldur og ekki annað eftir en að
pakka skjölunum niður og flytja þau.
Nú væri sennilega útilokað að koma á
slíkum samningum, enda samskipti
Eistlands og Sovétríkjanna heldur
stirð um þessar mundir. Það má því
segja að við höfum náð málinu í höfn á
síðustu stundu.“
Nú ertu orðinn sjötugur og ferð
senn á eftirlaun. Hvað tekur þá við?
„Ég þarf ekki að kvíða verkefna-
skorti. Verkefnin bíða í hrönnum. Ég
er með bækur og greinar í smíðum og
tek virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi.
Því held ég áfram og á næstu mán-
uðum verð ég mikið á ferð og flugi en
vonast til að fá meiri tíma til skrifta
með haustinu. Starfsævi mín hefur
verið eitt samfellt ævintýr og vonandi
held ég heilsu og kröftum til að halda
áfram rannsóknum og skriftum. Þær
eru mér ástríða ekki síður en at-
vinna.“
Höfundur er sagnfræðingur.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111