Morgunblaðið - 17.04.2005, Blaðsíða 24
24 SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Snemma morguns 9. ágúst,1982 barst okkur skeyti frádr. Louis Rey, sem varstaddur á skipinu Mermoznorður við Svalbarða.
Þennan ágæta mann höfðum við
lengi þekkt af ýmsu merkilegu fram-
taki. Hafði Sigrún kynnst honum,
þegar hún starfaði á franska sendi-
ráðinu. Var Rey þá oft á ferð norður
til Grænlands í einkaþotu sinni, og
þurfti þá að hafa viðkomu á Íslandi.
Ég sat ásamt honum í stjórn Heim-
skautanefndar, sem hafði aðsetur í
Mónakó, og var Rainier III fursti
verndari stofnunarinnar (sjá síðar
um nefndina).
Nú var Louis Rey sem sagt stadd-
ur á skemmtiferðaskipi norður við
Bjarnarey og hringdi hann þaðan.
Sagðist hann vera þar á ferð með
Rainier fursta, konu hans, börnum og
fylgdarliði. Tjáði hann sig vera að
fylgja þessu fólki um heim-
skautasvæði. Hefði verið siglt frá
Frakklandi upp með strönd Noregs,
allt að Svalbarða og síðan væri ætlun
farþega að skoða Jan Majen, Græn-
land og Ísland. Bað hann okkur að
skipuleggja ferð fyrir fjölskyldu
Rainiers fursta, þegar skipið kæmi til
Reykjavíkur. Ég sagði honum, að við
myndum annast þessa fyrirgreiðslu,
og bjóða til hádegisverðar, í laxveiði,
til verslunarferðar og í skoðunarferð.
Síðan fengum við telex frá honum á
skipinu þess efnis, að furstahjónin
þæðu boð okkar með þökkum. Sagði
hann þar, að skipið myndi leggjast að
bryggju í Reykjavík á laugardegi 14.
ágúst, en daginn eftir þann 15. væri
ætlunin að skoða landið, helst fara á
laxveiðar, en einnig sjá Þingvelli og
skoða Gullfoss og Geysi.
Enn barst frá honum telex 12.
ágúst. Þar taldi hann upp þátttak-
endur í ferðinni: Voru þar efst á blaði
furstahjónin Rainier III og Grace
Kelly prinsessa, börn þeirra Albert
krónprins og Carolina prinsessa.
Með í förinni var einnig Louis de
Polignac frændi furstans og síðan
einkaritarinn Raymond Biancheri
ásamt tveimur amerískum vinkonum
furstafrúarinnar. Hétu þær frú Grey
og frú Dale. Þá yrði einnig að telja
með þau hjónin Monique og Louis
Rey, sem höfðu veg og vanda af
heimskautaförinni, og síðan myndum
við Sigrún fylgja þeim. Væri þetta því
tólf manna hópur.
Naumur tími til undirbúnings
Íslandsheimsóknar
Upphófst nú mikill undirbúningur
af okkar hálfu, og vorum við í sam-
bandi við Ólaf Egilsson í utanrík-
isráðuneytinu, sem þurfti að vita um
komu furstahjónanna til landsins.
Þegar skipið Mermoz var að sigla
frá Jan Majen áleiðis til Íslands, lenti
það í þéttum ísfláka, og varð skip-
stjóri að sigla því austur með landi í
stað þess að koma að landinu vest-
anverðu. Seinkaði þetta komu skips-
ins til Reykjavíkur um sex klukku-
stundir og breyttist við það öll áætlun
farþega. Hafði verið ætlunin að koma
árla morguns á laugardegi, 14. ágúst
til Reykjavíkur og fljúga með fursta-
hjónin til Grænlands á þeim degi. Nú
varð að fella niður þá ferð. Vildu
furstahjónin einnig heldur verja
sunnudeginum á Íslandi heldur en að
fara á þeim degi í flug til Grænlands.
Allt þetta var afráðið í skeytum og
viðtölum, sem fóru á milli þeirra á
skipsfjöl og okkar hér í landi.
Dagana 10. og 11. ágúst höfðum við
Sigrún byrjað að gera ýmsar athug-
anir á farartækjum, útbúnaði, leið-
um, veiðimöguleikum og matföngum
fyrir útimáltíð. Hafði furstafrúin látið
í ljós sérstakan áhuga á „lautarferð“,
en vildi síður setjast inn á hótel eða
matsölustað. Til greina kom að halda
upp í Borgarfjörð og veiða í Norðurá
við Laxfoss eða jafnvel að fá að renna
í Soginu á leið frá Geysi. Þar sem
furstinn vildi skoða Þingvelli lá samt
einna beinast við að aka um Kjósina
og fá að renna í Laxá. Varð úr, að ég
ræddi við Pál Jónsson í Pólaris, sem
hafði Laxá í Kjós á leigu. Var hann
fús til þess, að leyfa furstanum að
renna í ána fyrri hluta sunnudags, 15.
ágústmánaðar. Ræddi ég síðan við
Þórólf Halldórsson, sem þá var nem-
andi í lögfræði, en var þaulkunnugur
ánni. Bað ég hann um að vera leið-
sögumaður furstans við þessar veið-
ar. Þá var rætt við hótelstjóra á Sögu
um að útvega þjón, og varð Sveinn
Sveinsson veitingamaður fyrir valinu.
Eftir að hafa spurst fyrir um mat-
argerð á veitingastöðum eða kaup á
tilbúnum mat, ákvað Sigrún að sjá
sjálf um framreiðslu á kosti okkar í
lautarferðina.
Þá upphófst leit að hentugum far-
kosti. Utanríkisráðuneytið bauð af-
not af þremur sex manna bílum, en
furstinn vildi heldur láta alla vera í
sama bílnum. Úr ráði var, að við völd-
um 26 manna ferðabíl frá Guðmundi
Jónassyni. Var bílstjóri hans Guð-
mundur Gunnarsson sonarsonur
Guðmundar eldri, ágætlega lipur
piltur. Við fengum að skoða bílinn, og
kanna sæti og aðkomu í bílinn. Leist
okkur vel á vagninn.
Næst þurfti að útvega borð og
stóla. Fór Sigrún um bæinn og leitaði
að léttum tjald húsgögnum. Að því
loknu fórum við í húsgagnaversl-
unina Bláskóga, sem seldi garðborð.
Keyptum við fimm tréborð og tólf
létta tréstóla, sem fella mátti saman.
Við höfðum látið setja lax í reyk.
Síðan keyptum við nýjan lax frá
Kollafirði, rækjur, hörpudisk, grá-
sleppuhrogn, murtu og hákarl.
Sigrún annaðist matartilbúning og
tók til borðbúnað.
Ég ræddi við Geysisnefnd um hve-
nær ætlað væri að setja sápu í hver-
inn. Þá gerði ég tímaáætlun í samráði
við Gunnar Guðmundsson bílaeig-
anda. Við Ólafur Egilsson ræddum
síðan um löggæslu og ýmislegt í sam-
bandi við komu skipsins á laugardegi,
því hann og franski sendiherrann
ætluðu að fara um borð og heilsa
furstafjölskyldunni og bjóða þau vel-
komin til landsins.
Þá kom okkur saman um að tala
við blaðamenn og biðja þá um að vera
ekki of aðgangsharða í myndatökum.
Buðum við þeim að taka myndir við
Árbæjarsafn og í upphafi veiða við
Laxá og jafnvel við Gullfoss og Geysi.
Ég átti síðan viðtal við Árna Sig-
urjónsson hjá Útlendingaeftirlitinu
og við lögreglu um löggæslu. Var mér
tjáð, að lögreglubílar myndu fylgja á
ferðum okkar.
Því næst hringdi forsetaritari Hall-
dór Reynisson til okkar og sagði, að
bíll forseta stæði til boða til flutnings
furstahjónanna frá skipi. bæði í inn-
kaupaferð þeirra og skoðun borg-
arinnar á laugardegi og til flutnings
að Bessastöðum.
Allt var þetta undirbúið á þessum
fáu dögum 9.–13. ágúst. Hafði verið í
mörg horn að líta. Sveinn veit-
ingamaður kom til okkar og Sigrún
sýndi honum, hvaða mat hún hafði til-
reitt og hvernig hann gæti borið mat-
inn fram. Röðuðu þau diskum og föt-
um á borð, til þess að sjá hvernig
mætti koma þessu fyrir á vænt-
anlegum áningarstað. Síðan skipu-
lögðu þau borðhaldið. Fengum við nú
ágætt tjald hjá bílstjóra, sem hægt
væri að nota, ef aðstæður breyttust
með veður eða aðrar uppákomur
yrðu. Annars var ætlunin, að við fær-
um að Þingvöllum. og þaðan í átt að
Geysi yfir Lyngdalsheiði. Væri þá
unnt að snæða hádegisverð í hell-
inum á Laugardalsvöllum.
Að morgni 14. ágústs lagði Sigrún
síðustu hönd á matreiðsluna og við
fórum yfir skipulagið. Kvöldið áður
hafði ég átt tal við Þórólf leiðsögu-
mann við veiðarnar. Var hann ekki
nógu ánægður með veiðisvæðið fyrir
furstann, taldi meiri veiðivon ofar í
ánni, en að vísu fallegra við fossinn.
Skipið lagðist ekki við Sundahöfn
fyrr en kl 16 þennan laugardag 14.
ágústmánaðar og skömmu síðar
hringdi Louis Rey og ræddi um áætl-
un okkar. Við höfðum fengið boðs-
kort um að koma til kvöldverðar að
Bessastöðum klukkan 20 þetta kvöld.
Ræddu mislitt fé og Galapagos-eyjar
Þangað hafði frú Vigdís Finn-
bogadóttir boðið leiðandi mönnum
þjóðarinnar þeirrar stundar. Þar
voru hjónin Vala og Gunnar Thor-
oddsen, Brynhildur og Albert Guð-
mundsson, frú Halldóra og Kristján
Eldjárn, Sara og Hörður Helgason,
Ólafur Egilsson og fleiri íslenskir
gestir, frönsku sendiherrahjónin,
Monique og Louis Rey, skipherrann
af Mermoz og við Sigrún. Sat Sigrún
á milli skipstjórans og Louis Rey við
borðið, og bað hún skipstjórann að
fresta brottför um nokkra tíma, því
viðdvölin væri of naum fyrir fursta-
fólkið. Fylgdist Carolina með þeim
samræðum og studdi tillöguna. Ég
fékk heiðurinn af að sitja hjá Caro-
linu prinsessu. Ræddum við fyrst um
siglingu Alberts langafa hennar um
Norðurhöf og til Svalbarða, en þau
höfðu nú þrætt svipaðar leiðir. Á
korti við hennar disk stóð Yðar há-
göfgi. Vildi hún að vonum fá að vita
hvað það þýddi. Næst ræddi hún um
verslunarferð þeirra og lopapeysu,
sem hún hafði keypt. Gat hún þess
hve snjallt væri að eiga hér á landi
svona náttúrulega mislitt fé. Flestar
þjóðir hefðu glatað sínu litakyni. Hún
hafði verið á Galapagos-eyjum, sem
henni var ljúft að spjalla um. Var hún
mjög alúðleg og fjörleg í samræðum.
Eftir mat var gengið inn í fremri
salinn, og rætt þar saman um tíma,
þar til komið var fram yfir miðnætti.
Fór fjölskyldan þá í stjórnarbíl til
skips, en við Sigrún héldum heim.
Var nú reynt að hvílast, en brátt
var barið að dyrum, og þar var kom-
inn bílstjóri með tvær Svartadauða-
flöskur. Hafði Vala Thoroddsen
heyrt það á tali Polignacs prins, að
honum hefði þótt gott að bragða á
snapsinum í Noregi, og vildi hún
endilega leggja þetta til lautarferð-
arinnar, svo ljúfara yrði að skola nið-
ur hákarlinum.
Á sunnudagsmorgni hins 15.
ágústmánaðar var Sigrún árla á fót-
um, til þess að leggja síðustu hönd á
matreiðsluna og koma nestinu fyrir í
kössum. Bíllinn frá Guðmundi Jón-
assyni kom svo klukkan 7:30, og bar
Guðmundur Gunnarsson út stóla og
borð og síðan drykkjarföng, mat og
annan farangur. Skömmu seinna
mætti Sveinn Sveinsson veit-
ingamaður, sem fylgdist með okkur
fyrri hluta dagsins.
Var ekið yfir að Sundahöfn og
komið að skipinu, Mermoz kl. 8. Þar
stigu gestir inn í bílinn og var ekið í
austur úr bænum og upp með gömlu
rafstöðinni að Árbæ. Þar við safnið
tók Nanna Hermannsson safnstjóri á
móti okkur og sýndi gestum safnið.
Var farið inn í gamla Árbæjarhúsið,
og þótti gestum gaman að skoða bæ-
inn, einkum hlóðaeldhúsið. Ljós-
myndarar blaðanna voru þar mjög á
eftir gestum.
Þaðan var haldið, sem leið liggur
um Kjalarnes og upp í Kjós. Hjá
veiðihúsinu við Laxá hittum við Pál
G. Jónsson forstjóra, sem hafði ána á
leigu. Þar var einnig Þórólfur Hall-
dórsson laganemi, sem ætlaði að að-
stoða við veiðarnar. Við höfðum
Rainier fursti frá Mónakó
í heimsókn til Íslands
Grace Kelly, Rainier og Albert í Reykjavík.
Albert, Rainier, Carolina og Grace Kelly á Bessastöðum.
Rainier fursti af Mónakó
var borinn til grafar á föstu-
dag og lagður til hinstu
hvílu við hlið Grace, konu
sinnar. Þau hjón komu
hingað til lands 1982, árið
sem Grace lést í bílslysi.
Sturla Friðriksson var með-
al þeirra, sem tóku á móti
hjónunum, og segir hér frá
heimsókninni.