Morgunblaðið - 17.04.2005, Side 28

Morgunblaðið - 17.04.2005, Side 28
28 SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ Fréttir í tölvupósti Þrír veiðimenn koma gang-andi upp frá Ásgarðsbreiðuí Soginu og vaða ökkladjúp-an snjó. Þeir eru kapp- klæddir en sólin hefur fundið sér leið milli skýja og ægibirta endur- kastast af hvítu landinu. Það hlýtur samt að vera sex, sjö stiga hiti þennan sunnudag og flugnasveimur fylgir veiðimönnunum frá ánni. Þeir halda á veiðistöngum og hver með sinn fiskinn, tvo væna sjóbirtinga og eina bleikju. Þetta eru Valur Ketilsson og frændur hans Ólafur og Björn Björnssynir. Þeir eru hluti frændahóps sem kalla sig Hafnamenn; þessa helgina leigðu þeir allar stangirnar fyrir landi Ás- garðs og Bíldsfells og voru að spreyta sig í vorveiðinni, níu sam- an. Systkinasynir úr Höfnum „Fiskurinn fór að taka um leið og sólin sýndi sig,“ segja þeir. „Hann tók svartan nobbler og Köttinn. Og þar var mikið komið í fluguna, ekki beint tökur en smá högg.“ Þeir segja frá frænda sem stóð gegnt þeim um morguninn, vestan við ána. Sá setti Mýsluna undir og fékk góðan fisk til að taka. „Hann var meira uppúr en ofaní!“ segja þeir af þeirri viðureign. Frændurnir stefna nú á veiðihús- ið við veiðistaðinn Gíbraltar, enda kaldir eftir að standa í vatninu allan morguninn. Það er þungfært að húsinu en þegar frændurnir safnast saman á pallinum, segja sögur af veiðiskapnum og njóta dýrlegs út- sýnisins þyrpast flugurnar að. Þetta eru aðrar aðstæður en dag- inn áður, þá var hvasst og skítkalt, segja þeir, enda aflinn rýr; einn merktur niðurgöngulax, sem tekinn var í þágu vísindanna. Þeir frændur eru í fyrsta skipti í vorveiði í Soginu en einhverjir hafa komið hingað í laxveiði. Nú koma síðustu þrír frændurnir í hús, einn leggur ágæta bleikju hjá öðrum fiskum sem komu upp um morg- uninn og segir „Þetta er fallegur dagur – en rooosalega var mikill snjór í morgun! Og vatnið er hrika- lega kalt. Maður getur ekki verið lengi ofan í í einu.“ „Það var svolítil spæling að sjá snjóinn hérna þegar við komum, en við erum búnir að djöflast áfram og berja vatnið: það er ekkert gefið eftir,“ segir Valur. Veiðifélagarnir eru allir í sams- konar svörtum flíspeysum og með húfur í stíl; á flíkunum er merki Hafnamanna. „Við erum systkina- synir, ættaðir úr Höfnum, og höfum veitt saman frá 1994,“ segir Valur. „Við höfum farið víða. Verið í Stóru Laxá, á silungasvæðinu í Vatnsdal, í Vatnsá – en aðallega í Langá. Þar höfum við verið með þrjá heila daga í ágústlok síðustu sjö árin. Svo reynum við að fara styttri túra; stundum förum við dag og dag í Rangárnar, hluti af hópnum. Nú langaði okkur að prófa silunginn hérna.“ Venjulega skipa tólf hópinn og allir mæta í laxveiðina í Langá. „Þar hefur verið mikið fjör – og mikil veiði undanfarin ár. Við erum með allar stangirnar og bjóðum öðrum tólf Suðurnesjamönnum með okkur. Ef einhver dettur út er lagt fyrir nefnd hver fær að koma með. 200 laxa veiði Áin hefur verið að gefa gríðar- lega vel hjá Ingva Hrafni síðustu árin. Hvað náðum við aftur mörgum löxum í fyrra, 198?“ kallar Valur til frænda sinna sem sitja inni í húsi og drekka kaffi. „Þeir voru alveg um 200. Þetta var besta ferðin okkar, við verstu vatnsskilyrðin.“ Er það þetta mikla magn af laxi sem heillar við Langá? „Aðbúnaðurinn er einstaklega góður og þetta er mjög skemmtileg á. Tæplega 100 veiðistaðir af öllum gerðum. Fjallið er allt inni á þess- um tíma og við erum líka að veiða niður á neðstu veiðistaði.“ Valur segja þá frændur standa stíft við. „Menn fara nú fyrr að sofa og vakna fyrr,“ segir hann. „Þetta er farið að snúast um fiskinn núna!“ skýtur einn frændinn inn í samtalið. Valur segir mannskapinn hafa lært mikið á þessum árum, aðeins tveir eða þrír voru vanir veiðum þegar þeir byrjuðu. „Nú hefur færnin aukist og fleiri að flytjast yf- ir í fluguna.“ Eru allir komnir með delluna? „Ég held það sé óhætt að segja það. Dellustimpillinn er kominn á okkur flesta. Það má greina það á stemningunni dagana fyrir veiði- túra.“ Þeir ætla að halda tryggð við Langá meðan veiðist svona vel. „Við erum búnir að koma að henni við allar aðstæður. Við höfum veitt hana sem beljandi fljót og sem allt að því sprænu. Þá læra menn á veiðistaðina og prófa nýja.“ Nú eru menn að ljúka við hress- inguna, blíðviðrið kallar og áin freistar manna. Þeir klæða sig aftur í vöðlur og hlífðarfatnaðinn. „Nú er að koma þeim fisklausu í fisk,“ seg- ir Valur. „Hafnamenn eru ekki van- ir að fara fisklausir heim.“ Vaðið yfir tökustaði En voru þeir með ábendingar um hvar von væri á fiski í Soginu eða óðu þeir bara útí og byrjuðu að kasta? „Við renndum blint í sjóinn. Yf- irleitt eru samt einhverjir búnir að kynna sér aðstæður, lesa sér til og spyrjast fyrir. Við höfðum samt ekkert haldbært um það hvar sil- ungurinn lægi, lásum bara veiði- bækurnar hér og fikruðum okkur áfram. Við erum búnir að fá bleikju, sjóbirting og niðurgöngulax, nánast alla flóruna, við þessar erfiðu að- stæður.“ Einn frændinn sem er að klæða sig aftur í þykkar vöðlurnar, heyrir til hans og segir: „Það er samt frumskilyrði að vaða ekki yfir bestu tökustaðina, eins og gerðist í morg- un.“ „Jújú,“ segir annar. „Það virkar vel í svona kulda. Það vekur fiskinn bara!“ STANGVEIÐI | VEITT MEÐ VALI KETILSSYNI Fiskurinn vakinn Morgunblaðið/Einar Falur Frændurnir Hafnamenn rýna í flugubox á snjóbjörtum degi við Sogið. Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 Í dag er veitt í Soginu með Vali Ketilssyni og frændunum sem kalla sig Hafna- menn. Valur, sem er Keflvíkingur, hefur síðustu þrjú árin verið skrif- stofustjóri hjá flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli. „Tengdapabbi minn, Hilmar Þór- arinsson heitinn, dró mig með sér í veiði fyrir einum átján árum, kenndi mér handbrögðin og þá varð ekki aftur snúið,“ segir Valur. „Golfdellan hefur á síðustu árum verið að víkja fyrir veiðibakteríunni; ég verð að við- urkenna að ég er heltekinn af veiði- áhuga.“ Golfið víkur fyrir veiðinni Valur Ketilsson APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR Góð heilsa gulli betri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.