Morgunblaðið - 17.04.2005, Side 29

Morgunblaðið - 17.04.2005, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 29 FRÉTTIR Sigrún Stella Einarsdóttir lögg. fasteignasali GSM 824 0610 *Skv. lögum nr. 99/2004. Úr 1. mgr. 1. gr. Þeim einum er heimilt að hafa milligöngu um kaup, sölu eða skipti á fasteignum eða skráningarskyldum skipum fyrir aðra sem hafa til þess löggildingu dómsmálaráðherra.“ Kaup og sala fasteigna Ráðgjöf á sviði fasteignaviðskipta Gerðu kröfu um þjónustu löggilts fasteignasala frá upphafi til enda þinna viðskipta.* Sigrún Stella Einarsdóttir, löggiltur fasteignasali, veitir þér ráðgjöf og þjónustu við alla þætti fasteignaviðskipta. Hún fylgir þínum málum eftir frá upphafi til enda. ● Hún skoðar eignina og verðmetur ● Hún aflar allra gagna varðandi eignina ● Hún tekur niður tilboð í eignina ● Hún aðstoðar kaupanda eignarinnar og veitir honum alla þá ráðgjöf sem hann þarf ● Hún sér sjálf um kaupsamning og afsal vegna sölunnar ● Hún er sjálf til aðstoðar ef vanefndir eða gallamál koma upp Hafðu þín fasteignaviðskipti á einni hendi. Það er öruggara. Sími 588 5530 Berg fasteignasala, Háaleitisbraut 58 Sími 588 5530 - Fax 588 5540 Netfang: berg@berg.is Heimasíða: www.berg.is Opið virka daga frá kl. 9-18      Kópavogur | Þessar sex stúlkur í Kópavogi söfnuðu samtals 18.781 krónu sem þær afhentu Kópavogs- deild Rauða krossins sem hefur komið söfnunarfénu áleiðis í hjálp- arsjóð Rauða kross Íslands til styrkt- ar hjálparstarfi erlendis. Vinkon- urnar Dagbjört Silja Bjarnadóttir og Harpa Hrönn Stefánsdóttir fengu hugmyndina að söfnuninni þegar þær fundu tóma öskju á víðavangi og ákváðu að safna í hana peningum til styrktar hjálparstarfi. Dagbjört Rós Jónsdóttir slóst í lið með þeim og þær söfnuðu samtals 10.976 kr. Stelpurnar eru allar í 5. bekk í Kárs- nesskóla. Áhuginn smitaði út frá sér og þrjár vinkonur stelpnanna ákváðu einnig að safna, Álfrún Kolbrún- ardóttir, Helga Jóna Gylfadóttir Hansen og Stefanía Ósk Hjálm- arsdóttir, 9 og 10 ára nemendur í Kópavogsskóla, söfnuðu alls 7.805 kr. Stúlkurnar ætla allar að halda áfram að safna og sögðust áforma að halda tombólu hið fyrsta. Söfnuðu peningum til hjálparstarfs RKÍ Dagbjört Rós, Harpa Hrönn og Dagbjört Silja. Stefanía, Álfrún og Helga Jóna. NÖFN vinningshafa í ferm- ingarleik Smáralindar og BT voru dregin út 7. apríl sl. Fjöldi fermingarbarna tók þátt í leiknum á heimasíðu Smáralindar með því að fylla út sinn óskalista úr Ferm- ingargjafahandbók Smára- lindar. Sú sem vann að- alvinninginn, Intel Pentium-fartölvu frá BT að verðmæti tæplega tvö hundruð þúsund króna, heit- ir Urður Dís Árnadóttir og fermdist hún í Hallgríms- kirkju 3. apríl sl. Nöfn vinn- ingshafa aukavinninga, tíu fimm þúsund króna gjafakorta í Smáralind, má sjá á heimasíðu Smáralindar, www.smaralind.is. Á myndinni eru Jane María Sigurðardóttir, markaðsfulltrúi Smáralindar, og vinningshafinn Urður Dís Árnadóttir. Vann fartölvu í fermingarleik FJÁRÞÖRF Geo Theme verkefn- isins er meiri en svo að henni verði mætt með ráðstöfunarfé ríkisstjórn- arinnar, að því er aðstandendum verkefnisins hefur verið tilkynnt. Um er að ræða íslenskan hugbúnað sem gæti sagt fyrir jarðskjálfta, eldgos og viðlíka atburði. Aðstand- endur Geo Theme meta fjárþörf verkefnisins um 12 milljónir króna. Leitað var til forsætisráðuneyt- isins eftir styrk en vegna umfangs verkefnisins var aðstandendum bent á að það þyrfti að fara í gegn- um fjárlagaferlið. Var í því sam- bandi bent á að leita ásjár hjá iðn- aðarráðuneyti eða umhverfisráðu- neyti. Að sögn Guðbergs K. Jónssonar, eins aðstandenda Geo Theme, er hætt við að þetta tefji verkefnið og því sé hætt við að forskot sem náðst hefur á erlenda keppinauta glatist. Höfundur Theme hugbúnaðarins er Magnús S. Magnússon, forstöðu- maður rannsóknastofu um mann- legt atferli við Háskóla Íslands. Theme hefur verið í þróun í 30 ár og hefur verið markaðssett í um 70 löndum. Árið 1996 hófst samstarf Jarðeðlisfræðistofu HÍ, Veðurstof- unnar, Rannsóknastofu um mann- legt atferli og Atferlisgreiningar hf. þar sem hugbúnaðinum var beitt á jarðskjálftagögn. Fyrstu tilraunir þóttu gefa góða raun. Geo Theme fær ekki styrk

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.