Morgunblaðið - 17.04.2005, Síða 31
mikilfenglegasta sem gríðarlegt
aðstreymi fólks er til vitnis um,
langar biðraðir alla daga þrátt fyr-
ir að innlitið kosti nokkuð á annað
hundrað krónur danskar á mann.
Ákvað strax að láta það bíða betri
tíma þrátt fyrir að þurfa naumast
að hafa áhyggjur af biðröðinni,
þvagan inni ekki fýsilegur kostur
og nóg annað og áhugavert fram-
undan næstu daga.
Mikilvægustu viðburð-irnir um þessar mund-ir voru sem oftar áLouisiana og Örkinni,
í fyrra fallinu er um að ræða mikla
yfirlitssýningu á verkum þýska
listamannsins Gerhard Richter f.
1932, (til 29. maí), en seinna fallinu
gott yfirlit á list Fernands Léger
(1881–1955), sem var einn af stóru
módernistunum (til 16. maí). Af
þeim báðum á ég eftir að víkja
nánar, hvenær sem það verður, en
í stuttu máli er um miklar and-
stæður að ræða, Léger hreinn og
klár módernisti og trúr sínum
mörkuðu stílbrögðum frá upphafi
til loka, en Richter sprengdi hér öll
mörk. Eitthvað í líkingu við
Picabia og Hélion fyrrum sem fyrir
vikið voru settir út af sakrament-
inu af félögum sínum og kenn-
ingasmiðum tímanna, voru þó ein-
ungis útskúfaðir fyrir að mála bæði
hlutlægt og óhlutlægt. Richter hins
vegar gekk enn lengra en þeir báð-
ir til samans, en þetta leyfðist hon-
um og hefur meira að segja gert
hann að einum af stórstjörnum
tímanna. Tímarnir aðrir og við-
horfin önnur en þó einkum mark-
aðssetningin, með rétt sambönd og
heimsþekkt gallerí í bakhöndinni
ásamt ótakmörkuðu peningaflæði
virðist allt hægt. Annað mál að um
drjúgan listamann er að ræða þótt
áhrifameðölin sem hann notar fari í
taugarnar á þeim sem dýrka
hreina fleti. Það gerði Léger nú
einmitt og skemmtileg er sagan af
því er málarinn þá búsettur í New
York, var á tali við vin sinn 1941.
Maðurinn varð rauður, gulur,
grænn og blár á meðan á samtalinu
stóð, allt eftir því hvernig ljósin frá
auglýsingaskiltum í nágrenninu
flæddu yfir hann. Kviknaði þá á
perunni hjá Léger sem yfirfærði
þessi áhrif í málverk sín og er
skýrt dæmi þess hvernig tíminn
þrengir sér inn í hugarheim lista-
manna. Mörgum ágætum sýn-
ingum var að ljúka um páskana, en
af þeim náði ég einungis í skottið á
yfirliti á verkum Léons Kossoff
1954–2003 á Louisiana og sýningu
norrænna vatnslitamálara (akva-
rellista) á Kastrupgaard. Kossof er
mjög mikilsmetinn í heimalandi
sínu Englandi, en seint myndu Ís-
lendingar viðurkenna hina einhæfu
og klístruðu litameðferð sem er
helsta einkenni málverka hans. Fór
illu heilli framhjá mér að sýningin
Island-Sagaøen á Sophienholm var
opin fram á annan páskadag og
krossbrá er ég uppgötvaði það,
hélt að henni hafi lokið helgina áð-
ur, en hún gistir Hafnarborg um
þessar mundir, allur samanburður
fyrir bí. Tryggvi Ólafsson og Gerð-
ur spúsa hans voru með mér á
Kastrupgaard og urðum við öll fyr-
ir vonbrigðum. Líkt og um Vorsýn-
inguna, sendir gífurlegur fjöldi inn
myndir til dómnefndar sem vinsar
úr þeim og er hér um enn strang-
ari og stigsbundnari myndskoðun
að ræða. Enginn fær komið því inn
hjá mér að Norðrið eigi ekki betri
vatnslitamálara en það sem við
okkur blasti og útkoman verður
líkast til að skrifast á reikning
dómnefndar. Einungis einn Íslend-
ingur komst í gegnum nálaraugað
að þessu sinni sem var Ólöf Kjar-
an, og framlag hennar hvorki betra
né lakara en annarra. Nokkurt
slangur af fólki var í sölunum og
skoðaði vel og af áhuga, þó merki-
legast að sýningarskráin/katalógan
var með öllu uppseld, sem maður
verður sjaldan vitni að á slíkum
framkvæmdum. Auðvitað var ég
snöggur á vettvang varðandi við-
burðinn á Listiðnaðarsafninu á
Bredgade, rýndi vel og lengi í verk
Íslendinganna og tilefni að fjalla
sérstaklega hér um. Sýningin
nefnilega í senn hrifmikil og gædd
drjúgum myndrænum þokka.
(Framhald)
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 31
Lifun hefur fest sig í sessi
sem nýstárlegt tímarit
Blaðið er unnið á faglegan hátt þar sem samspil fallegra
mynda og áhugaverðra uppskrifta opnar auglýsendum
nýja leið að mikilvægum markhópi.
Lesendum Lifunar hefur fjölgað jafnt og þétt og er það
nú mest lesna tímarit um heimili og hönnun á landsvísu.
skv. Fjölmiðlakönnun Gallup frá því í október 2004.
Lifun verður dreift með laugardagsblaðinu í
60.000eintökum níu sinnum á árinu
og mun þriðja tölublaðið koma út 23. apríl næstkomandi.
Panta þarf auglýsingar fyrir
kl. 16 miðvikudaginn 20. apríl
Umsjón: Halla Bára Gestsdóttir og Gunnar Sverrisson.
Auglýsingar: Elínrós Líndal, sími 569 1141 og
Sif Þorsteinsdóttir, sími 569 1254.
– auglýsingar 569 1111
Nútímahönnun
Ármúla 44, sími 553 2035.
FOCUS hljómtækjaskápur 31.590 FOCUS sjónvarpsskápur 57.510
FOCUS sófaborð 53.190 FOCUS hornborð 41.580
XENON glerskápur 84.780
BASIX
sjónvarps-
skápur
61.290
BASIX
innskotsborð
42.390
BASIX gangaborð 73.980
XENON skilrúm 89.990
FOCUS skenkur 94.230 FOCUS skápur 116.640
FOCUS borðstofuborð 90.990 FOCUS borðstofustóll 22.410
Basix veggsamstæða 260.960
BASIX skenkur 114.750 BASIX glerskápur 133.380
BASIX borðstofustóll 24.990 XENON borðstofuborð 79.110
Belgísk verðlaunahönnun
fáanleg í 7 litatónum
- sem tekið er eftir
r 114.750
I gle skápur 124.470
BASIX borðstofustóll 24.99
XENON borðstofuborð 79.110
ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122