Morgunblaðið - 17.04.2005, Qupperneq 33
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Gamall sjósóknari beitir
Ragnar Helgason, 78 ára gamall sjómaður á Siglufirði, beitir línu sér til heilsubótar. Hann beit-
ir balann á fimmtíu mínútum, sem þykir ágætt, en segist hafa verið fljótari hér áður fyrr. Alf-
ons Finnsson, ljósmyndari úr Ólafsvík, fékk fyrstu verðlaun í atvinnulífsflokki.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Bjólfskviða
Margir íbúar í Mýrdalnum fengu
tækifæri til að taka þátt í gerð kvik-
myndarinnar Bjólfskviðu sem
Sturla Gunnarsson tók upp að
hluta í héraðinu. Jónas Erlendsson
ljósmyndari fylgdist með tökunum
og fréttasyrpa hans fékk verðlaun í
keppni fréttaritaranna. Á myndinni
sést þegar Hróðgari Danakonungi
er færður handleggur Grendils.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Gleðskapur í stóðréttum
Alltaf er gleðskapur í stóðréttum í Laufskálarétt í Hjaltadal í Skagafirði og þangað kemur
fólk ekki síður til að sýna sig og sjá aðra en að draga sundur hrossin. Sigurður Sigmunds-
son mætti úr Hrunamannahreppi, eins og hann hefur gert í áraraðir, og myndaði Pétur Sig-
urðsson, bónda á Hjaltastöðum, í góðum félagsskap ráðherrahjónanna Guðna Ágústssonar
og Margrétar Hauksdóttur. Dómnefnd taldi að myndin væri besta mannamyndin.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Æðarkollur
í morgunmat
Ótrúleg sjón blasti við Ísfirðingum einn
morguninn. Háhyrningar voru að veiða
æðarkollur sér til matar við Skarfasker,
þeir syntu undir kollurnar og tíndu þær
upp hverja á fætur annarri. Halldór
Sveinbjörnsson, ljósmyndari á Ísafirði,
fylgdist með atganginum og mynd hans
varð hlutskörpust í flokki mynda sem
tengjast náttúru og umhverfi.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Heiðursvörður
Einbeitingin skín úr andlitum lögreglumannanna Kristjáns Þorbjörnssonar og Höskuldar Erl-
ingssonar þar sem þeir standa heiðursvörð á þjóðhátíð á Blönduósi. Samkórinn Björk syngur
þjóðleg lög og gott er að vita af vörðum laganna þar nálægt. Aftastur kórfélaga stendur Val-
garður Hilmarsson bæjarfulltrúi og syngur digrum karlaróm. Jón Sigurðsson, fréttaritari á
Blönduósi, tók þátt í hátíðahöldunum og var mynd hans talin sú spaugilegasta.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 33