Morgunblaðið - 17.04.2005, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 37
UMRÆÐAN
NÚ ERU liðin tæplega þrjátíu og
þrjú ár síðan heimsmeistaraeinvígið
í skák var haldið hér á landi. Ótrú-
lega lítið hefur verið fjallað um
þennan merka atburð sem borið hef-
ur hróður landsins vítt
og breitt um heims-
byggðina. Fischer
hefði gert hvaða land
sem hélt einvígið frægt
á sínum tíma, svo hátt
skrifaður var hann á
heimsvísu. Íslendingar
eiga Fischer því margt
að þakka.
Hvernig gátu Ís-
lendingar fengið svo
stóran viðburð hingað
til lands? Hver var bar-
áttumaðurinn í hópi Ís-
lendinga sem fylgdist
glöggt með því sem var að gerast í
skákmálum á heimsvísu? Hver kom
málum fram á Alþjóðaþingi FIDE
fyrir Íslands hönd? Hver lagði á sig
þá miklu vinnu og kostnað sem fylgir
því að berjast fyrir stöðu lands og
þjóðar á erlendri grund? Og hver
hafði til þess burði að koma einvíg-
inu hingað til lands? Ísland var fá-
mennast af þeim 14 þjóðum sem áttu
kost á að halda einvígið en hinar
þjóðirnar höfðu milljónir íbúa.
Hvernig gat Íslendingur náð einvíg-
inu úr höndum stórþjóðanna? Hver
gætti þess að Ísland yrði ekki hlunn-
farið í þeirri orrahríð og hvernig átti
að verja hagsmuni okkar svo við yrð-
um ekki undir í baráttunni? Okkar
fámenna þjóð, sem var á þessum
tíma um 200 þúsund manns, rúmast
við eina götu í stórborg erlendis.
Á þessum tíma var aðeins einn Ís-
lendingur á alþjóðaþingum FIDE –
Freysteinn Þorbergsson – en bar-
áttan um einvígið fór þar fram.
Freysteinn var fyrsti Íslendingurinn
sem sótti Alþjóðaþing FIDE fyrir
Íslands hönd í Gautaborg árið 1955
og hafði sótt allmörg þing þegar hér
var komið sögu. Hann taldi að HM-
einvígi milli Rússa og Bandaríkja-
manns á tímum kalda stríðsins væri
að auglýsingagildi á við Ólympíu-
leika. Eftir að hafa horft á einvígi
Botwinniks og Tals í Moskvu 1957,
þar sem þeirri hug-
mynd laust niður að fá
slíkan viðburð til Ís-
lands, hófst Freysteinn
þegar handa við að
kynna sér söguna þar
sem Ólympíuleikar
höfðu verið haldnir,
jafnvel langt aftur í
tímann. Sagðist hann
vinna að þessu máli
sem vísindamaður. Í
hálfan annan áratug las
hann mikið á bókasöfn-
um erlendis, heimsótti
háskóla í ýmsum lönd-
um, austan hafs og vestan, og ræddi
við prófessora. Þannig aflaði hann
upplýsinga og ræddi við heimamenn
um óljós atriði varðandi skipulag og
framkvæmdir. Einnig um það atriði
hvers vegna heimildum bar ekki
saman. Yfirleitt var það vegna þess
að einhverjir voru að gera hlut sinn
stærri en þeim bar. Skyldi það einn-
ig hafa gerst hér? Oft varð hann eftir
í viðkomandi landi þegar hinir kepp-
endurnir fóru heim, einmitt í þessum
tilgangi. Hann sá að eina leiðin til að
Íslendingar gætu átt möguleika á
einvígi væri ef tilboð yrði gert í ein-
vígið þar sem þjóðirnar ættu þá
jafna möguleika, og bar hann upp þá
tillögu á þingi FIDE sem var sam-
þykkt. Hann komst að því að þar
sem svo stórir viðburðir höfðu verið
haldnir fylgdi nær undantekning-
arlaust leiðtogafundur í kjölfarið.
Einvígið færði Íslendingum fjóra
stórmeistara og forsetastól FIDE
(sem reyndar hvarf allt of fljótt úr
höndum Íslendings), auk tveggja
leiðtogafunda svo eitthvað sé nefnt.
HM-einvígið 1972 er stærsti menn-
ingarviðburður sem haldinn hefur
verið hér á landi fyrr og síðar. Um
það hafa verið skrifaðar yfir 140
bækur. Róbert James Fischer kom
fyrst til Íslands 1960 fyrir tilstilli
Freysteins Þorbergssonar. Hann
átti að tefla á minningarmóti um
Eggert Gilfer en mætti of seint og
var þá slegið upp öðru móti svo
Fischer kæmi ekki erindisleysu
hingað. Guðmundur G. Þórarinsson
vildi ekki að SÍ kostaði fulltrúa á
þing FIDE þegar einvígismálið var
á dagskrá og vildi ekki gera tilboð í
einvígið. Hann var því á móti einvíg-
inu í upphafi, en segir ekki hver bar-
áttumaðurinn var sem gerði Íslend-
ingum kleift að fá einvígið. Hann er
þó enn að baða sig í sviðsljósinu af
einvíginu eftir 33 ár.
Ég býð Fischer velkominn til Ís-
lands og óska honum friðar og far-
sældar um ókomin ár.
Heimsmeistara-
einvígið í skák 1972
Edda Júlía Þráinsdóttir
fjallar um skák ’HM-einvígið 1972 erstærsti menningar-
viðburður sem haldinn
hefur verið hér á landi
fyrr og síðar.‘
Edda Júlía Þráinsdóttir
Höfundur var eiginkona
Freysteins Þorbergssonar,
en hann lést í október 1974.
Dr. Sigríður Halldórsdóttir:
Skerum upp herör gegn heim-
ilisofbeldi og kortleggjum
þennan falda glæp og ræðum
vandamálið í hel.
Svava Björnsdóttir: Til þess
að minnka kynferðisofbeldi
þurfa landsmenn að fyr-
irbyggja að það gerist. For-
varnir gerast með fræðslu al-
mennings.
Jóhann J. Ólafsson: „Lýðræð-
isþróun á Íslandi hefur, þrátt
fyrir allt, verið til fyrirmyndar
og á að vera það áfram.“
Pétur Steinn Guðmundsson:
„Þær hömlur sem settar eru á
bílaleigur eru ekki í neinu sam-
ræmi við áður gefnar yfirlýs-
ingar framkvæmdavaldsins,
um að skapa betra umhverfi
fyrir bílaleigurnar.“
Guðmundur Hafsteinsson:
„Langbesti kosturinn í stöð-
unni er að láta TR ganga inn í
LHÍ og þar verði höfuðstaður
framhalds- og háskólanáms í
tónlist í landinu.“
Hjördís Ásgeirsdóttir: „Ég er
ein af þeim sem heyrðu ekki
bankið þegar vágesturinn kom
í heimsókn.“
Vilhjálmur Eyþórsson: „For-
ystumennirnir eru undantekn-
ingarlítið menntamenn og af
góðu fólki komnir eins og allir
þeir, sem gerast fjöldamorð-
ingjar af hugsjón. Afleiðingar
þessarar auglýsingar gætu því
komið á óvart.“
Jakob Björnsson: „Mann-
kynið þarf fremur á leiðsögn að
halda í þeirri list að þola góða
daga en á helvítisprédikunum á
valdi óttans eins og á galdra-
brennuöldinni.“
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar
FASTEIGNASALA
HÁTÚNI 6a
SÍMI 512 1212 FAX 512 1213
FOSS FASTEIGNASALA KYNNIR GOTT EINBÝLISHÚS Á AFAR VIN-
SÆLUM STAÐ VIÐ HÁTÚN Í KEFLAVÍK. HÚSIÐ ER ALLS 201,4 FM
(ÞAR AF 45 FM BÍLSKÚR). MJÖG FALLEGUR GARÐUR Í RÆKT OG
GARÐHÚS. Tveir inngangar eru í húsinu. Einn aðalinngangur og annar hjá
bílskúr. Hiti er í innkeyrslu að stórum hluta. Bílskúrinn er með sérrafmagni
og rafmagni í hurð. Húsinu fylgir stór falleg viðarverönd með heitum potti.
Húsið skiptist í fjögur svefnherbergi, stofu og borðstofu í alrými. Baðher-
bergi, flísalagt hólf í gólf. Gott eldhús með snyrtilegri hvítri innréttingu og
plássi fyrir eldhúsborð. Snyrtilegt þvottahús með flísum. Listar í loftum í
stofu og borðstofu. Þrjú svefnherbergi er á fyrstu hæð. 2. HÆÐ RIS: Eitt
svefnherbergi og mjög mikið rými sem er ekki nýtt en býður upp á mikla
möguleika. GÓÐUR BÍLSKÚR FYLGIR EIGNINNI. GÓÐ EIGN Á AFAR
VINSÆLUM STAÐ Í KEFLAVÍK. VERÐ 21,9 MILLJ.
HÁTÚN 1
EINBÝLISHÚS - KEFLAVÍK
Foss fasteignasala, Hátúni 6a, sími 512 12 12, Fax 512 12 13,
Netfang foss@foss.is
Opið mán.-fim. frá kl. 9–18, fös. frá kl. 9-17
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
Ægir Breiðfjörð löggiltur fasteignasali
Glæsilega innréttuð 104 fm íbúð á
3ju hæð í vel staðsettu lyftuhúsi í
Smáranum. Íbúðin skiptist í stórar
stofur, sjónvarpsstofu, tvö góð
svefnherbergi, þvottahús inn af eld-
húsi, eldhús og stórt baðherbergi
með kari og sturtu - allt glæsilega
innréttað. Svalir í suður. Sérstaklega
er vandað til innréttinga í þessari
íbúð. V. 24,5 m. 6584
Falleg íbúð á 12. hæð með einstöku
útsýni til þriggja átta. Loft eru upptek-
in í stofu og eldhúsi. Góðar svalir.
Stór svefnherbergi og glæsileg eld-
húsinnrétting - þvottahús í íbúðinni.
V. 21,8 m. 6557
SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG
GULLSMÁRI - SÉRLEGA VÖNDUÐ
BLÁSALIR - EFSTA HÆÐ
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali.
SUMARBÚSTAÐUR ÓSKAST
SUMARBÚSTAÐUR Á SUÐURLANDI ÓSKAST FYRIR TRAUSTAN
KAUPANDA, EKKI LENGRA EN Í 100 KM. AKSTURSFJARLÆGÐ
FRÁ REYKJAVÍK. HITAVEITA SKILYRÐI.
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast.
www.valholl.is
Opið virka daga frá kl. 9-17:30.
Sími 588 4477
Til sýnis í dag falleg 92 fm
íbúð á jarðhæð/kjallara í
góðu steinhúsi á frábærum
stað rétt við Laugardals-
laugina. Sérinngangur.
Rúmgóð stofa. Parket.
Fallegur garður með timb-
urverönd. Verð 15,9 m.
Jens og Kristín verða með opið hús í dag
á milli kl. 14.00-18.00 - allir velkomnir.
Hraunteigur 20 - opið hús kl. 14-18
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir,
hdl. og lögg. fasteignasali
14.00-16.00 Kjartansgata 6
Sérstaklega björt, rúmgóð og mikið
endurnýjuð 86,5 fm íbúð á 1. hæð.
Eldhús með nýlegri innréttingu og
miklu skápaplássi. Út frá stofu er
gengið út á verönd og þaðan niður
í sólríkan bakgarð. Baðherbergi er
flísalagt í hólf og gólf. Mjög gott
geymslurými. Nýtt rafmagn er í
húsinu, gluggar nýir, nýlegir ofnar
með Danfosshitakerfi og þak end-
urnýjað. Verð 23,4 millj.
15.00-16.00 Bólstaðarhlíð 8
16.00-17.00 Hamraborg 38
Falleg 95,2 fm 4ra herbergja íbúð
með góðu útsýni. Stórar svalir.
Íbúðin er nýmáluð og endurnýjuð
að hluta. Ásett verð 19,8 millj.
OPIÐ HÚS
Sérhæð 117,4 fm ásamt 40 fm bílskúr á eftir-
sóttum stað í Hlíðunum. Nýbúið er að steina
allt húsið að utan. Nýlegir gluggar og þak.
Íbúðin er í góðu ásigkomulagi fyrir utan parket í
stofu. Bílskúrinn er í dag innréttaður sem stúdíó
íbúð sem auðvelt er að breyta aftur. Góðar
leigutekjur af bílskúrnum. Sunnan við bílskúrinn
er 12 fm sólpallur sem tilheyrir íbúðinni.