Morgunblaðið - 17.04.2005, Síða 44

Morgunblaðið - 17.04.2005, Síða 44
44 SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Úrslitin úr ítalska boltanum beint í símann þinn ÓSKÖP sárnaði okkur Samfylking- arfólki þegar samstarfsflokkarnir í borgarstjórn hröktu farsælan borg- arstjórann okkar úr stóli sínum. Hún Ingi- björg Sólrún hafði ekk- ert gert nema standa sig vel í því trún- aðarstarfi sem Reykja- víkurlistinn fól henni. Það var ekkert sem við ekki vildum gera fyrir svo góðan foringja þegar þannig var hallað á hann. Enda er Sam- fylkingin byggð upp á mörgum afbragðs for- ingjum og formanni sem gefur þeim svig- rúm og tengir þá sam- an í eina litríka en sam- fellda heild. Brotin sem Samfylkinguna mynda hefðu ekki hangið sam- an og Samfylkingin hefði aldrei orðið svo stór ef hún hefði verið beygð undir einhvers konar Davíð Oddsson með annars fullri virð- ingu fyrir honum. Það síðasta sem Samfylk- ingin þyrfti nú væri „sterkur“ foringi af þeirri gerð, alveg sama hvort hann væri karlkyns eða kvenkyns. Sam- fylkingin er einfaldlega þess konar flokkur að allar aðrar pólitískar jurtir og plöntur sem hafa blómstrað innan Samfylkingarinnar myndu visna og deyja í skugga af þeirri gerð foringja. Brotin hafa verið að gróa saman Brotin sem Samfylkingin er mynd- uð úr hafa verið að gróa saman en langur vegur er í að þau séu fullgróin þó svo yfirborðið hafi verið heilt um stund undir formennsku Össurar Skarphéðinssonar. Honum hefur ver- ið það einkar lagið að leyfa hinum fjöl- mörgu foringjum Samfylkingar að njóta sín. Bæði efnilegum og lang- reyndum, konum og körlum. Þannig hefur fylgið verið að koma aftur „heim“ allt frá því Össur tók við for- mennsku. Það varð mér því mikið áfall þegar sú sem við svona bárum á höndum okkar og hófum snarlega til forsætis- ráðherraefnis vegna þess að hún var óverðskuldað hrakin úr borg- arstjórastóli og annar mikilvægur foringi MF vék úr varaformannsstóli, svo til væri verðugur sess sem við gætum boðið hinum sára að tylla sér í, þá fann Ingibjörg Sólrún hjá sér þörf á að gefa út nýja yfirlýsingu. Nú lof- aði hún stuðningsmönnum sínum að hrekja formanninn okkar, sem svo vel hafði farnast, úr sínu embætti. Hún lofaði að fara eins að við Össur og komið hafði verið fram við hana í borgarstjórastóli, að launa honum gott starf með því að hrekja hann á braut. Ingibjörg hefði getað sagt kröfuhörðum stuðningsmönnum sín- um að varaformennska í Samfylking- unni væri verðugt og mikilvægt verk- efni og tíminn yrði að leiða í ljós hvað seinna yrði. Það hefði verið í þágu Samfylkingarinnar. Eru allir karlar óhæfir stjórnendur? Virtur prófessor (SK) í stjórnmálafræði hefur komið fram og lýst alla karla óhæfa til stjórn- unar en konur fæddar til þess að stjórna og af þeirri ástæðu eigi að gera Ingibjörgu Sólrúnu að formanni. Ef ég vissi ekki betur teldi ég hér kominn helsta stuðn- ingsmann Margrétar Thatcher því vart hafa margar konur kynnt betur stjórnunarstíl sinn en hún. En hvernig á annars að svara svona rökum? Þessar miklu kvenréttindaáherslur eru alltof þröng skír- skotun fyrir breiðan flokk. Þær áherslur gætu allar fallið undir „jafnrétti“ því svo óskaplega víða hallar á það, en í aðdraganda síð- ustu kosningabaráttu dugði það ekki stuðningsmönnum Ingibjargar heldur varð „kvenfrelsi“ gert að þema kosningabaráttu flokks- ins og fylgið tók að dala. Framtíðarhópurinn Hvar erum við stödd ef foringi Framtíðarhópsins vill ekki gangast við ábyrgð sinni á hópnum um leið og sama manneskja vill samt verða for- maður flokksins? Ingibjörgu Sólrúnu var falið að leiða og stýra vinnu Framtíðarhópsins og Framtíðarhóp- urinn lagði fram tillögur um einka- væðingu hverfisskólanna. Hvergi í heiminum hefur tekist að „þýða“ markmið almennrar grunnmennt- unar samfélagsins yfir í markmið einkarekstrar. Börnin okkar þurfa ekki að vera fórnarlömb tilrauna með skólagöngu sína til að við getum séð það sem hefur verið margprófað um allan heim. Garðurinn blómstrar Margs konar pólitískar skrautjurt- ir hafa þrifist vel og vaxið í þeim garði sem Össuri Skarphéðinssyni var trú- að fyrir. Of fyrirferðarmikill garð- yrkjumaður gæti allt eins traðkað garðinn niður og ekki kunnað að næra þær fjölbreyttu jurtir sem þar hafa blómstrað. Þegar garðurinn er í blóma og allt gengur vel er tilgangs- laus áhætta af því að reka hinn far- sæla garðyrkjumann fyrir annan. Óþörf áhætta Helgi Jóhann Hauksson fjallar um formannskjör Samfylkingarinnar Helgi Jóhann Hauksson ’Margs konarpólitískar skrautjurtir hafa þrifist vel og vaxið í þeim garði sem Öss- uri Skarphéð- inssyni var trú- að fyrir.‘ Höfundur er stjórnmálafræðingur. Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali BRÆÐRABORGARSTÍGUR 7 - ALLT HÚSIÐ Um er að ræða nýlega uppgert fjölbýlishús með lyftu. Húsið er teiknað af Þóri Sandholt. Heildarstærð er um 1580 fm Eignin skiptist í 9 stórar íbúðir, verslunarrými og tvær vinnustofur í kjallara auk sameignar, þar af eru nokkrar íbúðirnar nýlega innréttaðar á glæsilegan hátt. Allar íbúðirnar eru með svölum. Húsið skiptist þannig: Verslun 0101 er 134 fm Íbúð 0102 er 129,4 fm Íbúð 0201 er 139,5 fm Íbúð 0202 er 141,5 fm Íbúð 0301 er 179,9 fm Íbúð 0401 er 107,4 fm Íbúð 0402 er 121,5 fm Íbúð 0501 er 73,9 fm Íbúð 0502 er 59,5 fm Vinnustofa 0001 er 103,8 fm Vinnustofa 0002 er 105,1 fm Eignin selst í einu lagi eða í hlutum. 4873 Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. www.valholl.is Opið virka daga frá kl. 9-17:30. Sími 588 4477 Til sýnis í dag fallegt 125 fm einbýlishús ásamt 40 fm bíl- skúr (þarfnast standsetningar) á eftirsóttum stað. Hæðin er 87 fm og kjallarinn 37 fm. Hæðin er öll tekin í gegn að innan. Endurnýjað gler, glugg- ar, rafmagn, eldhús, baðherb., gólfefni o.fl. Góður garður. V. 26,5 fm. Húsið verður til sýnis í dag á milli kl. 14.00-17.00. Langholtsvegur 65 - opið hús KLETTABERG - HF. - SÉRHÆÐ MEÐ BÍLSKÚR Hraunhamar fasteignasala er með í einkasölu á þessum frá- bæra útsýnisstað glæsilega arkitektahannaða 134 fer- metra íbúð í pallbyggðu klasa- húsi, ásamt 27,9 fermetra bíl- skúr, samtals um 161,9 fer- metrar, vel staðsett í Setbergshverfi í Hafnarfirði. Eignin skiptist í forstofu, hol, herbergi, baðherbergi og þvottahús. Á efri hæð er eldhús, hol, stofa, borðstofa, sólstofa, tvö herbergi og baðher- bergi. Stórar svalir og frábært útsýni yfir Hafnarfjörð og víðar. Glæsilegar sérsmíðaðar innréttingar. Gólfefni er hlynparket og portúgölsk skífa. Glæsieign sem vert er að skoða. Verð 29,5 millj. 109730. Myndir af eigninni á mbl.is .

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.