Morgunblaðið - 17.04.2005, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 45
UMRÆÐAN
MIKIÐ hefur verið rætt og ritað
um dómsmál Ingibjargar Ingadótt-
ur enskukennara gegn Ólínu Þor-
varðardóttur f.h. Menntaskólans á
Ísafirði. Málið er rekið til að fá
áminningu hnekkt sem Ólína veitti
Ingibjörgu fyrir ónákvæmni í yf-
irferð á jólaprófi í ENS 103 og að
hafa gefið nemendum
of háar einkunnir.
Undirritaður hefur
fylgst með málinu í
návígi frá fyrstu
hendi og átt að vissu
leyti hlut að máli sem
sambýlismaður Ingi-
bjargar. Ekki verður
lengur setið undir
ósannindum sem fram
hafa komið í um-
ræðunni að mati und-
irritaðs.
Byrjum á yfirlýs-
ingu stjórnenda „Hafa
skal það sem sannara reynist“ sem
er að finna á heimasíðu Mennta-
skólans fvi.is. Stjórnendur fullyrða
þar að milli stjórnenda og annarra
starfsmanna ríki eðlilegir sam-
skiptahættir. Þegar öll stjórn
kennarafélags skólans segir af sér
vegna yfirgangs og ofríkis skóla-
meistarans hlýtur eitthvað að
ganga á. Í afsagnarbréfi stjórn-
armanna segir eftirfarandi:
„Framkoma skólameistara und-
anfarna daga gagnvart kjörnum
trúnaðarmönnum kennara skólans
hefur verið ágeng, ógnandi og
fjarri meðalhófi góðrar stjórn-
sýslu“. Er það kannski það sem
skólameistari telur eðlilega sam-
skiptahætti? Að vísu lýsti skóla-
meistari yfir að hún vissi ekki til
þess að nokkur sá ágreiningur
hefði verið uppi sem leitt gæti til
afsagnar stjórnarmanna. Það sýnir
að mínu áliti að skólameistari
skeytir ekkert um viðhorf annarra
starfsmanna skólans.
Í sömu yfirlýsingu skólastjórn-
enda segir einnig: „jafnframt lýs-
um við því yfir að engin stjórn-
sýslukæra hefur verið lögð fram“.
Upplýst hefur verið að minnst
fimm stjórnsýslukvartanir hafi
borist menntamálaráðuneytinu.
Þar við bætist svo áðurnefnt
dómsmál.
Guðjón Ólafsson, fyrrverandi
enskukennari við MÍ, var valinn af
Ólínu sem hlutlaus aðili til að fara
yfir prófúrlausnir í ENS 103. Guð-
jón hafði á starfstíma sínum við
MÍ samið það próf sem Ingibjörg
lagði fyrir nemendur. Guðjón
studdist við sinn eigin leiðrétting-
arstuðul við sína yfirferð en hann
ræddi ekkert við Ingibjörgu um
forsendur hennar fyrir einkunna-
gjöf.
Í greinargerð Guðjóns gerir
hann athugasemdir við yfirferð 15
prófúrlausna og einkunnadreif-
ingin verður meiri en hjá Ingi-
björgu. Enginn nemandi var þó
nálægt því að falla í áfanganum.
Rifjum nú upp að skólameistari og
aðstoðarskólameistari breyttu 9
einkunnum eftir þeirra yfirferð í
desember. Guðjón segir í skýrslu
sinni, sem lögð hefur verið fram í
Héraðsdómi Vestfjarða, að mis-
ræmis hafi gætt í yfirferð hjá
skólameistara og aðstoðarskóla-
meistara milli prófúrlausna og vill-
ur verið í yfirferð þeirra. Ef við
rifjum einnig upp ástæðuna fyrir
áminningunni sem Ólína veitti
Ingibjörgu þá var það fyrir sams
konar ónákvæmni og misræmi og
skólameistari og aðstoðarskóla-
meistari gerðu sig sek um, þó í
minna mæli væri.
Auk þess er auðvelt að sanna og
sýna fram á að 2 einkunnir af 9
sem þau breyttu hjá nemendum
Ingibjargar voru rangt reiknaðar
með tilliti til 60% prófseinkunnar
og 40% vetrareinkunnar. Nem-
endur sitja uppi með
rangar tölur á skír-
teinum sínum.
Eru þetta ekki
ámælisverð vinnu-
brögð?
Hvað segja nem-
endur Ingibjargar?
Nemendur í ENS
203, þeir sömu og
voru í 103 fyrir jól,
svöruðu kennslukönn-
un 4. og 5. apríl sl.
sem trúnaðarmaður
kennara fór yfir. Hver
kennari mætti vera
hreykinn af því mati nemenda
sinna sem þar kemur fram. Sem
dæmi í 18 manna bekk í ENS 203
svöruðu nemendur spurningunni:
„Hvernig myndir þú lýsa Ingi-
björgu Ingadóttur sem enskukenn-
ara“? Mjög góð, 15 stig, – Góð 3
stig – Hvorki góð né slæm 0 stig –
Léleg 0 stig – Mjög léleg 0 stig.
Svipuð útkoma var hjá öðrum
bekkjum.
Ingibjörg er af nemendum talin
góður enskukennari, öfugt við það
sem Ólína hefur haldið fram og
fram kemur í skýrslu hennar fyrir
Héraðsdómi.
Með bréfi dagsettu 23. febrúar
2005, hálfum mánuði eftir að Ingi-
björg stefndi Menntaskólanum á
Ísafirði vegna áminningarinnar, er
Ingibjörgu sagt upp stöðu sviðs-
stjóra í erlendum málum. Það var
gert á þeirri forsendu, eins og seg-
ir í uppsagnarbréfinu: „Í ljós hefur
komið nýlega að þú uppfyllir ekki
skilyrði...“ ákveðinna lagagreina
um kennsluréttindi í ensku.
Hvernig getur ábyrgur skóla-
meistari ráðið starfsmann í tví-
gang 2002 og 2003 til sviðsstjóra-
starfa án þess að vita hvaða
menntun viðkomandi kennari hef-
ur?
Slíkt er ámælisvert.
Ingibjörg er með BA-próf í hót-
el- og ferðamálafræðum og
kennsluréttindi frá KHÍ.
Á starfsmannafundi í áheyrn
allra starfsmanna skólans fullyrti
Ólína aðspurð, að hún hefði ekki
vitað að Ingibjörg starfaði án rétt-
inda sem enskukennari. Er það
trúverðugt? Ingibjörg á hins vegar
aðeins eftir 30 einingar til BA-
prófs í ensku. Allir kennarar við
MÍ vita að annar sviðsstjóri hefur
heldur ekki réttindi til að gegna
stöðu sviðsstjóra og ætti því að
hafa verið sagt upp á sömu for-
sendum og Ingibjörgu en svo er
ekki.
Í sjónvarpsviðtali á RÚV hótaði
Ólína Félagi framhaldsskólakenn-
ara lögsókn vegna ummæla Elnu
Katrínar Jónsdóttur, f.v. for-
manns, í kvörtunarbréfi til
menntamálaráðuneytisins. Þar
kom fram að fimm kennarar við
MÍ hefðu orðið fyrir barðinu á
„ógnarstjórn“ skólameistarans.
Í bréfinu stóð m.a. ,,Gögn sem
afhent hafa verið ráðuneytinu sýna
svo ekki verður um villst að hrein
ógnarstjórn ríkir í samskiptum
skólameistarans við kennarana.“
Í sjónvarpsviðtalinu gaf hún
stjórn KÍ viku frest til að biðja sig
afsökunar á ummælunum, að öðr-
um kosti íhugaði hún málsókn á
hendur FF. Síðar framlengdi hún
frestinn um þrjá daga en ekkert
bólar á lögsókninni.
Í öðru viðtali, á Stöð 2 „Ísland í
bítið“, baðst Ólína „griða“ af hálfu
fjölmiðla því nóg væri komið af
fjölmiðlaumfjöllun um málefni
Menntaskólans á Ísafirði. Óskaði
eftir því að fá frið til að leysa mál-
in í rólegheitum innan skólans. Nú
hefur hún sjálf haft samband við
fjölmiðla til að koma sínum mál-
flutningi á framfæri við þjóðina og
brotið eigin griðaboðskap. Í stað
þess að vinna af heilindum við að
koma málum í eðlilegt horf beitir
skólameistari að mínu mati fá-
fengilegum vinnubrögðum stjórn-
málamanns í einhvers konar árróð-
ursstríði. Eru það heiðarleg
vinnubrögð?
Í sama þætti talaði Ólína um að
átökin við kennara sína væru eins
og „taumaskak“ við tamningar á
góðhestum svo spyrja má hvort
MÍ sé hesthús. Hvar er virðingin
fyrir starfsmönnum skólans?
E.s.
Menntaskólinn á Ísafirði er frá-
bær skóli, nemendur meiriháttar
og kennarar mjög góðir. Telst það
eðlilegt að skólameistari eigi í erj-
um við nemendur og kennara?
HN
Með samstöðu við baráttu
verkamannsins til að ná rétti sín-
um og starfsvirðingu.
Sannleikurinn um ósannindi
Hermann Nielsson
fjallar um deilurnar innan
Menntaskólans á Ísafirði ’Hvernig getur ábyrg-ur skólameistari ráðið
starfsmann í tvígang,
2002 og 2003, til sviðs-
stjórastarfa án þess að
vita hvaða menntun
viðkomandi kennari
hefur? ‘
Hermann Nielsson
Höfundur er kennari við
Menntaskólann á Ísafirði.
TIL SÖLU
einbýlishúsalóð
á besta stað í Norðlingaholti
Óskað er eftir tilboðum
Tilboð sendist til auglýsingadeildar Morgunblaðins
eða á box@mbl.is, merkt: „N - 16984.“
Ármúla 15 • sími 515 0500 - fax 515 0509
www.fasteignakaup.is • fasteignakaup@fasteignakaup.is
Einbýli eða parhús með
aukaíbúð óskast í Hafnarfirði
Til okkar hefur leitað viðskiptavinur sem vill kaupa parhús eða einbýlis-
hús, helst með séríbúð í kjallara, sem má kosta allt að 50 milljónum, ná-
lægt miðbæ Hafnarfjarðar, frá Víðistaðartúni að Hvömmum. Rúmur af-
hendingartími. Traustir kaupendur sem eru með góða eign (140 fm
einbýlishús auk bílskúrs) á besta stað í Hafnarfriði.
Nánari upplýsingar er gefur Páll Höskuldsson,
sölustjóri hjá Fasteignakaupum.
Páll Höskuldsson,
Gsm 864 0500
Erna Valsdóttir,
löggiltur fasteignasali