Morgunblaðið - 17.04.2005, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 51
AUÐLESIÐ EFNI
AÐ minnsta kosti 20 manns
létust í eldsvoða í hóteli í mið-
borg Parísar í vikunni. Tíu
þeirra sem létust í brunanum
voru börn. Sumir gestanna
hoppuðu út um glugga til að
forða sér frá eldinum, að sögn
vitna. Svona margir hafa ekki
látist í eldsvoða í Frakk-landi í
35 ár. Einnig slösuðust tugir
manna í brunanum.
Á hótelinu gistu ferða-menn
en einnig heimilis-lausir inn-
flytjendur. Líklegt þykir að
kviknað hafi í út frá örbylgju-
ofni á fyrstu hæð.
Reuters
Bruna-liðs-menn hjálpa hótel-gesti.
Elds-voði í París
HÓPUR hefur verið stofn-
aður um kaup almennings á
Símanum. Agnes Bragadótt-
ir skrifaði grein í Morgun-
blaðið um að almenn-ingur
ætti að eignast Símann. Sú
grein fékk mikil við-brögð.
Orri Vigfússon athafna-
maður, Agnes og Ingvar
Guðmundsson fram-
kvæmda-stjóri leiða hópinn,
og segja að nú hafi yfir þús-
und manna skráð sig á
lista yfir áhugasama kaup-
endur.
Líklega verður Síminn
seldur fyrir um 60 milljarða
króna, en enginn einn aðili
má kaupa meira en 45% í
Símanum.
Almenn-ingur vill
kaupa Símann
Lífleg kvikmyndahátíð
KVIKMYNDA-HÁTÍÐIN Ice-
landic Film Festival er nú í
fullum gangi víða um land.
Mikil aðsókn er á hátíðina og
allir kvikmynda-passar seld-
ust upp. Myndirnar þykja al-
mennt góðar, en á föstudag-
inn var frum-sýnd kvik-myndin
9 Songs sem deilt er um
hvort sé klám-mynd eða ekki.
Árni Þór til Flensburg?
Þýska meistara-liðið Flens-
burg vill semja við hand-bolta-
kappann Árna Þór Sigtryggs-
son. Árni Þór er mjög spennt-
ur fyrir til-boðinu, en ef
honum líkar það, byrjar hann
að spila með liðinu strax í
sumar eða eftir eitt ár.
Spenna milli Kína og Japan
Mót-mæli hafa verið í mörg-
um borgum í Kína gegn Jap-
önum. Kín-verjar geta ekki
sætt sig við nýjar sögu-bækur
fyrir skóla í Japan, þar sem er
strikað yfir glæpa-verk Jap-
ana í síðasta stríði.
Japanar vilja að kín-versk
stjórn-völd stöðvi mót-mælin.
Nýr leiðtogi jafnaðarmanna
Helle Thorning-Schmidt er
nýr leið-togi danskra jafnaðar-
manna. Hún er fyrsta konan
og gegnir stöðunni. Mót-herji
hennar var Frank Jensen, og
talið er að hún hafi sigrað
hann því hún er viss um að
geta orðið forsætis-ráðherra
Danmerkur.
Stutt
HILDUR Vala Ein-
arsdóttir, Idol-
stjarna Íslands,
verður söng-kona
Stuð-manna í sum-
ar í stað Ragnhild-
ar Gísladóttur. Jak-
ob Frímann
Magnússon,
hljóm-borðs-leikari
og söngvari, segir
Stuðmenn mjög
ánægða með Hildi
Völu enda sé hún
einn glæsi-legasti
lista-maður sem
fram hafi komið
lengi á Íslandi.
Hildur Vala seg-
ir að sér lítist
mjög vel á að taka
að sér hlut-verk
söng-konu hjá
Stuðmönnum og
að hún sé mjög
spennt. Hún segir
að ekki sé hægt
að feta í fótspor
Ragnhildar, „en
þetta verður afar
spennandi verk-
efni og mjög gam-
an. Ég hlakka
ofsalega til“.
Hildur Vala með
Stuð-mönnum
Morgunblaðið/Árni Torfason
Hildur Vala er glæsi-
legur lista-maður.
RAINIER fursti af Mónakó
var borinn til grafar á föstu-
daginn var. Hann lést 81 árs
að aldri, eftir mikil veikindi.
Hann var grafinn við hlið eig-
in-konu sinnar, kvikmynda-
stjörnunnar Grace Kelly. Hún
dó í bíl-slysi árið 1982, og
jafnaði furstinn sig víst aldr-
ei á því.
Rainier tók við fursta-
dæminu árið 1949 og sat á
valda-stóli lengst allra þjóð-
höfðingja í Evrópu.
Mónakó er bara um 2 fer-
kílómetrar að stærð og íbú-
arnir 32 þúsund. Albert son-
ur Rainiers verður næsti
fursti Mónakó. Hann er 47
ára gamall og ókvæntur.
Reuters
Tíu her-menn bera kistu Rainier III prins af Mónakó
frá höllinni að kirkjunni.
Rainier fursti jarð-sunginn
EIÐUR Smári Guð-johnsen og
félagar hans í enska fótbolta-
liðinu Chelsea eru komnir í
undan-úrslit Meistara-deildar
Evrópu annað árið í röð. Þrátt
fyrir að þeir hafi tapað 3:2 fyrir
þýska liðinu Bayern München
á þriðju-daginn, vann Chelsea
samt ein-vígið 6:5.
Eiður Smári fékk góða dóma
fyrir frammi-stöðu sína í leikn-
um. Breska sjónvarps-stöðin
BBC gaf honum 7 í einkunn,
þar sem hann hefði verið afar
dug-legur. Hann hefði verið
góður í vörninni og eitt sinn
komið liðinu til bjargar í erfiðri
stöðu. Sjónvarps-stöðin Sky
gaf Eiði Smára líka 7 í einkunn.
Eiður Smári
dug-legur
Reuters
Þjóð-verjinn Michael Ballack
tæklar Eið Smára.
BANDARÍSKI golf-snilling-
urinn Tiger Woods vann í
fjórða sinn á Masters-mótinu
í golfi. Mikil spenna ríkti á
mótinu og Tiger vann landa
sinn DiMarco í bráðabana.
„Ég tileinka föður mínum
þennan sigur,“ sagði Woods
þegar hann var klæddur í
græna jakkann sem er tákn
mótsins.
Tiger hafði ekki sigrað á
stór-móti frá árinu 2002, og
var því sigurinn sérlega sæt-
ur. Hann er nú aftur kominn í
efsta sæti heimslistans. Tig-
er fékk um 76 milljónir króna í
verð-laun, en DiMarco um 46
milljónir fyrir annað sætið.
Tiger Woods
aftur efstur
FORSETI Íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson og Dorrit
Moussaieff forseta-frú fóru í
vikunni í opin-bera heimsókn
til Akur-eyrar og Eyja-fjarðar-
sveitar.
Heimsóknin byrjaði í Verk-
mennta-skólanum þar sem
forseta-hjónin sáu brot úr
söng-leiknum, Rígnum. Leik-
skóla-börnin á Iðavöllum
sungu fyrir forseta-hjónin,
skólabörn lék fyrir þau tón-
list og þau heilsuðu upp á
elsta íbúa bæjarins, Jó-
hönnu Jónsdóttur 105 ára.
Á Dvalar-heimilinu Hlíð
sagði Ólafur Ragnar í ávarpi
sínu að það væri glæsibrag-
ur yfir Akureyri í dag og að
unga fólkið þar væri upplits-
djarft og fram-sækið. „Það
fyllir mann bjartsýni til fram-
tíðar.“
Ólafur og Dorrit
á Akur-eyri
Morgunblaðið/Kristján
Börnin á Akur-eyri tók vel á móti forseta-hjónunum.