Morgunblaðið - 17.04.2005, Page 54

Morgunblaðið - 17.04.2005, Page 54
Litli Svalur © DUPUIS Mímí og Máni Kalvin & Hobbes HEFURÐU EINHVERN TÍMANN SPÁÐ Í HEIMSENDI? ÁTTU VIÐ KJARNORKU- STYRJÖLD? NEI... ÉG HELD AÐ MAMMA HAFI ÁTTI VIÐ ÞENNAN SEM KEMUR EF ÉG HLEYPI LOFTINU ÚR BÍLDEKKJUNUM EINU SINNI ENN Dagbók Í dag er sunnudagur 17. apríl, 107. dagur ársins 2005 Flest stærri fyr-irtæki hafa und- anfarin ár haft sér- staka upplýsinga- fulltrúa á sínum vegum. Það finnst Víkverja dagsins gott og blessað og oft hefur þetta fólk greitt götur hans, bæði þegar hann er að sinna starfi sínu sem blaðamaður og einnig þegar hann þarf að leita upplýs- inga sem notandi ákveðinnar þjónustu. Víkverji hefur bara stundum áhyggjur af því að upplýsingafulltrúarnir þjóni sumir hverjir sama hlutverki og borgarmúrs sem sé til þess gerður að verja kóngana sína og keisara (stjórnendur alla með tölu) með kjafti og klóm. Þá er Víkverji ekki að meina að upplýsingafulltrúarnir séu að fegra foringja sína í eyru Vík- verja heldur eru þeir mjög æstir í að vera þeir einu sem svara fyr- irspurnum er snerta fyrirtækið á einhvern hátt. Ákveðið fjarskiptafyrirtæki hér í bæ hefur þennan háttinn á. Fyr- irtækið hefur teflt fram öflugum upplýsingafulltrúa sem er allur af vilja gerður að hjálpa fólki. Stundum finnst Víkverja þessi upplýsingafulltrúi hins vegar gera fyrirtækið sem hann starfar hjá einsleitt, þ.e. sama hvaða mál kemur upp, alltaf er rætt við upp- lýsingafulltrúann. All- ir vísa á upplýsinga- fulltrúann. Erfitt er að ná tali af öðrum starfs- mönnum því alltaf er bent á að upplýsinga- fulltrúinn sé með allar upplýsingar. Ef hann hefur þær ekki, safnar hann þeim saman. Víkverja finnst þetta eiginlega vera komið út í öfgar. Þegar risastórt fjarskiptafyrirtæki hefur aðeins eitt andlit er Víkverji ekki svo viss um að það sé af hinu góða. Hefur þetta fyrirtæki aðeins eina rödd? Hefur þetta fyrirtæki að- eins einn fulltrúa? Hafa aðrir starfs- menn ekki skoðun á því sem þar fer fram? En upplýsingafulltrúar eru mis- jafnir eins og þeir eru margir. Vík- verji hefur t.d. lært það í sinni vinnu að upplýsingafulltrúi Landspítalans er fróður um margt, en ekkert mál er að fá samband við stjórnendur og aðra starfsmenn spítalans, sé þess óskað. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is                Vínarborg | Í vorblíðunni sem verið hefur í Austurríki undanfarið færist líf í Prater, skemmtigarð Vínarbúa, sem er ekki ósvipaður Bakkanum í Kaup- mannahöfn. Þar er m.a. hið fræga Parísarhjól sem kom við sögu í hinni þekktu kvikmynd Þriðji maðurinn með Orson Welles sem gerð var eftir sögu Graham Greene. Morgunblaðið/Ómar Við „Bakka“ Vínarborgar MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Vakna þú, sál mín, vakna þú harpa og gígja, ég vil vekja morgunroð- ann. (Sálm. 57, 9.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.