Morgunblaðið - 17.04.2005, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 55
DAGBÓK
• Þekkt verslun með heimilis- og gjafavörur.
• Stór heildverslun með hjólbarða.
• Heildverslun með þekktan fatnað.
• Rótgróin sérverslun með mikla vaxtarmöguleika. Ársvelta 37 m. kr.
• Lítil heildverslun með bjór og vín. Heppileg til sameiningar.
• Þekkt lítil bílaleiga.
• Heildverslun með búnað og vélar til notkunar í iðnaði. Ársvelta 130 m. kr.
• Gistihús í Hafnarfirði með 25 herbergjum.
• Stórt ferðaþjónustufyrirtæki úti á landi.
• Iðnfyrirtæki í sérhæfðri vinnslu og framleiðslu matvæla. Ársvelta 100 m. kr.
• Stórt innflutningsfyrirtæki með tæknivörur. Ársvelta 360 m. kr.
• Jarðvinnufyrirtæki á Suðurlandi.
• Þekkt sérverslun/heildverslun með fallegar vörur fyrir heimili og fyrirtæki. Ársvelta 50
m. kr.
• Heildverslun með tæknivörur. Ársvelta 80 mkr.
• Dalakjör - verslun, veitingasala og bensínstöð í Búðardal. Góður rekstur. Ársvelta
170 m. kr.
• Stór blómaverslun í góðu hverfi.
• Heildverslun/sérverslun með rafmagnsvörur. Ársvelta 200 m. kr.
• Lítil heildverslun með tæki fyrir byggingariðnaðinn. Heppilegt fyrir trésmið sem vill
breyta til.
• Þekkt veitingahús í eigin húsnæði. Velta 10-12 m. kr. á mánuði.
• Útgerðarfélag á Reykjavíkursvæðinu.
• Þekkt veitingahúsakeðja með austurlenskan mat.
• Ferðaskrifstofa með sérhæfðan rekstur.
• Gott fyrirtæki í kynningar- og markaðsþjónustu.
• Rótgróið þjónustufyrirtæki í byggingariðnaði. Ársvelta 250 m. kr.
• Sérvöruverslun með 220 m. kr. ársveltu. EBIDTA 25 m. kr.
• Arðbært útgáfu- og prentþjónustufyrirtæki.
• Stór fiskvinnsla í eigin húsnæði í nágrenni Reykjavíkur.
• Sérverslun með fatnað.
• Iðnfyrirtæki með mikla sérstöðu og öruggan markað. 90 m. kr. ársvelta.
• Húsgagnaverslun í góðum rekstri.
• Þekkt verslun með föndurvörur. Ársvelta 60 m. kr.
Meðvirkninámskeið
verður haldið dagana 25.
og 27. apríl (kvöldnámskeið).
Skráning og nánari upplýsingar
í síma 867 2710.
BIRTA ráðgjafastofa
Valdís Larsdóttir ráðgjafi
Ráðgjöf fyrir fólk með áfengis- og vímuefnavanda.
valdisla@simnet.is
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Dans í Ásgarði í kvöld kl. 20.00,
Klassík spilar fyrir dansi.
Félagsstarf Gerðubergs | Miðviku-
daginn 20. apríl verður farið í heim-
sókn að Hellu á Rangárvöllum, leið-
sögn staðkunnugir. M.a heimsókn á
dvalarheimilið Lund, handverkshúsið
Heklu, versl. Vörufell, ekið um
Þykkvabæ kartöfluverksm. heimsótt,
kaffiveitingar í skólanum að Lauga-
landi í Holtum. Lagt af stað kl. 12,
skráning hafin.
Háteigskirkja | Alla mánudaga er
spiluð félagsvist í Setrinu, Háteigs-
kirkju, kl. 13. Kaffi kl. 15. Upplýsingar
hjá Þórdísi í síma 511 5405.
Korpúlfar Grafarvogi | Gönguhópur
frá Egilshöll kl. 11:00 á morgun.
Vesturgata 7 | Bingó verður þriðju-
daginn 26. apríl kl. 13. Rjómaterta
með kaffinu, allir velkomnir.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Fundur í Æskulýðs-
félagi Akureyrarkirkju kl. 20.
Fríkirkjan í Reykjavík | Lokasamvera
vetrarins hjá barnastarfi Fríkirkjunnar
í Reykjavík kl. 11:00. Létt og skemmti-
leg dagskrá. Öndunum gefið. Svala-
drykkir o.fl. Öll börn og aðstandendur
þeirra hjartanlega velkomin. Fríkirkju-
söfunuðurinn í Reykjavík.
Grafarvogskirkja | Bænahópur kl.
20:00 alla sunnudaga. Tekið er við
bænarefnum alla virka daga frá kl.
09–17 í síma 587 9070.
Grindavíkurkirkja | Sr. Yrsa Þórð-
ardóttir, héraðsprestur, heldur erindi
um sorg í kjölfar sjálfsvíga mánu-
dagskvöldið 18. apríl kl. 20. Sr. Yrsa
verður með viðtalstíma í kirkjunni
þriðjudag og miðvikudag kl. 18–21
vegna ástvina– og vinamissis. Hægt
að panta viðtalstíma í síma
692 3627.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía |
Brauðsbrotning kl. 11:00 Ræðum.
Stefán Ágústsson. Almenn samkoma
kl. 16:30 Ræðum. Jón Þór Eyjólfsson.
Gospelkór Fíladelfíu leiðir söng. Ald-
ursskipt barnakirkja á meðan sam-
komu stendur. Allir velkomnir.
KFUM og KFUK | Fundur í AD KFUK
þriðjudagskvöld kl. 20 að Holtavegi
28. Lofgjörðar– og bænasamvera í
umsjá Þórdísar Ágústsdóttur, Krist-
ínar Bjarnadóttur og fleiri. Kaffi. Allar
konur eru velkomnar.
Kotstrandarkirkja | Aðalsafn-
aðarfndur Kotstrandarsóknar verður
haldinn í Kotstandarkirkju sunnudag-
inn 17. apríl kl. 12.30. Dagskrá: Venju-
leg aðalfundarstörf. Sóknarnefnd
Kotstrandarsóknar.
Pallbílar í Hval-
fjarðargöngum
ÉG fór í gegnum göngin um daginn
sem er ekki í frásögur færandi nema
að ég var á pallbíl sem er 6,05 m.
Það gekk vel að fara frá Reykjavík,
þá borguðum við 1.000 kr. sem er það
gjald sem fólksbílar borga. En þegar
við vorum að fara til baka var okkur
tjáð að við þyrftum að borga 3.000
vegna þess að bíllinn væri of langur
(0,5!). Þetta sættum við okkur ekki
við svo við snerum við og keyrðum
Hvalfjörðinn.
Það sem ég get ekki skilið er að
pallbílar yfir 6 metra borga tvisvar
sinnum meira en venjulegur fólksbíll
sem getur þess vegna verið jeppi sem
er svipaður á stærð en eitthvað minni
og hann getur dregið á eftir sér
hestakerru.
En það sem meira er; flutn-
ingabílar sem eru miklu stærri og
geta dregið margar tengikerrur
borga 3.800 kr.! Þarna munar bara
800 krónum, ég get ekki skilið hvað er
á bak við þetta.
Kannski þykir það svona mikill lúx-
us að vera á pallbíl en þetta eru bílar
sem flæða inn í landið núna sökum
þess hve dollarinn er lágur þannig að
þetta eru ekkert dýrari bílar en t.d.
jeppar. Svo finnst mér líka svolítið
asnalegt að geta ekki keypt miða og
borgað þrjá miða í stað eins en mér
var tjáð það þegar ég athugaði að það
væri ekki hægt.
Ef pallbílar þurfa að borga meira
en aðrir bílar þarf það að vera sann-
gjarnt. Fyrir 6.000 kr. er hægt að
fara tvisvar fram og til baka til Ak-
ureyrar því flestir eru þetta dísel-
bílar. Á meðan þetta er svona fer ég
Hvalfjörðinn, legg bara fyrr af stað.
Kannski verður Hvalfjörðurinn ið-
andi af pallbílum!
Sig. H.
Góðir tónleikar
Vallargerðisbræðra
MÉR hefur fundist vanta í blaðið um-
fjöllun um Vallargerðisbræður sem
sungu í Salnum í Kópavogi 5. apríl sl.
við afskaplega mikla hrifningu sam-
komugesta. Stjórnendur voru Þór-
unn Björnsdóttir og Martin Hunger
Friðriksson. Mig langar að vekja at-
hygli á þessu því þetta var svo
skemmtileg samkoma. Ég vil koma á
framfæri þökkum frá mér og minni
konu fyrir afskaplega skemmtilega
stund. Ef þessir drengir eiga ekki
framtíðina fyrir sér í þessum söngstíl
þá veit ég ekki hverjir. Minna mann á
MA-kvartettinn á Akureyri sem var
og hét í þá daga.
Sæmundur Þorsteinsson.
Lyklakippa týndist
íKópavogi
BRÚN leðurlyklakippa týndist í eða
við Listasafn Kópavogs sl. sunnudag.
Skilvís finnandi hafi samband í síma
552 3226.
Borvél týndist
HITACHI bor-él í tösku týndist 13.
apríl á leiðinni frá Olís Gullinbrú upp
á Krókháls. Skilvís finnandi hafi sam-
band í síma 898 2889.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Sverrir
KIRSTI Huttunen heldur píanó-
tónleika í Norræna húsinu á mánu-
daginn kl. 20. Á efnisskrá eru
„Pílagrímsárin“ eftir Franz Liszt.
Kirsti Huttunen hlaut 1. verð-
laun í Maj Lind píanókeppninni í
Finnlandi árið 1979. Hún nam pí-
anóleik hjá próf. Edward Auer ár-
in 1979–81 í Los Angeles og í
Kaupmannahöfn hjá prof. Stan-
islav Knor 1981–82 og lauk einleik-
araprófi frá Sibelius-akademíunni
1986 þar sem aðalkennari hennar
var prof. Eero Heinonen árin
1982–86. Framhaldsnám stundaði
hún við Tsjaíkovskí-tónlist-
arháskólann í Moskvu hjá prof.
Dmitri Bashkirov 1988–90. Þá hef-
ur hún tekið þátt í námskeiðum
hjá nokkrum þekktum píanóleik-
urum eins og Bellu Davidovitch,
Aleksei Lybimov og György
Sebök.
Kirsti Huttunen hefur komið
fram sem einleikari með öllum
helstu sinfóníuhljómsveitum Finn-
lands svo sem Útvarpshljómsveit-
inni undir stjórn Okku Kamu o.fl.
Sem píanóleikari hefur hún sér-
hæft sig í verkum Franz Liszt, en
hún hefur leikið „Pílagrímsárin“ í
heild sinni og hin trúarlegu verk
Liszts í Sibelius-akademíunni og
vinnur nú að doktorsritgerð um
verk Franz Liszt.
Aðgangur er ókeypis.
Liszt í Norræna húsinu
1. c4 e5 2. Rc3 Rf6 3. g3 c6 4. Rf3 e4 5.
Rd4 Db6 6. Rb3 d5 7. cxd5 cxd5 8. d3
Rc6 9. Bg2 exd3 10. Be3 Da6 11. exd3
Bg4 12. Dd2 Hd8 13. 0–0 Be7 14. Rc5
Db6 15. Rd7 Da5 16. Rxf6+ Bxf6 17.
Bg5 Bxc3 18. Hfe1+ Kf8 19. bxc3 f6 20.
Df4 Bh5
Staðan kom upp á meistaramóti
Danmerkur sem lauk fyrir skömmu í
Køge. Curt Hansen (2.633) hafði hvítt
gegn Jacob Aagaard (2.449). 21. Bxf6!
gxf6 22. Dh6+ Kg8 23. Dxh5 Re5 24.
Df5 Kg7 25. Hxe5! fxe5 26. Dxe5+ Kf7
27. c4 og svartur gafst upp enda erfitt
að vera mörgum peðum undir eftir t.d.
27. … Hhe8 28. Bxd5+ Hxd5 29.
Dxd5+ Dxd5 30. cxd5.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
SÖNGNEMENDUR Nýja söng-
skólans Hjartansmál flytja óperuna
Cosi fan tutte eða Skóli elskend-
anna eftir Wolfgang Amadeus Moz-
art í styttri gerð á næstu dögum.
Þetta er ópera í 2 þáttum sem eins
og nafnið gefur til kynna fjallar um
elskendur og reynslu þeirra á gam-
ansaman hátt. Óperan var fyrst
sýnd í Vín 1. maí 1786. Textann
samdi Lorenzo da Ponte sem einnig
samdi textann við Brúðkaup Fíg-
arós.
Leikstjóri og tónlistarstjóri er
Guðbjörn Guðbjörnsson. Píanóleik-
ari er Raúl Jiménez. Flytjendur
eru: Anna Klara Georgsdóttir,
Katla Jörundsdóttir, Dagrún Leifs-
dóttir, Auður Kristinsdóttir, Þóra
Dögg Jónsdóttir, Vilborg Helga-
dóttir, Herdís Álfsdóttir,
Sæberg Sigurðsson, Páll Líndal,
Elmar Þór Gilbertsson, Sævar
Kristinsson, Árni S. Björnsson auk
fleiri nemenda skólans.
Sýningar verða í dag, sunnudag,
mánudaginn 18. og fimmtudaginn
21. apríl í tónlistarhúsinu Ými við
Skógarhlíð og hefjast þær kl 20.00
alla dagana.
Hjartansmál flytur Cosi