Morgunblaðið - 17.04.2005, Blaðsíða 56
56 SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Ástarævintýri, íþróttir, listræn við-
fangsefni og skemmtanir með börnum
eru viðeigandi í dag. Hrútinn langar til
þess að ganga í barndóm.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Tunglið beinir sjónum nautsins að heim-
ili, fjölskyldu og málefnum þeim tengd-
um. Talaðu við fjölskyldumeðlimi, taktu
til á heimilinu og bættu skipulag þitt.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Notaðu daginn í dag fyrir verslun og
viðskipti og stuttar ferðir. Þig langar til
þess að spjalla við gesti og gangandi. Þú
vilt vita hvað er efst á baugi.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Notaðu daginn til þess að fara í búðir.
Það sem þú kaupir mun ekki bara veita
þér gleði, heldur reynast góð fjárfesting.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Tunglið er í þínu merki núna, kæra ljón.
Láttu ljós þitt skína. Þú þráir bæði
skemmtanir og athygli. Hvernig væri að
taka upp símann og liðka málbeinið.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyjunni gengur best í einrúmi í dag,
allur tími sem hún á með sjálfri sér
verður henni til ánægju og yndisauka.
Það er í lagi að draga sig stundum í hlé.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Staða tunglsins ýtir undir vináttu í lífi
vogarinnar. Leggðu þig sérstaklega
fram í samræðum við aðra. Hringdu í
vin, skrepptu á kaffihús, blandaðu geði.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Hugsanlegt er að eitthvað sem sporð-
drekinn gerir í dag veki á honum sér-
staka athygli. Hafðu það í huga og vertu
í þínu besta pússi til vonar og vara.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaðurinn finnur sig knúinn til þess
að gera eitthvað óvenjulegt í dag. Eirð-
arleysi gerir vart við sig innra með hon-
um. Vertu úti undir beru lofti ef hægt
er.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Hnýttu lausa enda í tengslum við skatta,
skuldir, sameiginlegar eignir og erfða-
mál. Smáa letrið er vissulega þreytandi,
en óráðlegt að lesa það ekki.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Tunglið er beint á móti vatnsberanum
núna og ljær samtölum við maka og
nána vini aukið mikilvægi. Þú vilt vita
hvað aðrir hugsa og segja þeim hug
þinn.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Taktu frá tíma í dag til þess að taka til.
Þig langar að ná tökum á hlutunum og
bæta skipulag þitt. Þú hefur ekki séð
gólfið á fataskápnum þínum í háa herr-
ans tíð.
Stjörnuspá
Frances Drake
Hrútur
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert einstaklega ábyrgðarfull og vilja-
sterk manneskja. Þú veist hvað þú vilt og
berð þig eftir því. Ekkert fær þér aftrað,
enda ertu knúin áfram af innri sannfær-
ingu.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og
stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Tónlist
Grand Rokk | Síðasta djassaða hvíld-
ardagskvöldið í vetur á efri hæð. Sýningar
hefjast stundvíslega kl. 20, aðgangur
ókeypis.
Hafnarborg | Óperu- og Vínartónleikar Óp-
erukórs Hafnarfjarðar kl. 20. stjórnandi er
Elín Ósk Óskarsdóttir.
Listasafn Reykjanesbæjar | Vortónleikar
Kvennakórs Suðurnesja. Stjórnandi Dagný
Þórunn Jónsdóttir, píanóleikari Geirþrúður
Fanney Bogadóttir. Á efnisskránni er söng-
leikjatónlist, dægurlög, þjóðlög og ítölsk
óperutónlist. Einsöngvari er Sigurbjörg
Hjálmarsdóttir.
Samkomuhús Akureyrar | Sinfón-
íuhljómsveit Norðurlands. Fjölskyldu-
tónleikar kl. 16.
Listasýning
Ráðhús Reykjavíkur | Dropar af regni –
Amnesty International á Íslandi í 30 ár.
Myndlist
101 gallery | Helgi Þorgils Friðjónsson.
Café Karólína | Baldvin Ringsted.
Energia | Ólöf Björg.
FUGL, Félag um gagnrýna myndlist |
Anna Hallin Hugarfóstur, kort af samtali.
Gallerí Dvergur | Baldur Bragason.
Gallerí Gangur | Haraldur Jónsson.
Gallerí Gyllinhæð | 17% Gullinsnið kl. 14–
17. Sýnendur eru Árni Þór Árnason, Maríó
Múskat og Sindri Már Sigfússon.
Gallerí i8 | Hrafnkell Sigurðsson.
Gallerí Sævars Karls | Regína Loftsdóttir.
Gallerí Terpentine | Halldór Ásgeirsson.
Gerðuberg | María Jónsdóttir – Gullþræðir.
Grensáskirkja | Guðbjörg Hákonardóttir
norrænna myndarlistarmanna. Sigurður
Þorleifsson silfurlistamaður.
Saltfisksetur Íslands | Fríða Rögnvaldsd.
Yzt – gallerí og listverslun | Vatnsheimar
– verk Mireyu Samper.
Þjóðminjasafn Íslands | Ljósmyndasýning-
arnar Í Vesturheimi 1955 – ljósmyndir
Guðna Þórðarsonar og Íslendingar í Ricc-
ione – ljósmyndir úr fórum Man-
fronibræðra.
Þrastarlundur, Grímsnesi | Sveinn Sig-
urjónsson sýnir olíumálverk.
Dans
Klink og Bank | Danshöfundasmiðja Ís-
lenska dansflokksins í samstarfi við Klink
og Bank sýnir Játningar Minnisleysingjans
eftir Jóhann Frey Björgvinsson kl. 17.
Mannfagnaður
Ólsaragleði | Ólsaragleði verður haldin
laugardaginn 23. apríl í Gullhömrum, Graf-
arholti. Dagskrá hefst kl. 20 með borð-
haldi, ræðumaður, skemmtiatriði og Klaka-
bandið leikur fyrir dansi. Miðaverð er kr.
4.800 og er hægt að kaupa miða til 17.
apríl. Miðasala og nánari upplýsingar: Nína
s. 691 1771, Sjöfn s. 897 1411, Þórheiður s.
820 4468.
Réttó | Þeir sem fæddir eru 1953 og voru í
Breiðagerðis- eða Réttarholtsskóla, ætla
að hittast í tilefni þess að í vor eru 35 ár
frá því árgangur 1953 kvaddi Réttó. Nánari
upplýsingar og skráning á netfangið edda-
@simnet.is eða í síma: Addý. s. 5530653,
Gústi s. 8983950, Edda s. 848-3890.
Söfn
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra-
steinn – hús skáldsins er opið frá kl. 10 – 17.
Sími 586 8066 netfang: gljufrasteinn-
@gljufrasteinn.is.
Þjóðmenningarhúsið | Hallgrímur Pét-
ursson (1614–1674) er skáld mánaðarins.
Þjóðminjasafn Íslands | Grunnsýning
Þjóðminjasafnsins, Þjóð verður til–
menning og samfélag í 1200 ár. Ómur
Landið og þjóðin í íslenskri hönnun. Ljós-
myndasýningarnar Í vesturheimi 1955 ljós-
myndir Guðna Þórðarsonar og Íslendingar í
Riccione, ljósmyndir úr fórum Manfroni
bræðra. Opið kl 11–17.
Skemmtanir
Café Victor | DJ Jón Gestur spilar dans og
RnB tónlist að hætti hússins.
Fundir
AA-samtökin | Uppkomin börn, aðstand-
endur og alkóhólistar halda 12 spora fundi
öll mánudagskvöld frá kl. 20–21.30 að
Tjarnargötu 20 Rvík. Verið velkomin.
Eineltissamtökin | Eineltissamtökin eru
með fundi alla þriðjudaga kl. 20–21, í húsi
Geðhjálpar Túngötu 7.
Flugvirkjasalurinn | Kvenfélagið Keðjan
heldur fund í Flugvirkjasalnum Borgartúni
22, 18. apríl kl. 20.
Krabbameinsfélagið | Samhjálp kvenna
verður með „Opið hús“ í Skógarhlíð 8, húsi
Krabbameinsfélagsins, 19. apríl kl. 20.
Snarrót | Á fundi MFÍK, Menningar og frið-
arsamtakanna, 19. apríl kl. 18.30, munu
Guðrún Ögmundsdóttir, Svala Norðdahl og
Þuríður Bachmann segja frá för sinni til
Palestínu.
Spoex Samtök psoriasis- og ex-
emsjúklinga | Aðalfundur SPOEX verður
haldinn 27. apríl kl. 20, á Grand Hótel
Reykjavík Sigtúni 38. Auk venjulegra aðal-
fundastarfa fjallar Ragnheiður Alfreðs-
dóttir hjúkrunardeildarstjóri um: Bláa Lón-
ið – Ný húðlækningastöð. Einnig verður
fjallað um breytingar á húsnæði félagsins.
Fyrirlestrar
Verkfræðideild Háskóla Íslands | Meist-
arafyrirlestur í verkfræði verður 18. apríl
kl. 13. Purevsuren Dorj heldur fyrirlestur á
ensku um verkefni sitt til meistaraprófs í
verkfræði. Fyrirlesturinn verður í stofu 102
í Lögbergi.
Námskeið
Alþjóðahúsið | Amal Tamimi fé-
lagsfræðingur frá Palestínu, heldur nám-
skeið um konur og Islam, 18. og 20. apríl kl.
20–22 báða dagana. Hvaða áhrif hefur
Islam á líf kvenna í löndum múslima? Hvað
segir Kóraninn og hver er raunveruleikinn?
Verð er 5.000 kr. og skráning í síma
5309300 og á amal@ahus.is.
www.ljosmyndari.is | 3ja daga námskeið
(12 klst) fyrir stafrænar myndavélar, 18.,
20. og 21. apríl og 25., 27. og 28. apríl kl.
18 – 22, alla dagana. Verð kr. 14.900. Fyrir
byrjendur og lengra komna. Skráning á
www.ljosmyndari.is eða síma 898–3911.
Einnig er boðið upp á námskeið í fjarnámi.
Þar fá nemendur eigin vefsíðu og eru í
tengslum við sinn leiðbeinanda í gegnum
tölvupóst.
(Gugga) sýnir málverk í forsal.
Hafnarborg | Í samvinnu við Sophienholm í
Kaupmannahöfn og Hafnarborg, hefur Jo-
hannes Larsen safnið sett saman stóra
sýningu um danska og íslenska listamenn
og túlkun þeirra á íslenskri náttúru á 150
ára tímabili.
Jóhannes Dagsson – „Endurheimt
Hallgrímskirkja | Vignir Jóhannsson.
Hrafnista Hafnarfirði | Stefán T. Hjaltalín
sýnir akrílmyndir og fleiri listmuni í Menn-
ingarsalnum 1. hæð.
Kaffi Sólon | Birgir Breiðdal.
Listasafn ASÍ | Helgi Þorgils Friðjónsson.
Listasafnið á Akureyri | Erró.
Listasafn Íslands | Íslensk myndlist 1930-
1945. Rúrí Archive Endangered waters.
Leiðsögn um sýningarnar kl. 15 í dag.
Næstsíðasta sýningarhelgi.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Fjórar
glerlistasýningar.
Listasafn Reykjanesbæjar | Erlingur
Jónsson og samtímamenn.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið. Yfirlitssýning.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Nían –
Myndasögumessa. Brynhildur Þorgeirs-
dóttir – Myndheimur/Visual World.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Markmið XI. Hörður Ágústsson.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Bára ljós-
myndari – Heitir reitir.
Menntagátt | Menntagátt opnaði í febrúar
myndasafn á vefnum menntagatt.is/
gallery. Þar hafa allir grunnskólanemendur
haft tækifæri til að senda inn myndir til
birtingar. Skilyrði er að myndirnar sýni á
einhvern hátt íslenskan vetur. Hægt er að
senda inn myndir fram til 18. apríl.
Norræna húsið | Farfuglarnir, sýning sex
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 blautur inn að
skinni, 8 pyngju, 9 hitann,
10 skartgripur, 11 nauta,
13 áann, 15 karldýr, 18
eitthvað smávegis, 21
hreinn, 22 látni, 23 verk-
færið, 24 skipshlið.
Lóðrétt | 2 lýkur, 3 níska,
4 þreifa fyrir sér, 5 bolflík,
6 viðbót, 7 sæla, 12 lát-
bragð,14 spor, 15 fnykur,
16 sjúkdómur, 17 stíf, 18
alda, 19 saurnum, 20 fugl-
inn.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt |1 áheit, 4 sópur, 7 önduð, 8 rollu, 9 arg, 11 nýra, 13
rita, 14 feyra, 15 vagl, 17 krám, 20 eir, 22 liðug, 23 ungar,
24 norpa, 25 launi.
Lóðrétt | 1 áhöfn, 2 eldur, 3 taða, 4 sorg, 5 polli, 6 rausa, 10
reyfi, 12 afl, 13 rak, 15 valan, 16 góðir, 18 ruggu, 19 myrti,
20 egna, 21 rugl.
Skref í átt til hamingju“ er yfirskrift nám-skeiðs sem búddanunnan Kelsang Ny-ingpo heldur í Reykjavík dagana 25. apr-íl og 2., 9. og 16. maí, kl. 20–21.30, og fer
fram í stofu 204 í Lögbergi, Háskóla Íslands. Þar
verða kynntar hugmyndir búddisma um hvernig
þróa megi með sér afslappaðri afstöðu til lífsins
og þeirra erfiðleika sem kunna að steðja að. Einn-
ig verða skoðaðar leiðir til að bæta persónuleg
sambönd, svo sem við maka, fjölskyldumeðlimi og
vinnufélaga.
Nyingpo segir að námskeiðið sé óformlegt og
afslappað, að fólki gefist tækifæri til að spjalla og
spyrja spurninga, auk þess sem því verði leið-
beint varðandi hugleiðslu. Hún tekur fram að
námskeiðið sé öllum opið og að fólk þurfi ekki að
vera búddistar til að taka þátt í því. Flestir sem
sæki slík námskeið sé fólk sem vilji einfaldlega
læra undirstöðuatriði í hugleiðslu og bæta lífs-
gæði sín.
Á hvern hátt geta hugleiðsla og búddismi bætt
líf fólks?
„Í hugleiðslu er unnið með hugann á djúpu
plani. Samkvæmt búddisma er innri ró frum-
forsenda lífshamingju. Sé þessi ró ekki til staðar
þá upplifum við ekki hamingju, jafnvel þótt við
búum við mjög góðar ytri aðstæður. Höfum við á
hinn bóginn öðlast innri ró þá erum við ham-
ingjusöm, burtséð frá því hvar við erum, með
hverjum og hvað við erum að gera. Neikvæðar
hugsanir, svo sem reiði, pirringur, afbrýðisemi og
streita, eyðileggja hugarró manns. Ef við erum
ánægð en verðum auðveldlega pirruð, þá erum
við ekki hamingjusöm. En með því að læra að
bregðast við á jákvæðari hátt, tekst okkur smám
saman að takast á við fleiri af erfiðleikum lífsins.
Hugleiðsla, samkvæmt búddisma, kennir margar
ólíkar aðferðir við að breyta viðbrögðum huga
manns við hverju því sem kemur upp á í lífinu.“
Er hugleiðsla eitthvað sem á við alla?
„Allir geta stundað hugleiðslu. Samkvæmt
minni reynslu í gegnum árin er enginn ákveðinn
hópur sem hugleiðir fremur en annar. Ég hef séð
fólk á öllum aldri og með alls konar ólíkan bak-
grunn hafa gagn af hugleiðslu. Ég tel að hug-
leiðsla henti vel vestrænum nútímalifnaðarhátt-
um og vegna hraðans og streitunnar þá þurfum
við greinilega að stunda hugleiðslu. Það þarf ekki
að breyta lífsstíl sínum til að hugleiða, það er auð-
velt að fella hugleiðslu samkvæmt búddisma inn í
hvaða dagskrá sem er. Til dæmis er hægt að beita
aðferðum búddismans á dagleg viðfangsefni og
öðlast þar með meiri hugarró. Hugleiðsla er þó
engin skyndilausn við daglegum vandamálum, en
með því að beita hugleiðsluaðferðum sjáum við
svo sannarlega góðan árangur með tímanum.“
Hugleiðslunámskeið | Skref í átt til hamingju
Innri ró er forsenda hamingju
Kelsang Nyingpo er
fædd árið 1972 á Eng-
landi. Hún er landfræð-
ingur að mennt, lærði í
Sussex-háskóla í
Brighton. Þegar hún bjó
þar byrjaði hún að
stunda hugleiðslu og
hóf nám við búdd-
istaháskóla í Brighton.
Nyingpo tók vígslu sem
búddanunna árið 1996
og hefur unnið sjálfboðastörf fyrir ýmis búdd-
istasamtök síðan. Nú tekur hún þátt í und-
irbúningi við að koma á fót búddistamið-
stöðvum í nokkrum Evrópulöndum. Þegar hún
dvelur á Íslandi heldur hún hugleiðsl-
unámskeið.
Úrslitin úr
enska boltanum
beint í
símann þinn