Morgunblaðið - 17.04.2005, Qupperneq 58
58 SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Hátíðir | Fjölbreytt Kirkjulistavika í Akureyrarkirkju haldin í níunda skipti
Sameinum kraftana
og fáum góða gesti
Kammerkór Biskupstungna ásamt Hilmari Erni Agnarssyni og ónefndum hundi úr sveitinni.
KIRKJULISTAVIKA í Akureyrarkirkju, sú
níunda, hefst í dag, sunnudaginn 17. apríl með
fjölskylduguðsþjónustu kl. 11, sem jafnframt
er lokahátíð sunnudagaskólans í vetur. Síðan
rekur hver viðburðurinn annan þar til hátíð-
inni lýkur um næstu helgi með hátíðartón-
leikum og æðruleysismessu.
Formleg setning hátíðarinnar verður í Safn-
aðarheimili kirkjunnar að lokinni messunni í
dag og í framhaldi þess verður opnuð sýning
Hrefnu Harðardóttur listakonu, sem hún nefn-
ir Leirplötur, í kapellu kirkjunnar.
„Síðdegis verður skemmtilegt verkefni þeg-
ar Stúlknakór Akureyrarkirkju og Kamm-
erkór Biskupstungna flytja Gloríu eftir Vi-
valdi. Stúlknakórinn fór í æfingabúðir í
Skálholt í vetur og nú koma hinir krakkarnir
hingað norður; það hafa skapast skemmtileg
tengsl á milli þessara hópa,“ segir Björn Stein-
ar Sólbergsson, organisti Akureyrarkirkju og
listrænn stjórnandi hátíðarinnar – en hann
leikur einmitt undir á þessum tónleikum.
Í vikunni verða hefðbundnir liðir í safn-
aðarstarfi kirkjunnar, þó með svolitlum hátíð-
arbrag, að sögn Björns Steinars.
Mömmumorgunn svokallaður er á milli 10
og 12 á miðvikudaginn í Safnaðarheimilinu þar
sem Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri
Leikfélags Akureyrar, spjallar um starfsemi
og námskeiðshald fyrir börn og ungt fólk.
Kyrrðar- og bænastund verður í kirkjunni kl.
12 á fimmtudaginn, sumardaginn fyrsta, og
opið hús fyrir aldraða kl. 15 sama dag en þá
verður farið í vorferð til Dalvíkur.
Á miðvikudagskvöldið kl. 20.30 verður
hljómsveitin Luther með tónleika í Safn-
aðarheimilinu. Hljómsveitina skipa Björn
Thoroddsen, Stefán S. Stefánsson, Jón Rafns-
son og Benedikt Brynleifsson – og leika verk
af plötunni Luther, sem kom út fyrir jólin.
„Þeir eru þarna að vinna með sálmaarf Lúth-
ers,“ segir Björn Steinar, en Marteinn Lúther
var uppi undir lok fimmtándu aldar og fram á
miðja þá sextándu; fæddur 1483 og dó 1546.
Aftansöngur verður í kirkjunni kl. 18 á
föstudaginn, en Vesper, eins og aftansöng-
urinn er gjarnan nefndur, „er ein hinna klass-
ísku tíðagjörða og er sunginn um miðjan aftan,
klukkan sex. Þá reglu að syngja tíðir á þriggja
stunda fresti allan sólarhringinn má rekja til
heilags Benedikts frá Núrsíu sem uppi var á 6.
öld. Þessar bænastundir varðveitast nú aðeins
hjá okkur í aftansöng á aðfangadegi jóla og
gamlársdegi. Vesper hefur verið fastur liður í
Kirkjulistaviku í Akureyrarkirkju frá upp-
hafi,“ segir í tilkynningu frá hátíðinni.
Fermingarmessa verður í Akureyrarkirkju
kl. 10.30 á laugardaginn og mikið verður um
dýrðir að sögn Björns Steinars á lokadegi há-
tíðarinnar, sunnudaginn 24. apríl.
Kantötuguðsþjónusta hefst kl. 11 þar sem
Jón Aðalsteinn Baldvinsson, vígslubiskup á
Hólum, predikar og sr. Svavar Alfreð Jónsson
og sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir þjóna fyrir
altari.
Í messunni verða fluttir þættir úr kant-
ötunni „Es ist euch gut, dass ich hingehe“ eftir
Johannes Sebastian Bach, fyrir kór, einsöngv-
ara og kammersveit. Kantata þessi er saman
fyrir þennan sunnudag, fjórða sunnudag eftir
páska, að sögn Björns Steinars
Kór Akureyrarkirkju syngur en kamm-
ersveitina skipa Marcin Lazarz, Tiina Kuus-
mik, Maria Podhajska, Gunnar Þorgeirsson og
Ülle Hahndorf. Björn Steinar leikur á orgel og
einsöngvarar eru Sigríður Aðalsteinsdóttir og
Michael Jón Clarke. Stjórnandi er Eyþór Ingi
Jónsson.
„Á hátíðartónleikunum kl. 16 þennan síðasta
dag hátíðarinnar verður glæsileg efnisskrá en
auk þess að vera hluti Kirkjulistaviku er Kór
Akureyrarkirkju í raun að fagna 60 ára afmæli
með þessum tónleikum,“ segir Björn Steinar
ennfremur.
Á efnisskránni verða verk eftir frönsku tón-
skáldin og orgelleikarana Charles-Marie
Widor og Maurice Duruflé – aðalverkið eftir
þann fyrrnefnda, fyrir blandaðan kór, karla-
kór og tvö orgel. Kór Akureyrarkirkju og
Kammerkór Norðurlands syngja og Voces
Thules syngja hlut karlakórsins.
Hörður Áskelsson, organisti við Hallgríms-
kirkju í Reykjavík, verður gestastjórnandi á
tónleikunum. „Það er okkur mikill heiður að
Hörður, sonur Akureyrar, skuli vera gesta-
stjórnandi. Við erum mjög ánægð með sam-
starfið við hann,“ segir Björn Steinar, en því
má bæta við að verkið verður aftur flutt þann
1. maí, í Hallgrímskirkju.
Kirkjulistaviku lýkur svo sunnudagskvöldið
24. apríl með æðruleysismessu í Akureyr-
arkirkju kl. 20.30. „Séra Jóna Lísa Þorsteins-
dóttir er frumkvöðull að æðruleysismessunni,
sem hefur fest sig í sessi hér í kirkjunni,“ segir
Björn Steinar, en síðustu fimm ár hefur eitt
sunnudagskvöld í mánuði yfir vetrarmánuðina
verið helgað slíkri messu. „Heiti sitt draga
þær af æðruleysisbæninni, sem margir þekkja.
Þessar messur einkennast af einföldu formi,
miklum almennum söng, bænagjörð og þátt-
töku fólks sem hefur kynnst 12 spora leiðinni
eða langar að kynnast henni. Andrúmsloftið er
hlýlegt og einkennist af samkennd og ein-
lægni. Æðruleysismessur eru öllum opnar og
allir eru velkomnir sem hafa löngun til að
kynna sér tengsl kristinnar trúar og sporanna
tólf og læra að nota þau í eigin lífi,“ segir í til-
kynningu frá hátíðinni.
Björn Steinar segir að kirkjulistavikan í Ak-
ureyrarkirkju hafi vaxið mjög að umfangi í
gegnum árin. Hún er haldin annað hvert ár,
þannig að næst – eftir tvö ár – verður haldið
upp á 20 ára afmæli hennar með 10. hátíðinni.
„Það er mjög gleðilegt hve allir eru viljugir
til þess að taka þátt í hátíðinni. Hún er skipu-
lögð með góðum fyrirvara og stóru menning-
arstofnanirnar í bænum hafa allar komið mjög
myndarlega að henni, einhvern tíma á þessu
tímabili,“ segir Björn Steinar. Hann telur upp
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Leikfélag
Akureyrar, Amtsbókasafnið, Listasafnið á Ak-
ureyri, Tónlistarskólann, Tónlistarfélagið og
Minjasafnið á Akureyri. „Við erum að sameina
kraftana í bænum og fáum líka alltaf góða
gesti að til að taka þátt.“
Aðsókn hefur alltaf verið góð, segir Björn
Steinar, en algjör metaðsókn var fyrir tveimur
árum þegar Sálumessa Verdis, Requim, var
flutt í Íþróttahöllinni. Þar komu fram auk Sin-
fóníuhjómsveitar Norðurlands, Kórs Akureyr-
arkirkju, Kórs Langholtskirkju og Kamm-
erkórs Norðurlands einsöngvararnir Kristján
Jóhannsson, Kristinn Sigmundsson, Björg
Þórhallsdóttir og Annamaria Chiuri.
Listvinafélag Akureyrarkirkju er ábyrgð-
araðili hátíðarinnar „en bæði kirkjuleg yf-
irvöld og yfirvöld menningarmála hafa stutt
okkur vel,“ segir Björn Steinar Sólbergsson.
Stóra svið
Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau
Lau 23/4 kl 20,
Fö 29/4 kl 20, Lau 7/5 kl 20
AUSA eftir Lee Hall - Í samstarfi við LA
Fi 21/4 kl 20 - Síðasta sýning
Ath: Miðaverð kr 1.500
HÉRI HÉRASON snýr aftur -
Fyndið - ferskt - fjörugt - farsakennt
SVIK eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI, Sögn ehf og LA.
Su 24/4 kl 20,
Fi 28/4 kl 20
Aukasýningar
SEGÐU MÉR ALLT e. Kristínu Ómarsdóttur
Í kvöld kl 20,
Fö 22/4 kl 20
Síðustu sýningar
BÖRN 12 ÁRA OG YNGRI FÁ FRÍTT Í BORGARLEIKHÚSIÐ Í FYLGD FULLORÐINNA
- gildir ekki á barnasýningar!
Nýja svið, Litla svið og Þriðja hæðin ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur
Í kvöld kl 20 - UPPSELT, Mi 20/4 kl 20 - UPPSELT,
Fi 21/4 kl 20, - UPPSELT, Fö 22/4 kl 20 - UPPSELT,
Lau 23/4 kl 20 - UPPSELT, Su 24/4 kl 20 - UPPSELT,
Fö 29/4 kl 20 - UPPSELT, Lau 30/4 kl 20 - UPPSELT,
Su 1/5 kl 20 - UPPSELT, Fi 5/5 kl 20
HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna Jónssonar
eftir vesturfarasögu Böðvars Guðmundssonar
Í kvöld kl 20,
Fi 21/4 kl 20, Fö 22/4 kl 20,
Lau 30/4 kl 20, Su 8/5 kl 20, Fö 13/5 kl 20
Fáar sýningar eftir
DRAUMLEIKUR eftir Strindberg
Samstarf: Leiklistardeild LHÍ
Su 24/4 kl 20,
Fi 28/4 kl 20 - UPPSELT
Síðustu sýningar
RIÐIÐ INN Í SÓLARLAGIÐ
e. Önnu Reynolds
Í samstarfi við Leikhópinn KLÁUS
Fö 22/4 kl 20,
Lau 23/4 kl 20
AUGNABLIKIÐ FANGAÐ - DANSLEIKHÚSIÐ
fjögur tímabundin dansverk
Fi 21/4 kl 19.09 - Frumsýning,
Su 24/4 kl 19.09,
Su 1/5 kl 19.09
Aðeins þessar 3 sýningar
TERRORISMI e. Presnyakov bræður
Mi 20/4 kl 20,
Fi 28/4 kl 20,
Fi 5/5 kl 20
KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren
Í samstarfi við Á þakinu
Aðalæfing mi 20/4 kl 18 - UPPSELT,
Frumsýning fi 21/4 kl 14 - UPPSELT,
Lau 23/4 kl 14,
Su 24/4 kl 14,
Su 1/5 kl 14, Su 1/5 kl 17
Apótekarinn eftir Haydn
Óperustúdíó Listaháskóla Íslands og Íslensku óperunnar
29. apríl kl. 20 - Frumsýning
1. maí kl. 20 - 2. sýn - 3. maí kl. 20 - 3. sýn
8. maí kl. 20 - 4. sýn - 10. maí kl. 20 - 5. sýn - Lokasýning
Ath. Aðgangur ókeypis
www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200
Íslenska óperan v/Ingólfsstræti Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík Sími: 511 6400
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
Pakkið á móti
frumsýnt
15. Apríl
Pakkið á móti Eftir Henry Adams
Lau. 16.4 kl 20 2. kortas. UPPSELT
Fim. 21.4 kl 20 3. kortas. UPPSELT
Fös. 22.4 kl 20 4. kortas. UPPSELT
Lau. 23.4 kl 20 5. kortas. UPPSELT
Mið. 27.4 kl 20 Aukas. Nokkur sæti laus
Fös. 29.4 kl 20 6. kortas. Örfá sæti laus
Lau. 30.4 kl 20 Örfá sæti laus
GUÐRÚN Eva
Mínervudóttir
rithöfundur mun
gefa næstu
skáldsögu sína,
Sirkus, út hjá
Eddu – útgáfu
undir merkjum
Máls og menn-
ingar. Guðrún
Eva hefur fram
að þessu gefið út bækur sínar hjá
Bjarti en hefur nú ákveðið að
ganga til liðs við Eddu – útgáfu.
Guðrún Eva hefur sent frá sér 5
sagnaverk, smásagnasafnið Á með-
an hann horfir á þig ertu María
mey, og skáldsögurnar Ljúlí ljúlí,
Fyrirlestur um hamingjuna, Al-
búm og Sagan af sjóreknu píanó-
unum.
„Edda – útgáfa væntir mikils af
samstarfinu við Guðrúnu Evu sem
hefur með verkum sínum skipað
sér í framvarðarsveit ungra ís-
lenskra prósahöfunda,“ segir í
frétt frá Eddu.
Guðrún Eva
til Eddu
Guðrún Eva
Mínervudóttir
GAGNASAFN MORGUNBLAÐSINS
mbl.is
Með köldu blóði eftir Ian Rankin er
komin út hjá Skruddu í þýðingu Önnu
Maríu Hilmarsdóttur.
Aðalpersóna sögunnar er rann-
sóknarlögreglumaðurinn Rebus sem
þekktur er úr samnefndum sjón-
varpsþáttum. „Þetta ætti að vera hin-
um fjölmörgu aðdáendum Rankins
hér á landi ánægjuefni. Bókin sem
fengið hefur nafnið Með köldu blóði
kom út á Bretlandseyjum í fyrra undir
nafninu A Question of blood. Bókin
kom út innbundin á íslensku fyrir síð-
ustu jól og hlaut afbragðsviðtökur.
Fyrir nokkrum árum var gerð sjón-
varpssería upp úr nokkrum bóka
hans með skoska leikaranum John
Hannah í hlutverki Rebusar. Var hún
m.a. sýnd í íslenska sjónvarpinu við
miklar vinsældir. Ian Rankin hefur fyr-
ir löngu fest sig í sessi sem einn
helsti spennusagnahöfundur Breta
og er um þessar mundir á hátindi fer-
ils síns,“ segir í kynningu útgefanda.
Tveir unglingar eru myrtir í skól-
anum og morðinginn, uppgjafar-
hermaður og einfari, fremur síðan
sjálfsmorð. Í sjálfu sér er ekkert
leyndardómsfullt við þetta ... nema
ástæðan, að áliti lögreglunnar.
Spenna