Morgunblaðið - 17.04.2005, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 59
MENNING
Green tea
extract
Orka og vellíðan
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
Góð heilsa - Gulli betri
-fyrir útlitið
Hver þátttakandi hefur 10 mínútur til ráðstöfunar og
getur nýtt þann tíma að eigin vild (leikur, söngur, dans).
Í Þjóðleikhúsinu þri. 26/4 kl. 16:15
og mið. 27/4 kl. 16:15
Áhugasamir geta skráð sig með því að senda
tölvupóst á hlin@leikhusid.is eða með símtali
í s. 585 1231. Taka þarf fram nafn, símanúmer
og netfang. Nánari upplýsingar er að finna
á www.leikhusid.is
Áheyrnarpróf
fyrir leikara
Fögnum sumri
með Össuri
Á fimmtudaginn gengur sumarið í garð og þá
bjóða stuðningsmenn Össurar Skarphéðinssonar til
sumarfagnaðar í Starfsstöð Össurar, Ármúla 40,
klukkan þrjú.
Sumarkaffi, grillbíllinn mætir, tónlistarmenn
og skemmtikraftar leika listir sínar. Verið velkomin
og takið fjölskylduna með. Dagskráin nánar
auglýst á heimasíðu stuðningsmanna Össurar,
www.formadurinn.is!
Á réttri leið
517 6705
Sími stuðningsmanna
KVENNAKÓR Kópavogs heldur
tónleika á mánudag kl 20:00 í Hjalla-
kirkju. Efnisskráin er fjölbreytt, svo
sem þjóðlög frá ýmsum löndum,
negrasálmar, lög eftir Lennon og
McCartney og fleira. Stjórnendur og
undirleikarar eru Natalía Chow
Hewlett og Julian Hewlett.
Síðan er kórinn að fara í sína
fyrstu tónleikaferð út fyrir land-
steinana til vinabæjar Kópavogs,
Klakksvíkur í Færeyjum.
Morgunblaðið/Sverrir
Kvennasöngur
í Hjallakirkju
ÍSLENZKA sönglagið, sú sælukta
sérgrein á heimsvísu þökk sé tak-
markaðri útbreiðslu tungunnar, var í
hásæti á Tíbrártónleikum í Salnum á
þriðjudag. Aðsóknin var vel fyrir ofan
60-160 manna meðallag flestra
kammertónleika eða um 200, enda
lætur söngáhugi landans sjaldan að
sér hæða – þó varla hafi áður kvisazt
út að slegið yrði á óvenjulétta strengi
undir lokin. Kom grínið því frekar
sem óvæntur bónus.
Prógrammið var viðamikið, heil 30
lög auk aukalaga. Sviðsljósinu var
hnífjafnt skipt á milli söngvaranna, er
gengu hvor stöðugt inn og út. En sé
raðað eftir hvorum raddflytjanda og
hverjum höfundi fyrir sig, söng Eyj-
ólfur Eyjólfsson fyrir hlé eftir Emil
Thoroddsen Í fögrum dal og Wiegen-
lied (6), eftir Þórarin Guðmundsson
Kveðju (3) og Vögguvísu Jóns Leifs.
Eyjólfur náði allgóðu flæði í hend-
ingamótun og bar að þrótti af í 3, og
úthaldi í 6 – þó að inntónun hefði mátt
vera aðeins hreinni á kafla.
Hallveig Rúnarsdóttir söng í fyrri
hluta eftir Jórunni Viðar Únglíng-
urinn í skóginum (4) – nú auðkennt
„I“, því síðbúið framhaldið, Únglíng-
urinn í skóginum II, frumfluttu þau
Árni Heimir Ingólfsson næst á eftir.
Var ekki að heyra nein ellimörk á
spræku dadaíska ungmenni Jór-
unnar og Laxness eftir hálfrar aldar
hlé. Jórunn átti líka hið öllu tónteygð-
ara Im Kahn, þar sem söngkonan
m.a. reyndi textans vegna við slétt-
söng með eftirtektarverðum árangri.
Loks söng Hallveig
þroskaárameistaraverk Páls Ísólfs-
sonar, hina sex Söngva úr Ljóða-
ljóðum, með stæltum glansi á hæstu
nótum og í krefjandi stökkum síðustu
laganna, þótt maður saknaði nokk-
urrar breiddar í túlkun, og einkum
hljómfyllingar á botnsviði.
Yngri tónskáldin komust að í seinni
hálfleik. Einsöngsnúmer Hallveigar
eftir Tryggva M. Baldvinsson voru
hið kyrrlátt einfalda Þú ein (17), og
Piaf-kenndi Parísarvalsinn Véný séní
(24), Hvar ertu? og Stólar úr Heims-
kringlu-flokki hans við samnefnd ljóð
Þórarins Eldjárn, er Tryggvi á raun-
ar skilda öfundarhnútu fyrir að tón-
setja engu óhnyttilegar en ljóðskáldið
orti. Einnig söng hún Það kom söng-
fugl að sunnan (19) Atla Heimis
Sveinssonar. Tókust bezt 17 og 24.
Eyjólfur söng eftir feðgana Ragn-
ar H. Ragnar og Hjálmar H. Ragn-
arsson Hjarðmeyna (15) og Hjá
fljótinu (16), Krotað í sand (18) Atla
Heimis og Heimskringlulögin Öfug-
meginframúrstefnu, Heimskringlu
(25), Völuspá (27) og Fingurbjörg.
Fallegt pastorale-legató var yfir 15,
og 16 var líðandi lýrískt með tærum
lokavókalísum, þó eitthvað virtist
vanta í 18. Hins vegar var víða gaman
að kómískum tilþrifum hans í Heims-
kringluflokknum, mest að sýndar-
ábúðinni í 27.
Þau Hallveig frumsungu nýjan
þriggja laga örflokk eftir systur söng-
konunnar, Hildigunni Rúnarsdóttur,
Vísur fyrir vonda krakka við ljóð
Davíðs Þórs Jónssonar. Var þar, líkt
og síðast í Eldjárnslögunum, glettnin
í algleymingi. Áheyrendur tóku þess-
um gamansmáperlum afar vel, þó að
píanistinn væri örlítið stífur á sveifl-
unni í gospel-merseybíti síðasta lags-
ins (líkt og í „vampi“ 25). Í þessum
lokahluta tónleikanna kórónaðist
sviðskersknin með kostulegu tangó-
atriði Vonds og góðs (30) er sannaði
að Vengerov hafði ekki nýsótt okkur
heim til einskis, enda verðskulduðu
ástríðufull argversk atlot söngvar-
anna fyllilega hlátrasköll áheyrenda.
Hér sem fyrr dró nákvæmur
píanóundirleikur Árna Heimis vel
fram stílrænu sérkenni laganna í full-
komnu jafnvægi, og var áslátturinn
oft leiftrandi vakur, t.d. í kvakandi
trillurunum 19.
Ástríðufull atlot
TÓNLIST
Salurinn
Íslensk sönglög eftir Pál Ísólfsson, Jón
Leifs, Jórunni Viðar (frumfl.), Atla Heimi
Sveinsson, Hjálmar H. Ragnarsson, Hildi-
gunni Rúnarsdóttur (frumfl.), Tryggva M.
Baldvinsson o. fl. Hallveig Rúnarsdóttir
sópran, Eyjólfur Eyjólfsson tenór og Árni
Heimir Ingólfsson píanó. Þriðjudaginn
12. apríl kl. 20.
Einsöngstónleikar
Ríkarður Ö. Pálsson
Hallveig
Rúnarsdóttir
Eyjólfur
Eyjólfsson
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111