Morgunblaðið - 17.04.2005, Qupperneq 60
60 SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Íslandsbanki veitir á þessu ári sex félögum í
Námsmannaþjónustu Íslandsbanka
200.000 kr. námsstyrk.
Það eina sem þú þarft að gera er að sækja um fyrir
10. maí nk. og þú gætir hlotið styrk.
Sæktu um núna á isb.is/namsstyrkur
Færð þú 200.000 kr.
námsstyrk?
Allar hreintrúarstefnur ítónlist bera feigðina íbrjósti sér því þar hlýturað koma að ekki verði
gengið lengra í trúnni – þegar
menn spila eins hratt og fræðilega
er unnt, eða eins hátt og græj-
urnar heimila, eða eins lágt og eyr-
að greinir hvað á þá að gera, hvert
á að stefna? Svo er því farið með
harðkjarnann, hann hlaut að breyt-
ast um það leyti sem menn voru
komnir að endimörkum hörkunnar.
Úr ýmsum áttum
Ekki má þó skilja þessi orð svo
að menn séu hættir að spila harð-
kjarna, hann er sígildur, en flestir
eru þó farnir að krydda hann og
skreyta, breyta áherslum og áferð.
Sumir leiddust út í emo-rokk, aðrir
í átt að þungarokki og enn aðrir í
eitthvað annað líkt og Hot Snakes
sem einmitt er sprottin úr harð-
kjarnanum með smá viðkomu í
emo og liðsmenn sveitarinnar eru
úr ýmsum áttum.
Þeir Ric Froberg gítarleikari og
John Reis söngvari léku á sínum
tíma með harðkjarnasveitinni
Pitchfork og síðan með Drive Like
Jehu, en Reis söng líka með Rock-
et From the Crypt undir dulnefn-
inu Speedo, og trymbillinn Jason
Kourkounis lék lengi með The
Delta 72. Í Hot Snakes var enginn
eiginlegur bassaleikari framan af í
það minnsta, en þó lék með þeim
félögum bassaleikarinn Gar Wood
sem spilaði á gítar í Fishwife.
Þar sem þeir félagar bjuggu
hver í sinni borginni, Reis og Wood
í San Diego, Froberg í New York
og Kourkounis í Philadelphia,
höfðu þeir þann háttinn á við laga-
smíðar að Reis og Kourkounis
sömdu lögin í snarpri vinnulotu í
San Diego, yfirleitt á viku, og
sendu síðan til Froberg til að
semja sönglínur og texta og taka
upp jafnharðan.
Fyrsta breiðskífan, Automatic
Midnight, kom út 2000 hjá þeirri
ágætu útgáfu Sympathy for the
Record Industry (White Stripes
meðal annars). Á plötunni var æv-
intýralegur hrærigrautur af hráu
drífandi rokki sem spannaði allt
frá tilraunanýbylgju í harðkjarna.
Tveimur árum síðar kom Suicide
Invoice, enn betri plata sem tekin
var upp í bílskúr til að tryggja að
hljómur á henni yrði hæfilega hrár.
Suicide Invoice, sem Swami, út-
gáfa Reis, gaf út vestan hafs, var
enn betur tekið en plötunni á und-
an, mun betri plata líka, og í kjöl-
farið fór sveitin í sína fyrstu löngu
tónleikaför.
Ári síðar, 2003, var Reis kominn
í tvær hljómsveitir til viðbótar við
Hot Snakes, Rocket From the
Crypt og The Sultans, aukinheldur
sem hann rak Swami útgáfuna.
Hann langaði þó til að gera meira
með Hot Snakes og hafði samband
við Froberger sem tók hugmynd-
inni vel. Þeir hringdu í Kourkoun-
is, en hann var ekki til í tuskið,
hann var að taka upp breiðskífu
með nýrri sveit sinni, Burning
Brides, og ætlaði að halda sig við
eina hljómsveit í einu. Á endanum
hljóp í skarðið samstarfsmaður
Reis í Rocket From the Crypt,
Mario Rubalcaba, sem hefur líka
spilað með Black Heart Process-
ion, Clikitat Ikatowi og Sea Of
Tombs, og þeir félagar byrjuðu að
semja efni á nýja plötu.
Nýjar pælingar og nýr taktur
Með nýjum trommuleikara komu
nýjar pælingar, nýr taktur, og tón-
list sveitarinnar breyttist talsvert,
meðal annars fyrir það að nú var
bassaleikari nýttur í öllum lögum
en ekki bara stöku sinnum. Breytt-
an hljóm má þó lítillega einna helst
skýra með því að platan var unnin
af öllum liðsmönnum sveitarinnar,
þ.e. í stað þess að menn voru að
sýsla hver í sínu horni líkt og forð-
um komu þeir saman í sömu borg-
inni, sömdu, æfðu og tóku upp.
Platan, Audit in Progress, kom
svo út seint á síðasta ári, Swami
gaf út vestan hafs og One Little
Indian austan, og er besta plata
sveitarinnar til þessa, þétt, kraft-
mikil og ákveðin. Það bar svo til
tíðinda að sveitin fór í heljarinnar
ferðalag til að fylgja skífunni eftir,
en annars hefur hún verið löt við
tónleikahald undanfarin ár vegna
anna þeirra félaga og hafði reynd-
ar ekkert spilað opinberlega í tvö
ár þegar platan kom út.
Tónleikaferðin hófst í september
og með því fyrsta sem sveitin gerði
var að taka upp þrjú lög fyrir þann
mæta útvarpsmann John Peel sem
hafði fyrir sið að fá þær sveitir sem
honum þóttu spennandi til að taka
upp nokkur lög fyrir útvarpsþátt
sinn. Sveitin hélt í hljóðver BBC í
október sl. og tók þar upp fjögur
lög, tvo af nýju plötunni og tvö af
fyrstu plötunni, en áður en kom að
útsendingu lést Peel, áður en tókst
að spila lögin í útvarpi. Lögin
koma svo út í næstu viku á fjög-
urra laga stuttskífu. Tvö laganna
eru af nýju plötunni en í öðrum
búningi þó og hin tvö af fyrstu
plötunni.
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Hæfilega hrátt
Rokksveitin Hot Snakes er sprottin uppúr harð-
kjarnasenunni með smá viðkomu í emo-rokkinu
og hefur gefið út sína bestu plötu Audit in Progress.
Ljósmynd/Chris Woo
NAPOLEON DYNAMITE, nafnið
hæfir innihaldinu, er ekki aðeins
óvenjuleg skemmtun heldur ein
ábatasamasta mynd allra tíma. Þessi
óhefðbundna grínmynd í berang-
ursstíl fyrstu mynda Jarmisch, kost-
aði smáura en hefur þegar halað inn
50 milljónir dala, aðeins í seldum að-
göngumiðum. Hún hitti beint í mark
hjá hallærisgrínmyndaaðdáendum
sem eru fjölmennir vestan hafs, en
verra að spá í hvernig hún spjarar
sig hérlendis.
Titilpersónan (Heder), stendur
ekki beinlínis undir nafni heldur er
hann einkar ámátlegur mennta-
skólanemi, sem tæpast getur klætt
sig hjálparlaust. Hann er ásamt net-
lúðanum Kip bróður sínum (Ruell), á
framfæri ömmu þeirra, þegar hún
slasast (í sandspyrnukeppni), tekur
frændinn Rico (Gries), við umsjánni.
Hann er manna síst til þess hæfur,
borubrattur moðhaus og vafasam-
asti fáráður þremenninganna.
Fjölskyldusagan er betrumbætt
með árekstrum Napoleons við skóla-
syskinin og (óvart) árangursríkt
hjálparstarf hans við að koma vini
sínum í stjórn skólafélagsins. Að
ógleymdum sameiginlegum vand-
ræðum persónanna í kvennamálum,
gróðavonum, tímavélum, lamadýr-
um og ýmsu þar fram eftir götunum.
Ótrúlegt en satt, leikstjóri og
handritshöfundur myndarinnar er
rétt liðlega tvítugur, en Napoleon
Dynamite úir og grúir af for-
kostulegum uppátækjum, sem
áhorfandinn annaðhvort skemmtir
sér konunglega yfir eða leiðist.
Uppákomur hinna bandarísku
bakkabræðra eru vissulega mis-
hnyttnar en þær eru skemmtilega á
skjön við normið og umhverfið, ut-
anveltu útnári í dreifbýli Idaho, vek-
ur upp góðar minningar um betri
myndir á borð við Stranger Than
Paradise og Leningrad Cowboys
Goes America.
Þó frumlegur sé og fundvís á létt-
ruglaða leikara á Hess langt í land
að ná í skottið á Jarmusch og Kaur-
ismäki, en hver veit, í það minnsta
verður spennandi að fylgjast með
hvernig unga háðfuglinum reiðir af á
næstunni.
Er hann einnar myndar maður
eða er upprisinn nýr snillingur?
Bakkabræður
í Idaho
KVIKMYNDIR
Háskólabíó - IIFF
Leikstjóri: Jared Hess. Aðalleikendur:
Jon Heder, Jon Gries, Aaron Ruell, Efren
Ramirez, Tina Majorino. 85 mín. Banda-
ríkin. 2004.
Napoleon Dynamite Sæbjörn Valdimarsson
Furðufuglinn Napoleon og félagar hans.