Morgunblaðið - 17.04.2005, Side 63
Nýr og betriHverfisgötu ☎ 551 9000
Sýnd kl. 3.40
Sýningartímar
Sýnd kl. 8 b.i. 16 ára.
HIDE
AND
SEEK
Sýnd kl. 5
Hotel Rwanda Sýnd kl. 5.40
What the Bleep do we Know Sýnd kl. 3.30
Kinsey Sýnd kl. 3.40
Dear Frankie Sýnd kl. 6
Darknes Sýnd kl. 6
Mean Creek Sýnd kl. 3
S.V. MBL.
K&F X-FM
Túlkun
Bruno Ganz
á Hitler
er stórkostleg.
Ein besta
stríðsmynd
allra tíma.
Magnþrungið meistaraverk um síðustu
dagana í lífi Hitlers séð með augum
Traudl Junge sem var einkaritari Hitlers
i i í
í lí i i l
l i i i i l
FRÁ SÖMU OG FÆRÐU OKKUR
SCREAM MYNDIRNAR!
Hún fær þig til að öskra!
Magnaður hrollvekjutryllir frá Wes Craven!
Every family could use a little translation
F R Á L E I K S T J Ó R A AS GOOD AS IT GETS
S.K. DV
Sýnd kl. 8 og 10.40
FRÁ SÖMU OG FÆRÐU OKKUR
SCREAM MYNDIRNAR!
Hún fær þig til að öskra!
Magnaður hrollvekjutryllir frá Wes Craven!
i il
ll j t lli f !
Ó.H.T. Rás 2
Sýnd kl. 8 og 10
Sýnd kl.10.15 Sýnd kl. 10.15
Nýjasta mynd eins allra virtasti leikstjóri heims
Pedro Almódavar sem hefur fengið lof
gagnrýnenda og verðlaun um allan heim.
„Sterkasta mynd Almódavar í tvo áratugi.“ (Village
Voice). Í aðalhlutverki er latneska súperstjarnan
Gabriel Garcia Bernal og Fele Martinez. HOUSE OF
FLYING
DAGGERS
553 2075
- BARA LÚXUS
☎
Sýnd kl. 2 og 4 m/ísl. taliSýnd kl. 2 og 4. m. ísl. tali
Magnaður spennutryllir
T H E INTERPRETER
Forsetinn er í lífshættu og hún er sú eina sem getur fundið morðingjann
JET LI MORGAN FREEMAN BOB HOSKINS
A FILM BY LOIS LETERRIER
HÖRKU SPENNUMYND FRÁ
SÖMU OG GERÐU LÉON OG
LA FEMME NIKITA
Hann var alinn upp sem
skepna og þjálfaður til að
berjast. Nú þarf hann
að berjast fyrir lífi sínu!
Heimsfrumsýnd á Íslandi
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.30. Bi 16 ára
T I L B O Ð Á F Y R S T U S Ý N I N G A R D A G S I N S - A Ð E I N S 4 0 0 K R .
A T H : t i l b o ð s s ý n i n g a r e r u s é r m e r k t a r m e ð r a u ð u
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.10 B.I 16 ÁRA
B.B. Sjáðu Popptíví
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.10
Sýnd kl. 2 og 4 Ísl. tal.
Hann fær nýjan yfirmann óreyndan strák sem
dóttir hans fellur auk þess fyrir
M.J. Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 8
Spurt og svarað með
Adam Bhala Lough og
Mark Webber.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. APRÍL 2005 63
Prix Föroyar-keppnin í Fær-eyjum er hljómsveitakeppni íætt við Músíktilraunirnar ís-
lensku sem haldin hefur verið á
tveggja ára fresti allt frá árinu 1995
(ég skrifa „ö“ en ekki „ø“ þar sem
fyrrnefndi stafurinn er færeyskur
en sá síðarnefndi danskur. Þennan
rithátt er farið er að taka upp í rík-
ari mæli í eyjunum í seinni tíð). Úr-
slitakvöld keppninnar fer fram
næsta laugardag, hinn 23. apríl, í
Norræna húsinu í Þórshöfn.
Fyrir fimm árum hafði grein-
arhöfundur ekki svo mikið sem leitt
hugann að færeysku tónlistarlífi,
fannst Færeyjar pínu hlægilegar.
Stuttu síðar losnaði blessunarlega
um þessa óafsakandi fordóma.
Þungarokkssveitin færeyska Týr sló
í gegn hérlendis með laginu „Orm-
urin langi“ (skrifað með einu n-i) og í
kjölfarið hrúguðust til landsins fær-
eyskar hljómsveitir og listamenn,
þar á meðal Eivör nokkur Páls-
dóttir. Ég var svo heppinn að vera
viðstaddur þegar Prix Föroyar 2003
fór fram, sat þá í dómnefnd, og þá
opnuðust augu og eyru endanlega
fyrir því að það er óvenjulega margt
á seyði í tónlistarlífi þessa 45.000
manna samfélags, rétt eins og í þess-
ari eyju sem er ögn norðar og býr yf-
ir ögn meiri íbúafjölda. „Eldsál-
unum“ færeysku er mikið í mun að
halda tónlistarlífinu þar virku og
kynna það fyrir öðrum þjóðum en
færeyskt tónlistarlíf og listalíf al-
mennt hóf að blómstra sem aldrei
fyrr í kjölfar kreppunnar sem reið
yfir eyjarnar árið 1992. Prix Föroy-
ar er liður í þessari starfsemi.
Prix Föroyar hefur tekið nokkr-um stakkaskiptum frá því sem
var. Í fyrra kepptu sex sveitir til úr-
slita (og sigraði þá nýrokksveitin
Gestir frá Götu) en í ár eru þær að-
eins þrjár, Go Go Blues, Terji Ras-
mussen Band og Eyðun Nolsøe og
Showmenn. Athygli vekur að þessar
sveitir eru allar skipaðar tónlist-
armönnum sem eiga sumir hverjir
áratuga reynslu að baki í tónlist-
arbransanum. Ólíkt Músíktilraunum
er ekki lögð áhersla að að veita ein-
vörðungu ungu og upprennandi tón-
listarfólki tækifæri, allir starfandi
tónlistarmenn í eyjunum eru gjald-
gengir til keppni. Undanúrslitin
hafa farið fram víðsvegar um eyj-
arnar. Upprunalega tóku 24 sveitir
þátt en 32 sveitir sóttu um, sem verð-
ur að teljast harla gott.
Verðlaunin eru svo af ýmsum
toga; hljóðverstímar, boð um að fá
að spila á skandinavískum tónlist-
arhátíðum og fleira. Í leiðinni verð-
ur tekinn nettur „Færeysku tónlist-
arverðlaunin“-vinkill og verðlaunað
fyrir bestu plötuna, söngvarann, gít-
arleikarann og svo frv.
Úrslitakvöldið er kynnt sem Atl-
antic Music Event og er um að ræða
kvöld sem verður einslags blanda af
áðurnefndri keppni og svo kynning-
artónleikum í anda Iceland Air-
waves. Ásamt þeim þremur sveitum
sem komust áfram í Prix keppninni
munu valinkunnar færeyskar sveitir
og listamenn spila. Þeir eru Gestir,
Kristleif Zachariasen, 200 (hresst
pólitískt pönkband sem heimsótt
hefur Ísland), Týr, Eivör, Högni Lis-
berg (trommari Clickhaze, hljóm-
sveit sem Eivör var í, og nú starfandi
sólólistamaður), Makrel (tóku þátt í
íslensku Músíktrilraununum árið
2002), Guðrun Sólja Jakobsen og
Deja Vu (höfnuðu í öðru sæti á síð-
asta Prix).
Fulltrúar frá ýmsum norrænummiðlum verða viðstaddir þenn-
an viðburð, meðal annars héðan, og
getur höfundur staðhæft að ekkert
verður til sparað á þessu úr-
slitakvöldi, sem sent verður beint út
í þarlendu sjónvarpi og útvarpi.
Einnig verður gefin út plata með
upptökum frá kvöldinu.
Það kom mér í opna skjöldu á síð-
ustu keppni hversu vandað var til
verka og þá er ég ekki að meina í
einhverjum „litlu Færeyingarnir eru
svo duglegir“-skilningi heldur var
skipulagið slíkt að það tók fram
mörgum af þeim viðburðum sem ég
hef upplifað hérlendis.
Rétt er að nefna fyrir áhugasama
að Flugfélag Íslands flýgur til Fær-
eyja mánudag, miðvikudag og föstu-
dag. Ítarlegri upplýsingar er hægt
að nálgast á www.prix.fo.
Meira síðar...
Prix Föroyar 2005
’„Eldsálunum“ fær-eysku er mikið í mun að
halda tónlistarlífinu þar
virku og kynna það fyrir
öðrum þjóðum en fær-
eyskt tónlistarlíf og
listalíf almennt hóf að
blómstra sem aldrei
fyrr í kjölfar krepp-
unnar sem reið yfir eyj-
arnar árið 1992.‘
AF LISTUM
Arnar Eggert Thoroddsen
Arnold Ludvig, bassaleikari Go Go
Blues, sem er ein þeirra þriggja
sveita sem keppa til úrslita.
arnart@mbl.is
HVAÐ sem öðru líður læðist oft að
manni sá grunur að mannfólkið
hætti alltof ungt að sækja afþrey-
ingu í bernskuleikina. Einhver fram-
taksamur náungi ætti að standa fyr-
ir nýju alheimsátaki til styrktar
líkama og sál sem mætti gjarnan
heita eitthvað í ætt við „Stay Young
and Play“. Í þeim samtökum væru
þátttakendur, börn gamalmenni og
allt þar á milli, ekkert að kljást við
met eða markaskor heldur færu í
Fallin spýtan, Eitt strik og sto, nú
eða þá Útilegumannaleik. Haldið að
það yrði ekki fjör?
Þörfin eftir bernskuleikjunum
kemur m.a. fram í þeim hlutverka-
leikjum og annarri skyldri afþrey-
ingu sem um er fjallað í Über
Goober, dálítið skondinni heimild-
armynd um aðdáendur dreka og
dýflyssna, skrýmsla, galdrakarla og
annarra slíkra fyrirbrigða og sjá
draumana rætast í leikjunum.
Af myndinni að dæma mæli ég
eindregið með hollustu Fallin spýt-
an, þetta er undarlegur selskapur
sem virðist hverfa um of á vit leikja-
óranna. Upp í hugann koma orð leik-
arans Williams Shatner úr Star
Trek -þáttunum og -myndunum.
Hann var mættur á afar fjölmenna
samkomu Trekkara og var heið-
ursgesturinn beðinn að segja nokkur
vel valin orð við söfnuðinn, sem allur
var íklæddur gervum persónanna.
Svarið var stutt og snaggarlegt:
„Go, get a life!“
Ef þú átt þér drauma um dreka
KVIKMYNDIR
Háskólabíó - IIFF
Leikstjóri: Steve Metze. Þáttakendur:
Peter Adkison, E.Gary Gygax, John Ko-
valic ofl. 85 mín. Bandarísk. 2004.
Über Goobers
Sæbjörn Valdimarsson