Morgunblaðið - 10.05.2005, Side 1
Allir ganga
í fötum
Linda Björg hannar efni fyrir
hátískuhús | Daglegt líf
Í rólegri
kantinum
Fyrsta plata Hildar Völu kemur
út í dag | Menning
Íþróttir í dag
Meisturum síðasta árs spáð sigri
Steve Nash leikmaður ársins í NBA
Ólafur Gíslason spilar í Sviss
ÞORGERÐUR Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra hefur breytt reglu-
gerð um samræmd stúdentspróf til bráða-
birgða þannig að nemendur geta útskrifast
stúdentar í vor án þess
að hafa þreytt sam-
ræmt stúdentspróf í
tveimur námsgreinum.
Ástæðan er sögð vera
sú að dæmi eru um að
skráningar í prófin hafi
misfarist auk þess sem
veikindi og aðrar
ástæður komu í veg fyr-
ir að sumir nemendur
gátu tekið prófin.
Eins og fram kom í Morgunblaðinu voru
samræmd próf í stærðfræði og ensku hald-
in í fyrsta skipti í vor en samræmd próf í
íslensku hafa verið haldin nokkrum sinn-
um. Samkvæmt þágildandi reglugerð urðu
stúdentsefni að hafa lokið a.m.k. tveimur
samræmdum prófum til að geta útskrifast
og þar sem ekki er boðið upp á sjúkrapróf
leit út fyrir að útskrift þeirra sem voru
veikir á prófdegi myndi tefjast um hálft ár.
Ekki er gerður greinarmunur á nem-
endum sem voru veikir eða ákváðu af öðr-
um ástæðum að taka ekki prófin. Eftir
breytinguna eru heldur engin ákvæði um
að nemandi skuli hafa lokið a.m.k. einu
samræmdu stúdentsprófi til að útskrifast.
Ekki gert ráð fyrir sjúkraprófi
Steingrímur Sigurgeirsson, aðstoðar-
maður menntamálaráðherra, segir að
reglugerð frá 2003 um samræmd stúdents-
próf geri ekki ráð fyrir sjúkraprófum.
„Hins vegar var talið nauðsynlegt að veita
þessa undanþágu nú, í þetta eina skipti,
þar sem fyrir lá að nokkur fjöldi nemenda
hefði annars ekki getað útskrifast með
eðlilegum hætti. Enda má segja að að-
stæður séu sérstakar þar sem þetta var í
fyrsta skipti sem nemendur höfðu tæki-
færi til að þreyta próf í ensku og stærð-
fræði,“ sagði hann.
Nemendur
geta útskrif-
ast án þess að
taka prófin
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Sydney. AP. | Embættismenn í Risd-
on-öryggisfangelsinu á eynni Tasmaníu í
Ástralíu fengu því framgengt aðfaranótt
mánudags að fangar, sem tekið höfðu
vörð í gíslingu, létu hann lausan. Fang-
arnir höfðu krafist þess að fá 15 bökur
fyrir að sleppa gíslinum og var orðið við
kröfunni.
Fangarnir hófu á laugardag mótmæli
vegna slæms aðbúnaðar en húsakynnin
munu vera komin til ára sinna. Tóku þeir
vörðinn, Ken Hannah, í gíslingu til að
fylgja kröfunum eftir. Um 20 fangar tóku
þátt í uppreisninni, þeir lögðu undir sig
hluta fangelsisins og gafst sá síðasti upp í
gærmorgun. „Síðasta ágreiningsefnið við
fangana var að þeir kröfðust þess að fá
bökur,“ sagði Graeme Barber, embætt-
ismaður í Risdon.
Órói hefur verið meðal fanganna síð-
ustu mánuði en engan sakaði í uppreisn-
inni um helgina.
Lausnargjaldið
var 15 bökur
Páfagarði. AFP. | Dómstóll í Róm
hefur dæmt tvo embættismenn hjá
útvarpi Páfagarðs, Roberto Tucci
kardínála og föður Pasquale
Borgomeo, í 10 daga, skilorðs-
bundið fangelsi fyrir að hafa átt
sök á útvarpsbylgjumengun í
grennd við stöðina.
Um er að ræða geysiöflugan
sendi í Cesano, norðan við Róm og
ná útsendingarnar um allan hnött-
inn. Nágrannar stöðvarinnar hafa
lengi kvartað undan því að útsend-
ingin sé svo öflug að hún valdi
miklum truflunum í raftækjum.
Einnig fullyrða þeir að mengunin
valdi sjúkdómum, þ.á m. hvítblæði.
Luisa Martoni dómari sagði að
dómurinn yrði felldur úr gildi ef
bundinn yrði endi á umræddar
truflanir og embættismennirnir
tveir, sem gegna embættum for-
stjóra og aðalframkvæmdastjóra
útvarpsstöðvarinnar, greiddu sekt.
Verjandi Páfagarðs sagðist myndu
áfrýja.
Páfagarður
sagður
menga með
útvarpi
♦♦♦
HALLDÓR Ásgrímsson forsætisráðherra var við-
staddur hátíðarhöld í Moskvu í gær í tilefni þess að
60 ár voru liðin frá lokum seinni heimsstyrjald-
arinnar í Evrópu.
Þar hitti Halldór Vladímír Pútín, forseta Rúss-
lands, og fleiri leiðtoga helstu ríkja heims, m.a. for-
seta Bandaríkjanna, forseta Frakklands, kanslara
Þýskalands og forsætisráðherra Japans. Í samtali
við Morgunblaðið segir Halldór andrúmsloftið við
þessa athöfn hafa verið þægilegt. Það hefði sett sinn
svip á hana hve margir þjóðarleiðtogar voru við-
staddir en þeir voru yfir sextíu./22
Ljósmynd/Steingrímur S. Ólafsson
Halldór hitti Pútín og fleiri leiðtoga
FORSETA Bandaríkjanna,
George W. Bush, var tekið með
kostum og kynjum er hann kom til
Tbilisi í Georgíu í gær eftir að hafa
um morguninn tekið þátt í hátíð-
arhöldum í Moskvu í tilefni þess að
60 ár voru frá lokum styrjaldarinn-
ar í Evrópu. Hafði fjöldi manna
safnast saman við leiðina sem bíla-
lest Bush og gestgjafa hans,
Mikhails Saakashvilis Georgíufor-
seta, ók um á leið inn í borgina.
Saakashvili sagði fréttamönnum
að með komu sinni sendi Bush þjóð-
um Sovétríkjanna fyrrverandi „öfl-
ug skilaboð um að hann styðji lýð-
ræði og sjálfstæði“. Bandaríkja-
forseti mun í dag ávarpa útifund á
Frelsistorginu í borginni en í gær
sagði hann í sjónvarpsviðtali að
Georgíumenn hefðu verið góð fyr-
irmynd í baráttunni fyrir lýðræði.
Georgía komst undir yfirráð
Rússa fyrir nær tveim öldum og
var hluti Sovétríkjanna gömlu en
fékk sjálfstæði 1991. Er ríkið eitt af
mörgum fyrrverandi sovétlýðveld-
um sem leggja nú áherslu á að efla
böndin við Vesturlönd. Saakashvili
tók ekki þátt í hátíðinni í Moskvu
og vildi þannig mótmæla því að
Rússar styðja enn aðskilnaðar-
sinna í tveim héruðum Georgíu.
Einnig neita þeir að leggja niður
tvær herstöðvar sem þeir hafa enn í
landinu.
Bush sagði í gær í viðtali við
georgíska sjónvarpsstöð áður en
hann kom til landsins að sér fyndist
mikið til um það hvernig Georgíu-
menn hefðu haldið á málum eftir
lýðræðisbyltinguna 2003. „Mig
langar til að fara til landsins ykkar
og þakka georgísku þjóðinni fyrir
að hafa verið svo góð fyrirmynd
fyrir aðrar þjóðir,“ sagði Bush.
Lýðræðissinnar í Úkraínu
horfðu mjög til „Rósabyltingarinn-
ar“ í Georgíu er þeir brutu á bak
aftur tilraunir til að ræna núver-
andi Úkraínuforseta, Viktor Jústsj-
enkó, sigri í kosningum. Bush lagði
hins vegar áherslu á að best væri að
leysa deilurnar um herstöðvarnar
við Rússa með viðræðum.
Bush ræddi við andstæðinga
Pútíns í Moskvu
Bush og Condoleezza Rice utan-
ríkisráðherra áttu í Moskvuferð
sinni fund á hóteli sínu með 18
fulltrúum ýmissa rússneskra lýð-
ræðis- og mannréttindahópa sem
hafa gagnrýnt stefnu Pútíns.
„Ástand mannréttindamála er
betra en í tíð Sovétríkjanna en
verra en fyrir tveim árum,“ sagði
Ljúdmíla Alexejeva, formaður
Rússlandsdeildar Helsinki-sam-
takanna. „Bush hét því fyrir sitt
leyti að aðstoða frjáls félagasam-
tök borgara í Rússlandi.“
Segir Georgíumenn „góða
fyrirmynd“ grannþjóða
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Reuters
Bush Bandaríkjaforseti heilsar börnum sem tóku þátt í hátíðardagskrá í tilefni komu hans til Tbilisi í gær.
Hafnar/14
STOFNAÐ 1913 125. TBL. 93. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is