Morgunblaðið - 10.05.2005, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 10.05.2005, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Aðalsteinn JanusSveinjónsson fæddist í Reykjavík 16. júlí 1986. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut 4. maí síðastliðinn. Foreldr- ar Aðalsteins eru Kolbrún Aðalsteins- dóttir danskennari, f. 16. ágúst 1956, og Sveinjón Jóhannes- son húsasmíðameist- ari, f. 6. júlí 1947. Foreldrar hennar eru Aðalsteinn Bjarnfreðsson, d. 9. apríl 2005 og Jóhanna Bára Sigurðardóttir. Foreldrar hans eru Guðrún Svein- jónsdóttir og Jóhannes Árnason. Systkini Aðalsteins Janusar eru: a) Jóhanna Þóra Sveinjóns- dóttir háskólanemi, f. 28. septem- ber 1966, börn hennar eru Har- aldur Ólafsson, f. 10. júní 1987, Hinrik Þórsson, f. 2. apríl 1994 og Eva Lind Þórsdóttir, f. 5. janúar 1997; b) Albert Sveinjónsson, f. 9. maí 1969, börn hans eru Sigvaldi Hjálm- ar, f. 19. apríl 1993, Helena Natalía, f. 20. júní 1996 og Albert Óli, f. 5. desember 1998; c) Aníta Rut Harðardóttir lög- reglumaður, f. 19.7. 1975, sambýlismað- ur Eiríkur Emil Beck lögreglumað- ur, börn þeirra eru Lúðvík Marinó Karlsson, f. 29.11. 1996 og Alexander Emil Beck, f. 4.8. 2004; og d) Brynjar Örn Svein- jónsson flugmaður, f. 6.9. 1978. Aðalsteinn Janus var tónlistar- nemi. Hann bjó á Kýpur í tvö og hálft ár og ferðaðist mikið. Hann var í sveit á Bakka og var mikið náttúrubarn. Aðalsteinn Janus verður jarð- sunginn frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Jarðsett verður í kirkjugarðinum á Kotströnd. Vorið er komið, fuglarnir syngja og lömbin eru að fæðast. Þetta var sá tími ársins sem þú skynjaðir sem fegurð, þú Steini minn Janus, varst svo mikið náttúrubarn, þú hlustaðir á móður jörð, vindurinn flaksaðist í hári þínu og þú settir nefið upp í vindinn, dróst djúpt andann og nærðir sál þína. Ekkert fór framhjá fallegu heiðbláu augunum þínum, elsku drengurinn minn, og þú viss- ir … Við vorum á leið austur til frænku að hjálpa til með lömbin, en nú fer ég ein án þín og knúsa þau fyrir þig, og ég sé um hestinn síðan úr síðustu réttum, ég veit að þú verður þar með mér. Þú varst svo duglegur að nema og skynja, enda elskuðu þig allir, smáir sem stórir, gamlir sem ungir, og dýrin soguðust að þér eins og segull við stál, enda var áhugamál þitt að skoða menn og velta lífinu fyrir þér. Hlýjan þín var með ólíkindum, og fann ég það best með öllum kerta- sendingunum sem við fjölskylda þín erum búin að fá. Þú áttir svo auðuga samhygð til og handa mönnum, allt- af til í að hjálpa. Mér er minnisstætt þegar þú baðst um leyfi til að tæma ísskápinn til að búa til mat handa vini þínum sem bjó einn, átti ekki fyrir mat, og var fárveikur. Þú varst snilldarkokkur, ég held þú hafir slegið Brynjari Erni bróður þínum við þar. Og hve góður þú varst á bassann og stundirnar sem þú æfðir með Árna í Royal Dirt, hljómsveit- inni ykkar, og þegar þú varst að leyfa mér að vera með og hlusta á diskana sem þið tókuð upp. Ég fyllt- ist stolti sem móðir að heyra hve gott efni þið voruð að dunda ykkur við, og þegar þið fóruð að spila op- inberlega, þá var kátt í bæ … Nú á ég tónleikana á dvd og get enn séð þig og hlustað á þig. Ég á eftir að sakna þín, elsku hjartans drengur- inn minn, en ég veit að þú og afi eruð saman. Gott að hafa afa, og í raun bara ein vika á milli brottfarar ykkar úr jarðvistinni. Ég veit að þú ert í góðum höndum, nú ert þú búinn að fá þitt síðasta flog, og laus úr veik- indum þínum sem orsökuðu það að hjarta þitt stoppaði. Svo oft hafði hurð skollið nærri hælum í veikind- um þínum, en í sameiningu, og oft með góðra manna hjálp, náðum við að hjálpa þér, Addi frændi, Steindór húsvörður, starfsmenn sjúkrabif- reiðanna. Þetta var erfitt, en saman stóðum við þetta af okkur. Mér finnst svo dapurt, drengurinn minn, að hafa ekki verið heima, svo nú varst þú einn, en ég var hjá ömmu að undirbúa jarðarför afa þíns. Ég veit að þú veist þetta, en ég missti þig þarna og mér finnst það svo vont. Ég veit hvað þú vilt að ég geri og það verður uppfyllt, sonur sæll, vega- bréfið þitt var tilbúið og ég náði í það í morgun, ég fylli það út í kvöld og þú færð það áður en þú ferð í bálförina þína … Þú varst á útleið, til New York, beint í ljósmyndastúdíó til að kanna áhuga þinn á ljósmyndun en þar varst þú snillingur í að sjá öðruvísi og tókst frábærar myndir. Með flestum myndunum þínum var mælt með að stækka frá framköllunarfyr- irtækjunum. Israel beið eftir þér, en nú kemur hann heim og gengur með þér hinstu sporin. Þú færð líka kveðjur úr hin- um stóra heimi, Crysty á Kýpur, Jim, Karen Lee, Dejan sendir þér stóran koss og segir sjáumst síðar. Öll eru búin að biðja svo vel fyrir drengnum með gullkrossinn sinn frá Jerúsalem, sem aldrei fór af hálsi þínum, enda áttir þú mikla og hreina Guðstrú. Verkefnið okkar, Pride of Janus, getið í höfuðið á þér, fer af stað í fyrsta sinn í haust, þú vissir þar af MAX vini þínum, en nú er hann stað- festur og kemur, ég veit að þar átt þú eftir að fylgjast vel með af ljós- myndaáhuga þínum og útkoman á eftir að vera snilld, eins og þú sagðir svo oft … Stóra ástin í lífi mínu, engin móðir getur verið annað en stolt af barni sínu, þú varst einstakur, Steini minn Janus, strax sem barn og þegar fram liðu stundir þá kunnir þú að vinna í kyrrðinni sem ekki öllum er gefið. Í brjósti mínu bærist ást, svo mikil að ég finn til, í hverjum andardrætti sem ég dreg hugsa ég um þig. Ég elska þig, minningarnar sem ég á með þér, allt í fari þínu. Ég veit að þú ert eins og ég þakklátur þeim á gjör- gæslu Landspítalans, sem fóru svo vel með þig, svo mikil virðing og þægileg nærvera, hentuðu okkur vel á þessum erfiða tíma. Minning þín lifir, sonur sæll, það er ég búin að sjá og finna frá fólki í kringum mig … Ég er þakklát móðir, að hafa borið son sem var svo stór í sál sinni. Ég elska þig, mamma. Elsku fallegi bróðir minn. Ég á mjög erfitt með að skrifa á þessum nótum til þín, er enn að bíða eftir að ég vakni upp af ljótum draumi. Lífið getur verið svo grimmt og ég skil þetta ekki, mun aldrei skilja af hverju þetta gerðist. Ég man þegar þú fæddist, ég man það ár vel því ég fékk þig svona eig- inlega í afmælisgjöf, bara þrír dagar á milli okkar. Lífið hafði kannski ekki reynst þér það auðveldasta, ég veit allt um það ástin mín, en það breytti ekki hvernig bróðir þú ert, þú ert sá besti. Þú hafðir svo margt til brunns að bera, það var alltaf svo gott að tala við þig, þú varst vinur vina þinna, trúr þinni fjölskyldu svona eins og afi, vildir allt fyrir alla gera, sama hversu leiðinlegt þér þótti það vera. Þú komst til mín nokkrum dögum fyrir slysið og við spjölluðum heil- mikið saman, ég mun aldrei gleyma því samtali. Þá var mikið ákveðið, hlutir sem ég og þú ætluðum að ráð- ast í. Það svíður sárt að það verður ekki að veruleika því ég veit elsku bróðir minn að við hefðum komist þangað. Ég skildi loksins um hlutinn sem þú hélst á inni í bílskúr, þú varst að stríða mér þegar þú þóttist missa hann á gólfið, bara til að sjá hvað mér myndi bregða, ég er brosandi núna. Það huggar mig mikið að við vorum sammála um hvað við erum lík, við vissum það bæði. Ég var minnt á það í gær hvað Marínó leit mikið upp til þín, þú hafðir líka alltaf mikinn áhuga á að vita hvernig hon- um gengi, hann er að safna hári, ég gleymdi að segja þér það. Ég veit að þú ert hjá afa núna, nafna þínum, og ég veit að þér líður vel. Samt finn ég að það er hluti að mér sem er farinn og kemur ekki aftur, ég finn að ég verð ekki sama manneskja aftur. Elsku besti bróðir minn, við sátum saman úti í bíl í síðasta skiptið sem við sáumst og héldum utan um hvort annað, það er augnablik sem ég mun varðveita alla ævi. Ég sakna þín svo mikið og mun gera það alla mína daga, þar til við verðum saman á ný. Ég veit að þú ert núna kominn á betri stað og að þú passar mig og strákana mína. Ég elska þig mest og best. Þín systir Aníta Rut. Jæja elsku Steini minn, þá er þessi mikla sorgarstund runnin upp. Þegar ég skrifa þessi orð til þín þá sit ég inni í herberginu þínu þar sem ég sat og við horfðum á Cat Stevens- tónleikana, kvöldið áður en þú fórst á spítalann. Minningarnar hellast yfir mig þegar ég horfi yfir dótið þitt, mynd- irnar á veggjunum og bassann sem þú gast spilað á heilu og hálfu dag- ana. Ég á mikið eftir að sakna sím- talanna þegar þú hringdir í mig og spilaðir fyrir mig lögin sem þið fé- lagarnir voruð að semja. Hugurinn reikar aftur til Ítalíu, þegar þú varst ekki nema 2 ára og varst að hjálpa mér að veiða krabba í smábátahöfn- AÐALSTEINN JANUS SVEINJÓNSSON Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR JÓNSSON lyfjafræðingur, Þorragötu 9, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 12. maí kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er vinsamlega bent á líknarstofnanir. Guðlaug Ágústa Hannesdóttir, Jón Sigurðsson, Una Eyþórsdóttir, Hannes Sigurðsson, Sesselja Guðmundsdóttir, Ólöf Guðrún Sigurðardóttir, Albert Páll Sigurðsson, Rannveig Sigurðardóttir og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn og besti vinur, faðir okkar, tengdafaðir, sonur, tengdasonur og afi, HELGI HERMANNSSON stýrimaður, Heiðarbraut 1c, Keflavík, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju fimmtu- daginn 12. maí kl. 11.00. Valdís Þórarinsdóttir, Hermann Helgason, Steinunn Ýr Þorsteinsdóttir, Jóhann Þór Helgason, Særún Rósa Ástþórsdóttir, Pétur Örn Helgason, Hrafnhildur Gunnarsdóttir, Jón Halldór, Soffía Axelsdóttir, Áslaug Ólafsdóttir, Hermann Helgason, Jóhanna Valtýsdóttir, Þórarinn Brynjar Þórðarson og barnabörn. Innilegar þakkir til allra, fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlá og útför ÓLAFAR SIGURBJARNARDÓTTUR frá Laxárholti, Hraunhreppi. Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild A1 á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund fyrir ástúð og góða umönnun. Inga Sigurjónsdóttir, Selma Sigurjónsdóttir, Friðþjófur Björnsson, Jóhanna Jónsdóttir, Ólafur Jónsson, Jóhanna Bruvik, Ingigerður Jónsdóttir, Örn Hjörleifsson, Guðrún S. Jónsdóttir. Innilegar þakkir til þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS SIGURÐSSONAR bónda frá Hvoli, Fljótshverfi, til heimilis á hjúkrunarheimilinu Klausturhólum. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Klausturhóla. Hannes Jónsson, Guðný M. Óskarsdóttir, Sigurður Torfi Jónsson, Guðbjörg Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Okkar yndislegi sonur, bróðir og dóttursonur, HILMAR MÁR JÓNSSON, lést á Grensásdeild Landspítala laugardaginn 7. maí. Sigrún Guðjónsdóttir, Jón Kristjánsson, Elsa Borg Jónsdóttir, Ester Ýr Jónsdóttir, Elsa Borg Jósepsdóttir, Guðjón Þorsteinsson. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÁSDÍSAR EINARSDÓTTUR, Lóni, Kelduhverfi. Starfsfólki líknardeildar Landakots er þökkuð mikil hlýja og frábær umönnun. Björn Guðmundsson, Stefanía Björnsdóttir, Árni Ingimundarson, Margrét Björnsdóttir, Kristján Finnsson, Guðlaug Björnsdóttir, Sveinn Geir Einarsson, Ingunn Björnsdóttir, Einar Ófeigur Björnsson, Guðríður Baldvinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.