Morgunblaðið - 10.05.2005, Qupperneq 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
Helguvík | Olíubílar fara nú sex
þúsund ferðir á ári úr Örfirisey í
Reykjavík, um Reykjanesbrautina
og til Keflavíkurflugvallar með
flugvélabensín á þotur Icelandair.
Þótt hagkvæmni í innkaupum á
eldsneyti sé aðaldrifkraftur þess að
FL-Group hf. hefur ákveðið að
koma sér upp birgðastöð í Helgu-
vík og dæla þaðan beint á flugvél-
arnar segir Ragnhildur Geirsdóttir,
forstjóri FL-Group, að umhverfis-
og öryggismál vegna eldsneytis-
flutninganna styðji mjög þessa
breytingu.
FL-Group hf. hefur sótt um lóð
fyrir eldsneytistanka sunnan við
Helguvíkurhöfn og fengið vilyrði
hjá Reykjanesbæ fyrir henni. Þar
verður byggð upp birgðastöð til
eldsneytisinnflutnings og leiðsla
beint inn á flughlað á Keflavík-
urflugvelli. Nú er allt það eldsneyti
sem dælt er á þotur félagsins hér-
lendis keypt af Olíufélaginu Skelj-
ungi. Það er flutt með bílum úr
birgðastöðinni í Örfirisey, um götur
Reykjavíkur og nágrannabæja, um
Reykjanesbrautina og í olíubirgða-
stöð EBK á Keflavíkurflugvelli. Þá
stöð eiga olíufélögin og FL-Group í
sameiningu. Eldsneytinu er dælt úr
þessari birgðastöð um flughlað og á
vélarnar. Samkvæmt upplýsingum
Ragnhildar Geirsdóttur notar fé-
lagið um 70 til 80 þúsund tonn af
þotueldsneyti hér á landi á ári sem
þýðir að olíubílarnir aka um 6000
ferðir til Keflavíkur á hverju ári.
Þegar nýja olíubirgðastöðin í
Helguvík verður tekin í notkun
sem stefnt er að verði í lok árs
2006, þegar núverandi samningur
FL-Group og Skeljungs rennur út,
verður eldsneytinu dælt beint á
vélarnar úr birgðastöðinni í Helgu-
vík. Aksturinn úr Reykjavík fellur
því niður og FL-Group þarf ekki
lengur að nota birgðastöðina á
Keflavíkurflugvelli.
„Með þessu erum við að gera
innkaup á þotueldsneyti einfaldari
og skilvirkari. Þar við bætist að
töluverð mengun fylgir flutningun-
um til Keflavíkur og slysahætta.
Það er mjög gott fyrir félagið að
geta dregið úr menguninni og auk-
ið öryggi með nýju fyrirkomulagi,“
segir Ragnhildur. Hún segir að
leggja þurfi í umtalsverða fjárfest-
ingu í nýrri birgðastöð og leiðslu en
þrátt fyrir það náist sparnaður í
eldsneytiskaupum. Það segir hún
að sé nauðsynlegt fyrir félagið til
að styðja lækkandi farmiðaverð.
Tankar varnarliðsins
illa nýttir
Forystumenn Reykjanesbæjar
hafa lengi haft áhuga á því að nota
Helguvíkurhöfn til olíuinnflutnings
og boðið olíufélögunum og öðrum
upp á aðstöðu þar undanfarin
fimmtán ár eða frá því höfnin var
byggð. Á síðustu árum hafa nokkr-
ir aðilar sýnt málinu áhuga og þrjú
félög fengið lóðir til að byggja olíu-
birgðastöðvar, Tankabú Helguvík-
ur, Olíufélagið Skeljungur og Ís-
landsolía. Tankabúið hugðist leigja
öllum olíufélögum og fyrirtækjum
tankapláss en Íslandsolía var með
hugmyndir um innflutning á olíu og
sölu til fiskiskipa. Ekki gengu þess-
ar áætlanir eftir og öll fyrirtækin
skiluðu lóðum sínum.
Varnarliðið og Atlantshafsbanda-
lagið eiga mikla olíubirgðastöð við
Helguvíkurhöfn, samtals 8 tanka,
og leiðslu inn á varnarsvæðið. Að-
staðan er hálfnýtt og fyrir sex ár-
um bauð varnarliðið að hluti að-
stöðunnar yrði tekinn undir
borgaraleg not. Skeljungur sýndi
áhuga á því að komast þar inn en
ekki hefur tekist að ljúka málinu.
Ragnhildur segir að áætlanir
FL-Group miði við uppbyggingu
sjálfstæðrar birgðastöðvar við
Helguvík og lagningu leiðslu upp á
flugvöll. Hún segir að það verði
jafnframt kannað hvort unnt væri
að draga úr fjárfestingu með því að
leigja aðstöðu hjá varnarliðinu. Of
snemmt væri að segja til um hvort
það væri mögulegt. Þess ber að
geta að varnarliðið notar ekki sama
þotueldsneyti og Icelandair og
eldsneytinu er dælt í aðra birgða-
stöð á vellinum en ekki beint á þot-
urnar. Það er því ekki víst hvort
unnt sé að nota leiðsluna fyrir báða
aðila.
Áætlað er að þotur Icelandair
noti allt að fjórðung alls eldsneytis
sem flutt er til landsins. Þótt hætt
verði að flytja það landleiðina verða
áfram verulegir olíuflutningar á
Reykjanesbrautinni. Nefna má að
allri olíu til útgerðarinnar er ekið
með olíubílum úr Reykjavík og það
þotueldsneyti sem Olíudreifing flyt-
ur fyrir Olíufélagið og Olíuverslun
Íslands til Keflavíkurflugvallar og
selt er til annarra flugfélaga kemur
úr birgðatönkum í Hafnarfirði.
Reykjanesbær vill
stuðla að uppbyggingu
Forystumenn Reykjanesbæjar
hafa sýnt þessu máli áhuga og rit-
aði bæjarstjóri undir yfirlýsingu
um að bærinn vildi stuðla að upp-
byggingunni með ýmsum hætti,
meðal annars með úthlutun hent-
ugrar lóðar. Árni Sigfússon bæj-
arstjóri segir gott að fá aukna
starfsemi á iðnaðarsvæðið við
Helguvík og það auki tekjur hafn-
arinnar. Þá segir hann mikilvægt
að styrkja þau störf sem eru við
flugþjónustu á svæðinu með því að
gera eldsneytisinnflutninginn hag-
kvæmari. Loks nefnir hann að það
sé mikilvægt umhverfisverndar- og
öryggismál að draga úr eldsneyt-
isflutningum eftir Reykjanesbraut-
inni og minnka slit vegarins.
Í lóðarumsókn FL-Group og
viljayfirlýsingu félagsins og bæj-
arstjóra Reykjanesbæjar kemur
fram vilji til þess að FL-Group geti
í samstarfi við Reykjanesbæ út-
víkkað þá starfsemi sem byggð
verður upp við Helguvík, eftir því
sem rekstrar- og markaðsaðstæður
leyfa. Ragnhildur segir mikilvægt
að hafa opna möguleika til útvíkk-
unar starfseminnar. Einkum komi
til greina að bjóða öðrum flugfélög-
um eldsneyti.
SUÐURNES
Eldsneytisinnflutningur FL-Group um Helguvík er umhverfisverndarmál
Olíubílar fara sex þúsund
ferðir um Reykjanesbraut
E4 $
>"
5E (%-
!"
6"
"
5
" !
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
BREYTING á gjaldskrá bílastæða
við Flugstöð Leifs Eiríkssonar leið-
ir til þess að flugfarþegar sem
kjósa að geyma bíla sína á lang-
tímabílastæðum þurfa að greiða
minna en nú er strax eftir fyrstu
vikuna en ekki eftir aðra vikuna,
eins og fram kom í frétt hér í
blaðinu síðastliðinn laugardag.
Áður var innheimt 450 kr. flatt
gjald á sólarhring, ekki 350 kr. eins
og misritaðist. Frá og með deginum
í dag verður gjaldið á lang-
tímastæðunum 500 krónur á sólar-
hring fyrir fyrstu vikuna, 350 kr.
og fer síðan stiglækkandi eftir því
sem bíllinn stendur lengur. Sam-
anburðartaflan er birt hér með að
nýju, leiðrétt.
2 ( &
+
34
5* #4
*
+
E*
*
>
" 1 '
#*
*
>
" 1
% 5* 6*% *7 '*) '*% 8*6 %*% 9*%
Hagstæðara
eftir viku
Skólakynning í Stapa | Starfsemi
allra grunnskóla Reykjanesbæjar,
frístundaskóla og tónlistarskóla
verður kynnt í Stapa í dag og hefst
kynningin kl. 17.15. Á fundinum
munu skólastjórar kynna skólastarf
og stefnu hvers skóla. Í fréttatil-
kynningu kemur fram að mikilvægt
sé að foreldrar mæti. Vakin er at-
hygli á því að frá og með næsta hausti
gangi í gildi nýjar reglur um innritun
og val á skóla, þannig að foreldrar
eigi kost á að velja skóla fyrir börnin
sín óháð búsetu og skólahverfum.
LANDIÐ
GLJÚFRABÚINN sem vakti yfir Jöklu í
áratugi og Ragnar Axelsson gerði lands-
kunnan með verðlaunamynd sinni er hrun-
inn í jökulána sem mótaði hann. Steinninn
var á svæði sem fer undir lón Kára-
hnjúkavirkjunar sem verið er að byggja og
varð táknrænn fyrir baráttu náttúruvernd-
arsinna gegn virkjunarframkvæmdum á
þessum stað.
Fréttin um hrun gljúfrabúans, eða einbú-
ans, varð tilefni þess að Davíð Hjálmar
Haraldsson á Akureyri orti kvæði um hann
og almennt um náttúruna og virkjanir.
Nefnir hann kvæðið Einbúinn við Jöklu.
Við straumharða Jöklu bjó stórskorinn
þegn
er stoltur þar langdvölum undi
og útlegðin var honum ekki um megn
því annað ei þekkti né mundi.
Og einbúinn þarna á bakkanum bjó,
af brimþungri elfunni hristur,
á veturna nístur af vindi og snjó,
á vorin af sólinni kysstur.
Og oft var hún Jökla svo úfin og svöl
að ógn var af straumþungans mætti,
en samt bjó hann frekar við sælu en
kvöl
og sjaldan við móðuna þrætti.
Og dalurinn þeirra með dældir og börð
með dansandi blómum og fléttum
var leiksvið og skjól fyrir hreindýrahjörð
og hópa á vængjunum léttum.
En svo komí dalinn eitt sólþrungið vor
tvö saman þau Mammon og Ála
og einungis sáu þau urð, grjót og for.
Hjá Alcoa voru á mála.
Og saman þau eru að gera þar garð
– með grjóti og sementi styrkja –
því til þess að gefa þar Alcoa arð
þarf alltaf að stífla og virkja.
Þá stíflan er komin og stendur þar full
með stóreflis virkjun í dalnum,
þá malar hún Alcoa gæði og gull
þótt gróðurinn liggi í valnum.
Því fyllast mun dalur og færast á kaf
af forugu jökulárvatni
og allt hverfur lífið sem Guð þarna gaf
og gætti af eilífri natni.
Og einbúinn dapur þar örlögum kveið
því alltaf var stíflan að hækka
og dauðinn það eina er dalsins hans
beið
og dögunum tekið að fækka.
Svo var það einn daginn er vorsólin hló
og vetrarsnjór blánaði af klökkva,
að örvænting dauðans um æðarnar smó.
Hann ákvað að lokum að stökkva.
Og faðmurinn Jöklu svo ferlega grár
tók fúslega honum á móti.
Hvar einbúinn fyrrum stóð efldur og hár
nú aðeins sést mosi á grjóti.
- - - - -
Ef Mammon og Ála fá mótað vort land –
sem mörgum finnst hreinast og tærast –
þá óðar mun hverfa í aurvatn og sand
það allt sem oss núna er kærast.
Þótt sumt eflaust týnist og sökkvi í for
má samt ennþá hættunni verjast
og kannske vér eigum hér kjark til og þor
og kunnum til sigurs að berjast.
Nú ber oss að móta og bæta vorn heim
með breytni og skynsömum orðum
og loks skila arfi sem líkustum þeim
er landnemar gáfu oss forðum.
Einbúinn við Jöklu
Morgunblaðið/RAX
Hruninn Andlitið sem Jökla mótaði er horfið en lifir áfram í ljósmyndinni.
Gefur skrúðgarð | Unnur Gísla-
dóttir hefur ákveðið að gefa Sveitar-
félaginu Garði skrúðgarðinn í
Bræðraborg í Garði. Magnús Magn-
ússon ræktaði garðinn í 35 ár og gef-
ur Unnur hann í tilefni þess að í sum-
ar eru níutíu ár frá fæðingu hans.
Bæjarstjórn Garðs þiggur gjöfina
með þökkum.