Morgunblaðið - 10.05.2005, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 2005 27
MINNINGAR
að segja við mig. „Ef það tekst ekki
með ást og kærleik, þá því fyrr því
betra burt með það.“ „Við kyssumst
í þessari fjölskyldu,“ er vel þekkt.
Það fór víst ekki framhjá neinum og
fer ekki enn. Góður siður enda kær-
leikur og ást eitthvert dýrmætasta
veganesti sem amma Sigga hefur
gefið fjölskyldu sinni til að dreifa
áfram til sinna barna og barna-
barna.
Amma Sigga. Takk fyrir allt það
sem þú hefur gefið mér. Öll heil-
ræðin, alla viskuna, vináttuna, skil-
yrðislausa ást þína og kærleik. Ég
þakka fyrir það að þú hefur hitt
Maríu, konuna mína, börnin mín
Orra Hrafn og Söru Soffíu og séð
mig verða að manni. Ég mun lifa
eftir því sem þú kenndir okkur, að
halda tryggð við fjölskylduna og
vini og hlúa að þeim sem við elsk-
um. Hlúa að þeim sem minna mega
sín og eiga bágt.
Kveðja.
Kjartan Hrafn.
Elsku Sigga amma, nú er komið
að leiðarlokum og ert þú búin að fá
hvíldina sem þú varst farin að þrá,
búin að hitta eiginmennina þína tvo
þá Friðgeir og Sigurð sem þú sakn-
aðir svo mikið og færð nú að hvíla
þeim við hlið. Þú varst ávallt stór
hluti af lífi mínu og mér afar kær.
Ég var aðeins fimmtán ára þegar ég
kom fyrst á Hjallaveginn með
ömmu stráknum þínum Friðgeiri og
var mér strax vel tekið. Lagðir þú
mér ýmsar lífsreglur t.d. að fara vel
með og aldrei henda neinu enda
varst þú algjör safnari.
Þegar árin liðu fór Siggi afi að
gantast með að ég yrði næsta Sigga
á Hjalló eftir ykkar dag, þar sem ég
heiti Sigríður að millinafni. Sú varð
raunin eftir að Siggi afi lést og þú
fluttir á Dalbraut að ég og fjöl-
skylda mín eignuðumst Hjallaveg
þar sem við nú búum. Nú er ný
Sigga amma á Hjalló, þar sem ég er
orðin amma og þú langalangamma,
það er að segja fimm ættliðir.
Ég var bara rúmlega tvítug þeg-
ar móðir mín lést og sýndir þú mér
alltaf mikla væntumþykju og sagðir
að ég mætti eiga þig sem mömmu.
Þykir mér því mikil tilviljun að nú
tuttugu árum seinna skuli þið eiga
sömu útfarardaga. Þú varst sonum
mínum afar kær og eiga þeir marg-
ar skemmtilegar minningar af þér,
áttir þú með okkur nokkur aðfanga-
dagskvöld áður en þú veiktist á þínu
gamla heimili og bjuggum við sam-
an fyrstu mánuðina á Hjalló áður en
þú fluttir á Dalbraut.
Margs er að minnast frá liðnum
árum, en síðustu þrjú árin hafa ver-
ið þér, Sigga mín, erfið vegna veik-
inda.
Elsku Sigga amma, nú er vegferð
þinni lokið í þessu lífi. Þinn vegur
var ekki alltaf blómum skrýddur, en
þú naust þeirra gæfu að eiga góða
fjölskyldu, vini og venslafólk sem
umvöfðu þig og önnuðust síðustu
árin að ógleymdu starfsfólkinu á
Sóltúni sem önnuðust þig af sér-
stakri alúð, hlýju og nærgætni.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem.)
Blessuð sé minning Siggu ömmu,
Bryndís Sig. Halldórsdóttir.
Í dag kveðjum við elskulega syst-
ur mína, Siggu. Hún hefur lagt upp
í sína hinstu för. Síðustu árin hafa
verið henni erfið, þar sem hún
þurfti að liggja lömuð og hjálpar-
vana langt á 4. ár. Það eru þung ör-
lög ekki síst fyrir þá sem eru stór-
huga og vilja bjarga sér sjálfir.
Hún kynntist snemma mótlæti
lífsins, því hún var aðeins 13 ára
þegar móðir okkar lést frá okkur
sjö börnum, einungis uppeldissystir
okkar var fermd, hin öll yngri. Mér
er minnisstætt að einhverju sinni
vorum við börnin á æskuheimili
okkar eitthvað sorgmædd yfir ör-
lögum okkar að missa móður okkar
og fleiri raunir sem okkur fannst
skaparinn hafa lagt á okkur. Þá
sagði pabbi: Elsku börnin mín, þið
verðið að muna það að Drottinn
leggur ekki þyngri byrðar á okkur
en okkur er ætlað að bera. Ég held
að með þetta í huga höfum við geng-
ið í gegnum lífið.
Systir mín fór snemma að heim-
an. Hún fór í húsmæðraskólann að
Staðarfelli á Fellsströnd og kynnt-
ist síðan dásamlegum ungum
manni, Friðgeiri Sveinssyni frá
Sveinsstöðum. Giftust þau síðan ár-
ið 1944 og stofnuðu glæsilegt heim-
ili í Reykjavík. Þann sómamann
missti hún árið 1952, frá fjórum
ungum börnum, það elsta tæplega 8
ára gamalt. Síðar eða árið 1966,
giftist systir mín Sigurði Sveins-
syni, ólíkum manni en öðlingi samt
og reyndist hann henni og börnum
hennar vel. Þau eignuðust saman
eina dóttur, auk þess sem elsta
barnabarn hennar ólst að nokkru
upp hjá þeim. Sigurður lést árið
1994.
Ég ætla ekki að rekja frekar lífs-
hlaup systur minnar og vil heldur
ekki dvelja við sorgarstundirnar
sem fjölskylda okkar hefur þurft að
ganga í gegnum, en langar að fara
fáeinum orðum um allar þær fjöl-
mörgu ánægjustundir sem okkur
hafa verið gefnar.
Í huganum sé ég okkur hlaupandi
um túnið heima í Bæ, flýta okkur að
ljúka önnum dagsins svo við gætum
gert okkur eitthvað til gamans, ým-
ist úti eða inni. Ekki skorti hug-
myndaflugið, þótt ekkert væri sjón-
varpið eða annað það skemmtiefni
sem fólk er matað á nú til dags.
Þar sem Sigga var eldri en ég
þurfti hún oft að siða mig. Ég var
ekki nógu mikil dama, en sjálf var
hún mjög dömuleg og hafði gaman
af að punta sig. Hún og Hulda fóst-
ursystir okkar voru sennilega með
fyrstu ungu stúlkunum í sveitinni
sem eignuðust hælaháa skó. Það
þótti toppurinn á tilverunni fyrir
ungar dömur.
Æskuheimili okkar var oft sem
miðstöð unga fólksins í sveitinni og
víðar að. Þar ómaði söngur og hljóð-
færaleikur og dans var stiginn, hve-
nær sem tækifæri gafst. Faðir okk-
ar var mikill söng- og gleðimaður og
reyndar flest systkinin líka. Sigga
fékk að læra á orgel þegar hún var
unglingur. Það nýttist henni vel og
settist hún oft við hljóðfærið, ekki
síst ef henni fannst hún þurfa að
dreifa huganum eftir erfiðan dag,
en ekki síður þegar gestir voru
samankomnir á heimili hennar. Hún
var mjög gestrisin og vildi helst
alltaf hafa fullt hús af fólki í kring-
um sig, enda heimili hennar rómað
fyrir myndarskap. Hún var sann-
arlega höfðingi heim að sækja og
rausnarleg í öllum sínum gjörðum
og gjöfum. Við þessa kveðjustund
eru minningarnar sem koma fram í
hugann ótæmandi. Ég ætla að
geyma þær í hjarta mér, en þakka
systur minni allar okkar góðu sam-
verustundir í gleði og sorg.
Systir mín lifði það að ættliðir
hennar urðu fimm, allt hið elskuleg-
asta fólk. Börn hennar, tengdabörn
og barnabörn hafa umvafið hana ást
og kærleika og heimsótt hana hvern
dag eftir að hún veiktist. Og trygga
vini átti hún einnig, sem reyndust
henni vel við þessar aðstæður. Við
þökkum góðum Guði fyrir að dóttir
hennar var hjá henni þegar hún
kvaddi. Það er okkur öllum mikil
huggun.
Það hefur verið þungbært að
fylgjast með systur minni síðustu
árin eftir að heilsu hennar hrakaði.
Stundum hefur hún þekkt okkur og
getað svolítið talað við okkur, en
margar voru stundirnar sem við
bara sátum og héldum um hönd
hennar í von um að hún vissi af okk-
ur. Það er alltaf sárt að kveðja sína
nánustu, en þegar svona er komið
verðum við að þakka Guði fyrir að
leysa hana þrautum frá. Ég þakka
starfsfólki á Sóltúni fyrir hve vel
var um hana hugsað. Börnum henn-
ar, tengdabörnum og öllum afkom-
endum votta ég mína dýpstu samúð
og bið Guð að blessa minningu elsku
systur minnar og þakka henni fyrir
það sem hún var mér og minni fjöl-
skyldu. Hún hefur örugglega fengið
góða heimkomu. Hún hvíli í friði.
Arndís Magnúsdóttir
(Dísa systir).
Enn einu sinni er komið að
kveðjustund í fjölskyldu okkar. Hún
Sigga frænka, systir mömmu, hefur
fengið langþráða hvíld frá veikind-
um og kvölum og við efum ekki að
það hefur verið stór móttökunefnd
sem tók á móti henni þegar hún fór
héðan og það er okkur huggun
harmi gegn.
Það er alltaf sárt að missa ástvini,
en við getum ekki bara hugsað um
okkar sorg við missinn, því þegar
við vitum að viðkomandi er laus við
ánauðina sem veikindin hafa lagt á
hana síðastliðin ár þá verðum við
bara að þakka Guði fyrir að gefa
henni grið.
Við minnumst Siggu frænku með
gleði í huga, alltaf vorum við systk-
inin innilega velkomin á heimili
hennar og Sigga á Hjallaveginn,
þau með sína stóru fjölskyldu, mun-
aði ekki um að bæta við nokkrum
aðilum í viðbót, enda vön því frá
unga aldri að hafa marga í kringum
sig, þetta gera þeir sem hafa stórt
hjarta eins og frænka okkar hafði.
Það var alltaf gaman að koma á
Hjallaveginn, gleði og gamansemi
með ættingjum og/eða vinum, hlát-
ur, glens og gaman ásamt brauði,
kleinum og hnallþórum, svo maður
tali nú ekki um keppni í hinum
ýmsu þrautum og oft lágum við af-
velta af hlátri yfir þeirri íþrótt, sem
var nefnd „Hjallavegsgrín“
Elsku systkin öll frá Hjallaveg-
inum (nánast sem okkar systkin)
við biðjum Guð að blessa ykkur og
fjölskyldur ykkar og þökkum fyrir
að hafa fengið þau forréttindi að
eiga ykkur að sem frændsystkin og
vini.
Ég bý að brosum hennar
og blessa hennar spor,
því hún var mild og máttug
og minnti á – jarðneskt vor.
(Davíð Stefánsson.)
Jóhanna Hauksdóttir
(Hanna Stína) Magnús,
Guðlaugur og
fjölskyldur okkar.
Það er sól í heiði og sumar í sveit-
inni. Sigga Magg, Siggi frændi og
Sigurveig renna að Kastalabrekku
á sínum vínrauða bíl, drossíu úr
Reykjavík. Fagnandi kveðjur, hlýja
og faðmlög. Minningarnar safnast
saman í huganum. Atburðir liðinna
tíma, sveipaðir ævintýraljóma,
tjaldferðir, veiðitúrar og útilegur.
Uppbyggjandi kynni ungra stelpna
við þessi einstöku hjón sem alltaf
voru svo hlý og hvetjandi. Sólin í
landi minninganna segir eitthvað
um þá birtu og hlýju sem frá þeim
stafaði. Hlýju sem ekki síst endur-
varpaðist þeirra á milli þannig að
ekki duldist að hjörtun slógu í takt
með takmarkalausri ást og virðingu
í garð hvort annars. Vináttu sem
öllum hjónum væri til eftirbreytni.
Stundirnar á Hjallaveginum eru
ógleymanlegar. Faðmlögin, gest-
risnin og veitingarnar sem Sigga
töfraði fram, hreint ótrúleg veislu-
föng, hvenær sem mann bar að
garði. Allt í bland við glettin tilsvör
og sögur úr sveitinni hennar fyrir
vestan. Þá var oft hlegið svo inni-
lega að tárin runnu niður kinnarn-
ar. Fyrir okkur systurnar sem
komu til Reykjavíkur til að stunda
nám, var Hjallavegurinn hjá Siggu
og Sigga eins og annað heimili. Það
var aldrei svo að þau höfðu ekki
tíma eða aðstöðu til að hjálpa okkur
og styðja og alltaf var hægt að leita
hjá þeim ráða. Það var eins og þau
ættu í manni hvert bein.
Nú er Sigga horfin til framliðinna
ástvina sinna. Þótt hún væri ávallt
tilbúin að létta öðrum lund með
glettni og gríni bjó undir niðri
raunsæ alvaran sem mótuð var af
lífsins reynslu. Því lífið var ekki
alltaf dans á rósum fyrir Siggu.
Hún mátti sjá eftir tveimur eigin-
mönnum og feðrum barna sinna og
síðast efnilegum sonarsyni. Siggi
frændi dó fyrir rúmum 10 árum eft-
ir margra ára hjartasjúkdóm sem
gert hafði margar atlögur að lífi og
heilsu. Í þeirri baráttu var Sigga
eins og kletturinn, studdi sinn mann
af ráð og dáð og lét ekki bugast þótt
óttinn væri oft skammt undan. Á
síðustu árum hefur Sigga átt við
veikindi að stríða. Hún var sanntrú-
uð og bað þess heitt að Drottinn
hlífði henni yngra fólki og að næsta
brottkvaðning yrði hennar. Nú hef-
ur sú stund runnið upp. Við sjáum
hana fyrir okkur í grænni náttúru
framtíðarlandsins, umvafða ástvin-
um og vinum. Dillandi hláturinn og
ástúðlegi faðmurinn virkar þar eins
og hér eins og segull.
Við þökkum fyrir þær dýrmætu
stundir sem við áttum með Siggu.
Við þökkum fyrir þátt hennar í lífi
Sigga frænda og þá fyrirmynd sem
þau gáfu okkur sem eftir lifum um
ást, viðingu og kærleika.
Elsku Sigurveig, Jóhanna,
Hrefna, Salla, Maggi og fjölskyldur,
innilegustu samúðarkveðjur frá
okkur, systkinum okkar og foreldr-
um vegna fráfalls yndislegrar móð-
ur, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu. Drottinn blessi minningu
hennar.
Sigurveig Þóra og Hildur.
Elsku Sigríður mín.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Hafðu þökk fyrir allt. Guð blessi
minningu þína. Hvíl í friði.
Sigrún.
Pantanir í síma 562 0200
Á fallegum og notalegum
stað á 5. hæð Perlunnar.
Aðeins 1.250 kr. á mann.
Perlan
ERFIDRYKKJUR
Kistur - Krossar
Prestur - Kirkja
Kistulagning
Blóm - Fáni
Val á sálmum
Tónlistarfólk
Sálmaskrá
Tilk. í fjölmiðla
Erfisdrykkja
Gestabók
Legstaður
Flutningur kistu á
milli landa og
landshluta
Landsbyggðar-
þjónusta
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Sverrir
Einarsson
Bryndís
Valbjarnardóttir
Oddur
Bragason
Guðmundur
Þór Gíslason
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
Steinsmiðjan MOSAIK
Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík • sími 587 1960 • www.mosaik.is
MIKIÐ ÚRVAL AF LEGSTEINUM
OG FYLGIHLUTUM
Sendum myndalista
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
HARALDUR HALLDÓRSSON
bifreiðastjóri,
Bleiksárhlíð 14,
Eskifirði,
andaðist á Sjúkrahúsi Seyðisfjarðar laugar-
daginn 7. maí.
Útförin tilkynnt síðar.
Sigrún M. Bjarnadóttir,
Ragnheiður B. Haraldsdóttir,
Jón Ævar Haraldsson,
Huldís S. Haraldsdóttir,
Heimir Haraldsson,
Bjarnrún K. Haraldsdóttir,
Júlíana Haraldsdóttir,
tengdabörn, barnabörn og
barnabarnabörn.