Morgunblaðið - 10.05.2005, Qupperneq 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Hrúturinn er önnum kafinn í dag. Not-
aðu tímann í verslun og viðskipti eða
samningaviðræður við aðra.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nautið hugsar talsvert um peninga í
dag. Dagurinn hentar vel til þess að
versla, en hann er líka vel fallinn til þess
að vera á höttunum eftir auknum tekju-
möguleikum.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Tunglið (vanahegðun) er í tvíburamerk-
inu í dag. Tvíburinn er tilfinningasamari
en ella fyrir vikið, en jafnframt eilítið
heppnari. Þú hefur smáforskot núna.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Krabbinn þarf að fá að vera í einrúmi í
dag. Hann þarf á meiri bjartsýni á lífið
og tilveruna að halda. Dragðu þig í hlé
og dekraðu við sjálfan þig.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Samræður við vinkonur verða líflegar og
áhugaverðar í dag. Ljónið þyrstir eftir
nýjasta slúðrinu og fréttum af mönnum
og málefnum. (Er það virkilega?)
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Tunglið trónir efst í sólarkorti meyj-
unnar núna, sem beinir sjónum um-
hverfisins að henni. Það fellur henni
kannski ekki í geð, en svona er þetta
bara.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Reyndu að bregða út af vananum í dag ef
þú getur. Vogina langar sumpart til þess
að lenda í ævintýrum í dag eða upplifa
eitthvað nýtt.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Notaðu daginn í dag til þess að pæla í því
hvernig þú getur farið að því að deila
einhverju ótilgreindu með einhverjum.
Gættu hagsmuna þinna en vertu sann-
gjarn.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Tunglið er beint á móti bogmanninum í
dag. Hann beinir sjónum sínum að öðr-
um fyrir vikið, ekki síst maka eða nánum
vinum. Kannski laðast hann sterklega að
einhverjum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Gerðu hvað þú getur til þess að bæta
skipulag þitt í dag. Reyndu að draga úr
óreiðu í lífi þínu. Steingeitinni er illa við
sóun, en það er óþarfi að geyma alla hluti
endalaust.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Glens og grín með smáfólkinu gleður
hjarta vatnsberans í dag. Líka er upp-
lagt að sinna listsköpun eða álíka iðju,
eða daðra sér til skemmtunar.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Samræður við foreldra eru þýðing-
armiklar í dag. Ekki vera píslarvottur,
þú getur ekki hjálpað öðrum nema þú
hjálpir sjálfum þér fyrst.
Stjörnuspá
Frances Drake
Naut
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert athafnasöm og djörf manneskja og
líka gædd innsæi. Þú þarft að vera á
hreyfingu og finnur hjá þér hvöt til þess
að leiðbeina öðrum og sýna þeim hvað þú
kannt. Margir fæddir þennan dag eru
einstaklega hæfileikaríkir.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 haltra, 4 þref, 7
hnöttum, 8 sterk, 9 álít, 11
sleit, 13 eru minnugir á
misgerðir, 14 starfið, 15
sjálfshreykni, 17 líkams-
hluta, 20 elska, 22 dug-
lausi
maðurinn, 23 fjandskapur,
24 drepa, 25 nemum.
Lóðrétt | 1 tvínónar, 2 dýs,
3 sárt, 4 rök og svöl, 5 fisk-
ar, 6 hlýða, 10 dugnaður-
inn,
12 raklendi, 13 bókstafur,
15 tölum, 16 kaldur, 18
huldumaður, 19 tómum,
20 ilma, 21 tölustafur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 páfagauks, 8 skæli, 9 göfgi, 10 níu, 11 asinn, 13
narri, 15 starf,
18 hrasa, 21 lár, 22 lagni, 23 orgar, 24 passasamt.
Lóðrétt | 2 áræði, 3 arinn, 4 augun, 5 kofar, 6 assa, 7 gili, 12
nýr, 14 aur,
15 síld, 16 angra, 17 fliss, 18 hross, 19 augum, 20 arra.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Tónlist
Grand Rokk | Tónleikar kl. 22 með James
Apollo (USA) ásamt hljómsveit. Nánar á
www.jamesapollo.com.
Smekkleysa Plötubúð – Humar eða
Frægð | James Apollo, tónlistarmaður frá
miðríkjum Bandaríkjanna.
Grensáskirkja | Landsvirkjunarkórinn og
Kór Orkuveitu Reykjavíkur
halda sameiginlega tónleika kl. 20.30. Ein-
söngvarar eru: Þuríður G. Sigurðardóttir
sópran og Þorgeir J. Andrésson tenór.
Enginn aðgangseyrir og allir eru hjart-
anlega velkomnir.
Myndlist
Artótek Grófarhúsi | Sýning á verkum
Benedikts S. Lafleur myndlistarmanns er á
1. hæð. Sýningin er þriðja í röð sýninga á
verkum listamanna sem eiga listaverk í
Artóteki – Listhlöðu í Borgarbókasafni. Sjá
vefsíðu http://www.artotek.is.
Café Karólína | Myndlistarsýning Baldvins
Ringsted.
Gallerí Kambur | Sýning á myndum Þor-
steins Eggertssonar. Opið virka daga 13–18.
Lokað á miðvikudögum.
Gallerí Sævars Karls | Kristján Jónsson
sýnir myndir unnar með blandaðri tækni.
Gel Gallerí | Ólafur grafari sýnir verk sín.
Grafið er komið til að vera.
Hrafnista Hafnarfirði | Stefán T. Hjaltalín
sýnir akrílmyndir og fleiri listmuni í Menn-
ingarsalnum á fyrstu hæð.
Kaffi Milanó | Jón Arnar Sigurjónsson sýn-
ir olíumyndir á striga. Myndefnið er borg-
arlíf, tónlist og árstíðirnar.
Listasafn Reykjanesbæjar | Martin Smida,
þýsk/tékkneskur listamaður sýnir – 365
Fiskar. Verkið samanstendur af 365 skúlp-
túrum úr alls kyns efnum og vakti athygli í
Þýskalandi þegar það var fyrst sýnt í sept-
ember árið 2001. Þetta er fyrsta sýning
Martin Smida á Íslandi.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið. Yfirlitssýning.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Útskriftarsýning nemenda við Listaháskóla
Íslands.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Sýn-
ing á verkum Dieters Roth opnuð 14. maí á
Listahátíð.
Listasafn Íslands | Sýning á verkum Diet-
ers Roth opnuð 14. maí á Listahátíð.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Bára ljós-
myndari – Heitir reitir.
Norræna húsið | Norski málarinn Örnulf
Opdahl.
Saltfisksetur Íslands | Jónas Bragi sýnir
„Ólgur“.
Skriðuklaustur | Sýning 8 listamanna af
Snæfelli, þ.á m. eru verk eftir Kjarval, Finn
Jónsson og Guðmund frá Miðdal. Einnig er
sýning á svarthvítum ljósmyndum af fólki
eftir Sigurð Blöndal í galleríi Klaustri.
Þjóðminjasafn Íslands | Ljósmyndasýning-
arnar Í Vesturheimi 1955 – ljósmyndir
Guðna Þórðarsonar og Íslendingar í Ricc-
ione – ljósmyndir úr fórum Man-
fronibræðra.
Listasýning
Geysishúsið | Íslenska bútasaumsfélagið
stendur fyrir sýningu í Geysishúsi. Sýn-
ingin ber heitið Áskorun 2005 og eru öll
teppin ný. Sýningin er opin til 22. maí.
Listhús Ófeigs | Halla Ásgeirsdóttir sýnir
raku-brennd leirverk. Halla stundaði leir-
listarnám í Bandaríkjunum árin 1987 til
1993. Hún hefur tekið þátt í samsýningum
bæði hér heima og erlendis. Sýningin
stendur til 1. júní.
Smáralind | Sýndir eru einstaklingar sem
félagar Íslandsdeildar Amnesty Int-
ernational hafa átt þátt í að frelsa á 30 ár-
um. Heitið er tekið úr bréfi samviskufanga:
Á dimmustu tímum fangavistar minnar
komu orð ykkar og bréf sem dropar af
regni, sem lengi hefur verið beðið eftir í
endalausri eyðimörk.“
Bækur
Kaffi Reykjavík | Skáldaspírukvöld verður
kl. 21. Upplesarar eru: Haraldur S. Magn-
ússon, les úr nýjum ljóðum, Birgitta Jóns-
dóttir, les úr nýjum ljóðabókum, Stefán
Máni, les úr verkum sínum, og Steinunn P.
Hafstað, les úr nýjustu ljóðabók sinni.
Söfn
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Opið frá kl.
10–17. Hljóðleiðsögn um húsið, margmiðl-
unarsýning um ævi skáldsins og umhverfi.
Sími 586 8066 netfang: gljufrasteinn-
@gljufrasteinn.is.
Þjóðmenningarhúsið | Fyrirheitna landið
er heiti sýningar sem segir frá ferðum
fyrstu Vestur-Íslendinganna; mormónanna
sem settust að í Utah.
Fréttir
Blóðbankinn | Blóðbankabíllinn verður
með blóðsöfnun á Sauðárkróki við Skag-
firðingabúð í dag kl. 10.30–17 og 11. maí kl.
9–11.30. Á Blönduósi á planinu við Esso-
skálann 11. maí kl 14–17.
Fundir
Al-Anon | Al-Anon fjölskyldudeildirnar
halda fund alla daga vikunnar. Al-Anon hef-
ur aðeins einn tilgang: Að hjálpa fjöl-
skyldum og vinum alkóhólista. Skrifstofa
Al-Anon er opin mánudaga og fimmtudaga
kl. 10–13, þriðjudaga kl. 13–16. Nánari upp-
lýsingar á www.al-anon.is.
Eineltissamtökin | Eineltissamtökin eru
með fundi alla þriðjudaga kl. 20–21, í húsi
Geðhjálpar, Túngötu 7.
Litla brekka – Lækjarbrekka | Feminista-
félag Íslands heldur síðasta „hitt“ vetr-
arins kl. 20. Fundarefni: Konur og stjórn-
arskráin. Erindi flytja Brynhildur Flóvenz
lögfræðingur og Rósa Erlingsdóttir stjórn-
málafræðingur. Fundurinn er öllum opinn.
Norræna húsið | Aðalfundur Heilsuhrings-
ins verður haldinn í Norræna húsinu kl. 20.
Að loknum aðalfundarstörfum flytur Jó-
hann Ágúst Sigurðsson læknir erindi.
Safnaðarheimili Breiðholts | Félagsfundur
verður í Kvenfélagi Breiðholts kl. 19.30.
Matur o.fl.
Styrkur | Styrkur, samtök krabbameins-
sjúklinga og aðstandenda þeirra, verður
með opið hús í Skógarhlíð kl. 20. Stein-
grímur Davíðsson húðlæknir talar um
hættu af sól og ljósum. Kosin verður ný
stjórn. Kaffiveitingar.
Sunnusalur Hótels Sögu | Vorfundur hjá
Sinawik Reykjavík hefst með borðhaldi kl.
20. Kynningar og happdrætti.
Fyrirlestrar
ReykjavíkurAkademían | Nína Rós Ísberg
fjallar um rannsókn sína á þýskum konum
sem komu til Íslands 1949 sem vinnuafl og
giftust hér og eignuðust fjölskyldur. Fjallað
verður um aðlögun þeirra að íslensku sam-
félagi og hvernig nánasta umhverfi brást
við með beinum eða óbeinum hætti við að
gera þær hæfar. Fyrirlesturinn er kl. 20. Sjá
akademia.is/mi.
Skógræktarfélag Íslands | Opið hús skóg-
ræktarfélaganna kl. 20 í Mörkinni 6. Gísli
Sigurðsson, fyrrverandi ritstjóri Lesbókar
Morgunblaðsins, fjallar í máli og myndum
um skóga á Suðurlandi. Öllum opið og að-
gangur ókeypis.
Námskeið
Alþjóðahúsið | Námskeiðið konur og Islam
verður endurtekið í Alþjóðahúsinu kl. 17–
20. Fjallað er um hvaða áhrif Islam hefur á
líf kvenna í löndum múslima. Amal Tamimi
félagsfræðingur kennir. Skráning í síma
530 9300 og á amal@ahus.is Verð 5.000
kr.
Bókaútgáfan Salka | Sigurður Skúlason
leikari leiðbeinir um andlega vellíðan og
hvernig öðlast má innri ró. Til grundvallar
notar Sigurður bókina „Um hjartað liggur
leið“. Hann mun lesa úr henni valda kafla
og segja frá höfundi hennar. Kl. 20–22.
Skráning á audur@salkaforlag.is.
Útivist
Ferðafélagið Útivist | Fram í september er
boðið upp á gönguferðir á miðvikudags-
kvöldum kl. 18.30. Farið er frá Toppstöðinni
í Elliðaárdal og ekið á eigin bílum út fyrir
bæinn þangað sem gönguferðin hefst. Sjá
kynningu á þessum ferðum í ferðaáætl-
uninni.
Stafganga í Laugardal | Stafganga kl.
17.30–18.30. Gengið er frá Laugardalslaug-
inni, tímar fyrir byrjendur og lengra komna.
Nánari upplýsingar á www.stafganga.is.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Feitur slagur.
Norður
♠DG73
♥DG N/AV
♦Á4
♣K9872
Vestur Austur
♠Á64 ♠K
♥3 ♥Á109862
♦G9652 ♦D1083
♣G1064 ♣53
Suður
♠109852
♥K754
♦K7
♣ÁD
Fjórir spaðar er ágætt geim í NS,
en virðist þó dauðadæmt frá upphafi
vegna stungunnar í hjarta. En það á
aldrei að gefast upp baráttulaust.
Vestur Norður Austur Suður
– 1 lauf 1 hjarta 1 spaði
Pass 2 spaðar Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
Vestur kemur út með hjartaþrist-
inn, austur tekur með ás og spilar tí-
unni um hæl til að panta tígul. Vestur
trompar og spilar tígli, eins og um er
beðið.
Er einhver vinningsvon eftir þessa
byrjun?
Ekki með bestu vörn, en sagnhafi
getur lagt lúmska gildru fyrir vestur.
Hann ætti að drepa á tígulás, fara
heim á laufás og spila hjartakóng.
Þannig lætur hann í veðri vaka að
mikið liggi á að henda niður „tapspili“
blinds í tígli og vestur gæti auðveld-
lega látið sér detta í hug að trompa
með hundi.
Og þá hefur vestur gengið í gildr-
una. Sagnhafi yfirtrompar og gefur
vörninni svo feitan slag á kóng og ás í
trompi.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
GOSPELSYSTUR Reykjavíkur verða með
tvenna vortónleika í Langholtskirkju á
fimmtudaginn og bera tónleikarnir yf-
irskriftina Purple rain. Stjórnandi Gosp-
elsystra er sem fyrr Margrét Pálmadóttir
en „hún er löngu orðin landsþekkt fyrir líf-
lega framkomu og öflugt tónlistarstarf
hér heima sem erlendis,“ eins og segir í
kynningu. Gestasöngvari Gospelsystra að
þessu sinni er Bandaríkjamaðurinn Seth
Sharp. Hann hefur verið leiðbeinandi hjá
kórnum á vorönn. „Samvinnan með Seth
hefur verið einstaklega skemmtileg og
gefandi. Hann hefur veitt kórfélögum nýja
sýn inn í heim gospeltónlistar og opnað
hug kórfélaga fyrir nýrri og spennandi
túlkun á þessari tónlist. Seth starfar nú á
Íslandi sem söngkennari og hefur sett upp
tvær sýningar í Loftkastalanum sem báð-
ar vöktu verðskuldaða athygli, Ain’t Mis-
behavin’ og Harlem Sophisticate,“ segir
ennfremur.
Á efnisskrá tónleikanna eru lög úr ýms-
um áttum, allt frá íslenskum vorlögum til
bandarískrar kvikmyndatónlistar með
gospelívafi. Hljóðfæraleikarar eru Agnar
Már Magnússon, píanó, Stefán S. Stef-
ánsson, slagverk, saxófónn og flauta og
Bjarni Sveinbjörnsson, kontrabassi. Tón-
leikarnir hefjast kl. 20 og kl. 22. Miðaverð
er 2.000 kr.
Morgunblaðið/Golli
Gospelsystur í
Langholtskirkju