Morgunblaðið - 10.05.2005, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 2005 37
MENNING
SÍÐASTLIÐINN áratug eða svo
hefur Norðmaðurinn Örnulf Opdahl
getið sér gott orð fyrir landslags-
myndir sínar. Fyrr á ferli sínum
málaði Opdahl fígúratíft í anda súr-
realisma en sl. fimmtán ár eða svo
hefur landslagið verið allsráðandi í
myndverkum hans.
Í Norræna húsinu sýnir Opdahl
myndir af tvennum toga, annars
vegar vatnslitamyndir og mónótýp-
ur unnar í kjölfar þátttöku Opdahls
í leiðangri norska rannsóknaskips-
ins GO Sars sumarið 2004 sem og
einkaferðar hans til Suðurskauts-
landsins 2003, hins vegar mynd-
skreytingar við Brekkukotsannál. Í
báðum tilfellum túlkar listamað-
urinn nokkuð öfgafulla heima, ógn-
vekjandi og mannlausan heim hafs-
ins sem býr þó yfir litríkum
undrum undir yfirborðinu og síðan
afmarkaðan heim íbúanna í Brekku-
koti og umhverfi, en þessir heimar
eiga það þó sameiginlegt að vera
kannski hrjúfir á yfirborðinu en
luma á ýmsu undir niðri.
Myndröðin sem sýnir hafið og
Suðurskautslandið einkennist af
seríum eða tvennum, listamaðurinn
setur oft tvær eða fleiri myndir í
sama rammann. Myndefnið er öldur
hafsins, fjöll, lífríki sjávar, himinn-
inn. Kraftmiklar myndir og sér-
staklega tekst Opdahl vel upp þeg-
ar hann túlkar birtu sem skín í
gegnum myrkrið, sól á drungaleg-
um himni eða birtubrigði undir yf-
irborði. Hrikaleiki hafsins kemst vel
til skila, öldur rísa himinhátt á alla
kanta en á næstu mynd skín sólin í
gegn, gul birta lýsir upp gráan flöt.
Fyrr á tímum fóru listamenn eða
drátthagir gjarnan með í könn-
unarleiðangra til að teikna upp það
sem fyrir augu bar, nokkuð sem
ljósmyndatæknin hefur gert útlægt.
En það er augljóst hversu hughrif
þau sem listamaður verður fyrir af
umhverfi sínu miðla miklu meira
um einhvern tiltekinn raunveruleika
en nokkur ljósmynd getur gert. Það
felst ákveðinn sannleikur í þessum
myndum, sannleikur á borð við
þann sem finna má í skáldsögum og
á ekki skylt við vísindalegar stað-
reyndir heldur mannlega tilvist. Op-
dahl túlkar það sem hann sér en til-
finningar hans birta sammannlega
reynslu. Þetta verður enn augljós-
ara þegar myndir Opdahls eru
bornar saman við ljósmyndir Dav-
ids Shale af fiskum og fyrirbærum í
hafinu í anddyri Norræna hússins,
heillandi heimur út af fyrir sig en
sýna fyrst og fremst raunveruleik-
ann frekar en hugmyndir okkar um
hann.
Myndskreytingar Opdahls við
Brekkukotsannál eru kannski ekki
af ósvipuðum toga og myndir hans
frá Barentshafi, listamaðurinn fer
hér í ferð inn í heim Halldórs Lax-
ness og færir áhorfandanum síðan
upplifun sína. Brekkukotsannáll er
myndræn bók þar sem dregin er
upp skýr mynd af sögusviði og per-
sónum. Opdahl sýnir m.a. litla bæ-
inn og portrett af ýmsum per-
sónum, sem ég gat að vísu ekki
alveg heimfært með fullri vissu
nema sumar, öllu sterkari er t.a.m.
myndin sem sýnir Álfgrím og Björn
róa eftir hrokkelsum í dögun, á ör-
lagastund í lífi Álfgríms. Græni lit-
urinn i myndunum af Brekkukoti
lifir líka í minningunni, hlýr og
mildur eins og allt það góða í þess-
um litla heimi.
Á þessari sýningu birtir Opdahl
mikilvægan þátt í sköpun lista-
manna, þátt túlkunarinnar sem var
kirfilega ýtt til hliðar í málverkinu
með tilkomu abstraktsins. Þannig
afneitaði rússneski málarinn Mal-
evitch hringforminu í verkum sínum
við upphaf abstraktsins, því það
tengdist hugsanlega einhverjum
ytri raunveruleika. Framúrstefnan
eins og hún lagði sig í upphafi 20.
aldar lagði kapp á að afneita lista-
mönnum sem túlkuðu náttúruna í
verkum sínum, fútúristarnir vildu
tækni, dadaistarnir and-list, súr-
realistarnir innri heim. En lands-
lagsmálverkið lifir enn góðu lífi
þrátt fyrir allar atlögurnar gegn því
og Opdahl sýnir einmitt með ágæt-
um hversu lítið það á skylt við eft-
iröpun af náttúrunni og mikið við
birtingu innri heims.
Listamaðurinn
sem túlkandi afl
MYNDLIST
Norræna húsið
Til 12. júní. Sýningarsalur Norræna húss-
ins er opinn alla daga frá kl. 12–17.
Vatnslitamyndir Örnulfs Opdahl
„Kraftmiklar myndir og sérstaklega tekst Opdahl vel upp þegar hann túlk-
ar birtu sem skín í gegnum myrkrið, sól á drungalegum himni eða birtu-
brigði undir yfirborði,“ segir Ragna Sigurðardóttir m.a. í umsögninni.
Ragna Sigurðardóttir
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Hjá Vöku-Helgafelli er komin út Þú
getur ennþá grennst og breytt um
lífsstíl eftir Ásmund Stefánsson og
Guðmund Björnsson. Um er að ræða
nýja og endurbætta útgáfu Þú getur
grennst og breytt um lífsstíl sem
kom út 2003.
Ásmundur Stefánsson var orðinn
vondaufur um að geta lést þegar
hann komst í kynni við megrunar-
aðferð sem olli því að hann léttist úr
120 kílóum í 80. Nú heldur Ásmund-
ur sér í kringum 85 kílóin án þess að
finna fyrir því.
Í bókinni er þessi áhrifaríka aðferð
kynnt. Ásmundur segir sögu sína –
hvernig hann fór að þessu – og vísar
veginn til betra lífs. Guðmundur
Björnsson læknir útskýrir hvað býr að
baki aðferðinni – m.a. hvað beri að
varast – í ljósi læknisfræðinnar.
„Í kjölfar fyrstu útgáfu bókarinnar
urðu miklar umræður um þessa að-
ferð Ásmundar og sumir læknar og
næringarfræðingar hafa varað við því
mataræði sem hann boðar. Nýjar
rannsóknir benda hins vegar ákveðið
til að þessar viðvaranir byggist ekki á
vísindalegum forsendum og skamm-
tímarannsóknir hafa hnekkt fullyrð-
ingum þeirra sem mest töluðu gegn
bókinni.
Offita er alvarlegt og vaxandi heil-
brigðisvandamál. Ekki er fullyrt að
það mataræði sem bókin lýsir sé
heilsufæði sem allir eigi að tileinka
sér, en það hefur sýnt sig að það
hentar mörgum vel,“ segir í kynn-
ingu.
Margrét Þóra Þorláksdóttir mat-
gæðingur leggur fram fjölda girni-
legra uppskrifta með þessum kúr
sem byggist á því að borða helst
kjöt, fisk og grænmeti en sneiða hjá
kolvetnaríkum mat.
Bókin er: 156 bls. Verð: 1.999 kr.
Lífsstíll