Morgunblaðið - 10.05.2005, Page 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MIÐASALA á
tónleika Joe
Cocker, sem
fram fara 1.
september í
Laugardals-
höll, hefst í
dag. Tak-
markað magn
miða er í boði.
Miðasala fer fram í verslunum
Skífunnar, BT á Akureyri og
Selfossi, Pennanum Akranesi
sem og á www.concert.is.
Miðaverð er 7.500 krónur í
stúku A, 6.500 krónur í stúku
B og 5.500 krónur í stæði.
Miðasala
hefst á
Joe Cocker
Joe Cocker
Miðasala opnar kl. 15.003
WWW.BORGARBIO.IS
Frá leikstjóra
Die Another Day
Sýnd kl. 8 og 10 B.I 12 ÁRA Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.I 12 ÁRA
TV
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 5.20 , 8 og 10.45. B.I 16 ÁRA
Orlando Bloom, Liam Neeson og Jeremy Irons fara
á kostum í epískri stórmynd. Missið ekki af þessari
KINGDOM OF HEAVEN
ORLANDO BLOOM
KINGDOM OF HEAVEN
ORLANDO BLOOM
Ridley Scott, leikstjóri
Gladiator, færir
okkur eina
mögnuðustu mynd
ársins!
Ridley Scott, leikstjóri Gladiator, færir
okkur eina mögnuðustu mynd ársins!
Magnaður spennutryllir
T H E INTERPRETER
ÓÖH DV
Orlando Bloom, Liam
Neeson og Jeremy
Irons fara á kostum í
epískri stórmynd.
Missið ekki af þessari
Sýnd kl. 5.30. B.I 16 ÁRA Sýnd kl. 4 og 6. m. ísl taliSýnd kl. 10.15 . B.i. 14 ára. Sýnd kl. 8 og 10.30.
Skráðu þig á bíó.is
Sýnd kl. 5.45 og 8.
kl. 4, 7 og 10.
Sýnd kl. 5, 8 og 11. B.i. 16 ára.
Frá leikstjóra
Die Another Day
Frá leiks óra
Die Another Day
RODNEY Bingenheimer er að-
alpersóna heimildarmyndarinnar
Borgarstjóri Sunset-strætis en þó
ekki eina viðfangsefni hennar.
Myndin fjallar nefnilega um frægð,
um stjörnudýrkun, og þann sess
sem stjörnur hafa hlotið í ímynda-
samfélagi nútímans. Sem slík er
myndin afar áhugaverð. Og Rodney
er í senn kaldhæðnisleg og við-
kunnanleg vitundarmiðja í frásögn-
inni. Rodney þekkir alla – hann var
maðurinn sem kynnti David Bowie
fyrir rokksenunni í Los Angeles í
upphafi áttunda áratugarins, hann
var fyrstur til að spila
Ramones og Sex Pistols á
hinni nú frægu KROQ út-
varpsstöð. Sid Vicious
hringdi meira að segja í
hann, og símtalið er spilað í
myndinni. Þannig stendur
hann nærri stjörnunum en
samt er hann sjálfur ekki
stjarna (er satt að segja
ósköp fátækur). Hann er
dálítið eins og hinn hvers-
dagslegi Jón sem fyrir hálf-
gerða tilviljun þekkir Bowie,
hitti Elvis, og er alltaf í
partíum hjá fræga fólkinu.
Hann er brúin milli bjartrar
og glitrandi stjörnunætur
og gráleits hvunndagsins.
En hann er líka dálítið eins
og Zelig, hin þekkta kvikmynda-
persóna Woodys Allen, sem ávallt
var stödd þar sem saga tuttugustu
aldarinnar var að ná einum af sín-
um mörgu hápunktum, en var sjálf-
ur hálf ómerkilegur og skipti engu
máli. Þannig er Rodney líka, hann
„þekkir“ stjörnurnar, hann hefur
löngum verið aðeins á undan
smekk almennings (hann var líka
sá fyrsti sem spilaði Coldplay í
Bandaríkjunum, og var einn af
þeim fyrstu þar í landi til
að kynna Oasis) en sem
persóna er hann hálfgert
tómarúm, og spurningin
vaknar: hvers vegna eru
allar stjörnurnar tilbúnar
til að verja tíma með hon-
um, koma fram í mynd
um hann, og tala um
hann? Svarið hlýtur að
vera að Rodney Bingen-
heimer er einmitt alveg
hlutlaus, hann er ekki
beinlínis að reyna að
græða á fræga fólkinu,
þess í stað virðist hann
njóta þess í ákveðnum
skilningi að miðla bæði
tónlist og töfrum rokk-
goðanna. Og endar hann
sem nokkurs konar gæludýr eða
lukkutröll fræga fólksins, nokkurs
konar Öskubuska sem situr eftir í
tötrum þegar klukkan slær tólf.
Rokkálfurinn góði
KVIKMYNDIR
Háskólabíó - IIFF
Leikstjórn: George Hickenlooper. Fram
koma: Rodney Bingenheimer, David
Bowie, Debbie Harry, Courtney Love,
Cher, Nancy Sinatra, Mick Jagger o.fl.
Bandaríkin, 94 mín.
Borgarstjóri Sunset-strætis / Mayor of the
Sunset Strip
Bingenheimer ásamt Joey heitnum Ramone.
Heiða Jóhannsdóttir
NÝTT lag með hljómsveitinni Ensími
er komið í spilun á útvarpsstöðvum.
Lagið heitir Slow Return og er eins
og Arnar Gíslason trommuleikari
segir, „rokkslagari eins og þeir ger-
ast bestir“. Ensími hefur látið lítið
fyrir sér fara undanfarið en í staðinn
unnið hörðum höndum að nýrri plötu
sem Arnar segir að komi að öllum lík-
indum út seinna á þessu ári. „Við er-
um búnir að taka upp sextán lög. Sum
eru lengra komin en önnur og svo er
bara að velja úr þessum lögum og
gefa út góða tíu, tólf laga plötu.“ Sein-
asta breiðskífa Ensími kom út á veg-
um Crown Recordings í Írlandi og
Ensími spilaði í kjölfarið í Dyflinni,
Cork og Limerick. „Það var mjög
skemmtilegt. Við fórum í svona kynn-
ingartónleikaferð til þessara borga
um leið og platan kom út og vænt-
anlega endurtökum við leikinn.
En hvað með tónleika á Íslandi?
„Já! Núna fer allt á fullt. Lagið
komið í spilun og þá er að fylgja þessu
eftir. Við höfum allir verið mjög iðnir
í öðrum verkefnum með öðrum
hljómsveitum en í sumar ætlum við
að taka Ensími föstum tökum og spila
eins mikið og við getum.“
Morgunblaðið/Árni Torfason
Ný Ensími-plata væntanleg.
Nýtt lag
frá Ensími
hoskuldur@mbl.is
Í DAG kemur út sóló-plata Idol-stjörnunnar Hild-
ar Völu. Þetta er í annað skiptið sem afrakstur
Idol-stjörnuleitarinnar kemst á breiðskífu og við-
bótin við íslenska tónlistarflóru bæði kærkomin
og hressandi, sér í lagi ef hún blæs meira lífi í
sumarútgáfurnar.
Platan, sem heitir einfaldlega Hildur Vala, er
tólf laga breiðskífa þar sem Hildur gerir að sínum
bæði íslensk og erlend lög, gömul í bland við ný-
legri. Jón Ólafsson stjórnaði upptökum á plötunni
en hann hefur áður stýrt af miklum myndarbrag
upptökum hjá mörgum af þekktustu tónlistar-
mönnum landsins. Óhætt er að segja að platan sé í
rólegri kantinum, kvenlæg jafnvel en mjög vel
unnin og sérstaklega vel sungin, enda Hildur Vala
músíkölsk með afbrigðum.
Aðspurð segist Hildur Vala vera sátt við útkom-
una, „Ég er mjög ánægð með hana og mjög
spennt, þetta er náttúrlega mín fyrsta plata svo að
það er ekki annað hægt. Það eru þrjú lög þarna
sem ég söng í Idol-stjörnuleit, Líf eftir þá Jón
Ólafsson og Stefán Hilmarsson, síðan er lagið The
Boy Who Giggled So Sweet, eftir Jón og Emilíönu
en í annarri útsetningu og The Dark End of the
Road, eftir Chips Moman og Dan Penn. Svo eru
hin lögin mörg af mínum eftirlætislögum eða lög
sem mér finnst bara skemmtilegt að syngja.“ Og
Hildur Vala lætur vel af upptökuferlinu: „Þetta
voru mjög skemmtilegar tvær vikur sem fóru í
upptökur og alveg frábært að vinna með öllum
þessum færu hljóðfæraleikurum. Ég hefði glöð
viljað vera lengur í hljóðverinu. Þetta var ótrúlega
skemmtilegur tími.“
Útgáfutónleikar verða á hvítasunnudaginn 15.
maí, í Salnum í Kópavogi, en svo hyggst Hildur
Vala fylgja plötunni eftir í sumar. „Það er ekkert
ákveðið ennþá með sumarið en ég býst við því að
vera á ferðinni og spila hér og þar.“ Spurð að því
hvort annir hjá Stuðmönnum flæki hennar eigin
sólóferil segir Hildur Vala að svo sé ekki. „Nei,
nei. Þetta á alveg að geta virkað saman. Það er
líka svo skemmtilegt að syngja með Stuðmönnum
að ég gæti ekki gefið það upp á bátinn núna, fær-
ari tónlistarmenn er líklega ekki hægt að finna né
betri skóla fyrir söngkonu eins og mig að sækja.“
Verður háskólanámið þá sett á ís í bili?
Já, ég verð bara að leggja það til hliðar um
stundarsakir. En það er alls ekki slæmt, ég sest
bara aftur á skólabekk um leið og tækifæri gefst
aftur. Það er nægur tími.“
En hvað á að gera í tilefni dagsins?
„Ég var einmitt að velta þessu fyrir mér, ég er
ekki alveg búin að ákveða það. Kannski ég fari
bara út í búð og kaupi plötuna.“
Engin áritun í Kringlunni eða eitthvað slíkt?
„Nei. Ég verð líklega ekkert að árita fyrr en í
fyrsta lagi um næstu helgi en þetta er ekki alveg
komið á hreint,“ segir Hildur Vala og kveður,
furðulega afslöppuð miðað við aðstæður.
Tónlist | Fyrsta plata Hildar Völu kemur út í dag
„Ótrúlega skemmtilegur tími!“
Ljósmynd/Atli Mar Hafsteinsson
Hildur Vala er ánægð með afraksturinn.
Eftir Höskuld Ólafsson
hoskuldur@mbl.is