Morgunblaðið - 21.05.2005, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 21.05.2005, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 135. TBL. 93. ÁRG. LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Sundurgerð í réttarsalnum Hinir ýmsu alklæðnaðir sakborn- ingsins Michaels Jackson | Menning Lesbók | Friðrik og Agnes fyrir og eftir dauðann  Tungan sem hljóðfæri hugans Börn | Við erum vatn Íþróttir | Ísland vann England í körfubolta  Allt um bikarúrslitin í Englandi „EFTIR langa veru hér inni er tilhugsunin um að fara út aftur mjög erfið,“ sagði fangi á Litla-Hrauni í líflegum um- ræðum sem spunnust milli fanga á Litla-Hrauni og lista- manna Þjóðleikhússins á mið- vikudagskvöld, eftir sýningu Þjóðleikhússins á leikritinu Grjóthörðum, eftir Hávar Sig- urjónsson, innan veggja fang- elsisins. Þetta var óvenjuleg uppákoma, en leikritið segir frá fimm mönnum sem allir sitja í fangelsi fyrir afbrot sín. Verkið var sýnt á Smíðaverk- stæði Þjóðleikhússins í vetur í leikstjórn Hávars, en hug- myndina að sýningunni á Litla-Hrauni átti Jón Sigurðs- son, deildarstjóri þar, sem sá sýningu á verkinu í leikhúsinu ásamt fleiri fangavörðum. Það var almenn skoðun fanganna að leikritið lýsti vel raunveruleikanum innan fang- elsisveggja. „Maður þekkir vel þessa karaktera, og sam- skiptin á milli þeirra,“ sagði einn úr hópnum. Aðbúnaður og líf fanga voru þau mál sem föngunum á Hrauninu voru hugleiknust, en þrátt fyrir allt getur kvíðinn fyrir því að koma út aftur verið mikill, eins og fanginn sem vitnað er í hér fremst sagði þegar Jóhann Sigurðarson leikari spurði hvort menn stefndu ekki almennt að því að koma ekki aftur. „Það gengur misvel. Langtímafangarnir eru þó ekki svo mikið að hugsa um það sem gerist fyrir utan. Þeir eru bara að taka út dóm- inn. En það er rétt, að vegg- irnir fyrir utan eru oft miklu þykkari, og það skynja menn þegar fer að líða að því að þeir sleppi. Þá fara þeir að hugsa eins og stubbakallarnir.“ Stubbakarlarnir eru þeir fangar sem koma inn með stutta dóma. Langtímaföng- unum finnst erfitt að fá slíka menn inn á sínar deildir, þar sem lífið er komið í ákveðna rútínu, en þeim finnst ekki allt- af nógu vel raðað niður á deild- irnar. Í framhaldinu spyr Pálmi Gestsson að því hvort það sé ekki erfitt fyrir lang- tímafangana að horfa upp á stubbakarlana koma og fara. „… og koma aftur!“ bætir einn fanganna við. „Maður er búinn að sjá sömu mennina koma jafnvel fimm sinnum inn.“ Fé- lagi hans segir að best sé að setja sig strax inn í rútínuna. „Gæinn í leikritinu [persóna Jóhanns, lögfræðingurinn Jónas] er alltaf að hringja eitt- hvað – í ráðuneytið eða eitt- hvað til að reyna að redda sér út. Það er bara della. Því fyrr sem menn byrja að afplána í hausnum líka, því betur geng- ur að láta þetta líða.“ „Veggirnir úti eru miklu þykkari“ Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is Morgunblaðið/ÞÖK Atli Rafn Sigurðarson og Pálmi Gestsson í hlutverkum sín- um í Grjótharðir, sem sýnt var fyrir fanga á Litla-Hrauni.  Allt öðruvísi | 30 Haag, París. AFP, AP. | Andstaða Hollendinga við stjórnarskrá Evrópusambandsins (ESB) vex stöðugt og samkvæmt nýrri skoðanakönnun munu 54% landsmanna hafna henni í þjóðaratkvæðagreiðslu, sem haldin verður um hana þar í landi 1. júní, en aðeins 27% samþykkja hana. Meira en helmingur þeirra sem segjast ætla að hafna stjórnarskránni vill meðal annars koma í veg fyrir hugsanlega aðild Tyrkja að ESB. Þjóðaratkvæðagreiðslan í Hollandi er ekki bindandi. Stærstu stjórnmálaflokkar landsins ætla þó að taka niðurstöður hennar til greina við meðferð málsins í þinginu verði þátttakan yfir 30%. Þá fer andstaða Frakka við stjórnar- skrána einnig vaxandi, en þjóðaratkvæða- greiðslan þar í landi fer fram næsta laug- ardag. Samkvæmt nýrri skoðanakönnun ætla 53% þeirra sem afstöðu tóku að hafna henni og 47% samþykkja hana, en 19% að- spurðra voru óákveðin. Fyrr í mánuðinum voru þeir sem eru samþykkir í meirihluta. Staðan er því tvísýn nú þegar aðeins vika er í kosningarnar. Stjórnar- skrá ESB missir fylgi VEGNA blóðugra átaka í Úsbekistan hafa hundruð manna flúið til ná- grannaríkisins Kirgistan, þeirra á meðal þessir menn sem hvíla sig í flóttamannabúðum. Yfirvöld í Úsbekistan hafa vísað á bug kröfu Kofi Annan, fram- kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, þess efnis að fram fari alþjóðleg rannsókn á rás atburða í borginni Andijan þar sem fullyrt er að her- menn hafi drepið hundruð óbreyttra borgara í liðinni viku. Íslam Kar- ímov, forseti Úsbekistan, hefur kennt íslömskum uppreisnarmönnum um ólguna í landinu og borið til baka fréttir þess efnis að stjórnarher- inn hafi skotið á óbreytta borgara. Talsmenn stjórnarandstöðunnar og mannréttindasamtaka fullyrða að stjórnarherinn hafi myrt 700 manns hið minnsta. Ólguna megi rekja til stjórnarhátta Karímovs og örvænt- ingar stórs hluta þjóðarinnar sökum fátæktar. Reuters Hvergi höfði að að halla að enn komi upp ný tilfelli. „Tím- inn vinnur ekki með okkur, hann vinnur með veirunni sem getur þá frekar aðlagast okkur og orðið vandamál fyrir menn. Við eigum að vera mjög á varðbergi,“ segir Haraldur. Hætta á stökkbreytingu Fyrir nokkrum mánuðum kom fuglaflensan upp í köttum og tígr- isdýrum en ekki hafði verið talið að hún gæti breiðst út meðal þess- ara dýra. Sérfræðingar hafa því áhyggjur af að veiran, sem veldur flensunni, stökkbreytist og geti þá auðveldlega smitast milli manna. Ríki Evrópusambandsins hófu í gær sólarhringsvöktun vegna far- sótta sem kynnu að berast til Evr- ópu. Vöktunin fer fram í Evrópsku sóttvarnastöðinni (ECDC) sem ný- lega var sett á laggirnar í Solna í Svíþjóð. Ísland á fulltrúa í stjórn og starfshópi stöðvarinnar. FULLTRÚAR á þingi Alþjóða- heilbrigðis- málastofnunar- innar (WHO) samþykktu í gær að innleiða hertar öryggis- reglur á heims- vísu vegna bráðdrepandi farsótta. Vöktunar- og viðbragðs- kerfi vegna farsótta á borð við fuglaflensu verður nú eflt til muna. Haraldur Briem sóttvarnalækn- ir átti sæti í starfshópi sem samdi umrædda reglugerð ásamt öðrum Íslendingi, Sólveigu Guðmunds- dóttur, yfirlögfræðingi hjá heil- brigðisráðuneytinu. Haraldur seg- ir mest um vert að tekist hafi að fá allar þjóðir heims til að taka hönd- um saman gegn vandanum. WHO varaði fyrr á þessu ári við hættunni á að skæð fuglaflensa yrði að heimsfaraldri. Alls hafa 97 tilvik fuglaflensu komið upp í mönnum í S-Asíu frá árslokum 2003. Þar af hafa 53 látist. Reglugerðin gerir ráð fyrir vöktun og ákveðnu skipulagi í flug- höfnum og höfnum, hvernig skuli bera sig að við rannsóknir á fólki o.þ.h., auk þess sem ríkjum ber að tilkynna um öll tilvik sem þau telja að hafi alþjóðlega skírskotun. Haraldur segir að þótt engin eðlisbreyting hafi orðið á fugla- flensu eða umfangi hennar á allra síðustu mánuðum sé mjög slæmt Hertar örygg- isreglur gegn farsóttum Aðildarríki WHO sameinast gegn hættu á heimsfaraldri fuglaflensu Eftir Kristján Geir Pétursson kristjan@mbl.is Sofiu. AFP. | Búlgörsk stjórnvöld íhuga að hafa happdrætti samhliða almennum kosningum sem verða haldnar þar í landi í næsta mánuði. Hugmyndin er sú að hvetja fólk til að mæta á kjörstað með því að draga þar út vinninga svo sem farsíma og úr. Fjölmiðlar í landinu hafa gagnrýnt rík- isstjórnina fyrir uppátækið og segja að hún sé að reyna að kaupa atkvæði fólks. Dimitar Kalchev, ráðherra í ríkisstjórn- inni, hafnar slíkum ásökunum og segir að markmiðið með happdrættinu sé að auka kjörsókn sem komi öllum flokkum til góða, ekki bara stjórnarflokkum. Skoðanakannanir í landinu sýna að 30– 40% Búlgara hafi ákveðið að taka ekki þátt í kosningunum og að stærsti stjórn- arandstöðuflokkurinn sé líklegastur til að sigra í þeim. Kjósendur keyptir? ♦♦♦ EITT af því sem felst í hertum ör- yggisreglum WHO er, að rætt er um að aðstaða verði til staðar í til- teknum flughöfnum til að bregð- ast við ef veikindi koma upp um borð í flugvélum. Flugstöðin í Keflavík er ein þeirra flughafna sem kæmi til greina að hefðu slíka aðstöðu. Haraldur Briem áréttar þó að framundan sé frekari vinna við að ákveða hvernig hertar reglur verði innleiddar. Aðstaða í Keflavík? Haraldur Briem Lesbók, Börn og Íþróttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.