Morgunblaðið - 21.05.2005, Qupperneq 4
4 LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BROTTFALL Íslendinga úr Evróvisjón í fyrra-
kvöld kom flestum landsmönnum í opna skjöldu.
Óhætt er að segja að flestir töldu algjörlega öruggt
að Selma Björnsdóttir kæmist áfram og fáir leiddu
hugann að þeim möguleika að hún kæmist ekki upp
úr forkeppninni.
Næsta víst er að stemningin í Evróvisjón-
partíum í kvöld verður dapurlegri en við „eðlilegar“
aðstæður og heyrst hefur að sumir íhugi að spila
upptöku af keppninni 1999 frekar en að horfa á
beina útsendingu frá Kænugarði en eins og flestir
vita gekk Selmu mun betur í það skiptið. En sem
betur fer eru Íslendingar ekki einir um að vera
furðu lostnir á afdrifum á íslenska framlagsins.
Blaðamaður Aftonbladet í Svíþjóð var ómyrkur í
máli og sagði að í Evrópu hefðu menn lélegan
smekk og það hefði verið betur við hæfi að nota
óeirðalögreglumennina sem stóðu vörð fyrir utan
keppnishöllina í Kænugarði til að hafa hemil á þeim
„fáfróða evrópska sveitalýð“ sem sparkaði Hvít-
Rússlandi og Íslandi úr keppninni. Hann sá greini-
lega mikið eftir Angelicu Agurbash, hvít-rússneska
keppandanum, og sagði að sú staðreynd að hún féll
úr keppni væri líkt og Astrid Lindgren hefði tapað í
barnabókasamkeppni. Örlög Íslands í keppninni
væru sömuleiðis sorgleg niðurstaða fyrir „málstað
nútímans“ í keppninni.
Norska ríkisútvarpið sagði frá því að fátt hefði
komið á óvart, fyrir utan brottfall Selmu, þrátt fyrir
góðar spár veðbanka, og að Makedónía komst
áfram. Í salnum í Kænugarði hefði verið rætt um
bræðralag Balkanþjóða við atkvæðagreiðsluna og
menn hefðu ekki skilið hvers vegna fagmannleg
framkoma Selmu hefði ekki fleytt henni í úrslitin.
Á vef BBC er tekið í sama streng og er brottfall
Selmu sagt hafa komið gríðarlega á óvart. BBC
bendir á að söngdrottningar hafi ráðið lögum og
lofum í forkeppninni og það hefði hitnað í kolunum
þegar Selma kom á sviðið með hressilegt dans-
atriði. Telur BBC að það hafi helst verið Norð-
mennirnir í sveitinni Wig Wam, í glæsilegum glam-
úrgöllum, sem hefðu bjargað heiðri karlmanna.
Kosningaklíkur
Margir hafa rætt um að framlag Íslands hafi átt
erfitt uppdráttar vegna nýju þátttakendanna frá
löndum Mið- og Austur-Evrópu. Bent hefur verið á
að þessar þjóðir hafi einfaldlega annan smekk, aðr-
ir tala um kosningabandalög og þeir allra hörðustu
um allsherjarsamsæri. Í þessu samhengi er fróð-
legt að íhuga niðurstöður rannsóknar sem gerð var
á kosningum í Evróvisjón á árunum 1991–1996,
áður en símakosning var leyfð. Á fréttavefnum
icealing.co.uk segir frá rannsókn tveggja fræði-
manna í sálfræði sem hafi leitt í ljós að dómnefndir
einstakra þjóða tilheyrðu „kosningaklíkum“ sem
gáfu yfirleitt hver annarri stig, og fengu í staðinn
frekar stig frá þjóðum í sömu klíkunni.
Klíkurnar voru sem hér segir:
Bretland, Svíþjóð, Ísland, Austurríki og Írland.
Finnland, Frakkland, Holland, Portúgal og
Sviss.
Tyrkland, Bosnía-Hersegóvína, Spánn og Kró-
atía, ásamt Írlandi sem virtist klofið í tvær klíkur.
Rannsóknin byggðist á tölfræðigreiningu og
sagði annar vísindamannanna, Alex Haslam pró-
fessor, að þó að tölfræðin leiddi þessa klíkumyndun
í ljós, hefði tilvist klíknanna verið neitað af keppn-
ishöldurum og raunar væri óvíst að dómnefndirnar
sjálfar gerðu sér einu sinni grein fyrir því að þær
væru í einhverri klíku. Af þessu má álykt að kosn-
ingaklíkurnar hafi myndast vegna þess að smekkur
þessara tilteknu dómnefnda var svipaður, frekar en
að um samsæri hafi verið að ræða.
Í nýjasta tímariti Economist er vitnað í splunku-
nýja rannsókn vísindamanna við Oxford-háskóla
sem staðfestir tilurð þessara óopinberu klíka en sú
rannsókn nær yfir tímabilið frá 1992-2003. Sumar
niðurstöður voru fyrirsjáanlegar s.s. sú að Norð-
urlöndin styðja gjarnan hvort annað og að Kýpur
og Grikkland tilheyra sömu klíkunni. Á hinn bóginn
kom á óvart að Bretar voru líklegri til að fylgja öðr-
um Evrópubúum að málum en Frakkar voru yfir-
leitt ekki í takt við meirihlutaálitið í álfunni.
Þó að illa hafi farið fyrir íslenska laginu að þessu
sinni geta Íslendingar enn haft áhrif á úrslit keppn-
innar með því að taka þátt í símakosningunni í
kvöld. Þeir eru hvattir til að láta klíkuskap lönd og
leið en kjósa þess í stað besta lagið. | 68
Brottfall Selmu Björnsdóttur úr Evróvisjón kom flestum í opna skjöldu
Morgunblaðið/Sverrir
Selma Björnsdóttir með sveit sinni á sviðinu í Kænugarði.
Ekki bara Ís-
lendingar sem
eru undrandi
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
PÁLL Óskar Hjálmtýsson, söngvari
og keppandi fyrir Íslands hönd í
Evróvison árið 1997, fór ekki í fýlu
þó að Ísland kæmist ekki upp úr
forkeppni Evróvision. Að hans mati
klikkaði eitthvað hjá Selmu en
hann bætti við að auðvitað væri
auðvelt að vera vitur eftir á.
„Það er bara mjög flókið mál að
taka þátt í svona keppni, það þarf
allt að ganga upp og það þarf allt
að ná í gegn. Þetta er mjög flókið
samspil lags, texta, söngs, bún-
ingahönnunar, danshönnunar, ef
einhver er, og svo framvegis. Svo
skiptir líka máli hvernig þetta er
útfært fyrir sjón-
varp og þar
fannst mér
kannski úkr-
aínska sjón-
varpið ekki gera
laginu hennar
Selmu nógu góð
skil,“ sagði hann.
Stundum hefði
andlitið á Selmu
verið í mynd en
svo kannski sést í puttana á einum
dansara og hökuna á öðrum.
Páll Óskar sagði þó að hann og
aðrir Evróvisjón-aðdáendur væru á
einu máli um að Selma hefði sungið
lagið betur en hún söng „All out of
luck“ í Jerúsalem. Eitthvað hefði á
hinn bóginn vantaði upp á til að lag-
ið og flutningurinn næðu til áhorf-
enda. „Að minnsta kosti er stað-
reyndin sú að eftir að lagið var búið
gat ég ekki risið úr sæti og klappað.
Ég klappaði hins vegar sjálfkrafa
fyrir Noregi og ömmunni með
trumburnar, var hún ekki frá
Moldavíu?“ sagði hann.
Páll Óskar blæs á bollaleggingar
um að Ísland eigi litla möguleika í
keppninni eins og hún er í núver-
andi mynd.
„Það vantaði ekki hrokann í okk-
ur fyrir keppni. Við vorum búin að
taka því sem sjálfsögðum hlut að
Selma kæmist áfram. Sú eina sem
var með lappirnar niðri á jörðinni,
það var Selma sjálf. Síðan, þegar
ekki gengur nógu vel, byrjar sama
tautið í okkur um að enginn gefi
okkur stig af því að við erum svo fá,
við eigum enga nágranna og eng-
inn „fíli“ okkur, við getum gleymt
þessu og við eigum aldrei að taka
þátt aftur. En ef við tölum svona þá
erum við að næra minnimáttar-
kenndina. Hættum þessu tuði og
verum í stuði,“ segir Páll Óskar.
„Hættum þessu tuði og verum í stuði“
Páll Óskar
Hjálmtýsson
„ÉG varð eins og
aðrir hér undrandi
á þessari niður-
stöðu, ég horfði á
þetta og þótti atriði
okkar takast af-
bragðs vel. Miðað
við spár um gott
gengi kom þetta
verulega á óvart og
olli miklum von-
brigðum á mínu
heimili, eins og annars staðar,“ sagði
Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri.
Markús sagði að ræða mætti
hvernig lag og flytjandi er valinn til
þátttöku í keppninni en að þessu sinni
var það hópur fagmanna, skipaður af
RÚV sem sá um valið. Nú væri stefnt
að því að halda undankeppni á næsta
ári í tengslum við 40 ára afmæli Sjón-
varpsins þó ekki væri búið að taka
ákvörðun um það.
Að mati Markúsar stóðu Selma og
aðrir þátttakendur sig með miklum
sóma. Hann var spurður að því hvað
hefði orðið Íslendingum að falli. „Ég
skal ekki um það segja. Það var nú
velt vöngum yfir því hvort vægi þess-
ara nýju þátttökuþjóða væri orðið svo
mikið á niðurstöðurnar en smekkur
manna þar væri öðruvísi en vestar í
álfunni. Það má vel vera að það sé, að
það sé einhver annar tónn, eða annar
hljómur sem fólk leggur meira upp úr
en við gerum,“ sagði hann. Um væri
að ræða ólík menningarsvæði, í Vest-
ur-Evrópu drægju menn gjarnan skil
milli Suður- og Norður-Evrópu. Nú
lægju hugsanlega skýrari mörk milli
austurs og vesturs.
Á ekki að leggja árar í bát
Markús sagði að engum hefði dott-
ið í hug að Ísland myndi hætta þátt-
töku í keppninni. Engin ástæða væri
til að bregðast þannig við. „Þetta eru
vonbrigði en menn verða að komast
yfir það. Það á ekki að leggja árar í
bát þó þetta hafi farið svona í þetta
skipti,“ sagði hann. Þó stöku sinnum
hefði gengið illa hefðu Íslendingar
komið aftur bjartsýnir að ári enda
ættu þeir fullt erindi í keppnina.
Og Markús er sannarlega ekki bú-
inn að leggja ára í bát. „Við höfum
alltaf verið að ræða þann möguleika
að við færum með sigur af hólmi í
þessari keppni. Við höfum nú ekki
gert það ennþá en það hlýtur sann-
arlega að koma að því. Og þá hafa
menn spurt hvernig við ætlum að
standa að keppninni. Ég óttast það
ekkert að við gætum ekki tekið mynd-
arlega á því verkefni,“ sagði hann.
Stefnt að for-
keppni fyrir
Evróvisjón á
næsta ári
Markús Örn
Antonsson
MAÐUR finnur fyrir algeru magn-
leysi enda eru þetta aðstæður sem
maður hefur aldrei upplifað,“ segir
Elsa Waage, söngkona á Ítalíu, um
mannránið á Clementinu Cantoni í
Kabúl sl. mánudag. Cantoni er
mjög nákomin Elsu og fjölskyldu
hennar því eiginmaður Elsu, Emil-
io De Rossi, er móðurbróðir Cant-
oni.
„Hún er alveg yndisleg stúlka
og hafði alla möguleika á að lifa
þægilegu lífi en tók þá stefnu að
sinna hjálparstarfi,“ segir Elsa.
Cantoni hefur undanfarin þrjú
ár starfað á vegum hjálparsamtak-
anna CARE og hjálpað afgönskum
ekkjum og einstæðum mæðrum.
Er hún mjög virt og elskuð meðal
skjólstæðinga sinna. Hún er 32 ára
að aldri og nam alþjóðastjórnmál
og sálfræði í Lundúnum. Aðeins
vika var eftir af starfstíma hennar
í Afganistan þegar henni var rænt
á mánudagskvöld.
„Það er engin lausn í málinu
eins og er. Það hafa heyrst alls
kyns raddir en það sem við hræð-
umst mest er að hún verði seld.
Málið er ekki pólitískt eins og er
en sagt er að mannræningjarnir
séu á eigin vegum – þeir vilji fá
fanga leysta úr haldi og að áfengi
verði bannað og að einhverjum
sjónvarpsútsendingum verði hætt.
Við trúum að hún sé á lífi og verð-
um að trúa því að málið leysist.“
Gríðarmikið hefur verið fjallað
um málið í ítölskum fjölmiðlum og
sitja fjölmiðlamenn um heimili for-
eldra Cantoni.
Elsa segir að Cantoni hafi ávallt
verið mjög passasöm á ferðum sín-
um í Kabúl og klætt sig í samræmi
við reglur þar að lútandi. „Hún
hefur alltaf fylgt mjög þeim
reglum sem fylgja sjálfboðaliða-
starfi sem þessu.“
Fjölskyldu Cantoni hefur borist
upptaka af rödd hennar þar sem
hún segist vera við góða líðan.
Ekkjur sem notið hafa aðstoðar
CARE hafa síðustu daga mótmælt
ráninu á Cantoni.
Ítalski hjálparstarfsmaðurinn Clementina Cantoni í haldi
mannræningja er nákomin Elsu Waage söngkonu á Ítalíu
Finn fyrir algeru magn-
leysi í svona aðstæðum
Elsa
Waage
Clementina
Cantoni