Morgunblaðið - 21.05.2005, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2005 11
FRÉTTIR
ÓLAFUR Ragnar Grímsson forseti
og Dorrit Moussaieff forsetafrú
skoðuð Shanghai-safnið í gær sem
hefur aðgeyma allt að fjögur þús-
und ára gamla fornmuni, í opin-
berri heimsókn forsetans til Kína.
Þá héldu forsetahjónin til borg-
arinnar Qingdao þar sem þau skoð-
uðu m.a. frystihús en þau eru vænt-
anleg aftur til Peking í dag. Á
morgun heldur forsetinn heim
ásamt föruneyti
Þessi mynd var tekin í fyrrakvöld
þar sem forsetinn og forsetafrú
nutu útsýnisins á Bund, vestur-
bakka Huangpu, sem liggur í gegn-
um Shanghai. Sagt hefur verið að
vestrið hafi nánast stofnað eigið
borgríki á Bund á fyrri hluta tutt-
ugustu aldar. Nú er staðurinn
órækasta vitnið um uppgang Kína á
21. öldinni. Á hinum bakkanum
stendur hverfið Pu Dong þar sem
hvert glæsta háhýsið tekur við af
öðru. Morgunblaðið/Karl Blöndal
Halda heim
á morgun
Að sögn Ellerts B. Schram, for-
manns Samtakanna 60+, var einkum
fjallað um kjör og hag eldri borgara á
fundinum í gærmorgun auk þess sem
greint var frá helstu viðburðum í fé-
lagsstarfinu. Samtökin voru stofnuð
fyrir tveimur árum og segir Ellert
þau enn vera á mótunarstigi en innan
þeirra eru nú um 800 félagar. Á fund-
inum var samþykkt ályktun þar sem
skorað var á þingmenn Samfylking-
arinnar að beita sér fyrir hækkun
bóta til aldraðra þannig að þær fari
ekki undir 140 þúsund krónum á mán-
uði, en samtökin telja upphæð bót-
anna í dag vera undir fátæktarmörk-
um og ekki mannsæmandi.
Sigrún Grendal, formaður lands-
fundarnefndar, segir að um 1.000
manns eigi seturétt á landsfundinum
og að búist sé við því að fjöldi gesta
fari yfir þá tölu í hádeginu í dag, þeg-
ar úrslit í formannskjöri verði til-
kynnt og kosning í önnur embætti
flokksins hefjist.
Gagnrýndi smöl-
un á kjörskrár
STEFÁN Jón Hafstein, formaður
framkvæmdastjórnar Samfylking-
arinnar, sagði á landsfundi flokks-
ins í gær að hann væri ósáttur við
að formannskosningar eða prófkjör
væru notuð til að smala fólki á kjör-
skrár, sem ekki hefði áhuga á
flokknum og ekki ætlaði að starfa
innan hans.
Stefán tók fram í upphafi að póst-
kosningin í formannskjöri flokksins
hefði að mörgu leyti tekist vel.
Margir hefðu gengið í Samfylk-
inguna af eigin áhuga til að taka
þátt í kjörinu. Það væri bjarta hlið
málsins, sagði hann og bætti við:
„Ég er ósáttur við það þegar kosn-
ingar eins og þessar eða prófkjör
eru notuð til að smala fólki á skrár,
fólki sem vitað er og opinberlega
viðurkennt að hafi ekki áhuga á
flokknum, muni ekki starfa innan
hans og hafi jafnvel gengið frá því
áður en það skráði sig í flokkinn að
það verði afmáð af skrám um leið
og það hefur gegnt svokallaðri
skyldu sinni eða greiðasemi við við-
komandi frambjóðanda.“
Hann sagði að menn gerðu sér
upp heimsku og spyrðu og hvort
það væri ekki gott að flokkurinn
skyldi stækka. Svarið við spurning-
unni væri já, ef innganga í flokkinn
væri á forsendum heiðarlegs starfs
og einlægs áhuga. „En við vitum að
oft er um brögð að ræða. Og gegn
hverjum beinast þau? Þau beinast
gegn þeim sem eru fyrir í flokkn-
um. Vegna þess að fjöldi sem kem-
ur á skrár flokksins undir fölskum
forsendum rýrir í raun áhrifavald
þeirra sem fyrir eru og starfa af
heiðarleika. Áhrifavald einlægra
flokksmanna er gengisfellt.“ Hvatti
hann til þess að fegurri stjórnmál
yrðu ástunduð í kosningum í fram-
tíðinni.
FJÖLMARGAR ályktunartillögur
hafa verið lagðar fram á lands-
fundi Samfylkingarinnar. Meðal
annars er lagt til að fundurinn
álykti að setja þurfi stærstu fyr-
irtækjum landsins lög um hlutfall
kynjanna í stjórnum sínum, þ.e. ef
hlutur kvenna eykst ekki til muna
innan fimm ára. „Breytist ekki
hlutfall kvenna þarf tímabundna
löggjöf sem tryggir 40% hlut
beggja kynjanna í stjórnum
stærstu fyrirtækjanna,“ segir m.a.
í drögum að stjórnmálaályktun
fundarins.
Í ályktun um heilbrigðismál er
m.a. lagt til að nýr Landspítali
verði byggður fyrir söluandvirði
Símans. Þar er einnig lagt til að
heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytinu verði skipt í tvö ráðuneyti;
heilbrigðisráðuneytið sæi um veit-
ingu heilbrigðisþjónustu en trygg-
ingamálaráðuneytið sæi m.a. um
að kaupa heilbrigðisþjónustu af
opinberum eða einkareknum heil-
brigðisstofnunum.
Lög tryggi hlut
kvenna í stjórn-
um fyrirtækja
HÉRAÐSDÓMUR Austurlands sýknaði í gær
GT-verktaka ehf. og annan eiganda fyrirtækisins
af ákæru fyrir brot gegn lögum um atvinnurétt-
indi útlendinga og lögum um útlendinga með því
að hafa nýtt starfskrafta tveggja lettneskra rík-
isborgara til aksturs hópbíla á Kárahnjúkasvæð-
inu.
Áður hafði dómurinn sýknað Lettana tvo af
ákæru fyrir að hafa starfað hér á landi án atvinnu-
leyfis. Í báðum dómunum eru rök dómsins þau, að
Lettarnir, líkt og aðrir ríkisborgarar frá hinum
nýju aðildarríkjum Evrópusambandsins, hefðu
heimild til að koma til landsins og starfa hér í allt
að þrjá mánuði frá komudegi, án sérstaks leyfis.
Þá hefðu mennirnir verið launþegar hjá lettneskri
starfsmannaleigu og því ekki þurft atvinnuleyfi.
Annar eigandi GT-verktaka hélt því fram að
Lettarnir hefðu ekki verið ráðnir til starfa hjá GT-
verktökum heldur komið til landsins á grundvelli
þjónustusamnings sem dregist hefði að undirrita
þar til 29. mars sl. Hinn eigandinn staðfesti að
verktakasamningur hefði verið á milli GT-verk-
taka og Vislande, sem er lettnesk starfsmanna-
leiga, en sagðist ekkert hafa komið nálægt samn-
ingsgerð. Framburður hans fékk stoð í framburði
framkvæmdastjóra Vislande sem bar að Lettarnir
hefðu verið starfsmenn fyrirtækisins við að veita
þá þjónustu sem þjónustusamningur þess og GT-
verktaka kvæði á um. Þeir hefðu ekki verið verk-
takar og hinir óundirrituðu samningar hefðu ein-
ungis verið tillögur sem aldrei komu til fram-
kvæmda. Lettarnir báru að þeir hefðu eftir að
lögregluskýrslur voru teknar af þeim verið
launþegar hjá Vislande en fram að því hefðu þeir
verið einhvers konar verktakar hjá fyrirtækinu.
Héraðsdómur taldi að þótt framburður Lett-
anna þætti renna stoðum undir að ráðningarsam-
band hefði ekki verið frá upphafi milli þeirra og
Vislande, þætti ákæruvaldinu ekki með hliðsjón af
framburði framkvæmdastjóra Vislande, hinum
undirritaða þjónustusamningi og framburði
ákærða hafa tekist að sanna það sbr. lög um með-
ferð opinberra mála. Varð því að miða við að ráðn-
ingarsamband hefði frá upphafi verið til staðar, en
það væri eitt af skilyrðum laga um réttarstöðu
starfsmanna sem starfa tímabundið á Íslandi á
vegum erlendra fyrirtækja fyrir því að lögin gætu
átt við.
Málið dæmdi Þorgerður Erlendsdóttir héraðs-
dómari. Verjandi var Marteinn Másson hdl. og
sækjandi Helgi Jensson sýslufulltrúi.
GT-verktakar og annar eigandinn sýknaðir í Héraðsdómi Austurlands
Brutu ekki lög með því að
nýta starfskrafta Lettanna
RÓTARÝKLÚBBURINN Reykja-
vík-Austurbær hefur gefið fjóra
fiskibáta ásamt veiðarfærum til
fiskimannafjölskyldna í Andra
Pradesh-fylki á Indlandi sem
misstu aleigu sína í flóðbylgjunni
í desember.
Gjöfin er hluti af samstarfs-
verkefni rótarýhreyfingarinnar í
Andra Pradesh og 65 rótarý-
kklúbba í 10 löndum. Alls voru
gefnir 180 bátar og veiðarfæri og
er verkefnið liður í uppbyggingu
á svæðinu. Á þessum slóðum eru
fiskveiðar aðalatvinnugrein íbúa
og með hverjum báti geta tvær
fjölskyldur séð sér farborða. Rót-
arýgjöfin kemur því 360 fjöl-
skyldum á þessum slóðum til
góða.
Myndin er af einum bátanna
sem klúbburinn gaf ásamt eig-
endum og félögum úr alþjóða
Rótarýhreyfingunni.
Rótarý gefur báta til fjölskyldna í Andra Pradesh-héraði.
Gáfu fjóra báta til
hamfarasvæðanna
ÞORMÓÐUR Þormóðsson, rann-
sóknarstjóri Rannsóknarnefndar
flugslysa, hefur verið ráðinn til
Alþjóða flugmálastofnunarinnar,
ICAO, í Kanada. Mun hann gegna
starfi ráðgjafa í flugslysarann-
sóknum og hefur fengið leyfi frá
störfum hjá RNF í þrjú ár frá 1.
ágúst næstkomandi. Auglýst
verður eftir staðgengli Þormóðs
hjá RNF á allra næstu dögum.
Þormóður segir að þetta sé
spennandi starf hjá áhugaverðri
stofnun. Starfssvið hans verður
annars vegar að veita ráðgjöf
innan stofnunarinnar varðandi
flugslysarannsóknir og hins veg-
ar að veita rannsóknarnefndum
aðildarlandanna ráðgjöf. Felst
starfið m.a. í því að fylgjast með
nýjungum og þróun í flug-
slysarannsóknum, leggja til
hvernig þeim er hrundið í fram-
kvæmd af hálfu ICAO og fylgja
því eftir hjá rannsóknarnefnd-
unum. Einnig verður Þormóður
fulltrúi ICAO á ýmsum vettvangi
varðandi flugöryggismál og flug-
slysarannsóknir.
Ánægjuefni að sóst
er eftir Íslendingum
Íslendingar hafa löngum átt
fulltrúa hjá ICAO og segir Þor-
móður að Gunnar Finnsson, sem
starfaði þar í áratugi og stjórnaði
m.a. fjármálum,
hafi hvatt sig til
að þiggja starf-
ið. Ragnhildur
Hjaltadóttir,
ráðuneytisstjóri
í samgöngu-
ráðuneytinu,
segir það
ánægjuefni og
heiður að sóst
sé eftir starfs-
kröftum Íslendinga á alþjóðavísu
og því hafi Þormóði verið veitt
leyfi frá starfinu hjá RNF í þrjú
ár.
Þormóður Þormóðsson lauk
prófi í flugrekstrar- og tækni-
stjórnun frá Embry-Riddle há-
skólanum í Bandaríkjunum og
tók jafnframt atvinnuflugmanns-
próf og lauk námi í flugvirkjun.
Þá hefur Þormóður sótt sérhæfð
námskeið í Bretlandi og Banda-
ríkjunum á sviði flugslysarann-
sókna, m.a. um þyrluslys, þotu-
hreyfla og mannlega þáttinn í
flugi. Starfaði hann að gæða-
málum hjá Flugleiðum, Atlanta
og Íslandsflugi áður en hann
réðst til Flugmálastjórnar og síð-
ar Rannsóknarnefndar flugslysa.
Þormóður og fjölskylda hans,
kona og tveir drengir, flytja í
sumar til Montreal í Kanada og
tekur hann við starfinu 1. ágúst.
Þormóður Þormóðsson í þriggja ára
leyfi frá Rannsóknarnefnd flugslysa
Ráðinn í ráðgjafar-
störf til ICAO
Þormóður
Þormóðsson