Morgunblaðið - 21.05.2005, Page 14
14 LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BÁTASMIÐJA Guðmundar
í Hafnarfirði sjósetti í byrj-
un maí fyrsta bátinn af
gerðinni Sómi 1200. Bát-
urinn heitir Anna GK 540
og er í eigu Festar í Grinda-
vík. Báturinn er nú á sýn-
ingarferð um landið
Báturinn mælist 15 tonn,
er 11,8 metra langur og
mesta breidd er 3,7 metrar.
Í honum er 650 hestafla Volvo
Penta-aðalvél og siglingatæki eru
öll frá R Sigmunds af Raymarine
gerð. Línuspil og renna eru frá Sjó-
vélum. Bógskrúfan er 25 hestöfl og
sjálf aðalskrúfan er óvenju stór, 36
tommur í þvermál og er frá Clem-
ents á Englandi. Í lest er rými fyrir
tólf 660 lítra fiskikör. Í lúkar er
svefnpláss fyrir fjóra. Anna GK
verður gerð út á línuveiðar.
Að sögn Óskars Guðmundssonar
hjá Bátasmiðju Guðmundar stóðst
báturinn allar væntingar um stöð-
ugleika og sjóhæfni, enda sé orðin
mikil reynsla í smíði hraðfiskibáta
hjá fyrirtækinu. „Þessi bátur er
númer 401 í röð Sómabátanna og er
með sama sniði og fyrri bátar. Nú
orðið sækjast menn eftir stærri bát-
um og við höfum útbúið mótið þann-
ig að við getum smíðað í því enn
stærri bát, 14 metra langan sem
mælist 24 tonn og með yfirbyggingu
ef menn óska þess,“ segir Óskar.
Óskar og félagar eru þessa dag-
ana með Önnu GK á hringferð um
landið, voru í gær á Snæfellsnesi en
verða í dag á Patreksfirði, Tálkna-
firði, Bolungarvík og Ísafirði. Þeir
fara síðan fyrr Horn á Skagaströnd
og verða í Grímsey á mánudag. „Við
höfum haft það fyrir venju að fara
með nýja báta til væntanlegra við-
skiptavina til að sýna þá og kynna.
Eins þykir okkur nauðsynlegt að
prófa bátana sjálfir við ólíkar að-
stæður,“ segir Óskar.
Nýr og stærri Sómi
„HEIMAMENN hafa verið að veiða
í kuldanum síðustu daga og þeir hafa
verið að ná bleikjunni með beitu,
maðk og makríl, og á spún, en minna
á fluguna,“ sagði Þröstur Elliðason,
leigutaki Breiðdalsár, en í fyrradag
náðu veiðimenn 70 sjóbleikjum í
ánni og daginn þar á undan 90, þrátt
fyrir að menn hafi staðið við í norðan
blæstri og jafnvel éljum. „Þar af
voru sjö sjóbirtingar, sem er mjög
óvenjulegt. Talan í Breiðdalnum er
eitthvað á fjórða hundrað silungar í
maí, sem er mjög ánægjulegt.“ Sil-
ungurinn er allt að fimm pundum, en
af öllum stærðum.
Þröstur sagði einnig frá bleikju-
skotum í Hvolsá og Staðarhólsá í
Dölum, en menn sem veiddu þar í
byrjun vikunnar náðu 27 bleikjum á
tveimur dögum og sögðu þær hafa
verið vel haldnar. Menn hafa annars
einkum verið að skjótast vestur um
helgar og hefur veiðin verið upp og
ofan til þessa.
Þegar Þröstur var spurður um
Minnivallalækinn, sagði hann að
ekki væri gaman að veiða urriða á
flugu í kulda. „Þá tekur hann ekki
vel. Menn hafa verið að fá einhverja
fiska en það fer ekkert í gang fyrr en
það fer að hlýna.“
Birtingur tekur enn
Hægt hefur yfir sjóbirtings-
veiðum, enda telja kunnugir að birt-
ingurinn sé víða genginn til sjávar. Í
Vatnsmótunum hafa veiðimenn samt
verið að taka einn og einn fisk, einn
náði þannig horaðri á að giska sex
punda hrygnu af Bökkunum á mið-
vikudag og synti hún aftur út í
strauminn. Og síðar sama dag náðu
tveir félagar 15 fiskum í Tungulæk,
á stuttum tíma; með tíu birtingum,
niðurgöngufiski og
geldingum, voru fimm
vænar bleikjur.
Mikil hrygning –
minni veiði
Fjölmennt var á af-
mælisráðstefnu
Stangaveiðifélags
Reykjavíkur í vikunni,
þar sem rætt var um
veiða-sleppa aðferðina
og viðkomu laxaseiða í
ánum. Meðal framsögu-
manna var Jón Krist-
jánsson fiskifræðingur,
sem kynnti kenningar
sínar um að undan
stórum hrygning-
arstofnum kæmu lé-
legri laxaseiði og
heimtur yrðu minni
Þetta gerði það að
verkum að hrygning þau sumur sem
mikið væri af laxi í ánum skilaði lé-
legri laxveiði er þeir árgangar skil-
uðu sér aftur í viðkomandi á og afföll
yrðu meiri.
Orri Vigfússon greindi frá árangri
þess að sleppa fiski í Selá í Vopna-
firði, og hefðu þær aðgerðir skilað
sér í mun meiri laxgengd og mun
meiri lax væri í ánni fram á haustið.
Með þessu mætti auka efnahagsleg
áhrif stangaveiða, verðmæti veið-
anna ykjust, svo og ánægja og um-
gengni veiðimanna um árnar.
Sjóbirtingi sleppt aftur í Tungulæk.
Góð sjó-
bleikjuveiði
í Breiðdal
veidar@mbl.is.s
Morgunblaðið/Einar Falur
STANGVEIÐI
JÓHANNES M. Gunnarsson, lækn-
ingaforstjóri Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss (LSH) segir að með
breytingum sem gerðar voru á lögum
um réttindi og skyldur opinberra
starfsmanna árið 1996 hafi vald ráð-
herra til að ráða og reka starfsmenn
flust yfir til ríkisstofnana. Því sé það
ekki rétt sem Tómas Zoëga, fyrrver-
andi yfirlæknir á geðsviði LSH, held-
ur fram, að ráðherra hafi einn vald til
að segja honum upp störfum, þar
sem hann var ráðinn til starfa áður
en breytingin tók gildi.
Jóhannes segist hins vegar ekki
líta svo á að Tómasi hafi verið sagt
upp sem yfirlækni, heldur hafi starfi
hans verið breytt. Tómas heldur hinu
gagnstæða fram og hefur höfðað mál
á hendur LSH vegna breytinga sem
gerðar voru á starfi hans frá 1. maí.
Mun hann samkvæmt ákvörðun
framkvæmdastjórnar LSH frá þeim
degi gegna störfum sérfræðilæknis
en ekki yfirlæknis þar sem hann hafi
ekki farið eftir ákvörðun stjórnar-
nefndar LSH frá 2001 um að hætta
stofurekstri meðfram yfirlæknis-
starfi sínu á sjúkrahúsinu.
Langur aðlögunartími
Jóhannes segir þá yfirlækna sem
séu með sjálfstæðan stofurekstur ut-
an sjúkrahússins teljandi á fingrum
annarrar handar. Hann segir að
vissulega eigi eitt yfir alla að ganga
og verði það gert. Bendir hann á að
Tómas muni halda óskertum launum
eftir breytinguna.
„Spítalinn hefur reynt að fram-
fylgja þessari stefnu sinni mildilega.
Hann hefur gefið fresti og langan að-
lögunartíma. Það eru nokkrir ein-
staklingar sem eru enn með stofu-
rekstur og við erum að fara í þau mál
núna.“
Tómas telur ákvörðun stjórnar-
nefndar frá árinu 2001 um helgun yf-
irmanna ekki standast lög en því and-
mælir Jóhannes. „Þessi ákvörðun var
hluti af stefnumótun sjúkrahússins.
Starf yfirlæknis er fullt starf og ég
tel að það geti orðið árekstar á milli
þess og sjálfstæðs stofureksturs úti í
bæ.
Það eru ákvæði í starfsmannalög-
unum sem segja það alveg skýrt að
vinnuveitandi hafi íhlutunarrétt ef
starfsmaður stofnar til atvinnu-
rekstrar eða ræður sig að hluta til í
annað starf meðfram. Ég held að það
sé siðferðilega rangt að starfsmaður
geti einhliða átt þann rétt.“
Jóhannes segir að mál Tómasar sé
mikið prófmál.
„Ef svo ólíklega fer að niðurstaðan
verði sú að við hefðum ekki þann rétt
að marka stefnu sem þessa þá mun
það hafa ófyrirsjáanlegar afleiðingar,
ekki bara fyrir spítalann heldur op-
inbera stjórnkerfið allt saman. Þetta
fjallar um grundvallaratriði, hvort
opinber fyrirtæki hafi rétt til þess að
gera þá kröfu á sína stjórnendur að
þeir starfi ekki annars staðar.“
Stórmál ef LSH hefur ekki rétt til
að krefjast helgunar yfirmanna
UPPI eru hugmyndir um að sameina
Félag skipstjórnarmanna og Far-
manna- og fiskimannasamband Ís-
lands. Þetta kom fram í ræðu Árna
Bjarnasonar, formanns Félags skip-
stjórnarmanna, á fyrsta aðalfundi fé-
lagsins sem haldinn var í gær.
Félag skipstjórnarmanna var
formlega stofnað hinn 24. janúar 2004
við sameiningu þriggja félaga í eitt,
en það voru Skipstjóra- og stýri-
mannafélag Norðlendinga, Aldan og
Félag íslenskra skipstjórnarmanna.
Skipstjóra- og stýrimannafélagið
Vísir á Suðurnesjum hafnaði samein-
ingu við FS fyrr í þessum mánuði.
Sagði Árni að nú þyrfti að skoða
hvernig bregðast ætti við þessari nið-
urstöðu.
Árni sagðist persónulega þeirrar
skoðunar að ekki væri viðunandi til
lengri tíma litið að halda úti Far-
manna- og fiskimannasambandi við
hlið FS. Sagði hann að þeirri hug-
mynd hefði verið komið á framfæri að
sameina FFSÍ og FS. „Þetta er all-
róttæk hugmynd og erfitt að sjá fyrir
hvaða afleiðingar slík tillaga hefði.
Hvort hún myndi flýta eða tefja fyrir
sameiningu félaganna eða hvort hug-
myndin væri hreinlega ekki tímabær.
Þetta er eitt af þeim málum sem horfa
verður til í náinni framtíð og marka
þá stefnu sem heillavænlegust verður
fyrir okkar unga félag.“
Sagði Árni að þeir tæplega sextán
mánuðir sem liðnir væru frá stofnun
FS hefðu verið viðburðaríkir. Í maí
2004 var undirritaður kjarasamning-
ur milli FS fyrir hönd farmanna og
Samtaka atvinnulífsins. Einnig er bú-
ið er að semja við Björgun og í gangi
eru samningaviðræður milli FS og
samninganefndar ríkisins vegna skip-
stjórnarmanna hjá Landhelgisgæsl-
unni. Þá er einnig nýverið lokið samn-
ingum milli FS og Hafrannsókna-
stofnunar vegna skipstjórnarmanna á
þeirri stofnun.
Hinn 30. október sl. var svo und-
irritaður samningur milli Landssam-
bands íslenskra útvegmanna annars-
vegar og Farmanna- og fiskimanna-
sambands Íslands og Sjómannasam-
bands Íslands hinsvegar, að afloknum
u.þ.b. 60 samningafundum. Sagði
Árni að þá hefði verið of langt um liðið
síðan tekist hefði að klára samninga
milli sjómanna og útvegsmanna án ut-
anaðkomandi afskipta.
Ræða sameiningu við FFSÍ
Morgunblaðið/Jim Smart
Frá fyrsta aðalfundi Félags skipstjórnarmanna.
ÚR VERINU
George
Lucas
á morgun
Skarphéðinn
Guðmundsson hitti
heilann á bak við
stjörnustríðið í Cannes