Morgunblaðið - 21.05.2005, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2005 19
ERLENT
Flísar
- úti og inni -
Varanleg lausn
Verðdæmi:
30 x 30 kr. 1.150,- m2
Gegnheilar útiflísar
á svalir, tröppur,
sólstofur og
jafnvel bílskúrinn.
TALSMENN Alþjóða Rauða kross-
ins gagnrýndu í gær harðlega þá
ákvörðun breska götublaðsins The
Sun að birta ljósmyndir af Saddam
Hussein, fyrrverandi forseta Íraks,
þar sem hann sést m.a. á nærbux-
unum einum fata. Telja þeir mynd-
birtinguna brot á Genfarsáttmál-
anum um mannúðlega meðferð
stríðsfanga en þar er m.a. kveðið á
um að stríðsföngum sé hlíft við „for-
vitni almennings“.
Breska ríkisútvarpið, BBC, hafði
eftir lögfræðingi Saddams í gær-
kvöldi að hann hygðist höfða mál
gegn The Sun vegna myndbirting-
arinnar.
Fyrirsögnin á forsíðu The Sun í
gær var: harðstjórinn á brókunum.
Fylgdi með heilsíðumynd af Saddam
sem virðist þar vera að klæða sig í
fötin í fangaklefa í Írak. Saddam var
handsamaður í desember 2003 og
hefur síðan þá dvalið í fangaklefa
einhvers staðar í Írak.
Farið er háðulegum orðum um
Saddam í The Sun, hann sagður orð-
inn gamall maður, „búinn að vera“.
Blaðið segist hafa fengið myndirnar
af Saddam frá heimildarmanni í
Bandaríkjaher sem vonaðist til þess
að birting þeirra yrði til að veikja
uppreisnina í Írak. Með því að birta
þessar myndir af Saddam yrði írösk-
um almenningi ljóst að hann væri
ekkert „ofurmenni“, heldur „aðeins
gamall og venjulegur maður“.
BBC hefur hins vegar eftir sér-
fræðingum í málefnum Mið-
Austurlanda að margir arabar muni
álíta myndbirtinguna grófa móðgun
og að hún ali því enn frekar á hatri á
Bandaríkjunum í heimshlutanum.
„Frábærar, táknrænar myndir“
Talsmenn Bandaríkjahers sögðust
telja að myndirnar væru frá því fyrir
um ári. Rannsókn hefur verið fyr-
irskipuð á því hver tók myndirnar
og menn ráða einnig ráðum sínum
um hvernig eigi að refsa þeim sem
tók þær og kom á framfæri við fjöl-
miðla, að sögn Don Dees, fulltrúa
Bandaríkjahers.
Dees sagði að reglur bandaríska
varnarmálaráðuneytisins bönnuðu
að gert væri lítið úr föngum með
þessum hætti, auk þess sem mynd-
irnar væru jafnvel brot á Genfar-
sáttmálunum.
The Sun varði hins vegar þá
ákvörðun að birta myndirnar. Hafði
BBC eftir Graham Dudman, rit-
stjóra blaðsins, að ritstjórnin hefði
velt því lengi fyrir sér hvort birta
ætti myndirnar en komist að þeirri
niðurstöðu, að fréttagildi þeirra
væri slíkt að ekki væri annað hægt.
„Þetta eru frábærar, táknrænar
myndir og ég efast um að nokkurt
dagblað, tímarit eða sjónvarpsstöð,
sem hefði fengið myndirnar hefði
ákveðið að birta þær ekki.“
„Þetta er maður sem myrti minnst
300 þúsund manns – eigum við að
vorkenna honum af því einhver tók
mynd af honum?“
Gagnrýna birtingu
mynda af Saddam
Reuters
Ætlar að höfða
mál gegn The Sun
Havana. AFP. | Andófsmenn á Kúbu
hófu tveggja daga ráðstefnu um
lýðræði í Havana í gær og ögruðu
þannig Fidel Castro, leiðtoga
kommúnistastjórnar landsins, sem
meinaði fjórum evrópskum þing-
mönnum að sitja ráðstefnuna.
Castro gagnrýndi ráðstefnuna
harkalega og sagði að Bandaríkja-
stjórn stæði fyrir henni. George
W. Bush Bandaríkjaforseti sendi
andófsmönnunum skrifleg skilaboð
þar sem hann kvaðst vera viss um
að Kúba yrði senn frjálst land.
„Enginn harðstjóri getur staðið
gegn mætti lýðræðisins til eilífð-
ar.“
Um 200 manns voru við setn-
ingu ráðstefnunnar. Mun þetta
vera í fyrsta skipti sem slík lýð-
ræðisráðstefna er haldin í landinu.
Áður voru fjórir þingmenn –
tveir frá Póllandi, einn frá Þýska-
landi og sá fjórði frá Tékklandi –
stöðvaðir á flugvellinum í Havana
og þeim var vísað úr landi. Þeir
voru allir með vegabréfsáritun og
ætluðu að sitja ráðstefnuna.
Utanríkisráðherrar Þýskalands
og Tékklands fordæmdu brottvís-
anirnar. „Þær sýna svo ekki verð-
ur um villst að alræðisstjórn er við
völd á Kúbu,“ sagði Cyril Svoboda,
utanríkisráðherra Tékklands.
Andófsmenn bjóða
Castro birginn
Evrópskum þingmönnum vísað frá
Kúbu vegna ráðstefnu um lýðræði
Peking. AFP. | Kínversk stjórnvöld leit-
uðu í gær eftir sáttum við Bandaríkin
og Evrópusambandið í deilu um stór-
aukinn útflutning á kínverskum vefn-
aðarvörum og sögðust ætla að hækka
útflutningsgjöld á 74 vöruflokkum frá
og með 1. júní.
Kínverska fjármálaráðuneytið
hafði áður lagt 2-4% útflutningsgjöld
á 148 vöruflokka eftir að alþjóðlegur
samningur, sem takmarkaði útflutn-
ing á vefnaðarvörum, féll úr gildi 1.
janúar. Þessi gjöld höfðu hins vegar
lítil áhrif og ráðuneytið hefur nú
ákveðið að hækka gjöldin á 74 þess-
ara vöruflokka um allt að 400% til að
draga úr útflutningnum sem hefur
aukist um allt að 500% frá áramótum.
Talsmaður framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins sagði að hún
vildi fá frekari upplýsingar um gjöldin
áður en hún tæki afstöðu til þess
hvort þau dygðu til að draga úr út-
flutningnum.
Stjórnvöld í Kína gefa eftir