Morgunblaðið - 21.05.2005, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 21.05.2005, Qupperneq 28
28 LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR Selfoss | Elín Gunnlaugsdóttir, tónskáld á Selfossi, hlaut menningarviðurkenningu Ár- borgar árið 2005. Verðlaunin voru veitt á há- tíðartónleikum á Stokkseyri við upphaf menningarhátíðar Árborgar, Vor í Árborg, í fyrrakvöld. Í ávarpi Ingu Láru Baldvinsdóttur, for- manns lista- og menningarnefndar Árborgar, sem afhenti viðurkenninguna kom fram að tónlist hafi staðið traustum fótum á Eyr- arbakka og Stokkseyri á seinni hluta 19. ald- ar. Með þeirri bylgju sem þetta tónlistarstarf bar með sér hafi verið sáð fræjum sem gátu af sér tónskáld eins og Sigfús Einarsson og Pál Ísólfsson. En þótt fortíðin væri glæst og góð væri ekki minna um vert að hafa á meðal okkar í sveitarfélaginu Árborg tónskáld í samtímanum sem auðguðu menningarlíf sveitarfélagsins með verkum sínum og sáðu fræjum sem vonandi blómstruðu og döfnuðu um ókomna framtíð. Elín Gunnlaugsdóttir hefur starfað við tón- smíðar ásamt kennslu frá því hún lauk námi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og síðar framhaldsnámi frá Konunglega tónlistarhá- skólanum í Haag. Tónsmíðar hennar eru margar hverjar skrifaðar fyrir kóra og minni hljóðfærahópa. Hún hefur tvisvar verið stað- artónskáld í Skálholti. Elín kennir við Tón- listaskóla Árnesinga og Vallaskóla á Selfossi. Einn af viðburðum á menningarhátíðinni Vor í Árborg sem stendur fram á sunnudag eru tónleikar kórs Vallaskóla sem Elín stjórn- ar. Menning Elín Gunnlaugsdóttir, til vinstri, tók við menningarviðurkenningu Árborgar úr hendi Ingu Láru Baldvinsdóttur. Tónskáld fær menningar- viðurkenningu Innri-Njarðvík | Hröð uppbygging Tjarnahverfis og starfsemi hins nýja Akurskóla voru meðal umræðuefna á fundi Árna Sigfússonar, bæjarstjóra Reykjanesbæjar, með íbúum í Innri- Njarðvík fyrr í vikunni. Reiknað er með að 80 til 90 nemendur verði í Ak- urskóla næsta vetur. Árni Sigfússon bæjarstjóri efnir árlega til fimm funda með íbúum í hverfum Reykjanesbæjar. Fundur- inn í Innri-Njarðvík var sá fyrsti að þessu sinni og var afar vel sóttur. Þar voru 150 til 160 íbúar og fylltu safn- aðarheimilið. Í framsöguræðu fór bæjarstjóri yf- ir stefnuna sem mörkuð var í upphafi kjörtímabilsins, meðal annars um þjónustu og framkvæmdir, og stöðu einstakra mála nú. Þá var farið sér- staklega yfir mál sem snerta íbúa í Innri-Njarðvík. Þar eru að verða miklar breytingar vegna uppbygg- ingar nýs hverfis, Tjarnahverfis, en flutt verður inn í fyrstu íbúðirnar þar í haust. Svo mikil ásókn hefur verið í lóðir að farið er að huga að öðru íbúð- arhverfi, í framhaldi af Tjarnahverfi, og gætu framkvæmdir hafist þar á næsta ári ef svo fer fram sem horfir. Árni gat þess á fundinum að nú lægju fyrir á annað hundrað umsóknir um lóðir og því ekki annað að gera en að halda áfram að skipuleggja. Bæjarstjóri sagði frá hugmyndum um uppbyggingu strandhverfis þar sem fiskvinnsluhúsin eru nú í Innri- Njarðvík og sýndi fyrstu drög að skipulagi. Hann sagði jafnframt frá íbúðarhúsabyggingum annars staðar í bæjarfélaginu. Húsagerðin er að skipuleggja íbúðahverfi í Hlíðahverfi sem liggur milli Keflavíkur og Njarð- víkur, tvö fyrirtæki eru að byggja og með áform um að byggja fjögur há- hýsi með allt að 100 íbúðum við Kefla- víkurhöfn. Þá er verktaki á vegum Búmanna að byggja hús í hverfi með 40 íbúðum í Njarðvík. Þá eru fyrirtæki að huga að upp- byggingu þjónustumiðstöðva í hverf- inu. Keflavíkurverktakar eru með hugmyndir um miðstöð sem gengur undir vinnuheitinu Kaupbætir. Þá upplýsti bæjarstjóri að Smáratorg ehf. sem er í eigu eiganda Rúmfata- lagersins væri að spyrjast fyrir um lóð. En sá munur að fá Rúmfatalager- inn, heyrðist þá í konu í salnum og var tekið undir þau orð með lófataki. Nýjung í Akurskóla Verið er að byggja grunnskóla í Tjarnahverfi, Akurskóla, og verður fyrsti áfangi hans tekinn í notkun í haust. Þar verða 80–90 börn í fyrstu sex bekkjum grunnskóla, í nokkrum aldursblönduðum bekkjum. Húsnæð- ið er hannað og skólastarf skipulagt miðað við hugmyndir um einstak- lingsmiðað nám. Eldri nemendum verður fyrstu árin ekið í Njarðvíkur- skóla en einn árgangur bætist við í Akurskóla á ári þar til skólinn verður fyrir alla aldurshópa. Þá verður nem- endum ekið í íþróttir en Árni bæjar- stjóri sagði á fundinum að miðað við þá hröðu uppbyggingu sem væri í hverfinu mætti búast við að farið yrði í byggingu íþróttahúss og sundlaugar við skólann í framhaldi af byggingu hans. Á fundinum kom fram fyrirspurn um það hvort ekki væri hægt að gefa eldri nemendum úr hverfinu kost á að stunda nám við Akurskóla og því haldið fram að ekki vantaði mikið upp á að hægt væri að flytja þangað heilan bekk úr Njarðvíkurskóla. Eiríkur Hermannsson fræðslustjóri sagði að vegna þess að verið væri að taka upp breytt fyrirkomulag á námi í þessum nýja skóla, hið svokallaða einstak- lingsmiðaða nám, væri talið æskilegt að byrja á yngri nemendum. Erfitt gæti verið fyrir eldri nemendur, sem væru vanir hefðbundnu skipulagi, að koma inn í nýtt umhverfi. Því hefði verið ákveðið að byrja á yngri börn- unum og láta þau síðan vaxa upp í þessu nýja umhverfi. Ábendingar um lagfæringar Árni óskaði eftir því að íbúarnir segðu hug sinn um það sem þeir teldu að betur mætti fara í hverfinu. Fjöl- margar ábendingar bárust, ekki síst um smærri atriði í umhverfinu og um- ferðina sem ritari bæjarstjórans skrifaði niður og Árni lofaði að láta lagfæra fyrir næsta íbúafund. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Fjölmenni Safnaðarheimili Innri-Njarðvíkurkirkju var þétt setið á fundi bæjarstjóra með íbúum hverfisins. Skólamál og hröð uppbygging til umræðu á fundum bæjarstjóra Reykjanesbæjar með íbúunum Ekki annað að gera en að halda áfram Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is SUÐURNES ÁRBORGARSVÆÐIÐ Stokkseyri | „Það eru tíu ár síðan ég fór af stað með þessa hugmynd. Það var þegar við hjónin keyptum gamalt kot, Helgastaði, en þá fylgdi þetta land. Við sáum fyrir okkur að vinna upp hugmyndina um af- þreyingargarð. Ætli það sé ekki sveitabarnið í mér sem er að brjótast fram,“ segir Torfi Ás- kelsson á Stokkseyri, einn eig- enda Töfragarðsins á Stokks- eyri. Hugmyndina að nafninu fékk Torfi úr bókinni Undragarð- urinn. Hann segir að það hafi lengi brotist í sér að byrja bú- skap. Þau hjónin, Torfi og Ingi- björg Ársælsdóttir, hafa ásamt félögum sínum, hjónunum Reyni Sigurvinssyni og Svanfríði Jon- es, unnið að uppsetningu garðs- ins. Þau hófust handa fyrir ári og opnuðu fyrsta hluta garðsins síðastliðinn fimmtudag. Hænurnar í sérstöku uppáhaldi „Þetta er húsdýra- og fjöl- skyldugarður með leiktækjum fyrir krakka. Við viljum búa til erindi fyrir fólk að koma hingað sér til skemmtunar og njóta samvista með börnunum í kring- um dýrin. Svo geta börnin skemmt sér á stóru hoppdýn- unni, bæði með því að hoppa og horfa á foreldra sína reyna sig. Okkur finnst gaman að vinna að þessu og viljum auðvitað auka fjölbreytileikann hér við strönd- ina með því að fá sem flesta gesti svo þetta skili okkur ein- hverri innkomu,“ segir Torfi og er ánægður með viðtökur gest- anna á opnunardaginn og hann er ekki síður ánægður með dýr- in í garðinum og segir hæn- urnar í sérstöku uppáhaldi hjá sér en um er að ræða íslenskar, skrautlegar haughænur. „Svo munum við fá hingað hreindýr þegar við fáum leyfi fyrir þeim,“ segir Torfi en hreindýr er í merki garðsins. „Ævintýrið í þessu öllu saman er að láta hugmyndirnar rætast þannig að hér gerist eitthvað sem enginn á von á og fólk fái útrás við það að koma til okkar, líta í kringum sig, reyna eitt- hvað nýtt og fá sér kaffisopa og aðrar veitingar í tjaldinu þar sem við munum reisa veitinga- hús í framtíðinni,“ sagði Torfi. Morgunblaðið/Jóhann Óli Hilmarsson Ærslabelgurinn Stóra hoppu- dýnan nýtur ómældra vinsælda ungu kynslóðarinnar við opnun Töfragarðsins. Sveitabarnið brýst fram Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Töfrar Torfi Áskelsson tyllir sér á gamla sláttuvél í garðinum. Töfragarðurinn á Stokkseyri er gamall draumur Torfa Áskelssonar Eftir Sigurð Jónsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.