Morgunblaðið - 21.05.2005, Síða 36

Morgunblaðið - 21.05.2005, Síða 36
36 LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. U mræðan um fjölgun öryrkja að und- anförnu, og sú ofur- áhersla sem verið hefur á þá örfáu ein- staklinga sem hugsanlega misnota kerfið, hefur vakið hörð viðbrögð hjá okkur sem sækjum endurhæf- ingu í iðjuþjálfun geðsviðs LSH. Við erum öll á örorku vegna veik- inda okkar, en við erum öll ein- staklingar sem erum að vinna í okkar málum, að reyna að byggja okkur upp til þess að geta farið aft- ur í skóla eða út á vinnumark- aðinn,“ segir Margrét Dögg Hrannardóttir, sem ásamt sex öðr- um skjólstæðingum iðjuþjálfunar og starfsmanni, settist niður með blaðakonu til að ræða þessi mál. Eftir því sem samtalinu vindur fram má ljóst vera að viðmælendur undirritaðrar eru ósáttir við að ekki sé meira rætt um þau úrræði sem öryrkjum standa til boða við að komast aftur út á vinnumarkað, sem að þeirra mati virðast oft af skornum skammti og jafnvel ekki nægilega vel kynnt skjólstæðing- unum. Lýsti einn í hópnum því sem svo að í raun væri kerfið að svíkj- ast um að hjálpa fólki aftur út í lífið og nefndi í því samhengi langa bið- lista og skort á upplýsingum um úrræði. Eins velti hópurinn upp þeirri spurningu af hverju sjónum yfirvalda væri ekki í meira mæli beint að því hvers vegna fólk verð- ur öryrkjar. „Getur hugsast að fjölgun öryrkja þýði ekki sjálfkrafa að vandinn sé að aukast heldur fremur að fólk sé orðið betur upp- lýst um þau úrræði sem þó séu fyr- ir hendi og leiti sér fremur að- stoðar en áður? Og er það ekki góðs viti?“ spyr Dagný Karlsdóttir og bendir á að ef yfirvöld hafi grun um að fólk sé að komast á örorku sem ekki eigi þar heima þá hljóti ábyrgðin að miklu leyti að liggja hjá læknunum sem ávísa ör- orkunni. að slíkur stuðningur sé óm anlegur, en benda á að ein staklingur ráði auðvitað ek sinna öllum sem á stuðning að halda. Einnig nefna þau samninga öryrkja sem afar kvætt úrræði. Litið á geðræn vandam sem aumingjaskap Umræðan berst næst að dómum í garð öryrkja. Þeg blaðakona varpar fram þei spurningu hvort viðmælen hennar finni fyrir fordómu garð, svara þau öll játandi „Það eru klárlega margir s á geðræn vandamál sem le aumingjaskap sem fólk eig faldlega að rífa sig upp úr, Helena Kolbeinsdóttir. Hr Helga Indriðadóttir tekur með Helenu og segist oft u það að fólk líti á sig sem au þegar hún segist vera öryr hef líka oft fengið að heyra ég hreinlega nenni ekki að Mig langar hins vegar ekk ar en að komast aftur anna skóla eða vinnu,“ segir Hrö Talið berst að starfsendurhæf- ingunni í iðjuþjálfuninni, en ljóst má vera að hún tekur mislangan tíma eftir einstaklingum. Af sam- ræðum við blaðakonu verður ljóst að mikilvægt er að einstaklingar fái ráðrúm til að undirbúa sig vel og fari ekki of snemma aftur út á vinnumarkað. Margir í hópnum segjast hins vegar finna fyrir tölu- verðri pressu um það að drífa sig nú aftur út á vinnumarkaðinn og einnig fái þau ósjaldan að heyra það að þau séu nú bara letingjar sem nenni ekki að vinna. „Síðast þegar ég veiktist þá fór ég á lyf og mánuði seinna fékk ég vinnu, en ég hafði verið óvinnufær í 8–9 mánuði þar áður. Ég entist í nýju vinnunni í þrjá mánuði, en þá var ég orðinn úttaugaður, þjakaður af þunglyndi og varð fyrir vikið mun veikari en ég hafði verið áður. Ég var hreinlega alls ekki nægi- lega vel undirbúinn til þess að tak- ast á við vinnuna. Ég hefði þurft miklu lengri tíma og betri und- irbúning til þess að vera andlega tilbúinn til að þola álagið sem fylgir því að vera aftur á vinnu- markaði. Ég hafði svo lítið sjálfs- traust að ég var sífellt stressaður yfir því að ég gerði ekki hlutina nógu vel,“ segir Gunnar Ólafsson. Í framhaldinu berst talið að því hvaða úrræði myndi auðvelda mönnum í hans stöðu það að fara aftur út á vinnumarkaðinn. Allir eru sammála um að lykilatriðið sé að hjálpa fólki við að byggja upp sjálfstraustið til að takast aftur á við vinnuumhverfið og þar gegni endurhæfingin í iðjuþjálfuninni gríðarstóru hlutverki. Annað sem hefur sýnt sig virka vel er að veita fólki handleiðslu þegar það snýr aftur út á vinnumarkað og benda þeir á að nú um stundir sé einn iðjuþjálfi starfandi hjá Heilsugæsl- unni í Reykjavík sem sinnir því hlutverki á vegum Hugarafls. Allir eru viðmælendurnir á einu máli um Því miður virðist það oft vera afstaðan þegar kemur að geðrænum vandamálum, ólíkt öðrum sjúkdómu um. Þetta er mat þeirra Sigurðar Hólms Gunnarssonar, Ástu Gunnarsdóttur, Margrétar Daggar Hrann Dagný Karlsdóttir, Hrönn Okkur hefur skort rödd í umræðunni „VIÐ vi vitum a að hver því að þ Elín Eb Landsp Að sö og þar a ungt fó unum u Ebba og af biðlis hægt að taka inn alla sem sóttu um núna í apríl og m vitað afar bagalegt.“ Að meðaltali mæta dagl 40 í starfsendurhæfingu. A að segja til um hversu lang urhæfingu. Segir hún með ið sé fljótt inn í þurfi fólk o vegar út af því þeir eru að sér að eigin endurhæfingu Að sögn Elínar Ebbu ræ einstaklingarnir eru á sig seint að sjálfmyndin er alv hana upp og fá þau til að e kerfið okkar þannig upp b orðið bráðveikt og þá teku Vildum get Af hverju einblína menn á þá örfáu öryrkja sem hugsanlega misnota kerfið, í stað þess að beina sjónum að því hvað veldur fjölgun öryrkja og hvaða úrræði þau hafi til að byggja sig upp og komast aftur út á vinnumarkaðinn? Þetta voru meðal þeirra spurninga sem brunnu á viðmæl- endum Silju Bjarkar Huldudóttur, sem allir eru í starfsendurhæfingu í iðjuþjálfun geðsviðs LSH. Elín Ebba Ásmundsdóttir KÍNAMÚRAR GEGN ÓDÝRUM INNFLUTNINGI? Það er gömul saga og ný aðþeir, sem hæst tala um mik-ilvægi frjálsra alþjóðavið- skipta, eru jafnframt fljótastir að stökkva til og koma á viðskipta- hindrunum þegar sérhagsmunahóp- ar byrja að kvarta. Það á við um bandarísk stjórnvöld, sem nú hafa gripið til þeirra „neyðaraðgerða“ að setja innflutningskvóta á nokkrar tegundir vefnaðarvara frá Kína. Og sama hljóð er í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, þótt hún hafi enn ekki viljað grípa til neinna að- gerða. ESB segist nú skoða vand- lega þær aðgerðir, sem kínversk stjórnvöld gripu til í gær, þ.e. að hækka útflutningstolla á ýmsum vefnaðarvörum, og ætla að meta hvort þær dugi til þess að sam- bandið efni ekki til viðskiptadeilu. Um síðustu áramót var í þágu frí- verzlunar afnumið áratuga gamalt alþjóðlegt kerfi innflutningskvóta á vefnaðarvörum. Ákvörðunin um að afnema þetta kerfi var tekin fyrir um áratug. Á fyrstu mánuðum árs- ins hefur innflutningur ýmissa vefn- aðarvara, framleiddra í Kína, til Evrópusambandsins og Bandaríkj- anna margfaldazt, þrátt fyrir að kínversk stjórnvöld hafi hækkað skatta á vefnaðarvörufyrirtæki. Þannig er talið að innflutningur bómullarbuxna og -stuttbuxna frá Kína til Bandaríkjanna hafi fimm- tánfaldazt á fyrstu fjórum mánuðum ársins, en algengt er að innflutning- urinn hafi fimmfaldazt. Kínversku vörurnar eru á mun lægra verði en þær, sem framleiddar eru í lönd- unum sem flytja þær inn. Þannig hefur verð á stuttermabolum lækk- að um 22% í ESB það sem af er árinu vegna kínverska innflutnings- ins. Áhrifin á vefnaðariðnaðinn í ESB og Bandaríkjunum eru hins vegar neikvæð. Margar verksmiðjur geta ekki keppt við innflutninginn og gætu þurft að hætta starfsemi. Samtök vefnaðarvörufyrirtækja austan hafs og vestan þrýsta því fast á stjórnvöld að grípa til „neyð- araðgerða“ og nýta ákvæði í WTO- samningum, sem beita má næstu þrjú árin gegn vefnaðarvöruinn- flutningi frá Kína, valdi hann „rösk- un á markaðnum.“ En auðvitað er það eðli frjálsra viðskipta að þeir, sem standa sig bezt í samkeppninni, valda „röskun á markaðnum“. Kínverskir vefnað- arvöruframleiðendur framleiða vöru, sem er miklu ódýrari en sú, sem vestrænir framleiðendur bjóða upp á. Aukinheldur er kínversk vefnaðarvara nú orðin nánast sam- bærileg að gæðum við vestræn föt. Það segir sína sögu að ítalska tízku- húsið Prada greindi frá því í fyrra- dag að það kynni að færa hluta af framleiðslu sinni til Kína. Og Hugo Boss í Þýzkalandi hefur sagt að það sé stutt í að kínverskar fataverk- smiðjur nái sömu gæðum og þýzkar – og þá verði Boss-jakkafötin fram- leidd í Kína að hluta til. Þetta þýðir auðvitað að þessi fyrirtæki flytja störf frá Evrópu til Kína – en á móti sparast peningar, sem notaðir verða til annars konar atvinnusköpunar. Það eru ekki aðeins framleiðend- ur og launþegar í Kína sem græða á frjálsum viðskiptum með vefnaðar- vöru. Neytendur á Vesturlöndum græða, því að þeir fá ódýrari vöru. Fyrirtæki í alls óskyldum greinum græða, því að neytendur eiga meira afgangs til að kaupa vörur þeirra. Fataverzlanir í Evrópu og Banda- ríkjunum græða; þær fá ódýrari að- föng. Tízkuhús og hönnuðir, sem láta kínverskar verksmiðjur fram- leiða fyrir sig, græða. Íslenzku hjónin, sem rætt var við í Viðskipta- blaði Morgunblaðsins á fimmtudag og láta framleiða föt í átta verk- smiðjum í Kína, m.a. fyrir íslenzka viðskiptavini, hagnast. Íslenzkir framleiðendur Cintamani-útivistar- fatnaðarins, sem greint var frá í sama blaði að hefðu samið um fram- leiðslu vöru sinnar í Kína, græða líka. Samtök vefnaðariðnaðarins eru hins vegar betur skipulagðir hags- munahópar en neytendur, tízku- hönnuðir og fataverzlanir. Þau eru í betri aðstöðu til að þrýsta á banda- ríska þingmenn eða framkvæmda- stjórn ESB að grípa til „neyðarað- gerða“ gagnvart Kínverjum – að reisa Kínamúr til að útiloka ódýran, kínverskan innflutning. Vestrænn vefnaðariðnaður hefur þó haft tíu ár til að búa sig undir aukna samkeppni frá Kína. For- svarsmenn Evrópusambandsins hafa sagt að þeir geti ekki staðið hjá á meðan iðnfyrirtæki í aðild- arríkjunum hætta starfsemi vegna ódýrs innflutnings. Þeir ættu kannski að rifja upp að slíkt hefur oft gerzt áður, til dæmis þegar önn- ur ríki hafa gert fríverzlunarsamn- inga við Evrópusambandið. Eftir að fríverzlunarsamningar EFTA við Efnahagsbandalag Evrópu tóku gildi í byrjun áttunda áratugarins gáfust mörg íslenzk iðnfyrirtæki upp, þar á meðal fyrirtæki í vefn- aðariðnaði. Þau stóðust ekki sam- keppnina við iðnað í ESB eftir að innflutningshöftin voru afnumin. Hvað gerðist? Atvinnulífið fann sér annað að gera; tók upp starfsemi á sviðum þar sem samkeppnisstaða Íslands var sterkari. Neytendur fengu ódýrari vöru. Til lengri tíma litið græddu allir – eins og venju- lega þegar fríverzlun er komið á. Það er engin leið að halda því fram að Kínverjar séu einhverjir englar í fríverzlunarmálum. Í Kína eru auðvitað ýmiss konar höft og verndartollar fyrir innlenda fram- leiðslu. Og talsvert er til í þeirri ásökun Bandaríkjamanna að Kína haldi gengi gjaldmiðils síns, júans- ins, of lágu og hygli þannig eigin út- flutningsgreinum. Leiðin til þess að fá Kínverja til að láta af verndarstefnu er hins vegar auðvitað ekki að skella á þá viðskiptahindrunum, sem yfirleitt er svarað með viðskiptahindrunum – og þá er orðið til viðskiptastríð. Hún er miklu frekar sú að semja við þá um að auka frjálsræði í hagkerf- inu og efla frjáls viðskipti. En slík leið hentar víst ekki skammtíma- sjónarmiðum sérhagsmunahópanna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.