Morgunblaðið - 21.05.2005, Side 49

Morgunblaðið - 21.05.2005, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2005 49 MINNINGAR verið vel á móti þér af þeim sem þú elskaðir, og þú ert elskuð af. Þú munt fylgjast með okkur eins og þú hefur alltaf gert, og svo að lokum hittumst við á nýjum stað, þar sem þú munt taka á móti okkur eins og þú hefur alltaf gert. Með þessum fá- tæklegu orðum vil ég votta Nonna, Agli föður hennar og öllum aðstand- endum mína dýpstu samúð. Elsku Edda. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem.) Hulda Þorbjarnardóttir. Mig setur hljóða og tár læðast niður kinnar mínar þegar ég sest niður við tölvuna til að skrifa minn- ingabrot um Eddu tengdamóður mína. Ég kynntist Eddu fyrir nær 25 árum þegar ég og Vilhelm sonur hennar hófum sambúð. Við sem átt- um því láni að fagna að kynnast Eddu vitum að fallin er frá hjartahlý og yndisleg manneskja sem bar hag allra sinna afkomenda fyrir brjósti og hún mátti ekki neitt aumt sjá. Hún hafði mjög gaman af því að snúast í kringum barnabörn- in sín. Þegar við Vilhelm bjuggum á Eskifirði og Sigrún og Páll voru á leikskólanum var samið um það að amma næði í þau kl. 5 og liti eftir þeim til 6 þar til við værum búin í vinnunni, oft kom það fyrir að amma sagðist hafa litið vitlaust á klukkuna svo hægt væri að ná í þau fyrr. Edda sýndi barnabörnum sín- um mikla þolinmæði og var mjög dugleg að teikna og lita með þeim, einnig að lesa fyrir þau, ef bókin var ekki alveg nógu skemmtileg þá var bara bætt inn í og stundum mátti varla á milli sjá hvor höfðu meira gaman af sögunni börnin eða amma. Á sumrin fannst Eddu yndislegt að fara upp á tún og upp í fjall fyrir ofan heimili sitt á Fossgötu og litlu angarnir hennar skokkuðu með, þá var meðferðis nesti, snúður með bleiku kremi og djús. Eftir að Jón Andrés fæddist komu Edda og Jón á hverjum degi í heimsókn í Fögru- hlíðina til að kíkja á strák, hún var stolt af öllum sínum. Eftir að við fluttum til Reykjavíkur var farið austur í fríum en stundum fengu börnin að fara ein og vera hjá ömmu og afa. Við Edda töluðumst oft við í síma með reglulegu millibili og gátu þau símtöl tekið nokkuð langan tíma. Edda átti við vanheilsu að stríða í gegnum árin en kvartaði aldrei og hafði miklu meiri áhyggjur af okkur hinum. Því er nú best lýst með því að þegar hún var flutt núna heim í vor af spítalanum bað hún um að henni væri keyrt fram í eldhús í hjóla- stólnum því hún þyrfti að skoða í frystikistuna og aðgæta hvort til væri nægur matur fyrir þau sem ætluðu að annast hana heima. Í apr- íl síðastliðnum eignaðist Edda sitt annað langömmubarn sem hún náði ekki að sjá nema á mynd, nú er kall- ið komið og ég veit að Andrés hefur tekið á móti mömmu sinni og saman munu þau vaka yfir okkur og passa á allan hátt. Minningarnar hrannast upp í huganum og fljúga framhjá eins og myndir í sjónvarpi en er sýnt svo hratt að það er erfitt að festa þær allar á blað, þær lifa í hjarta mínu um ókomna tíð. Sorg eftir Magnús Jóhannesson frá Hafnarnesi lýsir vel líðan minni í dag: Eins og blóm án blaða söngur án raddar skyggir dökkur fugl heiðríkjuna. Vorið, sem kom í gær, er aftur orðið að vetri. Elsku Nonni, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn, megi góður Guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Bjarney Aðalheiður (Heiða Badda). Góð kona er fallin frá og orð mega sín lítils. Það var lán okkar mæðgna að kynnast Eddu fyrir nokkrum árum þegar okkur var tekið með opnum örmum í fjöl- skyldu Jónasar. Það er okkur efst í huga hversu annt Eddu var um vel- ferð allra í fjölskyldunni hvort sem þeir voru tengdir henni blóðböndum eða á annan hátt. Umhyggja og hlýja í garð annarra var henni í blóð borið svo að síst datt henni í hug að hugsa um sjálfa sig. Þannig var það að ef spurt var um hennar líðan þá komu yfirleitt svör um það hvernig aðrir hefðu það. Edda var reynslu- rík og afar næm kona sem var fljót að skynja líðan annarra. Það kom því fyrir að hún hringdi til að styðja og styrkja ef hún taldi að eitthvað bjátaði á hvernig sem hún gat þá verið búin að fá vitneskju um slíkt, við því fáum við nú líklega aldrei skýr svör. Hún var óhrædd við að tjá sínar skoðanir en gerði það á þann máta að hlustað var eftir og tekið tillit til þeirra. Edda var fagurkeri og vildi hafa fallega hluti í kringum sig og hafði einnig gaman af því að spá í hvað hentaði í fatavali eða öðru sem lýtur að útliti hvers og eins. Við mæðgur erum ríkari að hafa kynnst Eddu og átt með henni ánægjulegar samverustundir og mörg góð símtöl þar sem spáð var í hlutina hvort sem um var að ræða af efnislegum eða andlegum toga. Okkur Jónasi þykir mikils virði að hún Sif litla skyldi ná að koma í fangið hennar ömmu sinnar, Sif kemur til með fá að sjá fallegar myndir frá þeim stundum þegar hún verður eldri. Kæri Jón, þið Edda hafið átt á sjötta tug ára saman þar sem þið hafið deilt sorgum og gleði. Þú stóðst eins og klettur við hlið henn- ar í veikindunum og hefur sýnt mik- inn dugnað við umönnum hennar og heimilisins að undanförnu. Við trú- um því og treystum að minning- arnar nái að ylja og verða sorginni yfirsterkari þegar fram líða stundir. Með kærri kveðju og þakklæti, Vigdís Sif og Freyja. Þegar ég var lítil man ég eftir því að ég fékk að fara sjálf alein labb- andi í heimsókn í ömmu- og afahús. Svo þegar ég var eldri var mér sagt að pabbi og Aubi bróðir hefðu laum- ast á eftir mér og fylgst með hvort ekki væri allt í lagi. Seinna var þetta þannig að fyrst var hringt í ömmu og sagt að ég væri að koma og hún fylgdist síðan með mér úr stofuglugganum. Þegar gestir voru hjá ömmu og gott að borða, þá neitaði ég oft að fara heim. Ef ég var eitthvað leið gaf amma mér eitthvað, kom mér í gott skap eða gerði eitthvað með mér. Hún hafði alltaf tíma til að gera eitthvað með manni. Oft vorum við að teikna eða mála. Hún kenndi mér að prjóna og við prjónuðum trefil sam- an, sem ég hef ekki ennþá getað klárað. Amma var með krabbamein og var á sjúkrahúsinu á Norðfirði og hafði fengið páskaegg um páskana. Þegar ég kom til hennar gaf hún mér páskaeggið. Núna þegar amma er dáin, átta ég mig fyrst á hvað hún var stór partur af lífinu mínu, núna þegar ég hef hana ekki lengur, verður allt svo mikið öðruvísi en áður. Katrín Kristín Gísladóttir. Amma mín er dáin og ég sé hana aldrei aftur. Þetta er það sem ég hugsa þegar einhver byrjar að tala um Eddu ömmu. Ég var hjá henni næstum hvern einasta dag. Og gat alltaf farið til hennar ef mig vantaði huggun eða hjálp við eitthvað, og gerði það. Þegar amma var lítil bjuggu for- eldrar hennar í Reykjavík, en afi hennar og amma á Norðfirði. Einu sinni strauk hún með strandferða- skipi austur til afa síns og ömmu, og tók Ellýju litlu systur sína með. Hún hefði samt alls ekki verið ánægð ef ég hefði leikið þetta eftir. Amma ólst að miklu leyti upp hjá ömmu sinni og afa. Ég man skýrt eftir því að hún sagði mér oft frá því að þegar amma hennar fór að mjólka kýrnar, hafi hún sagt ömmu að sitja kyrr á kjallarahleranum þangað til að hún kæmi aftur. Þá fengi hún mola. Amma sat alveg grafkyrr og stillt þó biðin hafi sund- um verið löng og erfið. Svo kom amma ömmu aftur og amma fékk mola. Það var hræðilegt að sjá ömmu veslast svona upp úr krabbameini. Ég mundi gera hvað sem er til að fá hana aftur, en skaparinn mikli hefur ákveðið þetta, og því fáum við ekki breytt. Því vil ég kveðja ömmu mína. Ég sakna þín í birtingu að hafa þig ekki við hlið mér og ég sakna þín á daginn þegar sólin brosir við mér. Og ég sakna þín á kvöldin þegar dimman dettur á. En ég sakna þín mest á nóttinni er svipirnir fara á stjá. Svo lít ég upp og sé við erum saman þarna tvær stjörnur á blárri festinguni sem færast nær og nær. Ég man þig þegar augu mín eru opin, hverja stund. En þegar ég nú legg þau aftur, fer ég á þinn fund. (Megas.) Auðbergur. Elsku amma það eru hrein for- réttindi að hafa átt þig að. Það er sárt að missa jafn einstaka manneskju eins og þú varst, þú varst alltaf svo blíð og góð. Ég man að það var alltaf svo gaman og gott að koma í heimsókn til þín. Þú tókst vel á móti öllum og varst ekki lengi að taka til á borðið því það mátti enginn fara svangur frá þér. Elsku amma mín ég sakna þín rosalega mikið, ég vildi að ég hefði getað komið og heimsótt þig í sumar og sýnt þér nýja langömmubarnið sem þú eignaðist fyrir mánuði síðan. Mig langaði svo að koma austur á meðan þú varst á spítalanum en af því ég var komin svo langt á leið þá var það ekki hægt. Ég sendi þér alla mínu hlýju strauma í staðinn. Síð- asta símtalið sem við áttum saman var mér svo dýrmætt, það var stutt en það skipti mig miklu máli því ég náði að segja þér í síðasta sinn að mér þætti svo vænt um um þig. Núna veit ég að ykkur Adda frænda líður vel saman og og þið er- uð á fallegum og góðum stað því þú kenndir mér að hræðast ekki dauð- ann, þú sagðir mér frá því að einu sinni hefðir þú verið komin hálfa leið til himna en komið svo til baka, þú sagðir að það hefði verið svo fal- legt og friðsælt þar. Frá því þú sagðir mér þetta hræðist ég ekki dauðann. Ég mun geyma allar góðu minn- ingarnar sem við áttum saman í hjarta mínu. Sigrún Andrea. Elsku amma, nú er komið að kveðjustund, en í hjarta okkar lifir minningin um stolta og heilsteypta konu sem öllum vildi vel. Þegar við hugsum um þig, elsku amma, er í huga okkar sú staðreynd að þú hugsaðir alltaf fyrst um aðra og hvað það var mikilvægt fyrir þig að öllum liði vel hjá þér. Jafnvel eftir að þú varst orðin mikið veik og við komum til þín á sjúkrahúsið þá hafðir þú áhyggir af því að ekki færi nógu vel um okkur bræðurna og gerðir allt sem í þínu valdi stóð til að láta okkur líða betur. Öll þau skipti sem við komum austur til ykkar afa áttum við góðar stundir saman, við gerðum plön um að stofna djúsbúð því að þú bland- aðir heimsins besta djús, þú kenndir okkur að teikna þó ekki væru hæfi- leikar okkar jafnmiklir og þínir, því þú teiknaðir svo vel. Og alltaf lagðir þú þig alla fram um að okkur liði vel og skorti ekkert. Við erum lánsamir að hafa átt þig að, elsku amma, og þakklátir fyrir allar stundirnar sem við áttum með þér. Páll og Jón Andrés. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Kær systir mín er horfin sjónum. Loks er hún laus við þrautir sínar Þrátt fyrir að vita að hverju stefndi var tilkynningin um andlátið ólýs- anlega sár. Margar góðar og kærar minning- ar um hana leynast í hugskoti mínu. Þrátt fyrir að aldursmunur á okkur væri mikill, hún elst og ég yngstur af systkinunum, var samband okkar alltaf gott. Hún var ætíð mjög glað- vær og aldrei sá ég hana reiðast. Ég leit mjög upp til hennar og bar mikla virðingu fyrir henni. Tilhlökkunarefni var ætíð að koma til Eskifjarðar, þar áttum við margar góðar stundir. Ég votta Jóni, börnum þeirra og öðrum aðstandendum mína dýpstu samúð. Hvíl í friði og guð geymi þig kæra systir. Þinn bróðir Steinar Bragi. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Jón frændi kynnti Eddu eins og hún var kölluð fyrir fjölskyldunni þegar við systurnar vorum 12 og 14 ára. Þótti okkur mikið til um þessa 17 ára laglegu og glaðværu mág- konu pabba. Við komu hennar lifn- aði yfir afahúsi í Hjarðarholti. Bræðurnir Jón og Elis ásamt Eddu og Aðalheiði konu Ella reistu sér saman á Eskifirði nýtt hús við hlið- ina á gamla húsinu hans afa. Edda var hlédræg að eðlisfari og yfir henni var ætíð mikil ró. Þótt oft gæfi á lífsbátinn tók hún því með æðruleysi. Milli fjölskyldna bræðranna þriggja voru góð fjölskyldutengsl. Þegar eiginmennirnir fóru suður á vertíð voru konurnar einar heima og mæddi heimili og börn á þeim. Ungu konurnar ásamt móður minni urðu góðar vinkonur, sem studdu hver aðra. Oft var glatt á hjalla! Man ég er ég nýtrúlofuð kom á Eskifjörð og þær komu í heimsókn út á Hól. Ég opnaði forstofuna og öll litlu andlit frændsystkina minna mændu á mig, þá ellefu talsins, átta drengir og þrjár stúlkur. Rúna syst- ir bræðranna hafði slegist í hópinn með sín börn. Edda og Nonni eignuðust fimm drengi og eina stúlku, Guðnýju. Edda hugsaði um sinn stóra barna- hóp með dyggri aðstoð Nonna. Yngsti drengurinn, Andrés, var fjöl- fatlaður. Í þá daga varð fólk að treysta á eigin mátt og megin. Ekk- ert barneignarfrí á launum né aðra aðstoð var að fá í samfélaginu. Þeg- ar Guðný, næstyngsta barnið, var sex ára var hún eitt sinn spurð, hvort henni fyndist ekki leiðinlegt að bróðir hennar gæti ekki gengið. Leit hún framan í konuna og sagði einungis: Hann er fatlaður. Börn eru rökvís og sýna oft mikinn skiln- ing á lífinu. Þegar heimili fyrir fatlaða var komið á fót á Egilsstöðum að Von- arlandi dvaldi Andrés þar síðustu ár ævi sinnar. Edda og Nonni áttu erf- itt með að sjá af honum en þarna leið honum vel og lærði hann að tjá sig gegnum Blisskerfi. Gerði hann þá stundum að gamni sínu og bros flæddi um litla andlitið þegar hon- um tókst að gera sig skiljanlegan. Andrés lést á sautjánda ári. Það sem einkenndi Eddu alltaf var innri gleði og friður. Aldrei heyrðist hún kvarta né hallmæla neinum en gladdist af einlægni með okkur þegar vel gekk. Edda var list- ræn í sér og smekkvís og var undra- vert hvernig þessari hæglátu hvunndagshetju tókst að hugsa um svo stórt heimili. Það var alltaf gaman að heim- sækja Eddu og Nonna og nutum við oft gestrisni þeirra. Þau tóku okkur alltaf opnum örmum. Síðastliðið haust héldu niðjar afa, Andrésar Eyjólfssonar, ættarmót sem var vel sótt. Ekki grunaði okk- ur þá að þetta yrði síðasta skiptið sem við værum öll saman. Edda mín, útgeislun þín og góðar minn- ingar munu ávallt lifa með okkur. Stefanía og Erla Eyjólfsdætur. ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Önnumst alla þætti útfararinnar Þegar andlát ber að höndum Arnór L. Pálsson framkvæmdastjóri Ísleifur Jónsson útfararstjóri Frímann Andrésson útfararþjónusta Svafar Magnússon útfararþjónusta Hugrún Jónsdóttir útfararþjónusta Guðmundur Baldvinsson útfararþjónusta Halldór Ólafsson útfararþjónusta Ellert Ingason útfararþjónusta

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.