Morgunblaðið - 21.05.2005, Page 52

Morgunblaðið - 21.05.2005, Page 52
52 LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Erla GuðlaugSigmarsdóttir fæddist í Vestmanna- eyjum 11. október 1942. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 11. maí síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru Sig- mar Guðmundsson, sjómaður og útgerð- armaður frá Norð- firði, f. 28. ágúst 1908, d. 4. júlí 1989, og Þórunn Júlía Sveinsdóttir, hús- móðir Vestmanna- eyjum, f. 8. júlí 1894 á Eyrarbakka, d. 20. maí 1962. Albróðir Erlu er Gísli Matthías Sigmarsson, skip- stjóri og útgerðarmaður, f. 9. októ- ber 1937. Hálfsystkini Erlu, sam- mæðra, eru Ingólfur Símon Matthíasson, skipstjóri og útgerð- armaður, f. 17. desember 1916, d. 18. október 1999; Sveinn Matthías- son, útgerðarmaður og matsveinn, f. 14. ágúst 1918, d. 15. nóvember arsson, f. 24. desember 1961, maki Vilborg Friðriksdóttir, f. 23. nóv- ember 1965. Börn: Friðrik Þór, f. 30. september 1989, Erla Rós, f. 2. nóvember 1996, Daníel Már, f. 26. apríl 2000, og Andri Snær, f. 23. nóvember 2004. Faðir Sigmars er Óskar Þórarinsson, útgerðarmað- ur frá Vestmannaeyjum, f. 24. maí 1940. 2) Þórunn Júlía Jörgensdótt- ir, f. 16. desember 1965, maki Ólaf- ur Þór Snorrason, f. 23. ágúst 1968. Börn: Arna Þyrí, f. 28. mars 1997, og Jörgen Freyr, f. 5. janúar 1999. 3) Auðunn Jörgensson, f. 3. júlí 1969, hann á soninn Aron Jörgen, f. 11. ágúst 1991. 4) Laufey Jörgens- dóttir, f. 8. ágúst 1975, maki Jónas Þór Friðriksson, f. 12. ágúst 1970. Erla fæddist á Byggðarenda við Brekastíg 15a í Vestmannaeyjum og ólst þar upp. Lengst af bjó hún síðan við Bröttugötu 17 í Vest- mannaeyjum. Erla gekk í Barna- og Gagnfræðaskóla Vestmanna- eyja. Á yngri árum stundaði hún ýmis verslunarstörf, en lengst af vann hún við fiskvinnslu í Vinnslu- stöð Vestmannaeyja og seinustu árin vann hún í Kertaverksmiðj- unni Heimaey. Útför Erlu verður gerð frá Landakirkju í Vestmannaeyjum í dag og hefst athöfnin klukkan 14. 1998; Óskar Matthías- son, skipstjóri og út- gerðarmaður, f. 22. mars 1921, d. 21. des- ember 1992; Gísli Matthías Matthíasson, f. 7. apríl 1925, d. 27. maí 1933; Matthildur Þórunn Matthíasdótt- ir, húsmóðir, f. 13. júní 1926, d. 6. nóvember 1986. Uppeldisbróðir Erlu er Sigmar Þór Sveinbjörnsson, stýri- maður, f. 23. mars 1946. Systkini Erlu bjuggu öll í Vest- mannaeyjum. Erla giftist 23. desember 1969 Jörgen Nåby, sjómanni og útgerð- armanni, f. í Reykjavík 10. apríl 1940. Foreldrar hans voru Olfert Nåby, píanóleikari frá Reykjavík, f. 13. júní 1903, d. 28. júní 1942, og Laufey Jörgensdóttir, húsmóðir frá Reykjavík, f. 12. desember 1915, d. 24. september 1974. Börn Erlu eru: 1) Sigmar Þröstur Ósk- Elsku mamma, þá er komið að kveðjustund og langar mig að rifja nokkur minningabrot upp sem við áttum saman. Fyrst er að minnast móður þinnar sem þú hélst svo mikið upp á. Þú áttir láni að fagna alla æv- ina að hafa gaman af lífinu; vera með fólki, dansa og hlusta á tónlist. Jörgen ástin þín átti með þér fallegt heimili. Þín brú var í eldhúsinu þar sem oft var fjölmennt í kaffispjalli, spila, taka þátt í gleði og sorg með væntumþykju og auðmýkt. Einnig situr í minning- unni fótboltagangurinn á Bröttó þar sem við ömmu/afa nafna börnin öll brutum nokkrar myndir og styttur sem þú fyrirgafst okkur alltaf. Við munum sárt sakna þín því maður bjóst við að þú fengir tíma til að sjá börnin þín þroskast meira; barna- börnin blómstra og ekki síst að þú hefðir sigur í veikindum þínum. En enginn veit sína ævina en við vitum að þú fylgist með okkur af „balkon“ og strengurinn okkar sem tengdi okkur í upphafi mun alltaf vera til staðar. Erla, góða Erla ég á að vagga þér. Svíf þú inn í svefninn í söng frá vörum mér. Kvæðið mitt er kveldljóð, því kvöldsett löngu er. (Stefán frá Hvítadal.) Þinn sonur Sigmar Þröstur Óskarsson. Elsku mamma mín, sem alltaf varst svo sæt og fín. Svona byrjuðu næstum allar vís- urnar þínar til mín en þú varst svo dugleg að semja góðar vísur. Rosa- lega er gott að eiga þær núna og minnast góðu stundanna með þér. Ég man í eldhúsinu á Bröttugötunni hvað það var oft gaman hjá okkur, við spil- uðum oft tveggja manna vist og kana. Þegar þú varst að elda matinn þá var hlustað á Vilhjálm Vilhjálmsson eða útvarpsstöðina hjá Bjarna Jón- asar því hann spilaði Eyjalögin eða hressa íslenska tónlist og þá var oft sungið og dansað yfir eldamennsk- unni. Elsku mamma mín, takk fyrir allt, þú varst besta mamman í heiminum, hetjan mín. Guð geymi þig og veri með þér. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Þín dóttir, Þórunn Júlía. Elsku mamma mín. Mikið óskap- lega sakna ég þín og það er sárt að sakna eins og þú sjálf þekkir. Maður er einhvern veginn aldrei fyllilega undirbúinn, sama hversu vel við telj- um okkur vera það. Þú varst búin að berjast hetjulega síðustu mánuði en barst þig einatt vel einsog þú varst vön. Þegar maður lítur til baka eru minningarnar margar og góðar. Fyrst og fremst minnist ég þín fyrir hve þú varst hjartahlý og skemmtileg persóna; sögurnar þínar, söngurinn þinn, frasarnir og uppátækin þín voru algjört met. Umhyggja þín átti sér heldur engin takmörk – þú vildir allt fyrir alla gera, þó sérstaklega þá sem minna máttu sín. Fegurð þín birtist okkur ekki einungis frá sál þinni því þú leist alltaf svo vel út og varst ein- staklega falleg. Svo varstu, mamma mín, líka svo mikill dugnaðarforkur; vannst úti meðan pabbi var á sjó, þvoðir og straujaðir af fjórum íþrótta- krökkum, umbarst allan boltaleikinn á ganginum heima og varst tilbúin með matinn á öllum tímum þegar við komum heim af æfingum og þar voru fiskibollurnar í sérflokki hjá þér. Tónlistin var okkar sameiginlega áhugamál. Mikil ósköp sem við hlust- uðum saman á Villa Vill og Stebba Hilmars, smituðum hvor aðra af dá- læti okkar á söng þeirra. Manstu hvað var gaman er við vorum með okkar eigin útvarpsþátt í eldhúsinu á Bröttó, kynningar milli laga og hringdum til skiptis hvor í aðra til að fá óskalög. Manstu líka þegar við mæðgurnar vorum allar saman, brjálað veður á Stórhöfða og okkur fannst frábær hugmynd að klæða okkur í strandföt og setja upp sólgleraugu. Ji, þú hafðir svo góða kímnigáfu og varst oft á tíð- um svo skemmtilega kæruleysisleg. Þú lagðir mikla áherslu á að vera maður sjálfur, þannig varst þú svo sannarlega – blátt áfram og sagðir þínar skoðanir hreinskilnislega. Mik- ill lærdómur var líka í boðskap þínum um að eltast ekki við dauða hluti held- ur láta miklu frekar drauma sína ræt- ast, því það væri auðvitað meira gef- andi en hitt. Í uppeldi ykkar pabba voru aldrei mikil boð og bönn, þið náðuð einhvern veginn að varpa ábyrgðinni yfir á mann sjálfan og treystuð svo vel, það fannst okkur svo gott. Einnig náðuð þið að byggja upp hjá okkur systkinum góða sjálfsmynd og fyrir það er ég ykkur afar þakklát því hún er svo einkar dýrmæt. Elsku mamma, það er illt að hugsa til þess að ekki skuli maður eyða með þér fleiri stundum – við skildum hvor aðra eitthvað svo vel og nærvera þín var svo notaleg. Það eru svo sann- arlega forréttindi að hafa fengið að eiga svona góða mömmu eins og þig og mikið óskaði ég þess að ófætt barn mitt og Jónasar myndi fá að kynnast ömmu sinni aðeins, en það mun gera það í gegnum minningu þína. Ég veit að ég á eftir að gráta meira næstu daga, finnst þú tekin of fljótt frá okkur. En minning þín lifir í ljósi okkar og hvert tár verður tákn um minningu. Takk fyrir allt, elsku mamma. Guð geymi þig. Þín dóttir, Laufey Jörgensdóttir. Elsku Erla mín, en hvað það er nú skrítið að þú skulir vera farin frá okk- ur. Að hugsa til þess að ég fái aldrei að sjá þig aftur reynist mér erfitt. Þú hefur alltaf reynst mér vel og verið góð amma barna minna. Eins og vorblær vonin hlý vefji þig örmum sínum svo þú megir sjá í því sól á vegum þínum. Elsku Jörgen, Sigmar Þröstur, Þórunn Júlía, Auðunn og Laufey, Guð gefi ykkur styrk í sorginni. Vilborg. Elsku Erla mín. Það er sárt til þess að hugsa að við sjáumst ekki aftur. Frá því að ég kynntist þér fyrst, hef ég alltaf haft orð á því hversu heppinn ég teldi mig vera að eiga svona frá- bæra tengdamömmu. Þú tókst mér svo vel alveg frá upphafi og er ég þér mjög þakklátur fyrir það. Það var í ófá skiptin, þegar við Laufey komum í heimsókn til ykkar Jörgens, að þú kallaðir í mig og bauðst mér einn kaldan og fékkst þér þá stundum einn líka mér til samlæt- is. Söng- og danshæfileikarnir þínir voru oft virkjaðir og þá oftast með lögunum hans Villa Vill. En nú ertu farin og við sjáumst ekki framar, en minning þín mun lifa áfram. Það er sárt fyrir okkur Laufeyju að vita til þess að þú verðir ekki hér til þess að sjá ófætt barn okkar, en við munum gera allt sem við getum til þess að það fái að kynnast því hversu yndisleg manneskja þú varst. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Elsku Laufey mín, Jörgen, Sigmar Þröstur, Þórunn og Auðunn. Megi guð gefa ykkur styrk á þessum sorg- artímum. Jónas Þór Friðriksson. Erla Sigmarsdóttir, frænka mín og uppeldissystir, er látin aðeins 62 ára gömul. Hún átti við erfið veikindi að stríða síðustu árin. Erla fæddist á Byggðarenda sem stendur við Brekastíg 15a í Vest- mannaeyjum. Til gamans má geta þess að Erla var stærst allra mey- barna í Eyjum á sínum tíma, 25 merkur, og var móðir hennar, Þórunn Sveinsdóttir, 49 ára gömul þegar hún ól hana. Við 12 ára aldur fluttist Erla með fjölskyldu sinni að Sunnuhvoli við Miðstræti og þar bjó hún unglings- árin og þangað til hún byrjaði sjálf búskap. Mér er minnisstætt hve Erla var alltaf létt og skemmtileg sem ung- lingur, hún hafði gaman af dansi og var sjálf góður dansari. Hún sótti böllin vel þegar hún hafði aldur til og mér er það eftirminnilegt sem smá- peyja að fylgjast með því þegar hún undirbjó sig fyrir tjúttið um kvöldið, laus og liðug þá. Sett var kröftug rokktónlist á fóninn og Erla notaði hurðirnar á Sunnuhvoli fyrir dans- herra, hún tók um báða hurðarhún- ana og dillaði sér sitt á hvað, sneri sér svo eldsnöggt í hring og greip svo aft- ur í húnana. Erla fór snemma að vinna eins og flestir unglingar í Eyjum. Hún vann mikið í fiski og þótti hörkudugleg við öll þau verk sem hún tók sér fyrir hendur. Sem táningur fór hún til Reykja- víkur í vist til frænku sinnar og síðar vann hún um tíma sem þjónustu- stúlka á Hressingarskálanum í Reykjavík. Einnig vann hún á þess- um árum við verslunarstörf í Eyjum. Meðan börn hennar voru ung vann hún við heimilisstörf, en lengst vann hún við fiskvinnu í Vinnslustöðinni hf. Sú vinna var erfið og eins og oft vill verða með fólk sem er ósérhlífið fór heilsan að bresta. Hún fór þá í léttari vinnu og vann síðustu árin í Vinnslu- stöðinni við þvotta á vinnufötum. Á Þorláksmessu 1969 giftist Erla góðum manni, Jörgen Nåby. Þau bjuggu fyrst á Reynifelli við „Reglu- braut“ í lítilli íbúð. Eftir nokkur ár, þegar fjölskyldan stækkaði, keyptu þau stærri og betri íbúð á Herjólfs- götu 9. Þar áttu þau Erla og Jörgen fallegt heimili þar sem ríkti góður andi. Við hjónin vorum tíðir gestir þar, enda skemmtilegt að umgangast þessa fjölskyldu. Oftast var stutt í grín og hlátur. Það er gott að eiga nú þessar góðu minningar. Síðustu árin í Eyjum bjuggu þau Erla og Jörgen á Bröttugötu 17, í góðri íbúð með frábært útsýni yfir bæinn og Heimaklett. Erla hafði oft orð á þessu útsýni þegar við vorum í heimsókn hjá þeim hjónum. Árið 2000 fluttust þau Erla og Jörgen frá Vestmannaeyjum til Þor- lákshafnar og hafa þau búið þar síð- an. Erla var sjálf frændrækin og dug- leg að heimsækja fólk. Hún átti það til að líta inn hjá okkur Kollu á öllum tímum, kom kannski undir miðnótt, bankaði á dyrnar og kom snaggara- leg inn og sagði: „Hæ, ég sá ljós og ætla bara að fá einn kaffibolla og smá- spjall.“ Hún stóð við það, drakk kaffið, reykti kannski eina sígarettu og spjallaði við okkur stutta stund og síðan var hún horfin. Okkur Kollu þótti afar vænt um þessi innlit Erlu því að hún var alltaf létt og skemmti- leg. Við söknuðum oft þessara heim- sókna eftir að við fluttumst frá Eyj- um. Þótt Erla stundaði sjálf ekki íþrótt- ir hafa börn hennar gert það og þeim gengið vel á því sviði, einkum í hand- bolta, og má ég til með að nefna Sig- mar Þröst Óskarsson sem varð lands- frægur markmaður, og systurnar Þórunni og Laufeyju sem voru góðar handboltakonur, enda eru öll systk- inin hörkuduglegt fólk sem fetar í fót- spor foreldra sinna í þeim efnum. Erla var alla tíð ákveðin og hrein- skilin og sagði alltaf meiningu sína umbúðalaust á mönnum og málefnum og var ekki feimin við að gagnrýna það sem henni fannst ósanngjarnt. Hún hafði óvenjusterka réttlætis- kennd og var ávallt tilbúin að standa með þeim sem minna mega sín. Þess vegna átti Erla marga trausta vini sem kunnu að meta hana sem heið- arlega og góða manneskju. Hún var einnig glaðlynd og skemmtileg kona, jafnvel í veikindum sínum gerði hún að gamni sínu og fékk mann til að hlæja í heimsóknartímum á sjúkra- húsinu. Ég veit fyrir víst að margir munu sakna hennar. Erla fór allt of fljótt. Við Kolla og fjölskylda okkar þökk- um henni góða samferð. Minning um góða vinkonu og frænku lifir með okkur. Við biðjum Guð að blessa Jörgen, Sigmar Þröst, Þórunni, Auðun og Laufeyju þegar þau kveðja nú í sökn- uði elskulega eiginkonu og móður. Sigmar Þór. Elsku Erla amma, við viljum kveðja þig með þessum bænaversum: Láttu nú ljósið þitt lýsa upp rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaður Jesús mæti. (Höf. ók.) Ég fel í sérhvert sinn sál og líkama minn í vald og vinskap þinn vörn og skjól þar ég finn. (Hallgr. Pét.) Amma er best í heimi. Kveðja. Friðrik Þór, Aron Jörgen, Erla Rós, Arna Þyrí, Jörgen Freyr, Daníel Már og Andri Snær. 11. maí, á lokadegi vetrarvertíðar, andaðist vinkona mín Erla Sigmars- dóttir, fædd og uppalin í Vestmanna- eyjum. Ég kynntist Erlu fyrst sumarið 1961 er hún gekk með elsta barn sitt, Sigmar Þröst, bróðurson minn. Síðan þá hefur vinátta okkar haldist og aldrei borið skugga á. Þau tímabil sem ég ekki bjó í Eyjum gengu gömlu góðu sendibréfin á milli, síðan símtöl og heimsóknir á báða bóga. Börnin okkar urðu góðir vinir og eru það enn í dag. Erla var með afbrigðum skemmti- leg kona, söngelsk og oftar en ekki er maður bankaði upp á hjá henni hljóm- uðu lögin með Ellý og Vilhjálmi um allt hús og hún tók svo sannarlega undir. Einnig hafði hún svo sérstaka frásagnarhæfileika að unun gat verið að hlusta er hún var í því stuði. Man ég margar stundir við eldhúsborðið heima hjá annarri hvorri okkar ásamt vinkonum að grípa þurfti til eldhús- rúllunnar, því það var hreinlega grát- ið af hlátri af frásögnum og hnyttnum svörum hennar. Erla tók líka þátt í erfiðleikum lífs- ins ef hún vissi að einhver átti erfitt. Þá var hún fyrst á staðinn að bjóða aðstoð sína. Alveg er ég viss um að það eru fleiri sem muna hana berandi fisk, nýtt slátur eða heimabakaðar kökur á milli húsa og sagði um leið og hún gaf að hún hefði gert svo mikið af þessu. Svona var hún. Vildi öllum gott gera. Erla mín, þetta var skemmtilegt tímabil í Eyjum á þessum árum og eigum við vinkonurnar sem kveðjum þig í dag óteljandi minningar um þig. Því hagaði þannig til að þú fluttist til Þorlákshafnar og mig grunar að þú hafir alltaf saknað Eyjanna, enda fórstu þangað meðan heilsan leyfði í heimsóknir til barna og barnabarna. En því miður var heilsan orðin það slæm að þú treystir þér ekki þegar yngsta barnabarn þitt var skírt eða í fermingu elsta barnabarns þíns síð- astliðið vor. Ég veit að þér þótti það miður þó ekki værir þú að kvarta. Ég er þakklát fyrir að hafa getað komið til þín og fylgst með þér í þín- um erfiðu veikindum og stundina sem ég fékk með þér rétt áður en þú kvaddir. Jörgen, börnum og barnabörnum sendi ég og fjölskylda mín innilegar samúðarkveðjur. Erla mín, ég ætla að enda þetta eins og þú endaðir síðasta jólakortið til okkar: Ég elska ykkur öll. Ásta Þórarinsdóttir. Kær frænka mín og vinkona, Erla Sigmars, er fallin frá langt um aldur fram. Erla fæddist og ólst upp í Vest- mannaeyjum, dóttir hjónanna Þór- unnar Júlíu Sveinsdóttur frá Ósi á Eyrarbakka og Sigmars Gíslasonar frá Miðbæ í Norðfirði. Þórunn var ömmusystir mín. Þeg- ar foreldrar mínir byrjuðu búskap var það í einu herbergi og eldhúsi í húsi þeirra hjóna „Byggðarenda“ við Brekastíg, og þar fæddumst við Erla með tveggja ára millibili. Við urðum vinkonur strax sem börn og hélst sú vinátta alla tíð. Við áttum það til að stríða hvor annarri, en allt í góðu. Ég man þegar við vorum í gagnfræðaskólanum þá urðum við oft samferða í skólann. Stundum bað ég þig að halda á skóla- töskunni fyrir mig á meðan ég setti á mig vettlingana. Svo spjallaði ég um alla heima og geima og þú gleymdir þér og hélst alltaf á töskunni, en þú reiddist mér ekkert, hlóst bara með ERLA SIGMARSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.