Morgunblaðið - 21.05.2005, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2005 61
DAGBÓK
FRÍMERKJAKAUP
Notuð íslensk frímerki á pappír óskast. Klippið frímerkin
af umslögunum og sendið þau til okkar. Við borgum ca
2 krónur á stk., upp að ca 10 þúsund kg.
Scandinavian Philatelic Company
P.O. Box 61, DK-3940 Paamiut, Grænland.
OPIÐ HÚS!
Sími 595 9000
Grafarvogsbúar ath. að skrifstofan í
Hverafold er opin alla virka daga
og síminn er 595 9082.
verður í Sæviðarsundi 90
laugardag og sunnudag milli
kl. 13 og 15
Frábær staðsetning og gott tæki-
færi að eignast einbýlishús á
Reykjavíkursvæðinu. Húsið er
207 fm með innbyggðum bílskúr.
Ræktaður skjólgóður garður og
stór sólstofa með heitum nudd-
potti og sturtu. Arinn í stofu.
Upplýsingar um húsið gefur Margrét Sölvadóttir
á staðnum og í síma 693 4490.
Franz Jezorski, hdl. og
lögg. fasteignasaliAPÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
Góð heilsa gulli betri
Nissan Pathfinder
árg. 2003, sjálfskiptur,
cruisecontrol, rafmagn í
rúðum, álfelgur o.fl.
Ekinn 14 þús. km.
Verð 3,2 millj.
Sími 898 2128.
TIL SÖLU NISSAN PATHFINDER
Skógræktarfélag Mosfellsbæjar fagnaði ígær 50 ára afmæli, en það var stofnað20. maí árið 1955. Formaður félagsins erElísabet Kristjánsdóttir og hefur hún
gegnt embættinu undanfarin tvö ár.
Elísabet segir að í félaginu séu á þriðja hundr-
að félagar sem starfi að skógrækt í sjálfboða-
vinnu. Auk þess fái félagið árlega liðstyrk frá
fermingarbörnum, en þau setji niður plöntur
sem félagið fái frá Landgræðsluskógum. „Mest
hefur verið plantað á skógræktarsvæðinu í
Hamrahlíð, sem félagið fékk að gjöf frá Blika-
staðahjónum árið 1957,“ segir Elísabet. „Félagið
hefur gróðursett plöntur út um allar sveitir og í
sumar stefnir í að milljónasta plantan verði sett
niður hér í Mosfellsbæ.“
Auk Hamrahlíðar hefur Skógræktarfélag Mos-
fellsbæjar meðal annars ræktað upp land í Þor-
móðsdal, Lágafelli, Æsustaðahlíð, Minna-
Mosfelli, Reykjarhvolshlíð og hlíðum Úlfarsfells.
Félagið á part í jörðinni Fossá í Kjós og er með
jólatrjárækt í Brynjudal í Hvalfirði. Að sögn
Elísabetar vann forveri hennar, Guðrún Haf-
steinsdóttir, mikið starf að því að fá land til
ræktunar, en hún var formaður Skógræktar-
félags Mosfellsbæjar í tvo áratugi. Tveir aðrir
hafa gegnt formennsku í félaginu.
„Meðal fastra viðburða í starfi Skógræktar-
félagsins er svonefndur skógardagur sem hald-
inn er árlega í byrjun júní, en þá koma félagar
saman í Hamrahlíð eða Lágafelli og gróðursetja.
Fyrir jólin stöndum við fyrir jólatréssölu og
njótum þá aðstoðar skáta, sem fá í staðinn að
nota sumarhúsið okkar við Hafravatn yfir vetr-
artímann. Allir eru mjög ánægðir með þessi
skipti.“
Elísabet segir skógræktarsvæðið í Hamrahlíð
við Vesturlandsveginn mjög vinsælt útivistar-
svæði. „Þar er mesti skógurinn, enda hefur verið
gróðursett þar frá 1957, og þar af leiðandi mesta
lognið. Í Hamrahlíð má finna 41 tegund af trjá-
plöntum og við erum því komin með vísi að trjá-
safni. Ætlunin er að koma einnig upp trjásafni í
Lágafelli.“
Formaðurinn er ekki í vafa um gildi skógrækt-
ar. „Ef ræktaður væri meiri skógur þá myndi
umhverfishitinn verða hærri, lognið meira og
mannlífið betra. Meiri skógur þýðir meira skjól
og það veitir nú ekki af í rokinu hér á landi. Við
vonumst til að öll fell í Mosfellsbæ verði umvafin
trjágróðri, það er framtíðarstefnan.“
Í tilefni afmælisins var efnt til veislu í Harð-
arbóli í Mosfellsbæ í gær. Við það tækifæri var
opnuð heimasíða félagsins, þar sem finna má
upplýsingar og fréttir, auk hlekkja á síður ann-
arra skógræktarfélaga. Slóðin er www.skogmos-
.net.
Skógrækt | Fimmtíu ára starf í Mosfellsbæ
Meiri skógur, meira skjól
Elísabet Kristjáns-
dóttir er fædd 3. ágúst
1939 í Fremri Hnífsdal í
Norður-Ísafjarðarsýslu.
Hún lauk húsmæðra-
kennaraprófi frá Hús-
mæðrakennaraskól-
anum árið 1963 og
hefur starfað sem
kennari við gagnfræða-
skólann í Mosfellsbæ
frá árinu 1984. Elísabet
er gift Sveini Frímannssyni og eiga þau fjögur
börn.
Snjöll vörn.
Norður
♠ÁD103
♥98 A/NS
♦KD95
♣1072
Vestur Austur
♠5 ♠G94
♥KD1065 ♥Á72
♦86432 ♦7
♣53 ♣ÁDG964
Suður
♠K8762
♥G43
♦ÁG10
♣K8
Menn komast langt á því við spila-
borðið að taka slagina sína í vörninni,
en sannir meistarar ganga feti fram-
ar – ná niður óhnekkjandi samn-
ingum.
Vestur Norður Austur Suður
-- -- 1 lauf 1 spaði
Dobl * 4 spaðar Pass Pass
Pass
* neikvætt dobl – lofar hjartalit
Fjórir spaðar er góður samningur,
sem virðist öruggur í legunni, því
ekki er að sjá að vörnin fái meira en
tvo slagi á hjarta og einn á laufás. En
snjall varnarspilari gæti gert sagn-
hafa erfitt fyrir.
Útspil vesturs er hjartakóngur.
Hvaða vörn gæti komið í veg fyrir
að suður næði tíu slögum?
Prófum þetta: Austur yfirdrepur
hjartakónginn og leggur niður laufás.
Spilar svo hjarta til vesturs, sem enn
kemur með hjarta.
Setjum okkur nú í spor suðurs.
Spilamennska austurs bendir til að
hann hafi byrjað með ásinn annan í
hjarta, en það þýðir að hættan á yf-
irstungu er alvarleg. Sagnhafi gæti
því látið sér detta í hug að stinga frá
með ás og treysta á spaðann 2-2 (eða
gosann blankan). En það mun kosta
hann slag og samninginn.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson |
dagbok@mbl.is
Léleg þjónusta Símans
ÉG er ein af þeim sem hafa verið
með ADSL-áskrift í nokkur ár. Fyr-
ir stuttu fluttist ég búferlum í
Hvarfahverfi við Vatnsenda og bað
um flutning á síma og ADSL.
Það tók 5 daga að fá símann flutt-
an en nú tveimur vikum síðar er ég
ekki enn komin með ADSL. Svo
virðist sem ekki hafi verið gert ráð
fyrir að íbúar í þessu nýja hverfi
væru nettengdir því eftir því sem ég
heyrði frá starfsmönnum var ekki
búið að ganga frá ADSL fyrir hverf-
ið.
Mikið er búið að reka á eftir þess-
um flutningi því heimilisfólk notar
Netið mikið, m.a. í sambandi við
vinnu og kemur þetta sér mjög illa.
Við eftirrekstur á þessum flutn-
ingi hef ég hringt nokkrum sinnum í
Símann og er vægast sagt orðin
þreytt á símaþjónustu þess fyr-
irtækis, sem er fyrir neðan allar
hellur. Einn daginn þegar ég þurfti
að ná í þjónustufulltrúa vegna þessa
máls var ég númer 3 í röðinni og beið
í 12 mínútur eftir að komast að. Þeg-
ar ég komast að var ég send á annan
og aftur var ég númer 3 í röðinni og
beið í 10 mínútur þar til viðkomandi
starfsmaður svaraði. Sem sagt 22
mínútur þar til ég náði í starfsmann
sem gat svarað mér. Var mér þá lof-
að að Netið yrði komið á seinnipart-
inn. Ekki stóðst það frekar en annað
og því er ég sest við símann daginn
eftir til að fá skýringar.
Þegar þetta er skrifað bíð ég á lín-
unni, var númer 10 í röðinni kl.
10.03, kl. 10.10 var ég númer 9 í röð-
inni og enn bíð ég kl. 10.15 – ennþá
númer 9 í röðinni og sé fram á að
þurfa að bíða til hádegis eftir af-
greiðslu.
Finnst mér það kaldhæðnislegt að
símaþjónusta Símans skuli vera sú
versta á landinu því hvergi hef ég
lent í annarri eins þjónustu og eru þó
mörg fyrirtæki ekki til fyrirmyndar.
Já, og nú er klukkan 10.20 og ég
er númer 8, jibbí!
Íbúi í Hvarfahverfi.
Pétur páfagaukur er týndur
PÉTUR, páfagaukurinn okkar,
flaug út frá Álfatúni 27, Kópavogi 15.
maí sl. Hans
er sárt sakn-
að. Hann er
líklegur til að
fljúga inn um
glugga eða
svaladyr.
Hann er
skrafhreifinn
og segir
nafnið sitt.
Ef einhver
verður hans
var þá vin-
samlega látið vita í síma 862 9050.
Grænn gári týndist
GRÆNN gári týndist 11. maí sl. frá
Framnesvegi í Vesturbænum. Þeir
sem hafa orðið hans varir hafi sam-
band í síma 552 3982 eða 690 6786.
Blátt drengjahjól týndist
BLÁTT 16" hjól með svörtum brett-
um, bögglabera, standara og gulum
lás og bjöllu hvarf frá Eggertsgötu 6
sl. miðvikudag. Þeir sem vita um
hjólið hafi samband í síma 659 1701.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Gullbrúðkaup | Í dag, 21. maí, eiga 50
ára brúðkaupsafmæli hjónin Einar
Gunnarsson, málarameistari og Elín
Sigurrós Sörladóttir. Á þessum merk-
isdegi að njóta þau samverustunda
með oddfellowbræðrum á Flúðum.
75 ÁRA afmæli. Í dag, 21. maí, er75 ára Þórarinn Óskarsson,
hljómlistarmaður og fyrrverandi
deildarstjóri hjá Varnarliðinu, Eið-
istorgi 15, Seltjarnarnesi. Þórarinn
dvelur erlendis um þessar mundir.
ÞESSA dagana stendur yfir
málverkasýning til minn-
ingar um Karl Theódór Sæ-
mundsson í Eden í Hvera-
gerði sem lést í fyrra.
Í fréttatilkynngu um lista-
manninn segir: „Hugur hans
hneigðist snemma til list-
sköpunar og byrjaði hann
ungur að teikna og mála auk
þess sem hann mótaði í leir
og skar í tré.
Lærði hann tréskurð hjá
Ríkharði Jónssyni auk þess sem góðvinir hans Einar Jónsson mynd-
höggvari og Jóhannes Sveinsson Kjarval listmálari höfðu djúp áhrif á
listsköpun hans.“ Karl lærði húsasmíði og starfaði lengst af sem bygg-
ingameistari og síðar sem kennari við Iðnskólann í Reykjavík. Hann
sótti ýmis námskeið bæði í teiknun og málun og hélt málverkasýningar
bæði í Bogasalnum og Ásmundarsal. Sýningin í Eden stendur til 31.
maí.
Sýning í Eden
Á MORGUN, 22. maí, kl. 14 opn-
ar Auður Vésteinsdóttir einka-
sýningu í Heimilisiðnaðarsafninu
á Blönduósi. Sýningin ber heitið
Straumur og hafa myndverkin
ekki verið til sýnis áður. „Und-
anfarin ár hefur fossandi vatn í
fjallalækjum og farvegir sem
vatn mótar verið viðfangsefni
hennar. Nú fer hún nær iðandi
straumnum í vatnsfallinu í verk-
um sínum. Hrosshár er megin-
efniviðurinn í verkunum en
hrosshárið notar hún til að túlka
straum vatnsins,“ segir í frétta-
tilkynningu um verkin.
Auður er menntuð frá Mynd-
lista- og handíðaskóla Íslands og
myndlistarkennari frá Kenn-
araháskóla Íslands.
Hún hefur starfað lengi við
myndlist og tekið þátt í ótal sýn-
ingum og er þetta tíunda einka-
sýning hennar.
„Straumur“ á Blönduósi
Heimilisiðnaðarsafnið Árbraut 29 Blönduósi er opið alla daga frá 1. júní
til 31. ágúst kl. 10:00 til 17:00. www.simnet.is/textile.