Morgunblaðið - 21.05.2005, Side 65

Morgunblaðið - 21.05.2005, Side 65
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2005 65 APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR Góð heilsa gulli betri Lesendur tískublaða ættu aðhafa tekið eftir því að alltafer að aukast að kvikmynda- stjörnur og annað frægt fólk auglýsi hinar og þessar vörur. Helstu tísku- hús hafa nú keppst við að fá stærstu stjörnurnar í auglýsingaherferðir og eru þær mjög áberandi um þess- ar mundir. Sú hugsun hvarflar að manni að hætt sé við því að vinnan hjá fyrirsætunum dragist saman vegna þessa. Í júníhefti breska Vogue sést þessi þróun greinilega. Strax glittir í Umu Thurman með Louis Vuitton- tösku, svo má sjá Michelle Pfeiffer með Giorgio Armani-sólgleraugu, Umu Thurman á ný með Tag Heuer- úr og Liv Tyler með Givenchy- ilmvatn þegar aðeins er komið á síðu 41 af 248 í blaðinu. Að vísu er Kate Moss með gleraugu og tösku frá Dior snemma í blaðinu en það telst varla með því hún er orðin meira en fyrirsæta og er orðin fræg fyrir margt annað.    Vel er þekkt að stjörnur legginafn sitt við hinar ýmsu vörur en hátískuhúsin hafa ekki leikið þennan leik fyrr í svo miklum mæli. Valið á stjörnunni fer líka ekki fram með sama hætti og hjá annars konar fyrirtækjum. Þar hefur markaðs- fólk legið yfir valinu vikum eða mánuðum saman og notast við kann- anir og rýnihópa. Hjá tískuhúsunum er innsæið látið ráða en það er stefna sem sumir segja að virki alls ekki. Madonna er út um allt í vor- og sumarherferð Versace en hún var valin til verksins eftir afslappað spjall í matarboði, að því er New York Times upplýsir í fræðandi grein. Söngkonan sat að snæðingi á veitingastaðnum Cipriani í London ásamt Donatellu Versace og Mario Testino, ljósmyndaranum sem hafði tekið myndir af Madonnu í herferð Versace árið 1994, þegar málið kom upp. Þau rifjuðu upp hversu gaman þetta var síðast og ákváðu að end- urtaka leikinn. Markaðsfólk er ekki sammála um ágæti þessa vals. „Þessi herferð hef- ur engan neista. Það er enginn hissa eða fær innblástur af samvinnu Madonnu og Donatellu Versace,“ sagði markaðsfræðingurinn Steven Stoute í samtali við New York Tim- es. Enda virðist dæmið ekki vera að ganga upp og orðrómur er um að Demi Moore taki við af Madonnu hjá Versace. Samt sem áður er talið ljóst að stjörnurnar séu áhrifameiri í her- ferðum en fyrirsætur og viðkom- andi merki festist betur í huga al- mennings með slíkum stuðningi. Hvað tískuheiminn varðar var þessi tækni óþekkt fyrir um fimm árum eða svo og svokallað fólk á A-lista var ekki spennt fyrir því að taka að sér fyrirsætustörf. Slík aukavinna var litin hornauga og óttuðust stjörnurnar að það liti út fyrir að þær væru að reyna að bjarga hnign- andi ferli.    Farsælasta samvinnan millifræga fólksins og ákveðinna merkja er þegar persónuleiki stjörnunnar samrýmist þeirri ímynd sem fyrirtækið vill gefa frá sér. Uma Thurman er til dæmis fáguð en samt sem áður óútreiknanleg, sem er sama ímynd og Louis Vuitton hefur þróað. Michelle Pfeiffer er dularfull og glæsileg á hæverskan hátt, sem er nákvæmlega þau skilaboð sem Giorgio Armani vill gefa frá sér. Hérlendis er þekkt fólk farið að sitja fyrir í auknum mæli. Gott dæmi um það er opnuauglýsing Lands- banka Íslands með Selmu Björns- dóttur í Evróvisjónblaði Morg- unblaðsins. Þar setur Selma sjálfa sig í fyrsta sætið og eyðir þess vegna í sparnað. Reyndar vann hún ekki Evróvisjón en hún er ákveðin og þann eiginleika þurfa þeir sem eru að spara vissulega að hafa. Frægt fólk situr fyrir ’Farsælasta samvinnanmilli fræga fólksins og ákveðinna merkja er þegar persónuleiki stjörnunnar samrýmist þeirri ímynd sem fyrir- tækið vill gefa frá sér.‘ AF LISTUM Inga Rún Sigurðardóttir Michelle Pfeiffer í auglýsingu fyrir Giorgio Armani en hún er dularfull og glæsileg líkt og Armani. ingarun@mbl.is MIÐASALA á tónlistarhátíðina Reykjavík rokkar, Reykjavík Rocks, hefst í dag klukkan 11 og fer fram í verslunum 10-11 í Lágmúla, Austur- stræti og Akureyri. Í dag verða ein- ungis til sölu miðar sem gilda á bæði kvöld hátíðarinnar og þá í fremra áhorfendasvæðið, en sem kunnugt er fer hátíðin fram í Egilshöll 30. júní, þegar Duran Duran spilar, og 5. júlí, þegar Foo Fighters og Queens of the Stone Age spila. Í fyrramálið kl. 11 hefst svo al- menn miðasala á stökum miðum á hátíðina, í öllum verslunum 10-11. Miðasala á Reykjavík rokk- ar hefst í dag Dave Grohl, höfuðpaur rokksveit- arinnar Foo Fighters. Læknar hafa staðfest að brjósta-krabbamein sem hrjáir ástr- ölsku söngkonuna Kylie Minogue hafi ekki dreift sér til annarra lík- amshluta. Þá bendir allt til þess að læknar hafi náð að fjarlægja meinið í skurðaðgerð sem hún gekkst undir í gær og að hún þurfi því ekki að gangast undir lyfjameðferð sem gæti ógnað möguleikum hennar á að eignast börn. Hún mun þó eftir sem áður þurfa að gangast undir fimm vikna geislameðferð. Fólk folk@mbl.is ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.