Morgunblaðið - 21.05.2005, Page 66

Morgunblaðið - 21.05.2005, Page 66
66 LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 10, 12, 2 og 4 m. ísl talikl. 12 og 3.40 m. ísl tali HL mbl EINSTÖK UPPLIFUN ÍSLENSK TÓNLIST Í 1000 ÁR Sýnd kl. 6 og 8 KINGDOM OF HEAVEN ORLANDO BLOOM  HL mbl l  HL mbl l kl. 8, 11, 2, 5, og 11 B.I 16 ÁRA   SK.dv  HL mbl  SK.dv Miðasala opnar kl. 7.30 kl. 10 og 00.15 e.miðnætti B.I 12 ÁRA kl. 9, 12, 3, 6, 9 og 00 á miðnætti Skráðu þig á bíó.is Sýnd kl. 1.50 og 8 Sýnd kl. 5.20 B.I 16 ÁRA EINSTÖK UPPLIFUN ÍSLENSK TÓNLIST Í 1000 ÁR KINGDOM OF HEAVEN ORLANDO BLOOM „Allt sem maður getur mögulega viljað í Star Wars-mynd og rétt rúmlega það“ Tómas Valgeirsson, kvikmyndir.is 1/2 „Lucas tekst það sem Stjörnustríðsaðdáendur vonuðu: Að loka hringnum með glæsibrag“ Sæbjörn Valdimarsson, MBL „ “ , . „ : “ , STJÖRNUSTRÍÐ ER HAFIÐ! Sýnd í Smárabíói kl. 8, 10, 11, 1, 2, 4, 5, 7, 8, 10 og 11 „Revenge of the Sith er áhrifamesta Star Wars myndin síðan The Empire Strikes Back gerði allt vitlaust árið 1980. Dramatíkin og slagkrafturinn í þessum magnaða lokakafla er með ólíkindum. Máttur Lucasar er mikill og hér eyðir hann engum tíma í óþarfa kjaftæði. Þetta er einfaldlega 100% Star Wars.“ Þórarinn ÞóraRinsson, Fréttablaðið  „ . . . .“ , 8, 10 og 12 miðnæturkraftsýning 12, 2.40, 5.20, hádegiskraftsýning b.i. 10 ára Sýnd í Borgarbíói kl. Cannes | ENGIN meistaraverk en heldur eng- ir bömmerar voru afhjúpaðir í aðalkeppninni á Kvikmyndahátíðinni í Cannes að þessu sinni. Það virðist vera samdóma álit helstu kvikmyndamiðlanna sem fylgjast náið með gangi mála á hátíðinni; Variety, Screen Int- ernational og The Hollywood Reporter m.a. Menn sakna sárt einhverra framúrskarandi mynda en þakka sínu sæla fyrir að hafa ekki þurft að sitja undir neinni mynd á borð við Brown Bunny, sem nær drap langflesta blaða- menn í Cannes úr leiðindum er hún var sýnd í aðalkeppninni 2002. Þetta virðist því vera ár miðjumoðsins, þar sem reynsluboltarnir virð- ast hafa haft betur en nýgræðingarnir, en myndir eftir þá fáu ungu kvikmyndagerð- armenn sem komust inn í aðalkeppnina hafa almennt valdið mönnum vonbrigðum. Ef einhver ein mynd þykir sigurstranglegri en aðrar á kvikmyndahátíðinni í Cannes þá er það mynd hins þýskættaða Austurríkismanns Michael Haneke, Caché, eða Falinn. Hún hef- ur í heildina fengið hvað besta dóma gagnrýn- enda sem telja hana margir hverjir hans sterkustu í langan tíma, jafnvel sumpart sterkari en hina umdeildu Píanókennarinn, sem færði honum dómnefndarverðlaun í Cannes árið 2001. Í henni leika Daniel Auteuil og Juliette Binoche vel sett hjón sem fá óþægilega heimsókn úr fortíð hans, sem á eft- ir að raska rækilega öruggri tilveru þeirra. Myndin er um margt aðgengilegri en fyrri verk Haneke. Hún er sálfræðitryllir með óvæntum pólitískum undirtón og ádeilubroddi sem tengist viðhorfi Vesturlandabúa í garð innflytjenda. Einnig hefur fengið góða dóma mynd Jims Jarmusch, Broken Flower (Visið blóm), með Bill Murray í hlutverki miðaldra piparsveins sem leitar uppi gamlar kærustur sínar eftir að hafa fengið veður af því að hann ætti uppkom- inn son. Belgíska smámyndin L’Enfant (Barnið) eft- ir Dardenne-bræður hefur hrifið marga gagn- rýnendur en hún fjallar á áhrifaríkan hátt um ungan mann í lægsta þrepi samfélagsins sem ákveður að selja nýfætt barnið sitt fyrir smá- aura. Í umsögnum um nýjustu og aðgengilegustu mynd Davids Cronenbergs, spennutryllinn A History of Violence, segir að Cronenberg hafi ekki verið í svo góðu formi í lengri tíma og hefur Viggo Mortensen fengið sérstaklega mikið lof fyrir frammistöðu sína í aðal- hlutverkinu. Hafa sumir blaðamenn því lýst yfir að Cronenberg eigi einhver verðlaun skil- ið. Svo þorir ekki nokkur að afskrifa Lars Von Trier þegar að verðlaunum í Cannes kemur; jafnvel þótt mynd hans Manderlay hafi fengið misjafna dóma og blendnar viðtökur gesta í Cannes. Síðan verður ekki hjá litið að þótt áhorfendur – og flestir gagnrýnendur – hafi átt í mesta basli með að sitja undir hinni erf- iðu endursköpun Gus Van Sants á síðustu dögum Kurts Cobains í myndinni Last Days, þá eru þeir til sem ekki halda vatni yfir þess- ari ljóðrænu og óvenjulegu nálgun leikstjór- ans. Umsagnir hafa enn ekki birst um hina áhrifaríku mynd Tommy Lee Jones The Three Burials of Melquades Estrada. En mið- að við fyrstu viðbrögð við mynd Wims Wend- ers, Don’t Come Knocking, þá virðist hún eiga lítinn séns, eins og mynd Atoms Egoyans Where The Truth Lies með Kevin Bacon og Colin Firth, sem fengið hefur mjög misjafna dóma. Sin City virðist ekki falla eins vel í kramið í Evrópu og hún gerði vestanhafs og þótt hún þyki mikið tæknilegt afrek þá tala fagritin um að hún sé yfrið léttvæg fyrir Cannes. Kvikmyndahátíðinni í Cannes lýkur form- lega á morgun en verðlaunaafhending fer fram í Hátíðarhöllinni í kvöld. Kvikmyndir | Reynsluboltarnir sagðir sigurstranglegir í Cannes Haneke og Jarmusch þykja heitir Eftir Skarphéðin Guðmundsson skarpi@mbl.is Nánar er velt vöngum yfir aðalkeppninni á Kvikmyndahátíðinni í Cannes í Sjónarhorninu sem er að finna í Lesbók Morgunblaðsins í dag. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Lars Von Trier er alltaf í uppáhaldi í Cannes en Willem Dafoe og Danny Glover leika tvö stærstu aðalhlutverkin í mynd hans, Manderlay, en hún hefur fengið misjafna dóma. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Viggo Mortensen skartar nú forláta yfirvar- arskeggi vegna vestra sem hann er að leika í.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.