Morgunblaðið - 21.05.2005, Qupperneq 68

Morgunblaðið - 21.05.2005, Qupperneq 68
68 LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ EUROVISION-keppnin hefur tekið stöðugum breytingum í gegnum ár- in, þjóðunum sem keppa hefur fjölgað mikið sem kallað hefur á breytingar á keppnisreglum en einnig hafa reglurnar breyst í takt við tíðarandann og sumt það sem var skylda á árum áður, eins og til að mynda að keppendum var óheimilt að hreyfa sig á sviðinu, þykir hlægilegt í dag. Hneykslismálin eru mörg sem komið hafa upp í Eurovision í gegnum ár- in þótt þau þyki flest létt- væg og jafnvel hlægileg í dag. Það vakti til að mynda mikla hneykslan hve illa tókst til með atkvæða- greiðslu Norðmanna í London 1963 og þurfti norska dómnefndin að greiða atkvæði aftur. Í Lúxemborg 1966 varð uppþot þegar ítalski þátt- takandinn, Domenico Mo- dugno, strunsaði af svið- inu á aðalæfingu vegna þess hve hljómsveitin var léleg. Mikla hneykslun vakti þegar spurðist að Katie Boyle, kynnir í Lundúnum 1974, hefði ekki verið í neinu innanundir níðþröngum kjólnum. Frakkar voru nálægt því að vera vísað úr keppni þegar í ljós kom í keppninni í París 1978 að franska lagið var gefið út þar í landi tveim- ur árum fyrir keppnina. Ef þeir hefðu sigrað hefðu þeir verið svipt- ir verðlaununum. Álíka kom upp á í Dyflinni 1988 þegar í ljós kom að lag Kýpur hafði verið gefið út löngu fyrir keppnina. Kýpurbúar drógu sig úr keppni til að komast hjá þeirri nið- urlægingu að vera vísað úr henni. Spillingarmál varð til þess að keppnin á Ítalíu 1991 var færð til Rómar á síðustu stundu frá San Remo. Fleira þótti hneykslanlegt við keppnina á Ítalíu 1991: Ítölsku kynnarnir átti í miklum erfið- leikum við að gera sig skiljanlega á öðrum tungumálum en móðurmál- inu. Atkvæðagreiðslan var jöfn fram undir það síðasta þegar talið var hversu oft hver þjóð hefði fengið tólf eða tíu stig. Þegar ljóst varð að Carola hin sænska hefði sigrað heyrðist í beinni útsendingu er umsjónarmaður talningarinnar sagði: „Þetta þýðir að litla nornin hefur unnið.“ Pólska söngkonan Edyta Górni- ak gerði allt vitlaust þegar hún söng lag sitt á ensku í Dyflinni 1994, en það var þá bannað – syngja átti á opinberu máli hvers lands. Sex þjóðir kröfðust þess að Pólverjum yrði vísað úr keppni, en þar sem þrettán þurfti til fengu Pólverjar að halda áfram og hrepptu annað sætið. Framkoma Páls Óskars Hjálmtýssonar í Dyflinni 1997 hneykslaði marga og Terry Wogan, Eurovisi- onþulur breska ríkis- útvarpsins til fjölda ára, lét þau orð falla á meðan á laginu stóð að Eurovisi- on yrði aldrei samt. Hann sagði einnig undir lok lagsins: „Ég vona að mamma þín sé ekki að horfa á þetta“ og beindi þeim orðum til áheyr- enda, en hann var já- kvæður í garð lagsins. Þess má geta að Páll Ósk- ar fékk hátt í helming stiga sinna frá Bretlandi sem var með almenna símakosningu í fyrsta sinn. 1998 gekk breski kynn- irinn Ulrika Johnsson fram af hollenskum áheyrendum þegar hún móðgaði dómnefndarformann Hol- lands, Corry Brokken: Brokken lét þau orð falla að hún hefði sungið í Eurovision og Johnsson svaraði að bragði: „Það hlýtur að vera langt síðan.“ Nokkrir áheyrenda púuðu á Johnsson. Deilur spruttu af því í Jerúsalem 1999 að fleiri bakraddasöngvarar voru í söngsveit Króatíu en leyfi- legt var. Ísraelska söngsveitin Ping Pong hneykslaði fyrir það í Stokkhólmi 2000 að keppendur kysstust inni- lega, karlar karla og konur konur, og sýndi síðan sýrlenska fánann í lokin. Rússnesku söngkonurnar t.A.T.u. hneyksluðu fyrir að neita að syngja á æfingum og neita að tala við fréttamenn í Riga 2003. Hneyksli í Eurovision Morgunblaðið/Ásdís Páll Óskar vakti mikla athygli fyrir búninga og fram- komu árið 1997, þegar hann tók þátt í Evróvisjón. ÍTALSKA tískuhönnuðinum Donatella Ver- sace er ekkert mannlegt óviðkomandi. Hér sést hún á kynningu sem haldin var í gær á sérstakri Versace-Mini Cooper-bifreið, en hún verður boðinn upp á 13. árlega Lífs- ballinu („Life Ball“). Ágóðinn rennur til verkefna sem ætlað er að stemma stigu við útbreiðslu HIV-veirunnar. Verkefnin eru í samvinnu Life Ball og AIDS-stofnunar Elt- ons Johns og fer uppboðið fram í dag. Til styrktar eyðnivörnum Reuters Ó.H.T Rás 2 Sláandi sálfræðitryllir eins og hann gerist bestur. Með Óskarsverðlaunahafanum, Adrien Brody (The Pianist) og Keira Knightley úr „Pirates of the Caribbean” og „King Arthur”. Crash kl. 5.50 - 8.10 - 10.30 b.i. 16 The Jacket kl.5.45 - 8 - 10.10 b.i. 16 The Motorcycle Diaries kl. 5.30 - 10.20 The Hitchhikers guide... kl.5.45 - 8 - 10.15 Napoleon Dynamite kl. 8.05 Vera Drake kl. 8 Maria Full og Grace kl. 6 - 10 b.i. 14 Geggjaðasta og frumlegasta grínmynd ársins er komin í bíó.Byggð á einni vinsælustu bók alheimsins eftir Douglas Adams. j l í i i í í . i i i l l i i i l . H.L. MBL  Ó.H.T Rás 2  S.V. MBL Ó.H.T Rás 2  SLÓ RÆKILEGA Í GEGN Á ÍSLANDI, USA OG Á BRETLANDI I Í Í I, I MBL  DV  Í hraða lífsins kemur að því að við rekumst á hvert annað lí i í i Kvikmynd eftir Óskarsverðlaunahafann, Paul Haggis (“Million Dollar Baby”). Sláandi og ögrandi mynd sem hefur fengið einvala dóma. Kvikmynd eftir Óskarsverðlaunahafann, Paul Haggis (“Million Dollar Baby”). Sláandi og ögrandi mynd sem hefur fengið einvala dóma. ROGER EBERT ROLLING STONE ROGER EBERT ROLLING STONE Í hraða lífsins kemur að því að við rekumst á hvert annað
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.