Morgunblaðið - 21.05.2005, Qupperneq 69
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2005 69
Hetja. Þjóðsögn. Svampur
Svampur Sveinsson og félagar eru komnir með sína fyrstu bíómynd.
Með íslensku og ensku tali.
AKUREYRI KEFLAVÍKKRINGLANSýningatímar 20. maí ÁLFABAKKI
Frá þeim sem færðu
okkur Princess
Diaries
og Freaky Friday.
Byggð á
metsölubók
Clive Cussler
Kvikmyndir.is
Ice Princess
Debra Messing Dermot Mulroney i t l
Frábær og léttleikandi
rómantísk gamanmynd
með Debra Messing
úr „Will &Grace“
þáttunum
Fyrsta stórmynd sumarsins
DV
FURÐULEGASTA
ÆVINTÝRI
ALHEIMSINS HEFST
ÞEGAR JÖRÐIN
ENDAR
MBL
SLÓ RÆKILEGA Í GEGN Á ÍSLANDI,
USA OG Á BRETLANDI
ICE PRINCESS kl. 4-6-8
HITCHHIKERS... kl. 6-10
THE WEDDING DATE kl. 8 - 10
SVAMPUR SVEINSSON kl. 4
Star Wars - Episode III
kl. 2 - 5 - 8 -10.45
Wedding Date kl. 8 - 10
Hitchhikers. kl. 3.40-5.50
CRASH kl. 3.45 - 6 - 8.15 - 10.30 B.i. 16 ára.
CRASH VIP kl. 6 - 8.15 - 10.30 B.i. 16 ára.
HITCHHIKER´S GUIDE... kl. 1.40-3.45 - 6 - 8.15 - 10.30
THE WEDDING DATE kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10.10
THE JACKET kl. 10.30 B.i. 16 ára.
SAHARA kl. 3 - 5.30 - 8 - 10.30
SVAMPUR SVEINSSON m/ísl.tali. kl. 2-4
THE PACIFIER kl. 1.40 - 6 - 8
THE WEDDING DATE kl. 4 - 6 - 8.15 - 10.30
HITCHHIKERS... kl. 12-1.50 4-5.50-8- 10.10
SAHARA kl. 10
THE ICE PRINCESS kl. 12 - 2.10 - 4 - 6 - 8
SVAMPUR SVEINSSON kl. 12 - 2 m/ísl.tali.
H Á D E G I S B Í Ó 400 KR MIÐAVERÐ Á ALLAR MYNDIR KL.12 UM HELGINA Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI
Geggjaðasta og frumlegasta grínmynd ársinser komin í bíó.
Byggð á einni vinsælustu bók alheimsins eftir Douglas Adams.
j t f l t í i i í í .
i i i l t l i i fti l .
MERGUR málsins er að George
Lucas tekst það sem Stjörnustríðs-
aðdáendur vonuðu: Að loka hringn-
um með reisn. Satt best að segja
benti fátt til þess því The Phantom
Menace og Attack of the Clones,
tvær fyrri myndir seinni þríleiksins,
standa upphafsþrennunni góðu að
flestu leyti langt að baki. Engu lík-
ara en hinn frábæri sögumaður
væri búinn að missa flugið á meðan
brellusmíðin sótti í sig veðrið. En
nú geta unnendur bálksins og allra
góðra afþreyingarmynda andað
léttar, lokakaflinn stendur fyrir
sínu, hartnær þrjátíu ára gamlir
leyndardómar upplýsast með til-
heyrandi sverðaglami, spennu, róm-
antík og harmagráti. Það er engin
spurning, Hefnd Sith á eftir að
trekkja að áhorfendur og verða
a.m.k. ein mest sótta mynd ársins,
ef ekki allra tíma. Áhangendurnir
eru fyrir hendi, þeir hafa aðeins
beðið eftir því að skikkan kæmist á
liðið og nú spila allir af kúnst.
Líkt og Stjörnustríðsunnendur
vita er Hefnd Sith bakgrunnur at-
burðarins sem er siðferðileg þunga-
miðja bálksins; hér stígur Jedaridd-
arinn Anakín Geimgengill skrefið til
fulls og verður að Svarthöfða,
hverfur úr ljósinu og gefur sig
Myrku öflunum á vald. Segir frá
þeim hádramatísku átökum sem
áttu sér stað næst á undan atburða-
rásinni í Star Wars, upphafsmynd-
inni sem markaði tímamót árið
1977. Án þess að skemma ánægju
væntanlegra áhorfenda með því að
segja of mikið er óhætt að geta
þess að umskiptin eru ekki auðveld
fyrir hinn unga og efnilega Anakín
(Christensen), helstu von og verð-
andi leiðtoga Jedariddaranna í ei-
lífri baráttu þeirra við Myrkuöflin
illu. Hinn slægvitri kanslari, síðar
keisari, Palpatín (McDiarmid), kem-
ur mikið við sígilda sögu af átökum
góðs og ills, líkt og Jedariddarinn
Obi-Wan Kenobi (McGregor), sem
fær ekki við neitt ráðið og fær lítið
að gert er Anakín, fyrrverandi nem-
andi hans og vinur, tekur algjörum
sinnaskiptum um það leyti sem
stríðsátökin komast á lokastig.
Palpatín svífst einskis og beitir öll-
um bellibrögðum til að telja Anakín
hughvarf.
Hjá því verður ekki komist að
mikill tími fer í útskýringar á þeim
flóknu aðstæðum sem eru að baki
sögusviði Hefndar Sith, nauðsyn-
legt er að gera grein fyrir hinum
mikla og litskrúðuga fjölda persóna
og flóknu ástæðum margbrotinna
átaka á milli ólíkra stríðsaðila. Fyr-
ir vikið verður myndin feikilöng.
Samt sem áður heldur Lucas áhorf-
endum yfirleitt á tánum, ógn og
spenna liggja í loftinu í myrkustu
mynd bálksins. Þriðji kaflinn nýtur
líka stórkostlegustu brellna sem
sést hafa á tjaldinu, við áhorfand-
anum blasir sú hrollkalda staðreynd
að það er ekkert lengur ófram-
kvæmanlegt höndum brellumeist-
aranna og stafrænu tækninnar sem
Lucas ræður yfir, fátt kemur leng-
ur á óvart.
Söguþráðurinn er vitaskuld ekki
jafn ferskur og í fyrri helmingi
bálksins þegar Lucas leiddi okkur
inn í fullkomlega framandi ævin-
týraheim með öllum þeim gjörn-
ingum, sögupersónum og dulmagn-
aða andrúmslofti sem honum fylgdi.
Nú erum við öllu vön, á Lucasi hvíl-
ir hins vegar sú mikla ábyrgð að ná
endunum saman í áhrifamesta kvik-
myndabálki sögunnar og að lukkast
það með fléttu viðunandi atburða-
rásar og enn frekar mikilfenglegs
sjónarspils er vel þegið afreksverk.
Leikurinn skiptir minna máli en
það er lítið út á hann að setja, jafn-
vel Christensen tekst að reka af sér
slyðruorðið í lokakaflanum, en hinn
ábúðarmikli McDiarmid er senu-
þjófurinn. Hvort sem það hefur ver-
ið ætlunin eður ei.
Menn geta leikið sér að tilvís-
unum í samtímann en Hefnd Sith
er, líkt og aðrar myndir þessa
magnaða bálks, hreint og klárt bíó,
afþreying eins og hún best getur
orðið. Úti er ævintýri, og því fylgir
vissulega söknuður, en hver veit –
ef myndin malar gull, fáum við þá
ekki lokakaflana þrjá?
Stórbrotin stríðslokKVIKMYNDIR Smárabíó, Regnboginn, Laugarásbíó, Borgarbíó Akureyri.
Leikstjóri: George Lucas. Aðalleikendur:
Ewan McGregor, Natalie Portman,
Hayden Christensen, Christopher Lee,
Samuel L. Jackson, Frank Oz, Ian Mc-
Diarmid, Jimmy Smits, Anthony Daniels,
Kenny Baker, Peter Mayhew.
140 mín. Bandaríkin 2005.
Stjörnustríð: Kafli III – Hefnd Sith / Star
Wars: Episode III – Revenge of the Sith
Sæbjörn segir í dómi að lokakaflinn standi fyrir sínu, „hartnær þrjátíu ára gamlir leyndardómar upplýsast með tilheyrandi sverðaglami, spennu, rómantík og harmagráti“. Hér má sjá persón-
urnar Palpatín (Ian McDiarmid), Obi-Wan Kenobi (Ewan McGregor) og Anakín Geimgengill (Hayden Christensen) en þeir eru fangar um borð í skipi í Stjörnustríði: Kafla III – Hefnd Sith.
Sæbjörn Valdimarsson