Morgunblaðið - 21.05.2005, Side 72

Morgunblaðið - 21.05.2005, Side 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. HÓPUR starfsmanna Heilbrigðisstofnunar- innar á Siglufirði mun í hádeginu á morgun leggja af stað frá Siglufirði til Reykjavíkur. Það væri kannski ekki í frásögur færandi nema vegna þess að hópurinn ætlar að hjóla þessa rúma 400 km í tilefni af því að hann vann til verðlauna í keppninni Hjólað í vinnuna sem fram fór dagana 2.–13. maí. Áætlar hópurinn að vera kominn í bæinn í síðasta lagi á hádegi á mánudaginn kemur. Þá er ráðgert að hann taki á móti verðlaun- um sínum. Hópurinn hlaut 2. sætið fyrir flesta hjólaða daga í flokknum 70–149 starfsmenn. „Við áttum alls ekki von á því að vinna til verðlauna, því við gerðum þetta nú meira okkur til gamans,“ segir Sigurbjörg Björnsdóttir, liðsstjóri hjólasveitarinnar, en viðurkennir þó að mikill keppnisandi hafi skapast á vinnustaðnum þar sem keppt var í fjórum liðum. Segir hún lengstu leið í og úr vinnu hafa verið um 2 km, en að menn hafi lengt ferðir sínar og hjólað allt upp í 11 km daglega. Aðspurð hvort starfsfólk vinnustaðarins hjóli almennt mikið í vinn- una segir Sigurbjörg alltaf eitthvað um það þó vissulega mætti fólk alltaf vera duglegra við að taka fram hjólið. Að sögn Sigurbjargar er ráðgert að hjóla frá Siglufirði til Reykjavíkur í þremur holl- um sem skiptist á, en gert er ráð fyrir að fólk skiptist á að hjóla á 5–10 km köflum. Hjóla frá Siglufirði til Reykjavíkur SPENNA ríkir um það hver verð- ur kjörinn varaformaður Samfylk- ingarinnar á landsfundi flokksins í dag. Þingmennirnir Ágúst Ólafur Ágústsson og Lúðvík Bergvinsson hafa þegar gefið kost á sér. Fleiri hafa verið orðaðir við embættið, m.a. Jóhanna Sigurðardóttir þing- maður. Björgvin G. Sigurðsson þingmaður bættist í hópinn í gær. Björgvin sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að á sig hefði verið skorað. „Ég útiloka ekkert. Ég mun skoða þetta þegar úrslitin í formannskjörinu liggja fyrir.“ 1.400–1.500 flokksmenn á fundinum Allir landsfundarfulltrúar eiga rétt á því að kjósa í varaformanns- kjörinu. Ingvar Sverrisson, fram- kvæmdastjóri flokksins, segir að um 1.400 til 1.500 félagsmenn séu skráðir til þátttöku í fundinum. Miðað er við að úrslitin í for- mannssæti framkvæmdastjórnar flokksins. Tveir hafa gefið kost á sér, þau Gunnar Svavarsson, for- seti bæjarstjórnar í Hafnarfirði og Sigrún Grendal, varaformaður í Samfylkingarfélaginu í Reykja- vík. Ekki valdið harkalegum deilum Össur Skarphéðinsson, formað- ur Samfylkingarinnar, sagði m.a. í setningarræðu sinni á landsfundi flokksins í Egilshöll í gær að kosn- ingabaráttan í formannskjörinu hefði ekki vakið svo harkalegar deilur að þær skildu eftir sár til langframa. „Flokkadrættir hafa fráleitt verið slíkir að úr þeim geti ekki fljótlega jafnast. Lokaáhrifin velta hins vegar nokkuð á okkur sem vorum í framboði. Það er ákaflega brýnt að sá okkar frambjóðend- anna sem ber sigur úr býtum kappkosti að verða formaður Samfylkingarinnar allrar.“Framboðsfrestur rennur út kl. 12.50. Eftir kjörið fara fram kosn- ingar í önnur embætti, m.a. í for- mannskjörinu verði tilkynnt kl. 12 í dag. Varaformannskjörið fari síðan fram klukkutíma síðar. Spenna ríkir um kjör í embætti varaformanns Morgunblaðið/Golli Ljóst verður upp úr hádegi í dag hvort Ingibjörg Sólrún Gísladóttir eða Össur Skarphéðinsson verður næsti formaður Samfylkingarinnar. Eftir Örnu Schram arna@mbl.is  Landsfundur | 10–11 FULLTRÚAR Handknattleikssam- bands Íslands hafa lýst yfir áhuga við Handknattleikssamband Evrópu, EHF, um að fá að kanna grundvöll þess að Evrópumót karla eða kvenna í handknattleik fari fram hér á landi ár- ið 2010. „Með því að leggja nafn okkar í pottinn erum við eingöngu að opna dyr til þess að geta skoðað möguleika okkar á að halda mót af þessu tagi. Við eigum alveg eftir að skoða hvort ein- hver grundvöllur sé fyrir hendi að halda Evrópukeppnina hér á landi. Það verður gert á næstum vikum og mánuðum,“ segir Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ. HSÍ hefur tíma til 17. september nk. til að taka ákvörðun um hvort formleg umsókn verður send inn. Ákvörðun um staðsetningu mótanna verður tek- in í byrjun maí á næsta ári. Auk Ís- lendinga hafa tvær þjóðir lýst yfir áhuga á EM kvenna 2010 og sex þjóðir sýnt karlakeppninni áhuga. Heimsmeistaramót karla í hand- knattleik var haldið hér á landi árið 1995. | D1 Verður EM í handbolta á Íslandi 2010? HOLLENSKU 250 tonna skipi var komið til hjálpar skammt utan við Garðskaga í gærkvöldi þegar vélarbilun varð með þeim afleiðingum að skipið rak stjórnlaust undan veðri. Neyðarkall var sent út og var Landhelgisgæslan í við- bragðsstöðu en ekki þurfti á hennar aðstoð að halda því íslensk skip komu því hollenska, unaraðila um ástand mála. Kiddi Lár frá Sand- gerði kom stuttu síðar á vettvang og setti taug í Daphne og sneri því við uns Sæmundur GK 185 tók við og dró skipið til hafnar í Sandgerði. Var þangað komið klukkan 20:42. Norðanrok var þegar björgun fór fram, sam- kvæmt upplýsingum frá Vaktstöð siglinga. Daphne að nafni, til bjargar. Neyðarkallið barst kl. 18:30 þegar skipið var hálfa mílu suðsuðvest- ur af Garðskaga. Björgunarskipin Oddur VE frá Grindavík og Ásgrímur Björnsson frá Reykjavík fóru af stað til bjargar en það var hins vegar Fylkir KE 102 sem var á landleið sem fyrstur kom á vettvang og upplýsti björg- Hollensku skipi bjargað við Garðskaga Víkurfréttir/Þorgils ÓSKILAMUNIR hjá Lögreglu- stjóraembættinu í Reykjavík verða boðnir upp í dag, laugar- dag. Að sögn Sólmundar Más Jónssonar, framkvæmdastjóra hjá LR, verða um 200 reiðhjól boðin upp ásamt um 100 öðrum hlutum, þ.á m. sjónvarps- tækjum og heimilistækjum af ýmsum toga. Uppboðið hefst klukkan 13.30 og fer fram í porti við Borgartún 7b. Á sama tíma verður lög- reglan með kynningu á starf- semi sinni, til sýnis verða lög- reglubílar og mótorhjól, lögregluhundur kemur í heim- sókn og lögreglumenn verða á staðnum. Steinþór Hilmarsson lögreglumaður lítur hér yfir reiðhjólaflotann sem boðinn verður upp í dag. Um 200 hjól á uppboði Morgunblaðið/Júlíus MANNBJÖRG varð í gær þegar Hildur ÞH sökk 7 mílur austur af Raufarhöfn. Báturinn varð vélar- vana kl. 12:30 og komst mikill sjór í vélarrúm hans. Skömmu síðar lagðist hann á hliðina og byrjaði að sökkva. Tveir skipverjar voru um borð og tókst þeim að forða sér í gúmmíbát. Kl. 12:55 var björgun- arsveitin Pólstjarnan á Raufarhöfn kölluð út vegna neyðarkalls og fór björgunarsveitin á bs Gunnbjörgu á slysstað. Tókst að bjarga skip- verjunum heilum á húfi og voru þeir komnir í skip kl. 13.40. Komið var með skipbrotsmenn til Rauf- arhafnar kl. 14.20 og voru þeir í skýrslutökum hjá lögreglunni fram á kvöld. Hildur ÞH er 20 tonna bátur og hét áður Skálafell ÁR. Björguðu sér í gúmmíbát er Hildur sökk LÍTILL sendiferðabíll valt á Rangárvalla- vegi eystri klukkan hálfsex síðdegis í gær. Tveir menn voru í bílnum og sluppu þeir ómeiddir, að sögn lögreglunnar á Hvols- velli. Bíllinn er hins vegar mikið skemmdur ef ekki ónýtur. Ökumaður mun hafa misst stjórn á bílnum í lausamöl. Þá varð harður árekstur tveggja fólksbíla á gatnamótum Dynskála og Freyvangs á Hellu rétt fyrir klukkan fjögur. Enginn slasaðist en bílarnir eru mikið skemmdir. Talið er að ökumaður annars bílsins hafi ekki virt stöðvunarskyldu. Þá tók lögreglan í Kópavogi tíu ökumenn fyrir hraðakstur í gær. Allir voru þeir tekn- ir á svæði þar sem hámarkshraði er 50 km/ klst. Sá sem ók hraðast var á 87 km hraða. Sluppu ómeiddir úr bílveltu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.