Morgunblaðið - 19.06.2005, Qupperneq 16
16 SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Fyrir nákvæmlega níutíu árum fögn-uðu íslenskar konur því að helstabaráttumál þeirra, kosningarétt-urinn, var í höfn. Samkvæmt skiln-ingi þess tíma töldu margir að
jafnrétti kynjanna væri þá fulltryggt og að
konur mættu vel við una og þakka fyrir.
En upplifa íslenskar konur sig í jafnri
stöðu á við karla í dag? Sjálfsagt myndu af-
ar fáar konur, ef nokkrar, svara þeirri
spurningu játandi. Alls staðar blasir kynja-
misréttið við. Þó konur séu orðnar fleiri en
karlar í hópi háskólanema hallar ennþá
töluvert á þær í stjórnmálum og atvinnulífi,
bæði hvað varðar völd, áhrif og laun. Og
enginn vafi leikur á því að almennt bera
konur ennþá meginábyrgð á barnauppeldi
og heimilishaldi, þrátt fyrir að vinna fullan
vinnudag utan heimilis.
Þetta tvöfalda vinnuálag kvenna er við-
fangsefni bókarinnar Móðir í hjáverkum eft-
ir Allison Pearson, sem kemur út á íslensku
í vikunni. Á frummálinu nefnist hún I Don’t
Know How She Does It og vakti mikla at-
hygli þegar hún var gefin út í Bretlandi fyr-
ir þremur árum. Oddný Sturludóttir þýddi
bókina og kveðst hlæjandi hafa verið sann-
kölluð móðir í hjáverkum á meðan.
„Þó höfundurinn máli grátbroslegt hlut-
skipti útivinnandi mæðra dálítið dökkum lit-
um er húmorinn aldrei langt undan. Ég
held að þessi bók hafi vakið svona mikla at-
hygli vegna þess að hún kom boðskapnum á
framfæri á lúmskan og fyndinn hátt,“ segir
Oddný. „Allison Pearson er þekktur og virt-
ur blaðamaður í Bretlandi og söguhetjan,
Kate Reddy, varð fyrst til í gamansömum
pistlum sem hún skrifaði í The Daily Tele-
graph um raunir hinnar útivinnandi móður.
Kate er í rauninni málpípa höfundarins,
tveggja barna móðir eins og hún og farsæl í
starfi. Hún vinnur sem verðbréfamiðlari hjá
rótgrónu fyrirtæki í fjármálahverfinu í
London, sem er mikið karlaveldi. Vinnutím-
inn er langur og starfið krefst mikilla ferða-
laga. Hún er í stanslausu kapphlaupi við
klukkuna og hefur engan tíma fyrir sjálfa
sig. Bókin segir frá um það bil einu ári í lífi
Kate Reddy og við fáum að fylgjast með því
hvernig hún reynir að samræma vinnuna og
fjölskyldulífið. Það gengur vægast sagt öm-
urlega!“
Samviskubitið rauði þráðurinn
Oddný segir að samviskubitið sem gjarn-
an plagar útivinnandi mæður daginn út og
daginn inn sé rauði þráðurinn í bókinni.
„Söguhetjan segir á einum stað að þegar
hún sé ekki í vinnunni skuldi hún börnunum
sínum að vera með þeim, og þegar hún sé
ekki með börnunum sínum skuldi hún starf-
inu sínu að sinna því. Og höfundurinn kem-
ur inn á þann mun sem virðist vera á kynj-
unum hvað þetta varðar, körlum gengur
einhvernveginn betur að skilja börnin eftir
heima þegar þeir fara í vinnuna. Ennþá er
auðvitað miklu minni þrýstingur á feður en
mæður að taka ábyrgð á velferð barna
sinna. Það er löng hefð fyrir því og í raun-
inni skýlaus krafa samfélagsins að mæð-
urnar gegni aðalhlutverki í uppeldinu. Kon-
ur eru beinlínis álitnar kaldlyndar ef þær
geta algjörlega kúplað sig út frá börnunum
og helgað sig vinnunni og framanum hundr-
að prósent, en slíkir karlar eru aftur á móti
bara sagðir duglegir og taldir gegna sínu
hlutverki. Þetta eilífa samviskubit er þannig
innrætt konum af samfélaginu og menning-
unni og Kate er mjög ósátt við það.
Söguhetjunni verður tíðrætt um „mafíu“
hinna heimavinnandi mæðra og finnst hún
vera undir pressu um að standast sam-
keppni við þær á sviðum sem lengi voru tal-
in skilgreina kvenlega dyggð. Þegar Kate
spyr sjálfa sig hvort hún gæti verið heima-
vinnandi er svarið skýrt nei. Hún myndi
hreinlega sálast úr leiðindum. En hún er
samt ósamkvæm sjálfri sér, á bágt með að
sleppa takinu. Hún getur ekki hætt að hafa
endalausar áhyggjur af börnunum og harma
vangetu sína sem húsmóðir,“ segir Oddný.
„Það kannast sennilega ýmsar konur við.“
Á milli tveggja elda
Kate er ágætlega gift, en það veldur
henni líka togstreitu. „Í einum kaflanum
hefur maðurinn hennar til dæmis eldað
matinn, einu sinni sem oftar. Svo segir hann
kæruleysislega á meðan þau eru að borða
að hann hafi nú búið til pestó-sósuna sjálf-
ur. En í staðinn fyrir að gleðjast yfir því að
eiga mann sem er liðtækur í eldhúsinu fýk-
ur í hana, því hún hefur sjálf engan tíma til
að vera myndarleg húsmóðir og á erfitt með
að sætta sig við að maðurinn hennar steli
því hlutverki líka! Kate er á milli tveggja
elda. Það verður ekki bæði sleppt og haldið
og það er alveg að fara með hana.“
Oddný bendir á að það sé grátlegt að
bara mæðurnar lendi í þessari kreppu. „Í
bókinni nálgast Pearson þetta ástand með
svo kolbikasvörtum húmor að maður fær
fyrir hjartað á stundum. Hún tæpir líka á
einu atriði sem ég hef oft veitt athygli, það
hversu mismunandi augum fólk lítur kynin í
uppeldishlutverkinu. Á meðan pabbar eru
hér um bil aðlaðir fyrir að sinna börnunum
sínum vel, taka allir því sem sjálfsögðum
hlut þegar konur eiga í hlut. Það er ekkert
einsdæmi að heyra vel upplýst fólk varla
halda vatni yfir því að sjá föður labba niður
Laugaveginn með son sinn á öxlunum og
segja eitthvað á þá leið að hann sé aug-
ljóslega afbragðsgóður pabbi. En myndi
fólk nokkurntímann segja þetta um móður?
„Jii, sjáðu hvað hún er góð við barnið sitt,
en frábær mamma!“ Hljómar það ekki dá-
lítið ankannalega?“
Vantar fjölskyldustefnu
Þegar Oddný las bókina í fyrsta sinn var
hún nýbúin að eignast sitt fyrsta barn.
„Eftir lesturinn hraus mér náttúrulega hug-
ur við því sem framundan var,“ segir hún
og skellir upp úr. „En bókin hitti mig al-
gjörlega í hjartastað fyrir vikið og mér
fannst að hún yrði að koma út á íslensku.
Ég átti alltaf dálítið erfitt með að tjá mig
um femínisma eða hafa mjög sterkar skoð-
anir á jafnréttismálum áður en ég eignaðist
son minn. Þá varð ég skyndilega mjög með-
vituð og það gerðist algjörlega sjálfkrafa.
Ég hafði aldrei áður fundið fyrir ójafnrétti
á eigin skinni, en þegar maður er orðinn
bundinn í báða skó fer maður að rekast á
ýmsa veggi.“
Oddný nefnir úrræðaleysi í dagvistunar-
málum sem dæmi. „Eftir að níu mánaða
fæðingarorlofinu sleppir tekur við algjör
óvissa þangað til börnin komast loks inn á
leikskóla, oft um tveggja ára aldur. Það er
að skapast algjört ófremdarástand, því dag-
mæður eru ein af annarri að hætta störfum
og það er gríðarlegur skortur á plássum.
Foreldrar neyðast til að taka fyrsta úrræði
sem býðst og hafa ekkert val. Eins er
vinnutíminn á Íslandi almennt mjög langur.
Auðvitað kemur það niður á fjölskyldunni
og eitthvað verður undan að láta. Því miður
bitnar það ennþá mest á mæðrunum, sem
neyðast oft til að minnka við sig vinnu, því
það er ríkari hefð fyrir því að þær fórni sér
og viss samfélagsleg pressa, auk þess sem
kynbundinn launamunur spilar inn í. Ég
stóð alltaf í þeirri trú að Ísland væri mjög
barnvænt samfélag, en ég hef eiginlega
skipt um skoðun, því miður. Mér finnst sár-
lega vanta skýra fjölskyldustefnu af hálfu
yfirvalda.“
Barátta upp á líf og dauða
„Ég held að það fyrirfinnist varla sú úti-
vinnandi móðir sem finnur ekki samhljóm
með þessum raunum Kate Reddy, sem lýst
er í bókinni,“ segir Oddný. „Og það fyrir-
finnst varla sú kona sem getur ekki hlegið
að þeim með henni. Ef einhver kona er al-
veg ósnortin af þessari bók hlýtur hún að
vera fullkomin! Mig myndi langa til að hitta
hana í kaffi og fá að spjalla við hana. Þá
hlýtur henni að hafa tekist fullkomlega að
samræma vinnuna og fjölskyldulífið. Og ég
leyfi mér að efast um að það sé hægt.“
Oddný segir að bókin sé í rauninni bar-
áttusaga. „Kate er í miðri orrustu frá fyrstu
blaðsíðu til þeirrar síðustu, í stríði við heim-
inn og sjálfa sig.
Endirinn er ansi óvæntur, reitti reyndar
margar konur til reiði og varð tilefni blaða-
skrifa og deilna í Bretlandi. En eftir nokkra
umhugsun komst ég að þeirri niðurstöðu að
hann væri mjög sterkur, vegna þess að
hann segir allt sem segja þarf um hvað
þessi staða getur verið erfið. Þetta er bar-
átta upp á líf og dauða,“ segir Oddný að
lokum og blaðamaður og viðmælandi gefa
hvor annarri glott sem gefur til kynna sam-
eiginlegan skilning – á maður að þora að
nota hugtakið sem svo mjög hefur verið
haft í flimtingum? – á reynsluheimi
kvenna …
„Jii, sjáðu hvað hún
er góð við barnið sitt!“
Oddný Sturludóttir, tveggja barna
móðir í hjáverkum, hefur þýtt vin-
sæla breska bók með sama titli.
Aðalheiður Inga Þorsteinsdóttir
ræddi við Oddnýju um vandann
við að púsla saman starfsframa og
fjölskyldulífi og samviskubitið sem
þjakar margar konur sem reyna á
sama tíma að sinna starfinu og
börnunum fullkomlega.
Morgunblaðið/Þorkell
„Söguhetjan segir á einum stað að þegar hún sé ekki í vinnunni skuldi hún börnunum sínum að vera
með þeim, og þegar hún sé ekki með börnunum sínum skuldi hún starfinu sínu að sinna því,“ segir
Oddný Sturludóttir um Kate Reddy, hvunndagshetju bókarinnar Móðir í hjáverkum.
adalheidur@mbl.is
Þegar fundurinn er hálfnaður kveður AndrewMcManus sér hljóðs með drambsömum hósta.Hann er vitgrannur Skoti, rumur með axlir á
stærð við Chesterfieldsófa. Hann tilkynnir fundar-
mönnum að hann verði að yfirgefa samkunduna því
að dóttir hans Catriona sé að fara að keppa í sundi og
hann hafi lofað henni að pabbi myndi koma að horfa.
Allir láta eins og þetta sé eðlilegasti hlutur í heimi.
Ungu, barnlausu strákarnir depla ekki auga. Þeir velta
því kannski stundum fyrir sér að eignast börn einn
daginn en ekki fyrr en Porsche Boxster verður fram-
leiddur með fullkomnu skiptiborði. Fundarmennirnir
sem þegar eiga börn baða sig í sameiginlegri og sam-
særislegri sjálfumgleði og af vörum Momo, sem veit
ekki betur, má lesa: „En sæææætt.“ Celia Harms-
worth flettir meira að segja af sér grimma drottn-
ingarhamnum og galdrar fram eitthvað sem mætti
kalla bros og segir: „En gaman, Andrew! Alltaf jafn
pottþéttur,“ eins og hann hafi stýrt Dow-vísitölunni
upp um 150 stig, einn síns liðs. Andrew tekur eftir því
að ég er sú eina í hópnum sem kvittar ekki á viður-
kenningarskjal honum til handa. Hann ypptir öxlum og
segir: „Æ, þú veist hvernig þetta er, Kate.“ Hann fer í
jakkann sinn og út úr herberginu.
Ó, jú, ég veit nákvæmlega hvernig þetta er. Karl-
maður tilkynnir að hann þurfi að skreppa frá til að
fylgjast með tómstundasprelli barns síns og honum er hampað sem óeigingjarnri og elskulegri
fyrirmynd annarra foreldra. Kona tilkynnir að hún þurfi að skreppa frá til að sinna barni sínu á
sjúkrabeði og hún er sökuð um að vera óskipulögð, óábyrg og sýna fyrirtækinu ekki nægilega
hollustu. Ef faðir slær sig til riddara fyrir að vera faðir lítur fólk á það sem styrkleikamerki. Ef
móðir lætur of mikið í það skína að hún sé móðir túlkar fólk það sem óþolandi viðkvæmni. Ég
elska jafnrétti kynjanna.“
„Alltaf jafn pottþéttur“