Morgunblaðið - 19.06.2005, Side 18
18 SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
E
ftir að ég hafði malað kaffi-
baunir í einar fimm mínútur í
eldhúsi Sundlaugarinnar spyr
Jónsi snöggt: „Viltu ekki
heyra lög af plötunni?“
Því er að sjálfsögðu jánkað
og Orri Páll trymbill leiðir
mig inn í stjórnherbergi
hljóðversins þar sem er að finna þægilegan
sófa og stóla. Hann býður mér sæti, setur á
lag og tjáir mér að þetta verði líklega fyrsta
lagið sem muni koma út, að öllum líkindum
einungis í gegnum niðurhal. Svo er ég skilinn
eftir.
Þó að lögin sem ég fékk að heyra falli
kannski ekki alveg í þetta stutta rokk/popp
form sem hefur verið hvíslað um að sé stefna
nýju plötunnar eru þau vissulega stefnu-
breyting frá því sem var. Lögin einhvern
veginn knappari, meira svona „rokk og ról“.
Kjartan, hljómborðsleikari, segir síðar í
viðtalinu að það sé nú það sem Sigur Rós sé
fyrst og síðast: Rokk og ról. Hugmyndin um
að meðlimir Sigur Rósar séu tedrekkandi ný-
aldarhippar sem semji lög um álfa og hraun
er engu að síður lífseig. Þessi mýta er rædd
og Jónsi segir hátt og hvellt. „Nei, það er
bara „hardcore“ kaffi hérna!“. En bætir svo
við glottandi. „En að vísu með sojamjólk út
í…“
Papa Roach?
Síðan um haust 1999, stuttu eftir að Ágæt-
is byrjun kom út, hefur Sigur Rós saman-
staðið af þeim Jóni Þóri Birgissyni (gítar og
söngur), Georg Holm (bassi), Kjartani
Sveinssyni (hljómborð) og Orra Páli Dýra-
syni (trommur). Orri leysti þar með Ágúst
Ævar Gunnarsson af sem hvarf til listnáms.
Ágætis byrjun er platan sem kom Sigur Rós
á hið alþjóðlega popp/rokkkort og hefur í dag
selst í ríflega hálfri milljón eintaka um heim
allan. Á sínum tíma vonaðist Ásmundur Jón-
son, framkvæmdastjóri Smekkleysu og útgef-
andi plötunnar að selja hana í 1500 til 2000
eintökum.
Eftir því sem á hefur liðið ferils hafa með-
limir tekið í hin ýmsu hljóðfæri og léku þeir
t.a.m. allir á steinhörpu Páls á Húsafelli þeg-
ar Hrafnagaldur Óðins var frumfluttur í
London í apríl 2002, eitt af mörgum „hliðar-
verkefnum“ sveitarinnar ef svo mætti kalla.
Einkanlega er það þó Kjartan sem er
þúsundþjalasmiðurinn virðist geta leikið á
hvaða það hljóðfæri sem hendi er næst.
Jónsi, Kjartan og Orri koma nú inn í
stjórnherbergið með kaffibollana sína, reiðu-
búnir í spjall. Georg er ekki mættur þegar
sest er niður og létt hjal er því viðhaft í
fyrstu.
Blaðamaður og liðsmenn eru enda nett
ryðgaðir í blábyrjun en viðtalið er hið fyrsta
sem sveitin gefur vegna nýju plötunnar sem
er ónefnd eins og sakir standa. Talið berst í
upphafi að heimsókn túvönsku hljómsveit-
arinnar Huun Huur Tu í Sundlaugina. Sveitin
sú var stödd á Íslandi á dögunum vegna
Listahátíðar og dvöldu liðsmenn hérlendis í
rúmar tvær vikur.
„Það voru bara ég og Jónsi sem vorum
hérna þá,“ segir Kjartan. „Við vorum báðir
þreyttir og utan við okkur og kannski ekki
bestu gestgjafar í heimi einmitt þá. En þeir
voru eldhressir, tóku í hljóðfæri og spiluðu
og sungu.“
Bandaríska söngkonan Nina Nastasia var
og á landinu um svipað leyti og kíkti líka í
heimsókn ásamt unnusta sínum og samstarfs-
manni Kennan Gudjonsson sem er hálf-
íslenskur. Indælis fólk þar á ferð að sögn
strákanna.
Þegar viðtalið fór fram var enn á huldu
hvort farið yrði út á mánudegi eða sunnudegi
til hljómjöfnunar (viðtalið var tekið fimmtu-
daginn 9. júní). Kjartani tekst þó að lokum að
sannfæra Jónsa um að sé á mánudaginn.
„Sterling Sound er það,“ segir Kjartan
snjallt og grínar. „Við verðum að þétta
„sándið“ svolítið, við stefnum nefnilega á að
hafa þetta í anda Korn og Papa Roach.“
Umsvifalaust fer af stað heljarmikil um-
ræða um síðustu plötu Papa Roach, Getting
Away With Murder, og hinn svakalega þétta
og kristaltæra hljóm sem á henni er, svo tær
að hann stingur í eyru þegar hlustað er.
Hljómjöfnun eða „mastering“ er síðasta
stigið á vinnsluferli hljómplötu. Hér á Íslandi
sér maður t.d. iðulega nafn Bjarna Braga í
þessu tilliti og erlendis eru viss nöfn sem
maður sér aftur og aftur á plötum vinsælla
listamanna, nöfn manna eins og Bob Ludwig
og Howie Weinberg. Í ljós kemur að Sigur
Rós prufaði að láta Bob Ludwig hljómjafna
en voru ekki hrifnir af því sem þeir heyrðu.
„Þetta var alls ekki lélegt,“ segir Jónsi um
þá tilraun. „En útkoman var bara skrýtin.
A.m.k. ekki það sem við vorum að leita að.“
Tuttugu mánuðir
Upptökur á plötunni tóku um eitt og hálft
ár.
„Var það ekki meira?“ segir Jónsi með
furðusvip. „Jú, þetta voru tuttugu mánuðir,“
svarar Orri þá að bragði sem virðist fljótt á
litið talnagleggsti meðlimur sveitarinnar.
Á þessu tímabili hefur hljómsveitin og ein-
stakir meðlimir skotist í margvísleg verkefni.
Í raun hafa þeir verið upp fyrir haus í vinnu
frá því að síðasta breiðskífa, ( ), kom út
haustið 2002. Auk þess að túra fyrri hluta
ársins 2003 kom tónlist Sigur Rósar við
heimildarmyndina Hlemmur út á plötu og
sama ár vann sveitin tónlist við dansverk
Merce Cunningham, Split Sides, ásamt
bresku sveitinni Radiohead. Tónlist Sigur
Rósar við verkið kom svo út í fyrra sem EP
platan ba ba ti ki di do. Árið 2003 hjálpuðu
meðlimir einnig vini sínum í Album Leaf,
Jimmy LaValle, að vinna plötu í Sundlaug-
inni. Sama ár fékk sveitin svo Evrópsku
MTV verðlaunin fyrir myndbandið við fyrsta
lagið á ( ), sem gefið var út á smáskífu. Öll
lögin átta á ( ) voru án titils en báru þó óeig-
inlega titla og var nafn þessa lags „Vaka“
sem er nafnið á dóttur Orra. Það var Floria
Sigismondi sem gerði myndbandið. Þetta ár
hljóðritaði sveitin einnig tónlist fyrir stutt-
myndina The Loch Ness Kelpie.
Þá hefur Jónsi komið fram einn sem
Frakkur, en það gerði hann í Klink og Bank í
fyrravor. Stuttu áður skellti Kjartan sér til
Ísafjarðar og lék á Aldrei fór ég suður hátíð-
inni á Ísafirði sem Lonesome Traveller. Lék
hann nokkur Sigur Rósar lög í afslöppuðum,
kántrílegum búningi. Kjartan samdi einnig
tónlist við stuttmyndina Síðasti bærinn eftir
Rúnar Rúnarsson. Helstu samstarfsaðilar
Sigur Rósar undanfarin ár, strengjasveitin
Amina, gaf þá út stuttskífu seint á síðasta
ári.
Auk alls þessa hefur Sigur Rós verið til-
nefnd til ýmissa verðlauna – m.a. Grammy-
verðlauna – lög eru farin að rata inn í Holly-
woodmyndir, hinn virti strengjakvartett
Kronos hefur útsett lög sveitarinnar og
áfram má telja. Vegferðin þennan tíma hefur
verið farsæl og áhugi fyrir sveitinni hér
heima og að heiman er stöðugur og mikill.
Nýjasta útspil sveitarinnar í hliðarverk-
efnavinnu var lag sem samið var fyrir 200
ára afmælisfagnað til heiðurs H.C. Andersen
sem fram fór í Kaupmannahöfn í apríl. Lagið
var flutt undir túlkun Konunglega danska
dansflokksins á sögunni um Litlu stúlkunni
með eldspýturnar.
„Það er gaman að sinna svona verkefnum
en hversu miklu við getum sinnt fer eftir því
hvað við höfum mikinn tíma,“ segir Jónsi.
Tilboð um alls kyns samvinnuverkefni og sér-
stök verkefni eins og þessi berast reglulega
til sveitarinnar. Og í það miklu magni að um-
boðsmaðurinn fer að mestu yfir þessi tilboð.
„Mér fannst þessi afmælishátíð sem slík þó
algerlega skelfileg,“ bætir Jónsi við. „Ein-
hver svona Las Vegas stemning með Tinu
Turner og Oliviu Newton-John í góðum fíl-
ing.“
Hawaii heillar
Engir verulegir erfiðleikar mættu liðs-
mönnum við vinnslu nýju plötunnar.
„Neeei,“ segir Kjartan hugsi. „En síðasta
plata var erfið. Þessi var það alls ekki …
a.m.k ekki miðað við þá síðustu.“
Jónsi segir að þá hafi þeir verið búnir að
spila lögin svo lengi á tónleikum. „Þessi plata
gekk einhvern veginn hraðar og betur.“
Nýja platan verður að öllum líkindum tíu
laga og aðeins tvö lög hafa verið leikin á tón-
leikum hingað til. Framundan er svo um-
fangsmikið tónleikaferðalag, það stærsta sem
sveitin hefur farið í til þessa. Fyrstu tónleik-
arnir verða í Glasgow 8. júlí og verður sveitin
meira og minna á ferðinni allt fram í október.
Farið verður um Evrópu, Japan, Ástralíu og
Ameríku – og meira að segja til Hawaii.
„Pride of the Pacific heitir staðurinn víst,“
segir Orri og kímir og þeir reyndar allir.
„Mjög flott hús, gamalt leikhús sem var
byggt 1920.“
Kjartan segir að þar ætli þeir að nota
tækifærið og fara í smáfrí. Ástralíutúrinn
endar 5. ágúst og tónleikarnir í Hawaii eru 9.
sama mánaðar. Og svo verða ekki tónleikar
fyrr en í september.
„Það var auðvitað frábært að landa þessu,“
Allir sem einn
Hljómsveitin Sigur Rós flaug í byrjun þessarar viku til New York til að hljómjafna nýjustu breiðskífu sína sem út kemur 12. september næstkomandi.
Arnar Eggert Thoroddsen hitti liðsmenn að máli í Sundlauginni, hljóðveri Sigur Rósar, og ræddi við þá um tilurð plötunnar og margt margt fleira.
Morgunblaðið/Arnar Eggert Thoroddsen.
Knattfimi er iðkuð þegar stund gefst á milli stríða.
’Allur bransinn í kringum þetta er úti og það hef-ur reynst mjög vel. Við náum að vera í eigin heimi
hér og þetta heldur okkur niðri á jörðinni.‘