Morgunblaðið - 19.06.2005, Page 20

Morgunblaðið - 19.06.2005, Page 20
20 SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ segir hann. „Ætli maður fari ekki í köfunar- námskeið og svona. Og svo ætlum við að taka tónlistarhátíðirnar sumarið 2006.“ Ferðalagið leggst mjög vel í strákana en Jónsi segir að þeir hafi ekki haldið eigin tón- leika mjög lengi. „Þetta verður rosa gaman og ég hlakka til að komast aftur í gír. Svona löng hlé á milli ferðalaga halda manni ferskum. Það er hressandi að finna að maður hlakkar veru- lega til að fara að spila.“ Það er því greinilega mikill hugur í Sigur Rós um þessar mundir en nánar má lesa um dagsetningar væntanlegs ferðalags á www.sigur-ros.co.uk, sem er opinber frétta- síða sveitarinnar en hún inniheldur einnig ýmsar aðrar upplýsingar af margvíslegu tagi. Síðunni var hleypt af stokkunum árið 2000 og henni stýra Björn Erlingur Flóki Björns- son, Paul Mcallister og Chris Wray. Síðan var upphaflega eins og hver önnur aðdáen- dasíða en svo vel var að verki staðið að Sigur Rós ákváðu að ganga í samstarf við hana. „Þeir eru með þetta allt á hreinu,“ segir Jónsi. „Meira en við!,“ en þess má geta að múm eru í svipuðum málum. Portúgali að nafni José Luís Neves rekur vefsíðuna mum- web.net en þar má nálgast ítarlegar upplýs- ingar um sveitina og allar helstu fréttir. Neves þessi er fyrst og fremst aðdáandi en er í dag í góðu samstarfi við múm. Orri segir að þeir haldi góðu sambandi við vefstjóra Sigur Rósar síðunnar, bjóði þeim út á tónleika og hitti þá reglulega. „Við ætlum þó að setja upp síðu sjálfir áð- ur en platan kemur út,“ heldur Jónsi áfram. „En þetta er auðvitað magnað með þessa fréttasíðu, þarna eru upplýsingar og slíkt sem við vitum ekki sjálfir um. Þetta er fínt fyrir okkur þar sem við erum ekki miklir netgæjar.“ Kjartan spaugar: „Við erum ekki af þess- ari kynslóð (allir hlæja). Maður kann þó að senda tölvupóst. Maður veit hins vegar ekk- ert hvað maður á að skoða þegar maður fer inn á þetta internet (hlær).“ „Ég hef ekkert“ Yfirbyggingin um Sigur Rós í dag er þó- nokkur. Umboðsmaður, lögfræðingar og slatti af alls kyns starfsfólki. „Þetta er auðvitað „huge“ band,“ segir Kjartan. „Við ætlum að verða jafnstórir og U2!“ Að gríni slepptu segja þeir að batteríið í kringum þetta sé orðið nokkuð að vöxtum. „Þess vegna er mjög gott að búa hér á Ís- landi,“ segir Jónsi. „Allur bransinn í kringum þetta er úti og það hefur reynst mjög vel. Við náum að vera í eigin heimi hér og þetta heldur okkur niðri á jörðinni.“ Samningar Sigur Rósar við plötufyrirtæki sín eru hagstæðir að því leytinu til að þeir geta gert það sem þeim sýnist. „Þannig að við fáum ekki skipanir um að fara í myndatöku, mæta í viðtöl eða neitt svoleiðis,“ segir Jónsi. „Samt er stundum gaman að fara í viðtal, tala við eitthvað lið og láta krukka í sér. Við fórum t.d. í tveggja vikna viðtalatúr vegna ( ). Ferðuðumst um Evrópu og gerðum tólf viðtöl á dag eða þar um bil. Algjört maraþon. Þá lentum við á mjög mismunandi blaðamönnum. Sumir al- gjörir hálfvitar og sumir mjög klárir. Og það var rosalega gott að tala við þannig blaða- menn. Maður kom mjög einbeittur út úr þessu, var búinn að hugsa og tala nánast stanslaust í tvær vikur.“ Kjartan og Orri lentu í mjög slæmum blaðamanni frá Sviss í téðum viðtalatúr. „Hann var búinn að gera sér mjög svo fyr- irfram ákveðnar hugmyndir um okkur, plöt- una og slíkt,“ segir Orri. „Og móðgaðist ef hann hafði rangt fyrir sér. Hann var að fiska eftir einhverri svakalega djúpri hugmynd á bakvið plötuna sem var bara ekki til staðar“ Kjartan tekur sig nú til og leikur blaða- manninn (skræk rödd): „I got nothing! I got nothing!“. Kjartan segir hann hafa verið mjög pirraðan. „Aumingja karlinn, hann var búinn að dressa sig upp fyrir þetta og allt.“ Tommy Lee Kjartan segist vera í góðum gír vegna væntanlegs hamagangs. „Við höfum allir þroskast mjög mikið, a.m.k. fyrir mitt leyti. Þegar við vorum að byrja í öllum þessum pakka var maður dálítið smeykur við þetta. Maður var bara einhver strákur úr Reykja- vík og ég var mjög tortrygginn á þetta. Ég treysti engum og allir blaðamenn voru bara … æ, maður var bara hræddur og ég held að það hafi endurspeglast í þessum fyrstu við- tölum sem ég fór í. Núna er maður einhvern veginn öruggari og vanari. Manni líður miklu betur í þessum aðstæðum. En samt … þetta er alveg svakaleg grýla einhvern veginn líka.“ Jónsi segir að þeir séu í raun búnir að ganga í gegnum ákveðna þjálfun í að tala um það sem þeir eru að gera. „Maður gerir það nefnilega aldrei venju- lega. Við tölum aldrei um það sem við erum að gera okkar á milli. Við erum ekkert að kryfja þetta neitt sérstaklega. Þetta er rosa- lega skrítið því að blaðamenn er sífellt að reyna að fá einhvern botn í það sem maður er að gera og vilja fá svör. Og það er erfitt að gefa einhver ákveðin svör.“ Hann segir bestu viðtölin vera þau sem umbreytast í nokkurs konar kaffihúsaspjall og skemmtilegast sé þegar umræðurnar fara út fyrir sjálfa tónlistina. „Þetta voru 160 viðtöl samtals í kringum ( ),“ segir Orri. „Ef maður var að ná góðu sambandi við blaðamennina gaf maður af sér en ef þetta voru einhverjir leiðindapésar þá fengu þeir bara vélmennalega romsu.“ Tónlist Sigur Rósar hefur hitt fólk um all- an heim í hjartastað og bara að lesa dóma viðskiptavina á Amazon vefbúðunum er stór- merkilegt. Fólk virðist í hálfgerðu losti og trúir því varla að það sé hægt að búa til svona fallega tónlist. Henni er lýst sem guð- dómlegri og að meðlimir séu í sendiför fyrir friði. Strákarnir hlæja við enda ekki annað hægt. „Jú jú, gulltár sem falla ofan af himn- um og svona,“ segir Kjartan. „En það er auðvitað frábært ef fólk kann að meta þetta, höfum það alveg á hreinu.“ Jónsi talar í þessu samhengi um kafla í nýrri bók Tommy Lee, trommuleikara Möt- ley Crüe. „Þar er kafli um tónlist. Hann lýsir því hvernig hann lá í fósturstellingu á gólfinu með tónlistina okkar í botni. Vinkona hans kom að honum og slökkti á tónlistinni,“ Þessari sögu fylgja mikil hlátrasköll og auðvitað eru menn ánægðir með að sjálfur Tommy Lee sé að geta þeirra. „Það er minnst á okkur, Led Zeppelin og Megadeth,“ segir Kjartan, „Ekki amalegt!“ Orri upplýsir enn fremur að Tommy sé að sækjast eftir því að taka við þá viðtal er þeir koma til Bandaríkjanna. Radiohead Tommy Lee er ekki eina ofurstjarnan sem strákarnir hafa komist í kynni við og skemmst er að minnast þess að Lars Ulrich lýsti yfir miklu dálæti á sveitinni. Talið berst því að Thom Yorke, leiðtoga Radiohead, en Sigur Rós lék með sveitinni á nokkrum tón- leikum haustið 2000 og síðar tóku báðar hljómsveitir þátt í dansverki Merce Cunn- ingham. „Við kynntumst Thom eða hinum gaur- unum aldrei neitt mikið,“ segir Jónsi. „Við spiluðum einhverja tíu tónleika með þeim og það var eins og tvær hljómsveitir væru að spila algerlega í sitt hvoru lagi. Það var lítill samgangur á milli, við töluðum mest við bassaleikarann, Colin Greenwood, sem er al- gjör eðalnáungi.“ Kjartan segir að það hafi verið svakalegt fyrirtæki í kringum Radiohead, öryggisverðir með talstöðvar úti um allt og því ekkert skrýtið að samgangurinn hafi verið svona lít- ill. „Á svona túrum umgengst maður fyrst og fremst liðið sem er að túra með manni. Það er því ekki sjálfgefið að þegar einhver önnur sveit kemur inn í túrinn að hóparnir hristist eitthvað saman.“ Fyrr á árinu 2000 höfðu Sigur Rós svo spilað með kanadísku síðrokksveitinni God- speed You Black Emperor!, og segir Jónsi það hafa verið góða reynslu að túra með svo ólíkum sveitum. „Það var lærdómsríkt fyrir okkur að sjá hvernig þetta gengur fyrir sig,“ segir hann. „Godspeed gerðu ALLT sjálfir og allt var svakalega alvarlegt. Svo voru það Radiohead og það var alveg svakalega fjölmennt starfs- lið sem fylgdi þeim. Ég var hissa á að sjá hversu mikið það var.“ Georg er mættur Í þessum töluðu orðum gengur Georg inn í herbergið. Því er ákveðið að færa sig inn í eldhúsið og búa til meira kaffi. „Við erum mjög þakklátir Radiohead fyrir að hafa boðið okkur á þennan túr,“ segir Kjartan. „Þetta kom okkur á framfæri og var gríðarlegt tækifæri. Við vorum að spila fyrir 12.000 manns á hverju kvöldi liggur við.“ Skyndilega leggur blaðamaður út á svellið og spyr hreint út: Er einhver sérstök hug- myndafræði á bakvið væntanlega plötu? Kjartan verður fyrir svörum. „Humm … þetta er bara náttúruleg þróun frá síðustu plötu. Hún var þung og það var bara mjög eðlilegt fyrir okkur að rokka þetta aðeins upp. Æ … djö… var þetta asnaleg setning (hlær).“ Sigur Rós eru nú á mála hjá Geffen í Bandaríkjunum en E.M.I. í Bretlandi og ann- ars staðar í heiminum. Upprunalega skrifuðu þeir undir hjá MCA í Bandaríkjunum en það er nú runnið saman við Geffen. Lengi vel voru þeir undir hatti Fat Cat Records í Bret- landi en samningum var rift, ekki vegna óánægju með Fat Cat heldur PIAS, dreifing- arfyrirtækið sem er í samstarfi við Fat Cat. Fyrstu skýru merki þess að Sigur Rós væri farin að vekja verulega athygli erlendis var á tónleikum hennar í Fríkirkjunni sem fram fóru á Airwaveshátíðinni árið 2000. Kirkjan var smekkfull af erlendum blaða- mönnum og útsendurum plötufyrirtækja og í kjölfarið fór í gang tilboðsstríð á milli stóru fyrirtækjanna. „Það voru fimmtán fyrirtæki sem gerðu okkur tilboð,“ segir Georg. „Við sendum út okkar skilmála og þrjú svöruðu jákvætt.“ Rætt var um á þessum tíma að stórfyrir- tækin hefðu verið á höttunum á eftir Sigur Rós til að tryggja sér hljómsveit sem nyti virðingar í hópi tónlistaráhugafólks, frekar en að menn væru að horfa í einhverjar stór- kostlegar sölutölur. Þetta gerði Geffen ein- mitt á sínum tíma, er samningur var gerður við neðanjarðarrokksveitina Sonic Youth sem varð til þess að Nirvana ákváðu einnig að gera samning við Geffen. „Ég held að þetta hafi verið einhvern veg- inn svona í okkar tilfelli, óþarfi að vera að draga eitthvað úr því,“ heldur Georg áfram. „Eftir að við hættum hjá Fat Cat fór svipað ferli í gang og við gerðum þennan samning við E.M.I.“ Kjarri og sloppurinn Nokkuð er nú liðið á viðtalið og allir löngu losnaðir við ryðið. Viðtalið leysist því upp í rólyndis spjall. Þennan dag voru tveir dagar liðnir frá Iron Maiden tónleikunum í Egilshöll og þeir því í fersku minni, bæði hjá blaðamanni og meðlimum sem allir voru á tónleikunum. Þeir félagar virðast sæmilega að sér um Maiden en Georg segist þó aðeins hafa átt eina plötu, The Number of The Beast. Kjartan er sýnu mesti aðdáandinn og hann og blaðamaður rifja upp snilldarlög af síðustu skotheldu plötu sveitarinnar, Seventh Son Of A Sev- enth Son (1988) eins og opnunarlagið „Moon Child“ og „Infinite Dreams“. Allnokkuð teyg- ist úr Maiden-umræðunni og rifjað er upp að Kjartan hafi komið hlaupandi upp á svið rétt áður en Sigur Rós lék á ógleymanlegum tón- leikum í Hróarskeldu árið 2003, íklæddur risastórum Iron Maiden bol sem var meira eins sloppur utan um hann að sögn hinna. „Það var hrikaleg tímasetning í gangi,“ segir Kjartan og dæsir. „Maður rétt náði að klára Maiden áður en við áttum að fara upp á svið.“ Á meðan á viðtalinu stóð var rölt út í reyk- pásu reglulega. Á bílastæðinu utan við hljóð- verið reyndu meðlimir sig í því að halda fót- bolta á milli sín, nokkuð sem þeir sögðu vera orðið að hefð. Og það verður að segjast að tilþrifin komu reglulega á óvart, boltinn gekk stundum á milli fereykisins í drjúgan tíma. Menn fórnuðu sér í boltann af innblásinni ástríðu, með tilheyrandi hrópum og köllum og spyrnt var með hælum og hnjám auk þess sem bringur og skallar komu við sögu. Greinilegt að þessari hefð hefur verið haldið við lengi vel. Það er freistandi að sjá einhver líkindi með þessum leik og list Sigur Rósar. Þarna úti á planinu kristallaðist þessi góði, látlausi andi sem einkennir þessa hljómsveit, hljóm- sveit sem hefur náð lengst allra poppara á alþjóðavísu fyrir utan Björk. Og líkt og hjá henni hefur það verið tónlistin og heilindi þau sem viðhöfð eru í vinnslu hennar sem hafa skilað þeim árangri. Meðlimirnir fjórir virðast allir sem einn leggjast á það að gera sitt besta – með ástríðuna að leiðarljósi inn- an vallar sem utan. ’Við tölum aldrei um það sem við erum að geraokkar á milli. Við erum ekkert að kryfja þetta neitt sérstaklega. Þetta er rosalega skrítið því að blaða- menn eru sífellt að reyna að fá einhvern botn í það sem maður er að gera og vilja fá svör. Og það er erfitt að gefa einhver ákveðin svör.‘ arnart@mbl.is Morgunblaðið/Arnar Eggert Thoroddsen. Pípuklúbburinn Geysir, Sundlauginni, 2005: (f.v.) Orri, Georg, Kjartan og Jónsi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.