Morgunblaðið - 19.06.2005, Síða 36
36 SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Í DAG, 19. júní, eru 90 ár liðin
frá því að Danakonungur undirrit-
aði lögin sem veittu íslenskum kon-
um sem orðnar voru 40 ára og eldri
kosningarétt og kjörgengi til Al-
þingis. Þegar fréttin barst til lands-
ins greip um sig mikill fögnuður
meðal kvenna, gamalt baráttumál
var í höfn. „Konur
viðurkenndar löglegir
borgarar þjóðfélags-
ins“, skrifaði Bríet
Bjarnhéðinsdóttir í
Kvennablaðið. Hún
sagði reyndar líka að
Íslendingar yrðu að
athlægi um allan heim
vegna þessa aldurs-
ákvæðis en samt var
rétturinn fenginn og
það var aðalatriðið.
Fyrir okkur sem
höfum alist upp við
kosningarétt og jafn-
rétti að lögum (þótt reyndar halli
mjög á konur í okkar samfélagi) er
erfitt að skilja hvernig það var að
mega ekki kjósa, geta ekki gengið í
menntaskóla, geta ekki sinnt
ákveðnum störfum, hafa ekki yfir-
ráðarétt yfir börnunum og vera í
raun eign eiginmannsins. Það eru
til margar frásagnir kvenna um
vonbrigði og sárindi vegna þeirra
takmarkana sem þær máttu sæta.
Baráttukonurnar, formæður okkar,
ruddu hindrunum úr vegi einni af
annarri með mikilli baráttu og
þrautseigju. Þær áttu alltaf hóp
stuðningsmanna í röðum karla, þar
á meðal presta og þingmanna sem
beittu sér í þágu kvenréttinda.
Hugurinn í kvenréttindakonum
var svo mikill í kjölfar fréttanna 19.
júní 1915 að þær ákváðu annars
vegar að efna til hátíðarhalda 7.
júlí er þing kom saman, hins vegar
að stofna sjóð og hefja
söfnun fjár fyrir Land-
spítala. Þær vildu
reisa kosningarétt-
inum minnismerki sem
þjónaði allri þjóðinni,
einkum þeim sem
sjúkir voru. Í lok
þessa árs verða liðin
75 ár frá því að Land-
spítalinn tók til starfa
og mætti svo sannar-
lega minnast þess á
veglegan hátt hve
mikinn hlut konur áttu
í stofnun hans.
Í tilefni af 90 ára afmælinu efna
fjölmörg kvennasamtök til bar-
áttuhátíðar á Þingvöllum 19. júní
undir yfirskriftinni „Skundum á
Þingvöll“. Þar með er vísað til
Þingvallafundanna á síðari hluta 19.
aldar sem haldnir voru til að
skerpa sjálfstæðisbaráttuna og skil-
greina kröfur Íslendinga á hendur
Dönum. Kvennasamtökin ætla að
leggja kröfugerð undir fundinn í
anda samþykkta Sameinuðu þjóð-
anna þar sem fjallað verður um
þau mál sem eru okkur efst í huga.
Það á ekki bara að minnast for-
mæðranna og baráttu þeirra heldur
að nýta þetta tækifæri til að skil-
greina hvað brýnast er að gera nú
til að jafna stöðu kynjanna, þar
með talið að útrýma launamisrétt-
inu, kveða kynbundið ofbeldi í kút-
inn, auka áhrif og völd kvenna á
öllum sviðum þar sem hallar á þær
og gera samfélag okkar fjöl-
skylduvænna í allra þágu um leið
og við horfum út í heim.
Allir eru velkomnir á baráttuhá-
tíðina sem hefst kl. 13.00 með
göngu gegnum Almannagjá við
lúðrablástur og söng en síðan verð-
ur dagskrá á Efrivöllum. Rútuferð-
ir verða úr bænum og eru allir
hvattir til að taka sér far með
þeim. Á laugardag kl. 11.00 verður
minningarstund í Hólavalla-
kirkjugarði þar sem blóm verða
lögð á leiði gömlu baráttu-
kvennanna. Áfram stelpur, skund-
um á Þingvöll og treystum vor heit.
Kosningaréttur kvenna 90 ára
Kristín Ástgeirsdóttir skrifar í
tilefni af því að 90 ár eru síðan
konur fengu kosningarétt ’Baráttukonurnar, for-mæður okkar, ruddu
hindrunum úr vegi einni
af annarri með mikilli
baráttu og þrautseigju.‘
Kristín Ástgeirsdóttir
Höfundur er sagnfræðingur.
Á LANDSFUNDI Sjálfstæðis-
flokksins fyrir kosn-
ingar 1999 boðaði for-
maður hans sættir í
fiskveiðideilunni. Fór
hann fögrum orðum um
að ekki mætti gera lítið
úr ósætti þjóðarinnar í
því örlagamáli, enda
hafði margsinnis komið
í ljós í skoðanakönn-
unum, að nær þrír
fjórðu landsmanna
lýstu andstöðu sinni við
ólögin.
Með aðstoð mál-
gagns flokksins og
fleiri fjölmiðla tókst að sannfæra
þorra manna um að bóta og betr-
unar væri að vænta.
Auðvitað varð niðurstaðan einsog
forystumenn Frjálslynda flokksins
höfðu spáð: Að kosningum loknum
varð ekkert úr efndum, en þræla-
lögunum fylgt fram af
sömu óbilgirni og áð-
ur.
Ráðstjórnarmenn
komu sér saman um
svokallað auðlinda-
gjald, en hvísluðu því
að lénsherrunum í
leiðinni að þeir myndu
létta af útveginum
álíka miklu í gjöldum
og því gjaldi næmi –
og meira til, eins og
kom á daginn.
Og áfram var haldið
að afhenda útvöldum
eigur almennings að gjöf.
Í upphafi undirbúnings einkavæð-
ingar bankanna var sú stefna ráð-
stjórnar margítrekuð að sala þeirra
yrði dreifð; að hámarkseign hvers
kaupanda næmi ekki meira en sem
svaraði 3–4% hlut. Í því sambandi
var höfðað til þjóðarsálarinnar, að
hún myndi snúast öndverð við, ef
einn eða fáir aðilar ætluðu að „gína“
yfir þessum mikilvægu fyrirtækjum.
En skyndilega kom annað hljóð í
strokkinn. Ráðstjórnarmenn hófu
umræðu um kjölfestufjárfesta –
jafnvel erlenda – og fór banka-
málaráðherrann þar fremstur í
flokki.
Niðurstaðan: Gamla helminga-
skiptaregla kvótaflokkanna. Vinir
stóra flokksins skyldu fá vænni bit-
ann – Landsbankann – en Sjálf-
tökumenn, skammstafað S-hópur –
hinn.
Þá þótti núverandi aðalritara og
bankamálaráðherranum munurinn
of mikill á bönkunum, enda var
hann jafnaður með því að Lands-
bankinn seldi helmings eigu sína í
VÍS S-hópnum með 5 – fimm millj-
arða – afslætti.
Í lögum um ríkisviðskiptabanka
nr. 86/1985 segir í 21. grein að
bankaráð taki ákvarðanir um „kaup
og sölu hlutabréfa og annarra eign-
arhluta í félögum (stofnunum) sem
bankinn á aðild að“. Helgi Guð-
mundsson var formaður bankaráðs
Landsbankans, þegar „sala“ VÍS-
bréfanna fór fram, og Kjartan
Gunnarsson varaformaður. Það er
óhætt að fullyrða að báðir hljóti að
verða tukthúslimir vegna þessa
máls, þegar þar að kemur – og
kannski fleiri.
Það blasir við, að ráðstjórnin ís-
lenzka hefir fært örfáum útvöldum
lungann úr auðæfum þjóðarinnar –
sjávarauðlindina – að gjöf, og „gína“
þeir nú yfir afganginum, sem þeir
ætla að eignast fjórir eða fimm sam-
an.
Bankarnir hafa allir verið færðir
vildarvinum á silfurfötum.
Og nú, þegar Landsbankamenn
færa sig upp á skaftið og ásælast Ís-
landsbanka, kvakar Lómatjarnar-
álftin og segir að það muni ekki
þóknast þjóðarsálinni að einn eða
örfáir „gíni“ yfir öllu bitastæðu!
Að svo er komið málum getur ís-
lenzka ráðstjórnin þakkað sér – og
sér einni, enda unnið kappsamlega
að þeirri þróun að gera örfáa auð-
jöfra ríkari og láta allan landslýð
annan mæta afgangi.
En skinhelgi og yfirdrepsskapur
ráðstjórnarmanna ríður ekki við
einteyming.
Orð og efndir
Sverrir Hermannsson fjallar
um auðlindir þjóðarinnar ’Það blasir við, að ráð-stjórnin íslenzka hefir
fært örfáum útvöldum
lungann úr auðæfum
þjóðarinnar …‘
Sverrir Hermannsson
Höfundur er fv. form.
Frjálslynda flokksins.
Jón bóndi í Ölfusi veit hvað
hann syngur þegar kemur að
sölu bújarða
Ef þú ert að leita að bújörð
þá ertu í traustum höndum
með Jón þér við hlið
Til þjónustu reiðubúinn
í síma 896 4761
Jón tekur á móti viðskiptavinum Hóls
samkvæmt samkomulagi á Skúlagötu 17.
Franz Jezorski, hdl. og lögg. fasteignasali
Hóll er landsþekkt fyrir fagleg vinnubrögð og úrvalsþjónustu í á annan
áratug. Taktu enga áhættu með þína fasteign. Skiptu við heiðarlega
og ábyrga fasteignasölu sem hefur hagsmuni þína að leiðarljósi.
Einna fremstir í bújörðum
KJÓSARHREPPUR - SUMARHÚS
FRÁBÆRT ÚTSÝNI
Til sölu sumarhús ásamt bátaskýli
í landi Eyja í Kjósarhreppi. Hér er
um að ræða myndarlegt 90 fm hús
sem auðvelt er að nýta allt árið.
Húsið stendur alveg sér og er ekki
í þyrpingu. Mjög áhugaverð stað-
setning með glæsilegu útsýni.
Verðhugmynd 14,5 millj.
Nánari upplýsingar á skrifstofu FM
í síma 550 3000. Sjá einnig fm-
eignir.is. 13825.
Til sýnis í samráði við eigendur
um helgina, sími 893 5508.
Til sýnis og sölu glæsileg og vel skipulögð neðri sérhæð, 4ra
herbergja með sérinngangi, í tvíbýlishúsi í Grafarvogi. Íbúðin er
120,0 fm, en að auki er sérbyggður bílskúr, 26,5 fm. Góðar
innréttingar og gólfefni eru í íbúðinni. Innbyggð uppþvottavél
og ísskápur fylgja. Gengið úr stofu út á timburverönd sem snýr
í suður. Garður í góðri rækt. Hiti er í stéttum við húsið. Bíl-
skúrinn er í dag innréttaður sem lítil íbúð með salerni og
sturtuklefa. Eign sem vert er að skoða.
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14-17
FUNAFOLD 6 - GRAFARVOGI
Lilja, sími 587 3386, tekur á móti gestum í dag á milli
kl. 14 og 17 og á mánudag, milli kl, 18 og 20.
FJÁRFESTING
FASTEIGNASALA ehf.
Sími 562 4250 • Borgartúni 31 • www.fjarfest.is
Hilmar Óskarsson, Guðjón Sigurjónsson,
Rósa Guðmundsdóttir, Benedikt G. Grímsson.
Lögfr.: Pétur Þ. Sigurðsson hrl.
Í nýju 5 hæða lyftuhúsi sem risið er á horni Ægisgjötu og Tryggvagötu í miðbæ Reykavíkur er nú hafin sala á
2ja herbergja íbúðum í stærðum frá 63 fm upp í 91 fm. Stæði í bílageymslu fylgir flestum íbúðum. Afhending
í október til nóvember 2005. Íbúðirnar skilast fullbúnar án gólfefna en þó er búið að flísaleggja baðherbergi.
Sameign skilast fullfrágengin. Sérinngangur í íbúðir af svölum. Sérsvalir eru ýmist í norður með útsýni yfir
Ægisgarð eða vestur. Inngangssvalir snúa í suður eða austur. Ein íbúð á efstu hæð er með 45 fm svölum
meðfram vestur- og suðurhlið íbúðarinnar. Mikið útsýni er úr mörgum íbúðum í húsinu. Verð frá kr. 16,9 milj.
fyrir íbúð án bílskýlis á 1. hæð upp í kr. 32,9 fyrir íbúð á efstu hæð með bílskýli.
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033 - Ægir Breiðfjörð löggiltur fasteignasali
Opið mán.-fim. frá kl. 9–18, fös. frá kl. 9-17
ÆGISGATA - VIÐ HÖFNINA