Morgunblaðið - 19.06.2005, Page 40
40 SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
AUÐLESIÐ EFNI
MIKIÐ var um dýrðir við 17.
júní-hátíða-höldin í Reykjavík
á föstu-daginn. Að venju hóf-
ust hátíða-höldin með sam-
hljómi kirkju-klukkna í Reykja-
vík en að því loknu lagði
Stefán Jón Hafstein, forseti
borgar-stjórnar, blóm-sveig á
leiði Jóns Sigurðssonar.
Hátíðar-dagskrá var síðan
sett á Austur-velli að við-
stöddum Forseta Íslands,
Ólafi Ragnari Grímssyni, Hall-
dór Ásgrímsson flutti ávarp
og Karlakór Reykjavíkur
söng.
Eftir skrúð-göngu í takt við
lúðra-sveitar-þyt hófst gleði-
stund barnanna með
skemmtileg-heitum og tón-
leikum víða um mið-borgina.
Um kvöldið var harm-
onikku-ball í Ráð-húsinu og
tón-leikar fyrir yngri kyn-
slóðina á Arnar-hóli. Allir
fengu því eitt-hvað fyrir sig á
þessum góða degi.
Góður þjóð-hátíðar-dagur
Morgunblaðið/Þorkell
FLORENCE Aubenas, fransk-
ur blaða-maður, kom heim til
sín sl. sunnu-dag, eftir að
hafa verið í haldi mann-
ræningja í Írak í 5 mánuði.
Fjöl-skylda hennar og for-seti
Frakk-lands, Jacques Chirac,
tóku á móti henni. Hún segist
ekki vita af hverju henni var
sleppt, en ræningjarnir báðu
aldrei um peninga.
Aubenas var rænt af 4
mönnum í janúar ásamt
íröskum túlki sínum í
Bagdad, höfuð-borg Írak.
Þau voru geymd bundin í
kjallara og líka var bundið fyrir
augun á þeim. Tíminn var
mjög lengi að líða, þau máttu
hvorki tala né hreyfa sig.
Aubenas var einu sinni yfir-
heyrð um stjórn-mál og beðin
um að ljúga að mynda-tökuvél
að hún yrði tekin af lífi eftir 3
daga, en hún neitaði.
Hún fékk síðan ilm-vatn og
2 hringi í kveðju-gjöf frá
mann-ræningjunum.
Reuters
Florence Aubenas og Jacq-
ues Chirac for-seti Frakk-
lands við heim-komu hennar.
Gíslum sleppt í Írak
RÍKIS-ENDUR-SKOÐUN sendi
frá sér minnis-blað á mánu-
daginn og segist ekki telja
Halldór Ásgrímsson for-
sætis-ráð-herra hafa verið
van-hæfan til að fjalla um
sölu á hlut ríkisins í Bún-
aðar-bankanum til S-hópsins
árið 2002.
Hlutur Halldórs og fjöl-
skyldu hans í Skinney-
Þinganesi hf. hafi verið svo
lítill, að hann hafi átt mjög
lítilla hags-muna að gæta í
þessari stóru sölu. Auk
þess var Halldór í veikinda-
leyfi á þeim tíma sem mikil-
vægasti hluti sölunnar fór
fram.
Halldór segist alltaf hafa
verið viss um hæfi sitt í mál-
inu, en honum hafi sárnað
um-fjöllun um málið.
Ekki eru allir sam-mála
þessu, og mörgum þykir af-
greiðsla málsins furðu-leg.
Morgunblaðið/ÞÖK
Halldór Ásgrímsson.
Halldór ekki van-hæfur
FIMM mót-mæl-endur réðust
inn í ráð-stefnu-sal á Nordica-
hotel á þriðju-daginn og
slettu grænum vökva yfir
gesti á al-þjóð-legri ráð-stefnu
um ál. Vökvinn var lík-lega lit-
uð súr-mjólk þynnt með vatni.
Lög-reglan kom og hand-
tók tvo karl-menn og eina
konu, en mót-mælendurnir
voru 5. Talið er að þau hafi
viljað mót-mæla fram-
kvæmdum Lands-virkjunar,
Bechtel og Alcoa.
Náttúru-verndar-samtökin
Náttúru-vaktin segjast ekki
hafa staðið fyrir þessum mót-
mælum, þau mót-mæli alltaf
frið-samlega.
Talið er að at-vikið geti haft
slæm áhrif á íslenskt ráð-
stefnu-hald.
Mót-mælendur
sletta vökva
MICHAEL Jackson var á
mánu-daginn dæmdur sak-
laus í einu um-talaðasta
dóms-máli Banda-ríkjanna á
seinustu árum. Jackson var
sakaður um að hafa beitt
krabba-meins-sjúkan dreng
kyn-ferðis-legu ofbeldi.
Kvið-dóm-endum fannst
saga drengsins og fjöl-skyldu
hans ekki trú-leg. Flestum
þeirra var illa við móður
drengsins, og trúðu því að
hún væri að reyna að græða
á því að lög-sækja popp-
stjörnuna. Einnig að hún
hefði þjálfað börn sín í að
ljúga. Hún hefur oft áður náð
peningum út úr frægu fólki.
Þótt Jackson sé saklaus af
þessum ákærum, eru ekki
allir vissir um að hann hafi
aldrei mis-notað börn.
Michael Jackson er 46 ára
og á 3 börn. Hann hefur verið
ein stærsta popp-stjarna í
heimi frá því að hann var
barn. En seinustu ár hefur
ferill hans verið heldur á nið-
ur-leið og hegðun hans þótt
æ undar-legri.
Jackson sak-laus
Reuters
Michael Jackson veifar til
stuðn-ings-manna sinna fyrir
utan dóms-húsið.
JÓN Oddur Halldórsson og
Baldur Baldursson unnu til
verð-launa á opna breska
frjáls-íþrótta-mótinu fyrir fatl-
aða um seinustu helgi.
Jón Oddur sigraði í 100 og
200 metra hlaupi. Hann
hljóp 100 metrana á 13,58
sek og 200 metrana á
28,03 sek. Baldur lenti í 2.
sæti í kúlu-varpi Hann varp-
aði kúlunni 10,10 metra og
hafnaði í 4. sæti í 100 metra
hlaupi á 14,09 sekúndum.
Þátt-takan í mótinu er hluti
af undir-búningnum fyrir Evr-
ópu-meistara-mót fatlaðra í
frjálsum íþróttum sem haldið
verður í Finn-landi í ágúst.
Þar mun Jón Oddur verja
titla, því hann sigraði bæði í
100 og 200 metra hlaupi á
Evrópu-meistara-mótinu árið
2003.
Unnu til
verð-launa
ASAFA Powell frá Jamaíku
setti í gær nýtt heims-met í
100 metra hlaupi karla.
Powell, sem er 22 ára gam-
all, hljóp vega-lengdina á
9,77 sekúndum á Grand-Prix
móti á Ólympíu-leik-vang-
inum í Aþenu.
Powell bætti heims-metið
um 1 hundraðasta úr sek-
úndu, en Tim Mont-gomery
frá Banda-ríkjunum hljóp
100 metrana á 9,78 sek-
úndum í París fyrir 3 árum.
„Ég vissi að ég gæti sleg-
ið heims-metið og er yfir mig
ánægður með að hafa tekist
það,“ sagði Powell sem ætl-
ar að gera enn betur á árinu.
Powell er aðeins 4. hlaup-
arinn utan Banda-ríkjanna
frá árinu 1912 sem nær
þessu eftir-sótta heims--
meti.
Powell setur
heims-met
Destiny’s Child hættir
Stelpurnar í Destiny’s Child
segjast ætla að hætta í
haust, og verða seinustu tón-
leikar tríó-sins í Kanada í
september. Stelpurnar ætla
að ein-beita sér að sóló-verk-
efnum. Destiny’s Child hefur
selt yfir 50 millj-ónir geisla-
diska frá árinu1998, og unn-
ið mörg verð-laun, m.a tvenn
Grammy-verð-laun.
Iceland Airwaves í október
Tón-listar-hátíðin Ice-land
Air-waves verður haldin í 7.
sinn helgina 19.-23. október.
Um 3500-4000 miðar verða í
boði á tón-leika sem haldnir
verða á 6 tón-leika-stöðum.
Margar áhuga-verðar er-
lendar hljóm-sveitir hafa
stað-fest komu sína, rúm-
lega 20 íslenskar hljóm-
sveitir einnig og enn á eftir að
bætast í hópinn. Miða-sala
hefst í haust.
Guðbjörg til Hauka
Lands-liðs-konan Guðbjörg
Guðmannsdóttir hefur skrif-
að undir eins árs samning við
Íslands-meistara Hauka í
hand-knatt-leik kvenna.
Guðbjörg hefur seinustu 2
ár leikið með ÍBV og varð Ís-
lands-, bikar-, og deildar-
meistari með liðinu í fyrra.
Guðbjörg, sem leikur í vinstra
horninu, er einn besti al-hliða
leik-maður deildar-innar.
Stutt