Morgunblaðið - 26.06.2005, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ 2005 57
BATMAN BEGINS
kl. 2 - 3.20 - 4 - 5 - 6.20 - 7 - 8 - 9.20 - 10 - 10.50
BATMAN BEGINS VIP kl. 2 - 5 - 8 - 10.50
THE WEDDING DATE kl. 6
A LOT LIKE LOVE kl. 3.45 - 6 - 8.15 - 10.30
HITCHHIKER´S GUIDE... kl. 8 - 10.10
SVAMPUR SVEINSSON m/ísl.tali. kl. 2 - 4
ÁLFABAKKI
BATMAN BEGINS
kl. 12 - 2.10 - 3.30 - 5.10 - 6.30 - 8.10 - 9.30 - 11 B.i. 12 ára.
HOUSE OF WAX kl. 10.30 B.i. 16 ára.
THE WEDDING DATE kl. 8
THE ICE PRINCESS kl. 12 - 6
SVAMPUR SVEINSSON kl. 12 - 2 - 4 m/ísl.tali.
KRINGLAN
BATMAN BEGINS
kl. 2 - 5 - 8 - 10.40
A LOT LIKE LOVE kl. 2 - 4 - 8
MR. & MRS. SMITH kl. 5.50 - 10
BATMAN BEGINS
kl. 2 - 5 - 8 - 10.30
A LOT LIKE LOVE kl. 6
CRASH kl. 8 - 10
SVAMPUR SVEINSSON kl. 2 - 6
AKUREYRI KEFLAVÍK
DV MBL
Debra Messing Dermot Mulroney
FURÐULEGASTA ÆVINTÝRI ALHEIMSINS HEFST
ÞEGAR JÖRÐIN ENDAR
S.K. DV.
ELISHA
CUTHBERT
CHAD MICHAEL
MURRAY
BRIAN
VAN HOLT
PARIS
HILTON
JARED
PADALECKI
Capone XFM
BATMAN EINS OG ÞÚ HEFUR ALDREI SÉÐ HANN ÁÐUR !
Powersýning kl. 11
í Sambíóunum Kringlunni
frumsýnd 29.júní
SAMBÍÓIN
Álfabakka
Keflavík og
HÁSKÓLABÍÓ
.j í
l
l í
HÁDEGISBÍÓ ALLAR MYNDIR KL. 12 SUNNUDAG Í SAMBÍÓNUM KRINGLUNNI
Engin hljómsveit er meiramærð á Bretlandseyjum umþessar mundir en kvart-ettinn Magic Numbers sem
sendi frá sér sína fyrstu breiðskífu í
liðinni viku. Tónlistin sem sveitin
flytur þykir venju fremur skemmti-
leg, grípandi dægilegt popp, auk-
inheldur sem það virðist heilla
margan kaldhæðinn poppskríbent
hvað liðsmenn sveitarinnar, tvenn
systkini, eru „venjuleg“, bara eins
og fólk er flest.
Blaðamenn breskir gera mikið úr
því hvað þau séu úfin sem skipa
sveitina, stúlkurnar illa- eða ómál-
aðar, piltarnir hálfgerðir skeggjúðar
– gott dæmi um það sjaldséða fyr-
irbæri núorðið þar sem hljómsveit-
armeðlimir eru valdir eftir útliti og
síðan gerðir að tónlistarmönnum.
Þau haga sér líka ópoppstjörnulega,
eru feimin við fjölmiðla og ófram-
færin og láta jafna sitthvað vaða sem
sjóaðir viðtalshundar passa sig á að
segja aldrei – eins og til að mynda
það að vera einlægur.
Alin upp á Trinidad
Systkinin Romeo og Michele
Stodart ólust upp á Trinidad þar
sem móðir þeirra var óperusöng-
kona og víst með eigin sjónvarpsþátt
um hríð. Þau systkinin komust því í
tæri við tónlist á heimilinu, en
Romeo byrjaði líka snemma að spila
því hann fékk það hlutverk að spila á
píanóið fyrir ömmu sína sem var
orðin of gömul til að spila sjálf.
Það fór allt í uppnám á Trinidad
er íslamistar í her landsins reyndu
stjórnarbyltingu fyrir áratug og fjöl-
skyldan fluttist úr landi, fyrst til
New York og síðan til Bretlands, til
Hanwell í Vestur-Lundúnum. Rétt
handan við hornið þar sem Stodart-
systkinin settust að bjuggu önnur
systkini, Angela og Sean Gannon, og
þeim varð vel til vina.
Sean Gannon var þá að spila í
hljómsveit og þegar Romeo fór að
vera með Angelu bar það oft við að
hann sá þá sveit spila á tónleikum.
Sean tók því vel þegar Romeo stakk
upp á að þeir myndu stofna hljóm-
sveit saman, enda Romeo Stodart
hæfileikaríkur tónlistarmaður, ekki
bara með fína söngrödd, heldur líka
flinkur gítarleikari og framúrskar-
andi lagasmiður. Þeir byrjuðu því að
spila saman tveir og dunduðu sér við
það í nokkurn tíma, en báðu svo
systur sínar um að slást í hópinn fyr-
ir tveimur árum. Romeo leikur á gít-
ar og syngur, Michele systir hans á
bassa og raddar með, Angela Gann-
on syngur og leikur á melodíku og
slagverk og Sean leikur á trommur.
Takmörkuð útgáfa
Það fyrsta sem heyrðist til sveit-
arinnar var svo smáskífan Hymn for
Her sem kom út síðasta haust og
vakti gríðarlega athygli, öðrum
þræði fyrir það að svo fáir fengu að
heyra plötuna – upplagið var mjög
takmarkað, aðeins 500 eintök.
Þegar platan kom út var sveitin
aftur á móti búin að spila á tón-
leikum oft á viku í tvö ár, sumpart til
að móta sér stíl og stefnu og sum-
part vegna þess að fyrirtækjum leist
ekki á að semja við sveitina, að því
þau segja: þeim leist vel á tónlistina
en þegar þeir sáu hljómsveitar-
meðlimi hættu þau við.
Næst þegar hljómsveitin komst á
plast á var það fyrir aðeins fleiri
eyru, því hún treður upp í laginu
Close Your Eyes á síðustu skífu
Chemical Brothers, Push the Butt-
on, sem kom út í lok janúar sl.
Létt en þó snúin í senn
Hvað með músíkina, er nema von
að einhverjir spyrji, því eins og
verða vill í breskri tónlistarpressu
hverfur hún í skuggann af hjali um
útlit og annað sem engu máli skiptir
þegar upp er staðið. Tónlistin er
gítarpopp með himneskum röddum,
létt en þó snúin í senn, ekki alltaf
farin auðveldasta leiðin, tónlist sem
allir geta notið, ýmist fyrir grípandi
laglínur og fallegar eða fyrir
skemmtilega útúrdúra í útsetn-
ingum, lipurlega samda texta eða
fínlegt gítarspil. Það segir kannski
sitt að er Brian Wilson fékk að heyra
plötuna bauð hann hljómsveitinni að
hita upp á seinni hluta Bretlands-
ferðar sinnar sem hófst sl. fimmtu-
dag.
Annað sterkt einkenni tónlistar-
innar er röddunin því það eru þrír
söngvarar í sveitinni, sem setur
óneitanlega skemmtilegan blæ á það
sem fram fer. Þau sækja líka áhrif í
tónlist þar sem röddin er í aðal-
hlutverki, kántrýtónlist og soul, sem
skilar sér í útsetningunum. Þær eru
annars unnar í sameiningu, Romeo
kemur með grunn að lagi á æfingu
og síðan leggjast þau á eitt að koma
því á koppinn.
Það er sérkennileg tilviljun að
tvenn systkini séu í hljómsveit og
þau segja gjarnan frá því í viðtölum
að samskipti þeirra séu ólík því sem
þau þekkja til í öðrum sveitum – þau
eru hreinskilnari sín á milli og
rifrildin verða oft snörp og hávær,
undir liggja áratuga deilur eins og
vill vera hjá systkinum, en hljóðna
líka fljótt og skila enga beiskju eftir
sig. Það er svo til að ýta enn undir
merkilegar tilviljanir að fyrsta tón-
leikaferð sem sveitin fór var sem
upphitun fyrir þá Webb-bræður,
Justin, Christiaan og James Webb,
syni kántríhetjunnar Jimmy Webb
(bendi forvitnum á hinar frábæru
plötur þeirra Beyond the Biosphere
og Maroon).
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Gítarpopp og
himneskar raddir
Breskir láta mikið með hljómsveitina The Magic Numbers,
sem sendi frá sér fyrstu breiðskífuna í liðinni viku.
Lögreglumaður á eftirlaunum semleiddi rannsókn á dauða rapp-
arans Notorius B.I.G. sagði á dög-
unum að útgef-
andinn alræmdi
Marion „Suge“
Knight væri lík-
lega sekur um
morðið á rapp-
aranum. Margt
hefur verið á
huldu um hver
myrti B.I.G. árið
1997 og hefur mál hans aldrei verið
til lykta leitt. Lengi var talið að illa
þokkaður lögreglumaður frá Los
Angeles sem nú situr af sér 14 ára
fangelsisdóm fyrir aðild að banka-
ráni hefði myrt rapparann.
Morðið á Notorious B.I.G. hefur
löngum verið sveipað dulúð og hafa
verið skrifaðar greinar, bækur og
gerðar heimildamyndir um efnið. Er
dauði hans tengdur við morð á rapp-
aranum Tupac Shakur, sem var á
mála hjá útgáfufyrirtækinu „Suge“
Knight og var myrtur ári áður. Er
talið að um hefndarmorð hafi verið
að ræða.
Enginn hefur verið dæmdur fyrir
morðið á Notorius B.I.G. og mun
málinu verða haldið opnu þar til við-
unandi sannanir fást í því, að því er
fram kemur í dagblaðinu L.A. Times.
Leikaraparið Tom Cruise og Katie Holmes er sagt hyggja á
barneignir. Cruise á tvö börn með
Nicole Kidman,
fyrrverandi eig-
inkonu sinni.
Cruise segist von-
ast til þess að
verða faðir en
hann sagði í sam-
tali við bandarískt
tímarit: „Við yrð-
um að ræða það
við fjölskyldur okkar.“ Jafnframt
sagði Cruise að hann vildi kvænast
unnustu sinni „eins fljótt og hægt
er.“
Fólk folk@mbl.is